Pressan - 09.11.1989, Síða 25
Fimmtudagur 9. nóv. 1989
25
spáin
5. nóvember—11. nóvember
(21. murs~20. upril)
Þetta er vikan til aö huga að nýjum verkefn-
um og áhugamálum. Reyndu aö brjótast
undan heföinni og taka djarfar ákvaröanir en
jafnframt yfirvegaðar. Fólk i áhrifastöðum
mun reynast betur en vænst var. Lán til ein-
hverskonar framkvæmda mun ekki veitast
erfitt að fá.
(21. u/iríl—20. rnui)
Þér mun líða mun betur þessa viku en um
langan tíma og öryggiskennd og sjálfsálit
vaxa til muna. Reyndu að horfast í augu við
vandamálin, þú getur ráðið við þau. Þegar
þú ert búin að taka ákvörðun skaltu standa
við hana. Aldrei að víkja.
(21. muí—21. júni)
Viðskilnaður við einhvern innan fjölskyld-
unnar verður þér sár. Reyndu að einbeita
þér að þeim tima þegar þið verðið aftur
saman en ekki að þeim tima sem þið verðið
sundur. Viðskiptin munu ganga áfallalitið en
samt er hætta á að reynt verði að blekkja
þig. Skrifaðu ekki undir neinskonar samning
og ekki kaupa neitt af sölumönnum sem
ganga á milli húsa.
(22. júni—22 júli)
Eitthvað óvænt kemur upp á í tilfinningalif-
inu og liklegast gerirðu þér ekki alveg grein
fyrir hvert þú átt að snúa þér til að leysa úr
málinu. Þetta á sérstaklega við þá sem eru
einstæðir, þeir sem eru giftir geta rætt málin
opinskátt við maka sina en einstæðingarnir
verða að gæta sin mun betur.
(2.1 júli—22. úgúst)
Það verður ábatasamt í fleiri en einum skiln-
ingi að umgangast vinnufélagana meira en
áður i þessari viku. Þú þarft sennilegast á
hjálp að halda undir helgina með óvænt
verkefni og það er þvi gott að eiga góða að.
Vinsemd og skilningur eru allt sem þarf.
(23. úgúst—23. sept.)
Einbeitnin mun eitthvaö bregðast þér á
næstu dögum. Vertu viss um að grandskoða
allt sem þú sendir frá þér. Ef þú þarft að
svara spurningum eða taka próf gættu þá
vandlega að þvi að lesa spurningar kirfilega
yfir. Hinsvegar gætirðu orðið heppinn og
gert góð og óvænt kaup i verslunarleiðangri
sem kannski var ekki við búist aðfarinn yrði.
(2.1. sepl.—24. okt.)
Þessi vika er einstaklega góð til að setja
lokapunktinn á verkefni sem þú hefur verið
að vinna við. Sérstaklega er þessi vika góð
þeim sem vinna einhverskonar sköpunar-
vinnu eða vinnu þar sem krafist er listrænna
tilþrifa. Þú ert skapandi og hefur efni á að
taka djarfar ákvarðanir. Peningar skipta
minna máli en fólk, hafðu það alltaf i huga.
cÆ
■Uvi (24. okt—22. nóu.)
Peim hugmyndum sem þú setur fram verö-
ur aö öllum líkindum vel tekiö, hvort sem
þaö er heima viö eöa í vinnu. Nú er hiö allra
þokkalegasta tækifæri til aö prófa sig áfram
meö nýja hluti. Ekki efast um eigin hæfni
eöa vandvirkni. Ef vandamál skjóta upp koll-
inum skaltu reyna aö ræöa þau við einhvern
nákominn.
(23. nóv.—2l. des.)
Pað er rómantík í stjörnunum. Hún mun birt-
ast óvænt svo haföu allar klær úti til komast
að því hver þaö er sem mun veita rómantík
inn í líf þitt. SláÖu fólki gullhamra jafnvel þó
svo þú þurfir aö leggja eitthvað á þig til aö
finna eitthvað fallegt að segja. Treystu á aö-
stoö vina þinna til að hjálpa þér áfram veg-
inn.
m
^ (22. des.—20. jan.)
Feröalög ættu aö reynast þér ómaksins v
þessa vikuna, bæöi andlega og veraldle
Fólk frá fjarlægum löndum mun veita
gleöi og vikan er hreint afbragö til aö ví
út viðskiptin. Líklegast mun þér græö
eitthvert fé. Mundu þó eftir aö bókales
veitir ánægju umfram allt annaö. Ekki fó
lestrinum fyrir stundargróða.
(21. junúur—10. febrúur)
Þér mun veitast erfitt að dylja tilfinningar
þinar og skoðanir i þessari viku. Eitthvað
kemur upp á sem veldur því að þér hættir til
að missa stjórn á skapi þínu. Reyndu að
hemja þig, fara vel að fólki, ekki krefjast
neins af þvi heldur biðja það kurteislega um
eitthvað sem þig vanhagar um.
(20. (ebrúur~20 murs)
Draumur sem þig dreymir aðfaranótt laug-
ardags eða sunnudags hefur ríkari merkingu
og sterkari skírskotun til atburða i lífi þínu en
þú gerir þér fulla grein fyrir. Farðu yfir þenn-
an draum i huganum og einbeittu þér að þvi
að skilja hann. Fólk væntir endanlegrar
ákvöröunar frá þér i erfiðu máli.
í framhjáhlaupi
Sigmundur Ernir Rúnarsson
fréttamaður og Ijóðskáld
Vildl verða atvinnumaður í
fófbohfa
— Hvaða persóna hefur haft
mest áhrif á þig?
„Þaðeruforeldrarmínir, Rúnar
og Helga."
— Án hvers gætirðu síst ver-
ið?
„Fólks."
— Hvað finnst þér leiðinleg-
ast?
„Að raka mig."
— En skemmtilegast?
„Þessi kemur þægilega á
óvart. Ætli það sé ekki að upp-
götva sífellt fegurri staði á Is-
landi."
— Hvað fer mest í taugarnar
á þér?
„Dramb og kjaftasögur."
— Manstu eftir einhverri
ákvörðun sem breytti miklu
fyrir þig?
„Þessi er erfið. Ætli það hafi
ekki verið þegar ég ákvað að fara
til Ellerts B. Schram og biðja
hann um starf á Vísi sem ég
fékk."
— Við hvað ertu hræddur?
„Kynþáttafordóma."
— Hvenær hefurðu orðið
glaðastur á ævinni?
„Það eru sem betur fer nokkur
augnablik. Þegar börnin mín
fæddust, þegar bækurnar mínar
komu út og alltaf þegar ég er bú-
inn að koma mér fyrir í nýju hús-
næði."
— Ef þú þyrftir að skipta um
starf, hvað vildirðu helst taka
þér fyrir hendur?
„Ætli ég myndi ekki vilja vera
atvinnumaður í fótbolta."
— Áttu þér draum sem þú
vilt upplýsa?
„Að áhugi fólks á bókmennt-
um verði í samræmi við lestur
þess."
lófalestur
Ekki ber mönnum allskostar sam-
an um merkingu þess að dreyma
lækni Sumir segja að sé maður
heilbrigður boði það veikindi eða
aðra erfiðleika að dreyma lækni.
Aðrir telja það fyrir batnandi
ástandi. En öllum ber saman um að
sjúklingum sé læknisdraumur fyrir
góðu. Alkunnar eru frásagnir um
það þegar sjúklinginn dreymir að
ókunnur læknir vitji hans —
stundum læknar álfafólks eða fram-
liðinna — og vaknar með endurnýj-
að þrek og bjartsýni. Sumir telja
slíka drauma fremur vitranir, en
hvort heldur er, þá eru þeir alþekkt
fyrirbrigði.
Það var ekki jafnfjölmennt í heil-
brigðisstéttunum áður fyrr eins og
nú og hlutverk þeirra því skýrt í vit-
und fólksins. Að dreyma Ijósmóður
hefur alltaf verið talið góður draum-
ur (nema nafn hennar sé mjög
slæmt). Dreymandinn fær nýja
möguleika og nýjar vonir. Eins og
Ijósmóðir kemur til manns þegar
nýtt líf fæðist. Að dreyma sig vera
Ijósmóður er sömuleiðis gott
draumtákn. Oft rætist slíkur draum-
ur bókstaflega. Margar þekktar ljós-
mæður hafa sagt frá draumum sem
þær dreymdi um ljósmóðurstörf,
löngu áður en til þess kom í vök-
unni. Þær voru þá gjarna við fæð-
ingar hjá álfkonum eða slíkum dul-
arverum. Og fengu blessun þeirra
að launum. Ef til vill hefur ungu
stúlkunum verið leyft að skyggnast
um stund yfir á annað svið lífsins,
verið bent á að velja sér ævistarf.
Álfkonublessunin fylgdi þeirn á
langri starfsævi, gaf þeim sjálfs-
traust og kjark og sængurkonunum
öryggi. Það er ekki ónýtt að dreyma
slíka drauma.
Stundum dreymir mann aftur í
tímann og þykist þá taka á móti
barni sem seinna hefur orðið eitt-
hvert af mikilmennum sögunnar.
Slíkir draumar eru táknrænir og
benda til þess að dreymandinn
muni vinna á svipuðu sviði og per-
sónan sem hann þóttist taka á móti
í draumnum eða berjast fyrir líkum
hugsjónum.
Að dreyma Ijósmóður dapra
eða veika er fyrir vonbrigðum. Að
finna eða vera gefnir lyklar af Ijós-
móður eða á heimili hennar er fyrir
börnum. Sumir segja draum um
fæðingu vita á brúðkaup en aðrir
tengja nýtt barn nýjum vonum og
tækifærum, enda tengist hann oft
draumum um Ijósmæður. Grasa-
læknar eru einnig jákvæð draum-
tákn. Ef manni þykir þeir tala við sig
er ráð að fara að orðum þeirra.
Steinunn Eyjólfsdóttir
Þessi stúlka er nokkuð sjálfstæð
— upp að vissu marki — og hefur
að öllum líkindum staðið snemma
á eigin fótum. Hún er svolítið list-
ræn. Hæfileikar hennar liggja á
málasviði og upp úr 21 árs aldri fer
hún í nám. Hún ætti að nýta sér
vel næstu tvö til þrjú ár þar á eftir.
Næstu fjögur ár geta orðið við-
burðarík í einkalífi þessarar ungu
stúlku, hvað varðar þroska, stefnu
og framkvæmdir. Töluverðar
breytingar verða á fjölskyldumál-
um hennar á þessum sömu árum
og hún gæti þurft að hugsa sig vel
um, ef um bindingu yrði að ræða.
Þetta er ástríðufull persóna,
sem vill njóta lífsins og hafa það
dálítið náðugt. Hún hefur tilhneig-
draumar
Líknaöi mundin mjúka þín
mér þá undin blœddi...
Káinn
ingu til að láta berast með
straumnum og þarf þess vegna
mikla hvatningu, t.d. í námi. Á
seinnihluta ævinnar mun þessi
kona svo dragast að trúmálum í
einhverri mynd. Afdrifaríkasta
tímabilið í lífi hennar verða árin í
kringum 2010.
AMV
ENGILBERTS