Pressan


Pressan - 19.07.1990, Qupperneq 16

Pressan - 19.07.1990, Qupperneq 16
16 Fimmtudagur 19. júlí 1990 KÍNVERSK STJÖRNUSPÁ: Kínverjar skipta árinu ekki í tólf stjornu- merki, eins og gert er á Vesturlöndum. Sam- kvæmt þeirra spádómsaöferö tilheyrir hvert ár ákveðnu stjörnumerki, sem kennt er við dýrategundir. Þessi dýramerki eru tólf tals- ins, svo fólk telst því ýmist eiturslanga, hest- ur, kind, api, hani, hundur, göltur, rotta, uxi, tígrisdýr, kanína eða dreki. í þessi merki er síðan spáð fram og til baka, svipað og þegar hin vestrænu stjörnumerki eiga i hlut. Athugaðu töfluna til að sjá hvaða dýr þú hefur að geyma, ef svo má að orði komast. Síðan geturðu kannað hvort þér finnst lýs- ingin passa við þig. EFTIR JÓNÍNU LEÓSDÓTTUR EITURSLANGA: Fólk bráðnar eins og smjör í návist þinni, því þú býrð yfir miklum en dularfullum per- sónutöfrum. Þú hefur líka mikið fjármálavit. Sagt er að fallegustu konurnar og áhrifa- mestu mennirnir séu Eiturslöngur. Þekktar Slöngur: Flosi Ólafsson leikari, Guð- rún Agnarsdóttir þingmaður, Jón Sigurðsson ráðherra, Örlygur Hálfdánarson bókaútgefandi, Skúli Johnsen borgarlæknir, Danfríður Skarp- héðinsdóttir þingmaður, Brooke Shields leik- kona, Magnús Magnússon sjónvarpsmaður. HESTUR: Þú ert óútreiknanlegur og hefur mikla þörf fyrir frelsi. Þar að auki ertu gífurlega kynæs- andi, svo fólk laðast mjög að þér. Þér hættir hins vegar til að fá barnaleg frekjuköst og stundum ertu dálítið ábyrgðarlaus. Þekktir Hestar: Jóhanna Sigurðardóttir ráð- herra, Margrét Frímannsdóttir þingmaður, Svava Jakobsdóttir rithöfundur, Stefán Val- geirsson þingmaður, Raquel Welch leikkona, Barbra Streisand söngkona, Sean Connery leik- ari, Clint Eastwood leikari. KIND: Þú ert blíð og skilningsrík persóna, sem fólk laðast að. Aðrir trúa þér gjarnan fyrir vandamálum sínum, en vertu ekki of auð- trúa og gættu þess að verða ekki þunglyndi að bráð. Þú getur nefnilega ekki leyst hvers manns vanda. Þekktar Kindur: Friðrik Sophusson þingmað- ur, Matthías Mathiesen þingmaður, Steingrím- enda læturðu aðra en sjálfan þig ávallt liafa forgang. Þú ert réttlátur og traustur, en þarft nauðsynlega að læra að segja NEI — og meina það. Maður getur aldrei þóknast öll- um! Þekktir Hundar: Sveinn Einarsson dagskrár- stjóri, Alexander Stefánsson þingmaður, Bri- gitte Bardot leikkona, Michael Jackson tónlist- armaður, David Bowie tónlistarmaður. UXI: Það er mjög gott að treysta á þig, þegar rnikiö liggur við. Þú blómstrar líka, ef þú færð að bera ábyrgð, og enginn er samvisku- samari eða mætir betur í vinnuna. Hins veg- ar geturðu verið þrjóskur og langrækinn. Þekktir Uxar: Júlíus Sólnes ráðherra, Páll Pét- ursson þingmaður, Díana prinsessa á Bretlandi, Margrét Thatcher, Warren Beatty leikari. DREKI: Þú ert sveipaður töfraljóma og ótrúlega kynæsandi. Lífskraftur þinn er áþreifanlegur og orkuna notar þú til að koma þér áfram. Þú þolir ekki að láta skipa þér fyrir verkum og gætir lent í klandri vegna of mikils sjálfsálits. Þekktir Drekar: Þorvarður Elíasson sjón- varpsstjóri, Ævar Kvaran leikari, Örn Clausen lögfræðingur, Eyjólfur Konráð Jónsson þing- maður, Ólafur Ólafsson landlæknir, Steingrímur Hermannsson ráðherra, Faye Dunaway leik- kona, Cliff Richard söngvari. ur J. Sigfússon ráðherra, Cilla Black söngkona, Lech Walesa, Mikhail Gorbachov, Mick Jagger tónlistarmaður, George Harrison Bítill. HANI: Þú virðist svolítill sérvitringur eða furðu- fugl, en |>að er bara af því að þú ferö ótroön- ar slóðir. Þú ert tignarlegur og hefur ,,stíl”, en líka gamaldags, snyrtilegur og ákveðinn. Hins vegar geturðu dæmt annað fólk of hart. Þekktir Hanar: Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir þingmaður, Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ, Eggert Haukdal þingmaður, Jón Óttar Ragnars- son sjónvarpsstjóri, Matthías Bjarnason þing- maður, Þórhildur Þorleifsdóttir þingmaður, Joan Collins leikkona, Karolína prinsessa í Món- akó, Dolly Parton söngkona. HUNDUR: Fólki líkar yfirleitt einstaklega vel við þig, EITURSLANGA: 1905 HESTUR: 1906 KIND: 1907 APl: 1908 HANI: 1909 HUNDUR: f 1910 GÖLTUR: 197 1 ROTTA: 1900 UXI: 1901 TÍGRISDÝR: 1902 KANÍNA: 1903 DREKI: 1904 191? 1918 1919, 1920 1921 1922 1923 1912 1913 1914 1915 1916 1929 1930 1:931 1932 1933 1934 \ 1935 1924 1925 1926 1927 1928 •1941 1942 1943: 1944 1945 1946 1947 1936 1937 1938 1939 1940 1953 1965 .1977, 1989 1954 1966 1978 1990 1.955 1967 1979 1991 1956 1968 1980 1992 1957 1969 1981 1993 1958 1970 1982 1994 1959 1971 1983 1995 1948 1960 1972 1984 1949 1961 1973 1985 1950 1962 1974 1986 1951 1963 1975 1987 1952 1964 1976 1988 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 1996 1997 1998 1999 2000 API: Þú ert frumlegur og greindur og átt auð- velt með að leysa ráðgátur lífsins — enda í því dýramerki, sem þykir snjallast. Þú nýtur þess að takast á við spennandi verkefni, en hættir til hroka og talsmátinn kemur þér stundum í klípu. Þekktir Apar: Þráinn Bertelsson kvikmynda- gerðarmaður, Guðmundur Bjarnason ráðherra, Arni Johnsen blaðamaður, Svavar Gestsson ráðherra, Elísabet Taylor leikkona, Diana Ross söngkona, Michael Aspel sjónvarpsmaður. GÖLTUR: Þú ert einföld sál, sem ekki þarfnast mikils munaðar. Jarðbundin persóna, sem lætur fátt setja sig úr skorðum. Þolinmæði þín er óþrjótandi og hugrekkið aðdáunarvert. Áhugi þinn á kynlífi er hins vegar nánast sjúklegur. Þekktir Geltir: Ásgeir Hannes Eiríksson þing- maður, Guðrún Helgadóttir forseti Sameinaðs þings, Friðrik Ólafsson skrifstofustjóri Alþingis, Tómas Árnason bankastjóri, Halldór Ásgríms- son ráðherra, Þorsteinn Pálsson þingmaður, Julie Andrews leikkona, Dudley Moore leikari, Elton John tónlistarmaður. ROTTA: Þú ert svo heiðarlegur, hreinn og beinn að sumir kalla þig rudda eða dóna. Fátt finnst þér skemmtilegra en aö feröast um heiminn og kynnast siðum annarra þjóða, én reyndu að venja þig af því að slúðra um náungann. Þekktar Rottur: Davíð Oddsson borgarstjóri, Birgir ísleifur Gunnarsson þingmaður, Karvel Pálmason þingmaður, Glenda Jackson leik- kona, Karl Bretaprins, Benny Hill grínisti, George Bush Bandaríkjaforseti. TfGRISDÝR: Þú ert alveg geggjaður! Spennandi, upp- reisnargjarn og mikill persónuleiki, enda gjörsamíega ómótstæðilegur. Þú vilt vera sjálfstæður og það á vel við þig að vinna við fjölmiðlun eða í leikhúsi. Sjálfselskan er þinn helsti galli. Þekkt figrisdýr: Gunnar Eyjólfsson leikari, Halldór Blöndal þingmaður, Steinunn Sigurðar- dóttir rithöfundur, Ragnar Arnalds þingmaður, Elísabet Bretadrottning, Anna Bretaprinsessa. Þú er ljúfur, töfrandi og viökvæmur per- sónuleiki og þar sem þú ert afar tiifinninga- næmur áttu hvergi betur heima en í vinnu, sem tengist listum eða menningu. Ruglings- leg skaphöfn þín getur hins vegar valdið vandamálum. Þekktar Kanínur: Eiður Guðnason þingmað- ur, Þuríður Pálsdóttir söngkona, Geir Haarde þingmaður, Jón Baldvin Hannibalsson ráð- herra, Salome Þorkelsdóttir þingmaður, Demi Moore leikkona, Dusty Springfield söngkona, John Cleese leikari.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.