Pressan - 11.05.1989, Side 2

Pressan - 11.05.1989, Side 2
e 880r iam n ■i.'gcDulmmi-l 2 Fimmtudagur 11. maí 1989 velkomin i heiminn 1. Þessi Ijóshærði hnokki kom i heiminn 29. april siðastliðinn. Hann er sonur þeirra Margrétar Árnadóttur og Steinars Sigur- geirssonar. Þegar hann fæddist vó hann 15 merkur og var 52 sm langur. Hann er jafnframt frum- burður Margrétar og Steinars. 2. Rósa Marta Guðnadóttirog Jón Þór Guðmundsson eru foreidrar þessa myndarlega pilts. Hann fæddist 3. maí siðastliðinn og vó þá 14 merkur og var 51 sm langur. Heima biða hans tvö systkini sem munu örugglega taka vel á móti litla bróður. Gestir Svitaballsins fylgjast með Sykurmolunum á sviði hlöðunnar í Efstalandi: Þótt flestir gestanna væru frá Reykjavík slæddust nokkrir Selfyssingar með sem voru hálfundrandi á háttalagi nætur- drottninga og -kónga höfuðstaðarins. Svitaball i Ölfusinu . . . og þakið lyftist á hlöðunni! Skemmtanamenning íslands tekur stöðugt á sig nýjar myndir. Síðastliðið miðvikudags- kvöld var Ölfusið brennipunktur næturlífsins þegar fjölskrúðugur hópur Reykvíkinga gerði sér ferð úr bænum til að upplifa Svitaball. Það voru félagsskapurinn Postular pakkhússins og Smekkieysa sm. hf. sem stóðu að þessari óvenjulegu næturskemmtun á bænum Efsta- landi undir Ingólfsfjalli. Meðal skemmtiatriða í nýuppgerðri hlöðu bæjarins var hljóðfæra- sláttur sem Sykurmolarnir og The Jupiters önnuðust. Húsfyllir gesta virtist kunna vel að meta þessa tilrauna- kenndu nýjung og dansaði eft- ir hljómfalli diskóteksins fram undir morgun. Áhöld eru um hvort tókst að skapa sannkall- aðan næturklúbb þetta kvöld, en nýjustu fregnir herma að fleiri slíkra næturstunda sé að vænta á næstu vikum, víðs vegar um nærsveitir Reykja- víkur. Utfarartónleikar Sykurmolanna voru haldnir þetta kvöld i Ölfusinu: í siðasta skiptið á árinu sem sú sveit leikur fyrir íslendinga. Gossjálfsalar og fáklæddar álfadrottningar EINAR OLASON LJÓSMYNDÁRI PRESSU ir*? Grímuball Stöðvar ” 2 Það er oft sagt aó þegar sól fer að hækka á lofti og túnin að grænka þá léttist lund manns- ins og ýmsar annarlegar hvatir sem hafa legið í dvala yfir vetrar- tímann leysast úr læðingi. Fólk vill breyta gervi sínu með bættu tíðarfari og jafnvel fækka fötum eilítið. Starfsmenn Stöðvar 2 og ís- lenska myndversins tóku upp hætti sumarsins síðastliðið laugardagskvöld þegar fyrsta sumarblót ársins var haldið í Átthagasal Hótels Sögu. Grímu- ball var yfirskrift kvöldsins og fengu þarýmsir gott tækifæri til að iðka bæði skrautleg ham- skipti og losna við hefðbundió háttalag vinnustaóarins. Það er mál manna að veislur sem haldnar eru á vegum Stöðvar 2 séu hinar fjörugustu sem um getur. Af þessum myndum aó dæmavarþettagrímuball engin undantekning. Það þarf ekki að kappklæða sig á vorkvöldum. Það vissi Marianna Friðjónsdóttir enda fékk hún við- urkenningu fyrir aö mæta i „skjól- minnsta búningnum“. Sigmundur Ernir Rúnarsson frétta- maður er ekki farinn að sjá bleika fila, en í fangi hans situr hins veg- ar bleik kanina. Sú sem ber kan- inubúninginn heitir Ólöf Björg Bragadóttir. ÞORSTEINN H'ÖG'K GUNNARSSON Ómari Ragnarssyni þótti takast vel upp í hlutverki Alberts Guðmundssonar. Hann hlær hér hressi- lega við hlið Guðrúnar Snæbjörnsdóttur stjórn- unarritara. Kynþokkafyllsti gesturinn var val- inn Þórarinn Stefánsson sem breytti um gervi þetta kvöld og kall- aöi sig Þóru Stefánsdóttur. Með honum er Jón Sigurðsson, fjár- málastjóri Stöðvarinnar. Sheikinn af Stöð 2, Goði Sveinsson dagskrárstjóri, læt- ur sér vel lynda að vera umvafinn kvenfólki. Þessar eru að vísu ekki lokaðar í kvennabúri en þær heita Ragnhild- ur Ragnarsdóttir, Anna Kristín Úlfarsdóttir og Hafdís Laxdal. Frumlegasta búninginn þetta kvöldið bar Börkur Bragason. Við tökum undir þetta með frumlegheit- in ...

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.