Pressan - 07.12.1989, Qupperneq 29
Fimmtudagur 7. des. 1989
kynlHsdálkurimi
Bréf til kynlífsdálksins má skrifa undir dulnefni.
Utanáskriftin er: PRESSAN— kynlífsdálkurinn, Ár-
múla 36, 108 Reykjavík.
HJÓNAVANDI
„Við erum fertug og búin að
vera gift í sex ár. Maðurinn minn
tók upp á þvi fyrir ári að flytja í
annað herbergi, sem ég er ekki
alveg sátt við — hann er með
endalausar afsakanir. Svo er ég
á blóðþrýstilyfjum (Tensól). Það
veldur áhugaleysi, þunglyndi og
minni kynlífslöngun o.fl. o.fl.
Persónulega segist hann ekki
hafa neina kynlífslöngun til mín
— segir að ég sé of feit. Ég er
1,65 á hæð og 72 kíló — ekki
finnst mér það nú mikill þungi
því hann er rúmlega 100 kíló og
alltof feitur að mínu mati. Hann
þjáist að einhverju leyti af minni-
máttarkennd. Hann segir að ef
ég sætti mig ekki við þetta þá
geti ég bara skilið ef ég vilji. Nú
erum við góðir vinir og félagar
— ekkert framhjáhald til staðar
— en mér finnst það bara alls
ekki nógu gott að geta ekki lifað
saman einstaka sinnum. Við eig-
um tveggja ára barn saman, en
eldri börnin, sem við áttum í
fyrri hjónaböndum, eru öll farin
að heiman. Ég spyr: Á ég að
sætta mig við þetta, er þetta
hjónaband? Mér líður óskaplega
illa, er hætt að borða og sofa.
Þetta getur ekki gengið svona
lengur.
Ein áhyggjufull.“
Kæra kona, mér finnst þú vera bú-
in að svara spurningunni sjálf — um
hvort þú eigir að sætta þig við þetta.
Eftir bréfinu að dæma ertu greini-
lega ósátt við samband ykkar hjóna
eins og það er núna.
/ öllum hjónaböndum
koma upp erfidleikar
Einnig spyrðu hvort þetta sé
hjónaband. 1 öllum hjónaböndum
koma upp erfiðleikar. Síðan er það
spurning um hvort báðir aðilar vilja
leggja eitthvað af mörkum til að
leysa erfiðleikana. Hvort þið gerið
ykkur grein fyrir því hvað er í húfi
og hvort þið elskið hvort annað nóg
til að vinna í málunum.
Eins er afar mikilvægt, að mínu
mati, að skilja að þegar hjónabands-
erfiðleikar koma upp er það vanda-
mál beggja, ekki bara hans eða
hennar. Það er ódýr leið að segja:
,,Ef þér líst ekki á ástandið getur þú
bara sótt um skilnað." Slíkt hugarfar
ber ekki vott um þann vilja sem þarf
til að vera í hjónabandi. Það hlýtur
að vera sárt fyrir þig að heyra þetta.
Samskiptin þarf
að „hreinsa“
En þessi orð geta líka bent til þess
að hann viti ekki hvernig á að taka
á þessum vanda. Með því að flytja
inn í annað herbergi var hann
greinilega að gefa eitthvað í skyn —
óbeint. Óskýr, bjöguð eða lítil tjá-
skipti verða stundum allsráðandi
milli pars þegar þarf að ræða erfið
mál. Þú talar um að áhugi þinn á
kynlífi hafi breyst við að taka inn
blóðþrýstingslyf. Þú þarft að ræða
það við lækninn þinn og biðja um
annað lyf ef hægt er eða fá skömmt-
unum breytt. Lyf eru eitt af því sem
getur valdið áhugaleysi. Óleystir til-
finningahnútar, s.s. reiðibæling og
barnsfæðing, eru önnur dæmi sem
geta verið samverkandi. Samskipti
hjóna eru „samtengd". Ef hann hef-
ur fundið fyrir áhugaleysi hjá þér
getur hafa safnast fyrir gremja hjá
honum sem hann tjáir þér óbeint
með því að flytja inn í annað her-
bergi. Það að setja út á útlit þitt — að
þú sért of feit — er þá kannski ekki
málið, enda ertu með fullkomna
kjörþyngd samkvæmt hæð.
Sameiginlegan uanda
þurfa bœöi aö leysa
Þegar ég las bréfið flugu mér of-
angreindir þankar í hug sem þurfa
ekki endilega að vera réttir, en ég er
viss um að ef að er gáð er fleira í
gangi hjá ykkur en það sem kemur
fram í béfinu. Þú ert að gera rétta
hluti með því að leita aðstoðar í
þessu máli. Alltof mörg hjón og
sambúðarfólk koma of seint til að
leita sér aðstoðar hjá hjónabands-
ráðgjöfum. Ráðgjafa finnur þú í gulu
síðunum í símaskránni. Að viður-
kenna að vandinn sé til staðar og að
hann hverfi ekki af sjálfu sér er
fyrsta skrefið til að leysa hann. Síð-
an þurfið þið að ákveða hvort ykkur
þyki nógu vænt hvoru um annað til
að leysa vandamáliö sameiginlega.
Skilnaður er alltaf síðasta og ódýr-
asta lausnin og leysir ekki neitt í
raun og veru. Ef þið getið í samein-
ingu tekist á við þessa erfiðleika, þú
segir að þið séuð góðir vinir, þá mun
samband ykkar verða nánara fyrir
vikið.
Gangi þér vel.
Kuedja, Júna.
JÓNA INGIBJÖRG
JÓNSDÓTTIR
KYNFRÆÐINGUR
SKÚTUVOG116 SÍMI 687700
Fondusett
fyrir 6 manns
kr. 6.224,-
00^
Ljóskastarar
kr. 3.343,-
í verslun Húsasmiðjunnar fást nytsamar jólagjafir við
allra hæfí og á jólamarkaði á 2. hæð er mikið úrval
skrauts og gjafavara. í Húsasmiðjunni fæst
einnig allur húsbúnaður og heimilistæki, öll
áhöld og efni sem þarf til að fegra og prýða
heimilið fyrir jólin.
Holz-her hleðsluborvél
kr. 16.079,-
Jólatilboð
Húsasmiðjuraiar
Peugeot
juðari/pússivél
kr. 4.894,-