Pressan - 19.07.1990, Síða 11
Fimmtudagur 19. júlí 1990
PRESSU
MOL&R
b
'andaríska vikuritið National
Enquirer greindi fyrir skemmstu
frá afar merkilegum atburði. Sagði
blaðið að 7 ára gömul stúlka með
dulræna hæfileika hefði bjargað lífi
móður sinnar, þar sem hún fann á
sér að mamman væri með krabba-
meinsæxli í lunga. Samkvæmt frá-
sögn blaðsins fullyrtu læknar að
konan væri heil heilsu, en stúlkan
linnti ekki látunum fyrr en æxlið
fannst og það var fjarlægt. Telpan er
nefnd með nafni og sögð heita Er-
ica Wirtensen, en móðirin er köll-
uð Elsa Wirtensen — og þær eru
sagðar búa á Kópaskeri! Læknir
konunnar er nefndur dr. Gunnar
Magnusson, en þessi- gagnmerka
grein er rituð af einhverri Ingrid
Olafssen. National Enquirer er
raunar þekkt fyrir að fara ekki alltaf
með rétt mál og virðist þetta vera
ein af þeim fréttum blaðsins, sem
ekki ber að trúa eins og nýju neti. . .
Hbúar í nágrenni Furugrundar í
Kópavogi fá bráðlega aftur mat-
vöruverslun í hverfið, en nú er nokk-
uð liðið frá því að Grundarkjöri
var lokað. Heyrst hefur að strax í
næstu viku verði opnuð verslun í
húsnæði Grundarkjörs við Furu-
grund 3, en ekki vitum við hvaða
kaupmaður mun ráða þar ríkjum í
framtíðinni...
'ins og vitað er hefur Lýður
Friðjónsson í Vífilfelli dregið sig
út úr Sýn og einnig hætt afskiptum
af Arnarflugi og sagt sig úr stjórn
félagsins. Þetta mun vera í anda
nýrrar bandarískrar viðskipta-
stefnu, back to basic. Stefnan sú
gengur út á að viðskiptamenn snúi
sér að frumgrein sinni, þ.e. því sem
þeir kunna og þekkja, en séu ekki
að grauta í öllu mögulegu öðru
líka. . .
f
I yrir dyrum stendur vígsla 29
nýrra raðhúsa á vegum Verka-
mannabústaða í Reykjavík
(VBR), en húsin eru milli Krumma-
hóla og Norðurhóla. Saga þeirra
framkvæmda er orðin allsérstök. í
skilmálum deiliskipulags fyrir þetta
svæði, frá því í desember 1988, var
m.a. gert ráð fyrir því að þeir einir
gætu keypt íbúðir þarna sem orðnir
eru 60 ára og eldri. Þar var einnig
gert að skilmála, sem ekki síður
þykir óvenjulegt, að svæðinu skyldi
úthlutað til „eins byggingaraðila",
sem selja ætti íbúðarhúsin og að
það væri Reykjavíkurborgar að
velja byggingaraðilann. Borgin var
ekki í vandræðum með að finna
byggingaraðila; samdi fljótt og vel
við Armannsfell og voru menn
ekki að ómaka sig við útboð eða
þess háttar. Húsin voru svo hönnuð
með þarfir aldraðra í huga og gert
ráð fyrir sérstöku 160 fermetra
hverfishúsi í hverfinu miðju með
félagsaðstöðu í samræmi við skil-
mála. í samráði við Samtök aldr-
aðra voru síðan send yfir 3.000 bréf
til öldunga borgarinnar og þeim
boðið að kaupa íbúðir á svæðinu.
En þá kom upp kyndug staða; eftir-
spurnin varð svo til engin! Hvorki er
talið að verðlagið né staðsetningin
hafi höfðað til hinna öldruðu. Þá
fyrst kom VBR inn í spilið og keypti
húsin fyrir tæpu ári á 212 miiljónir
króna að núvirði eða á 7,3 milljónir
hverja hinna 90 fermetra íbúða.
Stjórn VBR reyndi, eðli málsins sam-
kvæmt, að bjóða öldruðum umbjóð-
endum sínum íbúðirnar til kaups og
tókst að fá fimm eða sex slíka kaup-
endur. Allar hinar íbúðirnar keypti
síðan fólk undir sextugu þótt skipu-
lagsskilmálum hafi aldrei verið
breytt. Sem og hafa allar áætlanir
um sérstakt hverfishús verið lagðar
til hliðar. . .
b.
'reytingar hafa orðið á þætt-
inum Reykjavík síðdegis á Bylgj-
unni. Hefur Haukur Hólm frétta-
maður nú tekið við af Sigursteini
Mássyni sem hefur séð um þennan
magasínþátt að undanförnu. . .
11
hlusta á Aðalstöðina, 10% á rás 1,
9% á rás 2, 5% á Bylgjuna og
0,7% á Effemm. Því virðist sem Að-
alstöðin sé að sækja í sig veðrið
hvað varðar hlustun hjá fólki á aldr-
inum 30—70 ára ...
f
k
I yfir skemmstu fékk Aðal-
stöðin atvinnulausa viðskiptafræð-
inga til að gera fyrir sig skoðana-
könnun í Kringlunni. Níuhundruð
manns á aldrinum 30—70 ára voru
spurðir hvaða útvarpsstöð þeir
teldu leika bestu tónlistina og sam-
kvæmt upplýsingum frá Aðalstöð-
inni lenti hún þar í fyrsta sæti. Þegar
spurt var um hlustun á kvöldin milli
klukkan átta og tólf sögðust 11%
alt hlaðborð, heitt hlaðborð,
ættarmót, afmæli og víkingar.
Skíðaskálinn í Hveradölum stát-
ar af þessu öllu saman yfir sumar-
tímann. Nú hefur skíðaskálinn þar
að auki ráðið til sín hinn endalaust
klassíska Hauk Morthens, og mun
hann skemmta með söng á hverju
sunnudagskvöldi það sem eftir er
sumars. Með Hauki eru hljómlistar-
mennirnir Guðmundur Stein-
grímsson og Carl Möller. . .
A EIGIN BIF REIÐ
TIL EVRÓPU
Hugsaðu þér ferðafrelsið. Og
möguleikana. Þú getur ekið
vítt og breitt um Skandinavíu
eða suður til Evrópu án þess
að eyða stórfé í að leigja bíl.
Með Norrænu getur fjöl-
skyldan farið á ódýran og
þægilegan hátt með sinn eigin
bíl þangað sem hana langar.
Þegar þú ferð á þínum eigin
bíl - með Norrænu
slærðu tværflug-
ur íeinuhöggi.
Þannig má
eðaEvr-
ópu. Þú ræður ferðatímanum
og getur farið hvert á land sem
er. Frá Bergen liggja leiðir til
allra átta í Skandinavíu. Há-
fjallafegurð Noregs og
undirlendi Svíþjóðar
er skammt undan að
ógleymd-
um borg-
u m
""Iiiiiiiiiiiiiiiiiiii
• □iiii................
J^^nfí-
sameina ferð um ísland á
leiðinni til Seyðisfjarðar og
utanlandsferð til Norðurlanda
eins og Ósló og Stokkhólmi.
Frá Svíþjóð er hægur vandi að
komast með ferju yfir til
Finn-
lands
og skoða þúsund vatna
landið eða hina fögru
höfuðborg, Helsinki.
Frá Hanstholm í Danmörku
liggja leiðir um Jótland til
Kaupmannahafnar, ef vill
og áfram um Skandinavíu,
eða suður til
Þýskalands og
blasir Evrópa þá
við í öllu sínu veldi.
Við látum þig um
ferðaáætlunina en
flytjum hins vegar
fjölskylduna og bílinn
yfir hafið á þægilegan en
óvenju skemmtilegan hátt.
NORRÆNA FERÐASKRIFSTOFAN AUSTFAR HF.
SMYRIL-LINE ÍSLAND N0RRÆNA FERÐASKRIFSTOFAN
LAUGAVEGUR 3 101 REYKJAVÍK FJ^RÐARGÖTU 710 SEYÐISFIR0I
SIMI 91-62 63 62 SÍMI 97-211 11
WÆ Kodak
WW*.
i ■ i ■ i i ■■ i i i I rri ...........III ■■■ ri
Þú færð myndirnar á 60 mínútum. jj
GÆÐAFRAMKOLLUN
L ■ l LJ.
Opnum
kl. 8.30
■ ■ ■ ■ ■ ■
■ miminiiinimimnim
LJOSMYNDAÞJONUSTAN HF
Laugavegi 178 - Sími 68-58-11 (næsta hús við Sjónvarpið)
iimimmiiiii'mimiiiiim