Pressan - 11.05.1989, Side 3

Pressan - 11.05.1989, Side 3
Fimmtudagur 11. maí 1989 3 PRESSU MOJUVR [ AJ I síðustu viku greindi PRESSAN frá því að mikillar óánægju gætti meðal fyrrverandi starfsmanna Stjörnunnar, þeirra Jörundar Guð- mundssonar og Bjarna Dags Jónssonar, en báðir telja þeir samn- inga hafa verið brotna þegar Stjarn- an og Bylgjan voru sameinaðar. Jörundur ku reyndar vera kominn með málið í lögfræðing. Nú hefur einn fyrrverandi starfsmaður Bylgj- unnar bæst í þennan óánægjuhóp, Steingrímur Olafsson. Steingrímur var áður bæði verkstjóri á frétta- stofu Bylgjunnar og umsjónarmað- ur þáttarins Reykjavík síðdegis. Hann hætti með þann þátt um miðjan apríl og fluttist yfir á frétta- stofuna. Eftir þvi sem PRESSAN fregnar veiktist Steingrímur og var rúmliggjandi og mætti því ekki til vinnu. Forráðamenn íslenska út- varpsfélagsins hf., eigendur út- varpsstöðvanna, voru hinsvegar ekki á því að greiða Steingrimi laun fyrir aprílmánuð og sögðu hann hafa stungið af úr vinnunni þrátt fyrir að hann framvísaði fullgildu læknisvottorði og starfsfélagar staðfestu að hann hefði tilkynnt veikindi. Steingrímur hefur höfðað mál til að ná launum sínum út úr fyrirtækinu. Sameining þessara fyrirtækja er greinilega ekkert spaug fyrir starfsmennina, því í grein PRESSUNNAR í síðustu viku kom t.d. fram að mörgum dag- skrárgerðarmönnum var boðið að taka á sig meiri vinnu en áður fyrir lægra kaup. Þ __ að kostar sitt að taka þátt í Fegurðarsamkeppni íslands. Stúlk- urnar, eða öllu heldur foreldrar þeirra, leggja út í þó nokkurn kostnað vegna fatakaupa. Síður kvöldkjóll kostar til dæmis ekki undir 15 þúsund krónum. í ofaná- lag verða foreldrar stúlknanna að borga sig inn á sýninguna og kostar miðinn 5.500 krónur. ^^Vestir á Fegurðarsamkeppn- inn^ru í blaðaauglýsingum hvattir til að skarta sínu fegursta. Slíkt hið sama mun starfsfólkið víst gera og hefur ekkert verið til sparað að gera kvöldið sem glæsilegast. Meðal þess sem ráðist var í var að sérhanna kvöldkjóla á fjórar stúlkur sem gegna því hlutverki að taka á móti gestunum. Þær verða í svörtum pallíettukjólum sem voru hannaðir og saumaðir af Maríu Lovísu Ragn- arsdóttur fatahönnuði... úristar sem sækja ísland heim með Norrænu á vegum þýskra ferðaskrifstofa hafa heimild til að flytja með sér tíu kíló af matvælum og í reynd hafa ferðaskrifstofurnar nýtt sér hana með því að flytja sjálf- ar inn þessi matvæli í nafni ferða- mannanna og selja þau svo hinum sömu þegar til íslands er komið, án þess þó að greiða nokkur gjöld af veitingasölunni. Nú hefur verið lagt til við yfirvöld að sama regla verði tekin upp hér og gildir í Noregi, þ.e. að ferðafólk verði að flytja matinn með sér sjálft ef það vill nýta sér þessa heimild. íslenskir ferðaskrif- stofumenn hafa margsinnis mót- mælt þessari misnotkun þýskra ferðaskrifstofa... L ■ Hin sameinaða fréttastofa Bylgjunnar og Stjörnunnar missir spón úr aski sínum innan tíðar því Arni Magnússon fréttamaður hefur sagt þar upp störfum og hyggst reyna fyrir sér á nýjum vettvangi frá og með næstu mánaðamótum... u JÖFUR HF NÝBÝLAVEGI 2 • SÍMI 42600 Viö bjóðum þessa viku SKODA 120 L. árg. 1989. Sívinsæll og þrautreyndur við íslenskar aðstæður. Nú er rétta tækifærið að gera góð bílakaup fyrir sumarfríið. Lægsta verð á nýjum bíl í áraraðir. SKODA 120 L. 4 dyra, 4 gíra, 1174 cc, 52 DIN HÖ. Verð áður stgr. kr. 306.400.- VOR-verð__________________________stgr. kr. 276.400,- VORafsláttur 30.000.- VORgreiðslukjör: 25% útborgun, eftirstöðvar á 18 mán. ATHUGIÐ! ADEINS ÞESSA VIKU. Allir bílar á ▼•RSÖLV eru af árgerð 1989. Við erum komnir í ’ff skap og bjóðum upp á nýj- ung í bílaviðskiptum á íslandi, nýjung sem við köll- um THSiéllí Undirtektir við sölunni hafa verið frábærar og greinilegt að fólk kann vel að meta afsláttinn og V# greiðslukjörin. Við tökum allar tegundir eldri bíla í skiptum en Skoda er sérstaklega velkominn í skiptum og þá getum við lán- að allan mismuninn í allt að átján mánuði. Líttu við og þú sannfærist! NÝJUNG í BÍIAVIÐSKIPTUM!

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.