Pressan - 22.12.1988, Blaðsíða 32
tUP m leið og nýja árið gengur í
garð munu þeir félagarnir Jón
Baldvin Hannibalsson og Ólafnr
Ragnar Grímsson taka höndum
saman og hefja funda(her)ferð um
landið. Ekki mun vera búið að
ákveða „mottó“ fyrir ferðina,
samanber Hverjir eiga ísland?, en
fyrsti fundurinn mun að öllum lík-
indum verða þann 2. janúar í Hlé-
garði í Mosfellsbæ...
rekari sameiningar er að vænta
í auglýsingaheiminum um áramót-
in, en eins og kunnugt er hal'a
nokkrar auglýsingastofur samein-
að krafta sína að undanförnu. Nú
heyrum við að Gylmir lil'. auglýs-
ingastofa, Kynningarþjónustan sf.
og auglýsingastofan • Strik hafi
ákveðið að sameina krafta sína.
Nýja stofan mun bera nafnið Sam-
einaóa auglýsingastofan. Auk aug-
Ijósrar hagræðingar|inun tilgangur-
inn með sameiningunni vera að ná
saman áeinn stað frumleika, öflug-
um almenningstengslum og mikilli
markaðsþekkingu. Forstjóri stof-
unnar verður Magnús Bjarnfreðs-
son og stjórnarformaður Ottó
Ólafsson. Meðstjórnandi verður
Jón lngvar Pálsson lögmaður...
r
■ eikna má með að Sameinaða
auglýsingastofan verði sú fjórða
stærsta á markaðnum, ineð um það
bil 16 manns á launaskrá og á ann-
að hundrað milljónir króna í veltu á
ári. Meðal textagerðarmanna á
stofunni verða Guðrún Backman
frá Gylmi og Sigurður G. Tómas-
son frá Kynningarþjónustunni.
Markaðsráðgjafi þar á bæ verður
Bjarni Grímsson...
Í^Pokkuð nýstárlegt fjölmiðla-
„stríð” hefur staðið i desember og
er það jólasveinninn sjálfur sem er
helsta bitbein blaðanna. Þetta eru
stríðandi fylkingar hins hefð-
bundna feita káta jólasveins í rauðu
fötunum að amerískri fyrirmynd og
hins þjóðlega hrekkjótta og mó-
rauða jólasveins í sauðskinnsskón-
um, en þeir birtast til skiptis á síð-
um blaðanna og á sjónvarpsskerm-
inum. íslendingar hafa alltaf verið
menn mikilla öfga, og þrátt fyrir að
íslensk æska þekki vart annað en
hinn „eina sanna” engilsaxneska
jólasvein höfum við alltaf haldið
fast í það að þeir séu 13 talsins og að
hver hafi sitt nafn, þrátt fyrir að út-
lit þeirra sé komið f'rá öðrum þjóð-
um. Blöðin hafa alla tíð birt myndir
af sællegum Santa-Kláusi til að
minna á hversu langt sé til jóla, en
nú hefur Morgunblaðið hinsvegar
skorið upp herör gegn „þeim út-
lensku” og dag hvern má líta heldur
óhrjálegt manntetur sem á að heita
íslenskur jólasveinn á síðum
Mogga. Tíminn heldur sig við hinn
hefðbundna rauða og Dagblaðið
er beggja blands; tekur sitt litið af
hverju og sullar því saman. Það
verður því forvitnilegt að vita hvor
jólasveinninn verður ofan á í vitund
barnanna þessi jólin...
á er skipafélagið Víkur hf.
(Víkurskip) horfið af yfirborði
jarðar, hefur misst skipin sín þrjú á
uppboði og um 50 starfsmenn þessa
fyrirtækis Finnboga Kjeld farnir að
vinna annars staðar. Þrennt mun
einkum hafa orðið Víkum að falli,
mikið verðfall skipanna, mikill
launakostnaður og í þriðja lagi inn-
reið Hafnarbakka hf., sem áður hét
Eimsalt, á saltinnflutningsmarkað-
inn. Þetta dótturfyrirtæki Eim-
skipafélagsins hélt inn á þennan
markað fyrir þremur árum og er
mál manna að það hafi undirboðið
svo að Víkur hlytu að verða undir
fyrr eða síðar. Víkur létu systurfyr-
irtæki sitt Saltsöluna bjóða í skipin
sín þrjú, Eldvik, Hvalvík og Kefla-
vík, og var það hæstbjóðandi, en
gat síðan ekki staðið við tilboð sitt.
Fyrrnefndu skipin tvö eru því orðin
eign Landsbankans, en eigandi
Keflavíkur er nú enginn annar en
Eimskipafélagið sjálft. Veldi Eim-
skipafélagsins heldur því áfram að
vaxa hröðum skrefum bæði í flutn-
ingum og á öðrum sviðum. Á þeim
bæ ráða menn því sem þeir vilja í
Flugleiðum. Fyrir utan Víkur hefur
annað skipaflutningsfyrirtæki ný-
lega orðið undir, Sjóleiðir, sem
voru í beinni samkeppni við risann.
Þar áður losnaði Eimskip svo auð-
vitað við stóran samkeppnisaðila,
Hafskip. Nú heldur ekkert aftur af
Eimskip á þessu sviði nema skipa-
deild SÍS. Eimskipafélagsmenn
gætu svo sem af leikaraskap bent á
Nesskip-ísskip sem samkeppnis-
aðila, en það fyrirtæki er að mestu
í eigu Benedikts Sveinssonar, Hall-
dórs H. Jónssonar og Engeyjarætt-
arinnar, sem hvort sem er ráða
miklu ef ekki mestu í Eimskipafé-
laginu, en Benedikt er stjórnarfor-
maður beggja fyrirtækja. Næstu
áfangar á leið Eimskipafélagsins
eru væntanlega að koma böndum á
Arnarflug og fá pólitíkusana til að
selja Ríkisskip...
að vakti að vonum athygli
þegar Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra lét fulltrúa okkar
hjá Sameinuðu þjóðunum sitja hjá
í atkvæðagreiðslum um Palestínu,
frystingu kjarnorkuvopna og
stöðvun kjarnorkutilraunaspreng-
inga. Af svörum ráðherrans við fyr-
irspurn Guðrúnar Agnarsdóttur er
hins vegar ljóst að ekki er allt sem
sýnist í þessum atkvæðagreiðslum.
Á undanförnum 10 árum hefur ís-
land þannig greitt atkvæði gegn til-
lögum um hluti eins og bann við
beitingu kjarnavoþna, ráðstefnu
um peninga- og fjármál, refsiað-
gerðir gegn S-Afríku, bann við
sýklavopnum, fordæmingu atóm-
styrjaldar, matvæladreifingu til
Palestínuflóttamanna, öryggi
kjarnavopnalausra þjóða og endur-
bætur á gjaldeyriskerfi heimsins...
FLUGLEIÐIR