Pressan - 11.05.1989, Síða 28

Pressan - 11.05.1989, Síða 28
 o nn hefur enginn verið ráðinn til að gegna stöðu biaöafulltrúa ríkisstjórnarinnar, en sem kunnugt er Iét Magnús Torfi Ólafsson af starfinu fyrir nokkru. Áður höfum við greint frá því að Arnþrúður Karlsdóttir, fyrrv. fréttamaður, hafi verið orðuð i starfið. Nú hafa þrjú nöfn bœst við yfir þá sem taldir eru að komi til greina en það eru: Haukur Ingibergsson, fram- kvæmdastjóri Bifreiðaskoðunar ís- lands og góður og gegn framsókn- armaður, Ólína Þorvarðardóttir, fyrrv. fréttamaður, og Herdís Þor- geirsdóttir, ritstjóri Heimsmynd- ar... Hfileira um blaðafulltrúa- starf ríkisstjórnarinnar. Stcingrím- ur Hcrmannsson forsætisráðherra er sagður hafa áhuga á að breyta verksviði blaðafulltrúans og gera það virkara en verið hefur. Þá mun hann einnig hafa lýst áhuga á að breyta starfinu i blaöafulltrúaemb- ætti forsætisráöherra, í svipað form og Jón Baldvin bjó til í fjármála- ráðuneytinu í tíð síðustu ríkis- stjórnar og nefnt var upplýsinga- fulltrúi fjármálaráöuneytisins... v •r ið atkvæðagreiðslu um hús- bréfafrumvarpiö í vikubyrjun fengu sjálfstæöismcnn samþykkta tillögu sína um að fella úr frum- varpinu ákvæði, sem skerða áttu lánsrétt í núverandi húsiueðiskerfi. Fulltrúi ASI í nefndinni, sem samdi húsbréfafrumvarpið, mun hafa lagt mikla áherslu á að þetta ákvæði næði fram að ganga og þess vegna vakti það töluverða athygli að Alex- ander Stefánsson framsóknarþing- maður skyldi greiða atkvæði með þeim, sem vildu fella það úr lögun- um. Hann er nefnilega þekktur að því að leggja ofuráherslu á að engar breytingar séu gerðar á húsnæðis- löggjöfinni nema með samráði við ASl-menn... L ■ inn heimsfrægi kvikmynda- leikari og dálkahöfundur PRESS- UNNAR Omar Sbarif er að öllum líkindum væntanlegur til íslands nú í haust í tengslum við bridgemót Bridgesambandsins. Mótið kalla þeir Alslemmu ’89 og er það fólgið í átta helgarmótum, sem haldin verða vítt og breitt um landið í sum- ar. Sigurvegarar þessara móta ávinna sér rétt til að spila á nokkurs konar úrslitamóti í október, en það er einmitt þá sem hjartaknúsarinn og bridgesjúklingurinn Sharif kem- ur til landsins... æstkomandi sunnudag ganga þau i það heilaga, Jón Óltar Ragnarsson, sjónvarpsstjóri með meiru, og Elfa Gísladóttir, leikkona og innkaupastjóri barnaefnis á Stöö 2. Þau verða gefin saman í Dómkirkjunni, en þaðan liggur leið brúðhjónanna og kirkjugesta í rút- um út fyrir bæinn þar sem haldin verður mikil veisla... HEFUR STAÐGREÐSLU AF LAUNATEKJUM ÞINUM ^Oq. VERÐ SKILAÐ? Hafi launagreiðandi ekki staðið skil á staðgreiðslu sem hann hefur dregið aflaunum kemur full álagning á launamann til innheimtu. Staðgreiðsla launamanns er bráðabirgðagreiðsla tekju- skatts og útsvars og dregst frá við álagningu opinberra gjalda. Ef um vanskil á stað- greiðslu er að ræða af hálfu launagreiðanda koma full álögð opinber gjöld til inn- heimtu, nema leiðrétting hafi farið fram áður. Nú hafa verið send til allra launamanna yfirlit yfir afdregna staðgreiðslu af launatekjum þeirra á árinu 1988. Yfirlitið er byggt á skil- um launagreiðenda á af- dreginni staðgreiðslu launa- manna til innheimtumanna. Ío^/'-?609 7609 £ÝKiRrTn*‘ sj022,'7*09 , 05 5jo2;\7609 5j022i'7609 5j°22i ~?6°9 6JOlí, O0'6£8g. 2t\ 21 21. 63. Mikilvægt er að launa- menn beri yfirlitið saman við launaseðla sína til þess að ganga úrskugga um að réttri staðgreiðslu hafi verið skilað til innheimtumanna. í þeimtilvikumsemum skekkjur er að ræða skal fyrst í stað leita skýringa hjá launagreiðanda. Beri það ekki árangur er mikilvægt að umsókn um leiðréttingu á sérstöku eyðublaði sé komið á framfæri við staðgreiðslu- deild RSK, Skúlagötu 57, 150 Reykjavík sem fyrst til þess að tryggja að greiðslu- staðan verði rétt við álagn- ingu opinberra gjalda nú í sumar. Kynntu þér yfirlit um staðgreiðsluskil. RSK RlKISSKATTSTJÓRI

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.