Pressan - 19.07.1990, Qupperneq 3
Fim{T)tjudagutF ,19r júJí 199p,
3
PRESSU
u
siðustu helgi rann út um-
sóknarfrestur um stöðu listdans-
stjóra hjá Þjóðleikhúsinu. Staðan
hefur verið laus um nokkurt skeið
eða frá því að Hlíf Svavarsdóttir
hætti, en síðan þá hefur Auður
Bjarnadóttir gegnt stöðunni til
bráðabirgða. Staðan var auglýst
bæði innanlands og erlendis og bár-
ust þó nokkrar umsóknir. Sú
ákvörðun hefur hins vegar verið
tekin að fresta ráðningu frá 1. sept-
ember til áramóta og auglýsa stöð-
una aftur. Einnig var auglýst staða
framkvæmdastjóra íslenska dans-
flokksins og er fresturinn úti.
Munu 5 umsóknir hafa borist. Ekki
fengust uppgefin viðkomandi nöfn,
en ákvörðun um ráðninguna verður
tekin á næsta hálfa mánuði...
I mola í síðustu viku var sagt frá
því að Sigurbjörn Magnússon,
fyrrum formaður stjórnar Lána-
sjóðs íslenskra námsmanna væri
farinn að innheimta fyrir LÍN. Sigur-
björn sagði við blaðamann Press-
unnar að það væri hart barist um
verkefni og því hefði hann rætt við
Þorbjörn Guðnason fram-
kvæmdastjóra LÍN og fengið inn-
heimtuverkefni, Það var skilið sem
svo aö um verkefnaskort væri að
ræða á lögmannsstofu Þórðar S.
Gunnarssonar, en þar starfar Sig-
urbjörn. Það var ekki réttur skiln-
ingur blaðamanns því verkefni eru
næg á lögmannsskrifstofunni. Hins-
vegar bítast Sigurbjörn og vinnufé-
lagar hans um að útvega stofunni
sem mest og best verkefni. Eða það
er sá skilningur sem blaðamaður
leggur nú í þá fullyrðingu Sigur-
björns að hart sé barist um verkefni
á stofunni...
Í^yrir hálfum mánuði héldu end-
urskoðendur málþing á Hótel Örk í
Hveragerði. Þar flutti Helgi V.
Jónsson, hæstaréttarlögmaður
og löggildur endurskoðandi, er-
indi um lagalegt gildi reiknings-
skilastaðla og leiðbeinandi reglur
fyrir íslenska endurskoðendur. Þar
kom hann lítillega inn á nýgenginn
dóm í Hafskipsmálinu og rakti þau
atriði hans sem varða góða reikn-
ingsskilavenju. Mun þetta vera
fyrsti dómurinn um þetta hugtak og
hefur hann því væntanlega fordæm-
isgildi fyrir endurskoðendur. Ljóst
er að dómurinn komst að þeirri nið-
urstöðu að ýmislegt í bókhaldi Haf-
skips væri andstætt góðri reiknings-
skilavenju þó hann teldi ekki að um
saknæmt athæfi væri að ræða. Var
það niðurstaða málþingsins að dóm-
urinn sýndi fram á nauðsyn þess að
setja skriflega staðla og reglur um
hvernig staðið skuli að reiknings-
skilum fyrirtækja. Varð að öðru
leyti lítil umræða um dóminn á
þinginu enda er málið eflaust við-
kvæmt umræðu fyrir stétt endur-
skoðenda því félagar þeirra voru
beggja vegna borðsins í málinu. . .
^Fyrirskemmstu kom út ný hljóm-
plata með Megasi, en hún tafðist
töluvert vegna erfiðleika, sem upp
komu í prentsmiðju erlendis vegna
prentunar plötuumslagsins. Bæði
gyðingar og arabar, sem unnu í
verksmiðjunni, neituðu að koma
nálægt verkinu, vegna spakmæla
sem valin höfðu verið á umslagið.
Voru þau m.a. á sanskrít, hebr-
esku, arabísku og forn-egypsku
og valin af handahófi, en hvorugur
fyrrgreindra hópa taldi sig geta tek-
ið þátt í að koma þessum boðskap á
framfæri. Varð því- að fella út eitt-
hvað af spakmælunum til að friða
mannskapinn, svo hægt væri að
ljúka prentuninni...
M
^^■skrifendur að Stöð 2 eru
ævareiðir vegna 500 kr. opnunar-
gjaldsins sem lagt var á um daginn
og hefur það vart farið framhjá
nokkrum manni. Heyrst hefur að nú
sé í undirbúningi stofnun hags-
munafélags eigenda myndlykla
sem á að standa vörð um réttindi og
haJgsmuni áskrifenda gagnvart
Stöðinni. ..
||
Hafskipsdómurinn hefur að
vonum vakið mikla athygli og talað
um sprungna blöðru í því sambandi.
Ekki síst kemur á óvart þegar dóms-
forsendur eru lesnar hversu oft
dómarar óbeint agnúast út í ákæru-
valdið fyrir skort á sönnunum og
óljóst orðalag. Einnig vekur athygli
hversu óminnugir sakborningar
hafa verið á tiltekin atriði. Þá virð-
ast dómarar staðfesta að á banka-
ráðsfundum dugi að fjalla aðeins
almennt um stór vandamál af þessu
tagi og að ekki þurfi að bóka neitt
um slíkar umræður í fundargerða-
bækur. Um margumrætt milliupp-
gjör Hafskips segja dómarar ýmist
að ósannað sé að um ranga reikn-
ingsskilaaðferð hafi verið að ræða,
að mistök hafi átt sér stað eða að þar
sem þeir telja þó að óeðlilega hafi
verið að málum staðið, þá hafi upp-
hæðir verið það lágar að um blekk-
ingar geti ekki hafa verið að ræða!
Og um mikla einkaneyslu og gjafir
stjórnenda skipafélagsins í gegnum
biðreikninga/leynireikninga
segja dómarar að þeim hafi verið
þetta heimilt, þar sem stjórnarmenn
Hafskips, þeir Albert Guðmunds-
son, Ólafur B. Óiafsson og
Sveinn R. Eyjólfsson, hafi skrifað
upp á það — og gildir þá einu þó hin-
ir ákærðu hafi ekki haldið sérstakt
bókhald um reikningana. . .
^fyrir fáeinum dögum sagði Ár-
sæll Harðarson upp störfum sem
markaðsstjóri Bylgjunnar. Ár-
sæll er fjórði markaðsstjórinn sem
lætur af störfum hjá útvarpsstöðinni
frá því hún fór í loítið fyrir fjórum ár-
um. . .