Pressan - 07.12.1989, Page 32
PRESSU
■ ■ýju jafnréttislögin eru nú
að líta dagsins Ijós á Alþingi, en í
þeim er að finna ýmsar breytingar
frá núverandi fyrirkomulagi. Jafn-
réttisráð mun t.d. stækka, því sam-
kvæmt nýju lögunum fá allir þing-
flokkar að tilnefna einn fulltrúa í
ráðið. Hæstiréttur hættir líka að
skipa formanninn, því hann verður
í framtíðinni skipaður af félags-
málaráðherra. Ginnig er gert ráð
fyrir því í frumvarpinu að sett verði
á laggirnar sérstök þriggja manna
kærunefnd hjá jafnréttisráði, svo
sjálft ráðið geti einbeitt sér að
stefnumótun. Kærunefndina skipa
fulltrúar frá Kvenréttindafélagi Is-
lands, félagsmálaráðherra og
Hæstarétti.. .
A
^P^ins og menn muna eflaust
lögðu flugfreyjur ríka áherslu á
það í siðustu samningum sínum að
fá sokkabuxur sem hluta af ein-
kennisbúningi. Innkaupadeild
Flugleiða gerði samning við um-
boösaðila á ákveðinni sokkabuxna-
tegund, sem flugfreyjur nota nú við
störf sin. Umboðsaðilinn heitir
Magnús Nordal og er flugstjóri
hjá Flugleiðum. . .
ii
^^^ndanfarið hefur boriö æ
meira á því aö nýútskrifaöir há-
skólastúdentar sækist eftir störfum
hjá ríkinu. Sagt er að einkum séu ný-
útskrifaðir viðskipta- og lögfræð-
ingar áberandi meðal þeirra sem
falast eftir stöðum í ríkisgeiranum,
sem bendi annaðhvort til þess að
einkageirinn sé mettaður orðinn
eða að fyrirtækin haldi að sér hönd-
um á tímum gjaldþrota og samdrátt-
ar. Eru sögð dæmi þess að útskrifað
háskólafólk vinni við afgreiðslustörf
í bönkum og öðrum þjónustustofn-
unurn sem til þessa hefur ekki þurft
sérlega háskólamenntun til. . .
^^iöustu kvöld hefur Stöð 2 birt
niðurstöður úr skoðanakönnun
SKÁÍS um fylgi flokkanna o.fl. Enn
sem komið er hefur stöðin ekki birt
niðurstöður úr lokaspurningu könn-
unarinnar sem var um það hvort
svarendur teldu að Stöð 2 hefði nei-
kvæð eða jákvæð áhrif á samfélag-
ið...
^^^nn eru í gangi viðræður um
sameiginlegt framboð minnihluta-
flokkanna í borgarstjórn fyrir kosn-
ingarnar í vor, þrátt fyrir dræmar
undirtektir margra flokksmanna í
öllum flokkunum. Hafa Birtingar-
menn einkum beitt sér fyrir sam-
runa eins og komið hefur fram. Þá
höfum við heimildir fyrir því að rætt
hafi verið um að fá Guðrúnu Agn-
arsdóttur, þingkonu Kvennalista,
til að gefa kost á sér til borgarstjórn-
ar sem kandídat vinstriflokkanna
gegn Davíð Oddssyni í borgar-
stjórastól...
Mlýjasti „spútnikkinn" í veit-
ingabransanum er Þorleifur
Björnsson sem rekur Tunglið,
Fimmuna, Casablanca og Café
Hressó, sem hann keypti af Hag-
skiptamönnum, Sigurði Erni Sig-
urðarsyni og Sigurði Garðars-
syni. I síðustu viku bættist veitinga-
húsið Sælkerinn í umsvif Þorleifs.
Það er ekki langt síðan hann lét fyrst
til sín taka í veitingarekstri. Fyrir
nokkrum misserum var hann út-
gerðarmaður togarans Þorleifs
Jónssonar. Þorleifur var líka einn
af þeim kaupmönnum sem fyrstir
hófu verslun í Kringlunni og var
með tvær búðir, Skæði og Stefan-
el.. .
^yrsta bókin sem náði því að
verða uppseld þessa jólavertíð er
Fransí biskví eftir Elínu Pálma-
dóttur. Fyrstu 3.500 eintök bókar-
innar seldust upp um helgina. . .
b..
þingis í nokkrar stjórnir, nefndir og
ráð innan ríkisgeirans fari fram á
fimmtudag í næstu viku. Sáralitlar
líkur eru taldar á að Stefán Val-
geirsson hljóti endurkjör í for-
mennsku bankaráðs Búnaðar-
bankans. Talið er mjög líklegt að
Eyjólfur K. Sigurjónsson, núver-
andi bankaráðsmaður í Lands-
bankanum af hálfu Alþýðu-
flokks, verði næsti formaður banka-
ráðs Landsbankans, en því gegnir í
dag Pétur Sigurðsson Sjálfstæð-
isflokki. Þá þykir tíðindum sæta að
Kvennalistinn ætlar örugglega að
tilnefna fulltrúa í bankaráð Lands-
bankans. Þá mun vera kominn upp
slagur innan Framsóknarflokks-
ins um hver eigi að taka við for-
mennsku í tryggingaráði af Helgu
Jónsdóttur. Ekki höfum við þó
fregnað hverjir bítast þar um bit-
ann.. .
<1..................i
vers hafa enn á ný blossað upp. Yfir-
lýsing Vals Arnþórssonar um að
ríkið hafi gefið Eyfirðingum
munnlegt loforð fyrir áratug um að
næsta stóriðja yrði reist á Eyjafjarð-
arsvæðinu hefur vakið athygli. í því
sambandi má þó benda á að í milli-
tíðinni gerðist það að Eyfirðingar
höfnuðu álveri fyrir nokkrum árum
af umhverfisástæðum. Nú er spurt í
stjórnkerfinu hvort munnlegi samn-
ingurinn sem Valur vitnar til hafi
ekki við þaö fallið um sig sjálfur. . .
Cl dögunum var Davíð Odds-
son borgarstjóri í sextugsafmæli
flokksbróður síns, Brynleifs Stein-
grímssonar bæjarfulltrúa austurá
Selfossi. Þar bar það til tíöinda að
Davíð bauð öllum bæjar- og sveitar-
stjórnarmönnum á Selfossi,
Stokkseyri og Eyrarbakka í
tveggja daga kynnisferð til Reykja-
víkur á kostnað borgarinnar og
munu fulltrúarnir þegar vera farnir
að undirbúa borgarferðina. Nú er
aðeins spurt hvort borgarstjórinn
ætli að láta þar viö sitja eða gera
fleiri sveitarstjórnarmönnum álíka
boð, en sveitarfélögin i landinu eru
sem kunnugt er nálægt 200 tals-
ins...
I/ ÁVEXTIR
w
SUMARSINS
Geyma Gullna Orku
drykkur, mildari en óblandaðir safar og fer því
betur í maga. Aþpelsínu-nektar er unnin úr
úrvah appehínum og Trópikal-nektar úr anan-
as, perum, eplum og appehínum. Gullin safifrá
~”7Ti **•**" ,/ro"“'“
j ávaxtadrykkja.
Við hjá Sól kynnum nýjan íslenskan ávaxta-
drykk sem sameinar bragðgœði, ferskleika og
hollustu. Nýju ávaxtasafarnir heita Nektar, sem
er œvafomt heiti á ódáinsdrykk hinna fornu
guða Grikkja og Rómverja.
Nektar er mildur og