Pressan - 19.07.1990, Page 5
5
Fimmtudagur 19. iúlí 1990
ÓGNVALDUR SMYGLARANNA:
ÍKLÓM
Í átta ár hefur starfað
sérstök „vikingasveit##
Tollgæslunnar — með
æ betri árangri.
Daglega heyja þeir
einvigi við smyglara
landsins. Sumir i
genginu eru ótrúlega
glúrnir — en hugvit
smyglaranna er lika oft
aðdáunarvert!
Þeir eru sjö. Þeir eru „Svarta gengið“.
Þeir eru óeinkennisklædd „víkingasveit“
tollaranna. Þeir birtast fyrirvaralaust,
smyglurum landsins að óvörum. Við þá
heyja þeir einvígiþar sem vígstaðan breyt-
ist i hverri ferð!_____________________
EFTIR FRIÐRIK ÞÓR GUÐMUNDSSON
Þann 14. júlí 1982, fyrir átta
árum, var stofnuð „leitar-
deild" hjá embætti Tollgæsl-
unnar. Áður hafði verið vísir
að rannsóknardeild, en nú
var teningunum kastað og
ákveðið að fjölga sérhæfðum
leitarmönnum, sem skyldu
vera óstaðbundnir og birtast
fyrirvaralaust hvar sem er á
landinu.
Blómaskeið smygl-
umræðunnar
Tilefnið var svo sem ekkert
sérstakt. Þó má geta þess að
snemma í maí sama ár voru
tæp 200 kíló af marijuana
flutt til landsins sem „vara-
hlutir" frá skipafélagi á Jama-
ika, stíluð á fyrirtæki í
Reykjavík. Ábendingin kom
frá bandaríska sendiráðinu
og var vel fylgst með send-
ingunni — en enginn viðtak-
andi gaf sig fram. Ekki var
vitað hvort Island væri enda-
stöð fíkniefnanna, en mark-
aðsverð þeirra hér á landi var
um 160—170 milljónir króna
að núvirði.
Að öðru leyti má segja að
áratugurinn á undan, áttundi
áratugurinn, hafi verið
blómaskeið smyglumræð-
unnar. Sérstaklega eru minn-
isstæðar fréttir í kringum
„Klúbbmálið" og Geirfinns-
málið og árið 1976 náði spill-
ingin að því virðist inn í hin
helgu vé, er tveir yfirmenn
Tollgæslunnar í Reykjavík
voru handteknir, grunaðir
um aðstoð við smygl úr milli-
landaskipi.
Tollyfirvöld höfðu rætt um
hvernig ná mætti betri ár-
angri gagnvart smygli. Það
leiddi til þess að leitardeildin
varstofnuðíjúlí 1982meðsjö
stöðuheimildum.
Árangurinn í
stuttu máli ótrú-
legur
Að sögn Kristins Ólafs-
sonar tollgæslustjóra leikur
ekki vafi á því að mikill ár-
angur hafi náðst með breyt-
ingu þessari.
„Eðli málsins samkvæmt
get ég ekki greint frá aðferð-
um leitardeildarinnar eða
innra starfi. Hitt er ljóst að
þarna var ákveðið að gera til-
raun með hvort ekki væri
hægt að ná betri árangri en
fram að þeim tíma, með
ákveðnum aðskilnaði og sér-
hæfingu. Og árangurinn er í
stuttu máli alveg ótrúlegur.
Ég þekkti tímana fyrir þessa
breytingu og get sagt það
með góðri samvisku."
Um þetta er einn viðmæl-
enda blaðsins úr sjómanna-
stéttinni sammála. „Þetta eru
allt aðrir tímar nú en fyrir 20
árum og jafnvel skemur. Það
var miklu betra að „hjálpa
sér“ þá, minna lið hjá toll-
gæslunni, aðrar aðferðir og
mikið meiri kunningsskapur."
Nánar tiltekið varð sú
breyting fyrir 8 árum að leit-
ardeildin var gerð að óstað-
bundinni deild tollvarða —
þeir hafa allt landið undir.
Deildin fer fyrirvaralítið í sér-
ferðir á ýmsa staði, oft að eig-
in frumkvæði en einnig að
ósk heimamanna. Þá koma
vísbendingar frá tollyfirvöld-
um erlendis og jafnvel Inter-
pol. Hin erlendu tengsl hafa
aukist í gegnum árin og eru
bæði í krafti samninga og
persónulegra kynna.
Kókaín í stað
bjórs: Vilja hund
Breytingar hafa ekki að-
eins orðið hjá tollyfirvöldum,
heldur ekki síður hjá íslensk-
um smyglurum. I gegnum tið-
ina hefur mest borið á smygli
á áfengi og tóbaki, kannski
ekki síst á bjórnum. En eftir
að bjórinn var lögleyfður
urðu stakkaskipti þar á. Á síð-
asta ári voru teknir 1.100
kassar af bjór í skipi rétt fyrir
„bjórdaginn", en eftir þann
dag hefur mjög lítið verið tek-
ið af bjór. „Það var eiginlega
lokaspretturinn í bjórnum,
þótt hann hafi síður en svo
horfið, samanber málið í síð-
ustu viku, þegar 53 kassar
fundust í Stuðlafossi," segir
Kristinn.
Hins vegar er enn nokkuð
smyglað af sterku áfengi og
tóbaki. Þá er alltaf nokkuð
um smygl á hráu kjöti, eink-
um kjúklinga- og nautakjöti
og niðursoðinni skinku.
Smygl á raftækjum hefur eitt-
hvað minnkað að því er virð-
ist, einkum eftir að tollar á
slíkum tækjum voru nýverið
lækkaðir.
Augu tollyfirvalda liafa á
hinn bóginn æ meir beinst að
fíkniefnasmygli og þá eink-
um að smygli á sterkum efn-
um, t.d. kókaíni. 1 þeim efn-
um er haldið uppi náinni
samvinnu við Fíkniefnalög-
regluna. Leitardeildin hefur
t.d. fengið aðgang að hundi
hjá Fíkniefnalögreglunni
og hefur sótt um að fá eigin
hund. Fjárveiting hefur hins
vegar enn ekki fengist.
Áfengi, tóbak, kjöt,
vopn og tæki
Tollyfirvöldum er eðlilega
ómögulegt að meta hvort
smygl hafi aukist eða minnk-
að í gegnum tíðina — það er
aldrei hægt að meta hvað fer
framhjá leitarmönnum.
PRESSAN fékk upplýsingar
um hvað „Svarta gengið“, þ.e.
leitardeildin, lagði hald á í
fyrra, að fíkniefnum frátöld-
um, en þau eru skráð á aðra
aðila.
Listi deildarinnar frá því í
fyrra er all athyglisverður:
2.054 lítrar af sterku áfengi
(ígildi ríflega 2.700 flaskna),
12.100 lítrar af bjór (ígildi ríf-
lega 1.500 kassa, þ.a. um
1.100 í einu „kasti'), 79.800
vindlingar (tæplega 4.000
pakkar), 4,5 tonn af hráu
kjöti, 1,1 tonn af niðursoðinni
skinku, þrjú myndbandstæki,
tíu þráðlausir símar, fimm
40-rása talstöðvar, ein hagla-
byssa, eitt haglabyssuhlaup,
ein loftskammbyssa, sjö-
hundruð og fimmtíu kúlur í
loftbyssu, einn lásbogi, tólf
örvar, tveir slíðurhnífar, tvö
sjónvörp og eitt hlustunar-
tæki (Scanner).
Nýjasta afrek deildarinnar
hefur farið framhjá fáum. í
síðustu viku var Georg Þór
Kristjánsson, bæjarfulltrúi
fyrir Sjálfstæðisflokkinn í
Vestmannaeyjum, handtek-
inn í sendiferðabíl í Þorláks-
höfn. í bílnum voru 846 lítrar
af Smirnoff-vodka, 1.500
pakkar af vindlingum og tíu
40-rása talstöðvar. I heild var
lagt hald á 1.218 lítra af vodka
og er markaðsverðmæti þess
miðað við útsöluverð talið
vera um 3 milljónir króna.
Oft býr mikið hug-
vit að baki
Af skiljanlegum ástæðum
vilja meðlimir leitar- og
rannsóknardeildarinnar ekki
auglýsa sig eða upplýsa um
algengustu smyglstaðina.
„Hitt máttu bóka að þetta er
aldrei leiðinlegt eða við-
burðasnautt starf. En það er
stressandi og viðkvæmt og í
rauninni skítadjobb oft á tíð-
um,“ sagði einn leitardeildar-
manna í samtali við PRESS-
UNA. „Þetta er starf sem er
eiginlega ekki hægt að kenna
eða læra af bókum. Aðferð-
irnar við smyglið eru alltaf að
breytast og í sjálfu sér er oft
aðdáunarvert að sjá hversu
mikið hugvit býr a(S baki! Ég
man eftir lýsingu eins skip-
stjórans, sem sagði mér að
hann hefði af einskærri tilvilj-
un komið að afar vel útbún-
um smyglstað og orðið yfir
sig hissa. Hann sagði sem svo
að sennilega hefði atdrei ver-
ið hægt að fá skipverjana til
að smíða slíkt ef það væri fyr-
ir skipið, en ekki þá sjálfa! En
þetta er kannski með leitar-
menn eins og í laxveiðinni,
sumir virðast óvenju fisknir"
Farmaður sem blaðið
ræddi við tók undir þetta síð-
asta. „Sumir þessara manna
eru ótrúlega glúrnir og ég
held reyndar að Svarta geng-
ið hér á landi sé mjög framar-
lega á alþjóðlegum mæli-
kvarða. Sumir þeirra virðast
búa yfir einhverju sjötta
skilningarviti, ganga hrein-
lega að hlutunum án nokk-
urrar ábendingar."
Einvígi en fullur
skilningur
Ætla mætti að leitardeild-
armenn séu óvinsælir og
samskiptin við sjó- og far-
menn oft stirð, en því neita
leitardeildarmenn.
„Yfirleitt eru sjómenn og
farmenn hinir almennileg-
ustu menn og skilja vel hvað
við erum að gera. Eins er það