Pressan - 07.12.1989, Qupperneq 4
4
Fimmtudagur 7. des. 1989
litilræði
af hóruhúsi
Næsta vorfagnar íslenska þjóöin því aö hálf
öld er liöin frá því aö landið var hernumiö.
Þetta hefur í alla staði veriö hin Ijúfasta lota,
byrjaði meö heimsstyrjöld sem gaf svo vel í
aöra hönd aö hægt var aö leggja grunninn aö
því velferðarþjóðfélagi sem landsmenn búa
viö í dag og ekki hefur eftirleikurinn veriö lak-
ari, landið veriö hersetiö af vinum, velunnurum
og bandamönnum okkar, sem mega ekki til
þess hugsa aö illa fari fyrir okkur þegar kjarn-
orkustyrjöld brýst út í heiminum.
Þessvegna kallaö varnarliö.
Þaö hefur, einsog gengur og gerist, tekiö ís-
lendinga mislangan tíma aö sætta sig viö þaö
aö vera hersetnir. Menn voru meö svolítinn
uppsteyt fyrir nokkrum áratugum, svo dvínaöi
andstaöan gegn hersetunni og nú er svo kom-
iö aö ekki er nóg meö aö fólki sé orðið sama um
þaö þó hér sé erlendur her, heldur telja flestir
þaö æskilegt og hafa menn þá einkum í huga
þá staðreynd aö í kjarnorkustyrjöldum hlýtur
aö vera ósköp notaleg tilhugsun aö vita af
varnarliði í hlaðvarpanum.
Aö ekki sé nú talað um þá staðreynd aö ís-
lendingum koma meira en litlar tekjur af varn-
arliðinu.
Samkvæmt skýrslu utanríkisráöuneytisins á
síðasta ári runnu hvorki meira né minna en átta
milljarðar (áttaþúsund milljónir) í beinhöröum
peningum frá varnarliöinu til íslendinga.
Dálaglegur vasapeningur fyrir þá sem þess
njóta.
Og lítill vandi fyrir „oss fáa, fátæka, smáa" aö
gleyma því aö vér séum hersetnir þegar ágóö-
inn er hafður í huga.
Sannleikurinn er nefnilega sá aö þó þaö sé
óskastaða hverrar þjóöar aö vera hersetin í
kjarnorkustyrjöld er þó sýnu hlýlegra, nota-
legra og praktískara að vera hersetinn á friðar-
tímum, því þá gengur allt sinn vanagang og
ekkert andskotans vesen.
Afturámóti er hætt viö aö herseta í kjarn-
orkustyrjöld yröi átakanlega skammvinn.
Eöa einsog sagt var í Miðbæjarskólanum
þegar ég var krakki:
— Elskiði friðinn og strjúkiöi kviðinn.
Þó undarlegt megi viröast kveða stundum
viö hjáróma raddir manna og kvenna sem una
því ekki aö veriö sé aö reisa hernaöarmannvirki
um allar trissur og þá helst þar sem landvættir
höföu áöur aösetur: á Reykjanesi, Hornafiröi,
Langanesi og Bolavíkurfjalli.
Þetta sama fólk ætlar 'vitlaust aö veröa
vegna þess aö verið er aö byggja eldsneytis-
birgöastöövar í Helguvík, kjarnorkuhelda
stjórnstöö á Miðnesheiði, varastjórnstöö í
Grindavík, hliöarbrautirá Keflavíkurflugvelli aö
ekki sé nú talað um allan gauraganginn útaf
herflugvelli sem gæti verið bæöi notalegur,
skemmtilegur og praktískur á bökkum Laxár í
Aðaldal.
Það er einsog þessir menn geri sér ekki Ijóst
aö vofa atvinnuleysisins grúfir yfir stórvirkum
vinnuvélum íslenskra verktaka.
Þaö er til lítils að vera meö góða mjólkurkú
og sleppa mjöltunum.
Þaö besta viö þetta allt er þó að við getum
öll veriö meö góöa samvisku vegna þess aö öll
hernaðarmannvirki sem reist eru á friðartím-
um eru, eðli málsins samkvæmt, byggö til friö-
samlegra nota, flugvellir, flugstöövar, radar-
stöövar, stjórnstöövar, olíustöðvar og kjarna-
sprengjuvarnarvirki.
Allt í friösamlegum tilgangi.
Já, meira aö segja hafiö, landiö og loftið
þjóna aöeins friönum einum, þaö er aö segja
þartil til ófriöar dregur.
Og herinn er í landinu til að varðveita þenn-
an viövarandi friö sem mun haldast, ef guö lof-
ar, þartil stríöiö byrjar.
En hversvegna að vera aö mögla?
Þaö er nefnilega ekki til neins aö vera að berj-
ast á móti hernaðarmannvirkjum í hersetnu
landi.
Fólki hættir til aö einblína á afleiðinguna en
gleyma orsökinni.
Sannleikurinn er nefnilega sá að á meðan ís-
land er hersetiö, þá er ísland hernaöarmann-
virki, og, ef ég skil þetta allt rétt, í þágu friðar
og farsældar fyrir íslensku þjóöina.
Og þjónar umfram allt heimsfriönum.
Það er aö segja á friðartímum.
Reynslan af heimsstyrjöldinni síðari er sú að
þegar landiö var hernumið 10. maí 1940 varö
hver krókur og kimi í landinu hernaðarmann-
virki: skólar, sjúkrahús, Vatnsmýrin, Sundhöll-
in, Þjóöleikhúsiö, Arnarhóllinn, Akraborgin,
sem þá hét Laxfoss eöa Fagranesiö, vegir, firö-
ir, víkur og vogar.
Konurnar uröu hernaðarmannvirki og
mennirnir ekki síður, já þjóðin öll og er það
raunar enn og verður á meöan landiö er herset-
iö.
Hóruhús eru bönnuð á íslandi.
En ef nú slíkur rekstur yrði leyföur i landinu
og þá til aö efla heimilisfriöinn væri til lítils aö
vera sífellt aö fjargviörast útaf því hvaöa aö-
ferðir maddaman og dömurnar notuöu til aö
mjólka kúnnana, leggja bann við lauslæti á
staönum, fara í mótmælagöngu þegar til stæöi
aö gera viö sligaða legubekki eöa skipta á rúm-
unum, já, eöa banna stúlkum hússinéaö taka
peninga fyrir aö gera do-do.
Öll þessi umsvif væru bara eölileg afleiðing
af rekstri slíkrar stofnunar, en orsökin hóruhús-
iö sjálft.
Af hverju leiðir aö ekki er hægt að koma í veg
fyrir dónaskapinn nema meö því aö hætta
rekstrinum.
En þaö verður ekki gert meöan maddaman
er á mála hjá fastagestunum og stúlkunum
finnst gaman og líður vel í vinnunni.
Hættum þessvegna aö einblína á afleiðing-
arnar af því ástandi sem íslenska þjóðin óskar
sér helst.
Reynum heldur aö njóta orsakanna.
Hernámsins.
Annaöhvort eru hóruhús leyfð eöa þau eru
bönnuö.
Þaö er nú heila máliö.
HAUSTHAPPDRÆTTI KRABBAMEINSFÉLAGSINS
VINNINGAR: SAMEIGINLEGUR VINNINGUR:
3 Subaru Legacy • Öflugri krabbameinsvarnir!
Station 4WD.
4 Hálf milljón upp í bifreið aö eigin vali.
33 Ferö meö Samvinnuferðum-Landsýn eða vörur frá Japis
eða Húsasmiðjunni fyrir 100 þús. kr.
60 Vörur frá Heimilistækjum eða IKEA eða Útilífi fyrir 50 þús. kr.
STUÐNINGUR YKKAR ER OKKAR VOPN