Pressan - 27.09.1990, Side 17
Fimmtudagur 27. sept. 1990
17
PRESSU
MQLAR
■ síðustu viku var haldinn full-
trúaráðsfundur hjá Starfsmanna-
félagi Reykjavíkurborgar
(St.Rv.), þar sem harkalega var tek-
ist á um hvort kjósa ætti formann
fyrir félagið að nýju eða ekki, eftir
fráfall Haralds Hannessonar.
Fram kom tillaga frá 21 fulltrúa um
að ieitað yrði afbrigða þannig að við
næstu stjórnarkosningar, í febrúar,
yrði nýr formaður kjörinn til eins
árs eða til loka yfirstandandi kjör-
tímabils, en lög félagsins eru sérstök
að því leyti að stjórnarkjör fer fram
h ce r r i
árlega, þannig að stjórnarmenn
ganga út á víxl. Flutningsmenn
bentu á nýlegt fordæmi um slíka af-
greiðslu: I ársbyrjun 1988 óskaði þá-
verandi varaformaður félagsins,
Pétur Kr. Pétursson, starfsmanna-
stjóri hjá borgarverkfræðingi, eftir
lausn, en hann hafði aðeins klárað
hálft kjörtímabil sitt. Þá var, eftir
samráð við lögfræðing, lögð fram
tillaga um afbrigði vegna kosningar
sjötta stjórnarmanns til árs, sem var
samþykkt samhljóða. Um leið var
bent á að stjórnin væri nú aðeins
skipuð 10 mönnum, en ætti sam-
kvæmt lögum félagsins að vera
skipuð 11 mönnum, og ennfremur
að stjórnin hefði sjálf ekki leyfi til að
kjósa sér formann, með því að
Sjöfn Ingólfsdóttur gegndi áfram
formennsku í forföllum, þrátt fyrir
stjórnarkjör í febrúar. Ekki treysti
stjórnin sér til að fara eftir fordæm-
inu, sem margir núverandi stjórnar-
manna stóðu að. í lok fundar kom
upp tillaga um frestun málsins um
mánuð og var hún samþykkt. ..
'm síðustu helgi voru kosnir
fulltrúar frá Alþýðuflokksfélagi
Reykjavíkur til að sitja flokks-
þing Alþýðuflokksins í október.
Eitt hundrað kratar gáfu kost á sér,
en velja mátti fimmtíu manns á
þingið. Þátttaka í kosningunni var
afar dræm og mættu innan við
hundrað manns í atkvæðagreiðsl-
una. Það er því ljóst að ekki einu
sinni þeir sem gáfu kost á sér hafa
mætt til að greiða sjálfum sér at-
kvæði! Eftir því sem við heyrum úr
herbúðum kratanna náði Geir
Gunnlaugsson ekki kjöri og sögur
segja að meðal fimm neðstu manna
á listanum hafi verið Stefán Frið-
finnsson og Bryndís Schram . . .
■ útvarpsheiminum gengur
mikið á. í síðustu viku sögðum við
frá því að Ágúst Héðinsson ætlaði
frá Islenska útvarpsfélaginu, af
Bylgjunni yfir á Effemm, en nú
heyrum við að tveir dagskrárgerð-
armenn á Effemm ætli yfir á Stjörn-
una. Það eru þeir Sigurður Ragn-
arsson og Klemens Arnarson.
Mun Sigurður sjá um þátt eftir há-
degi á Stjörnunni en Klemens um
morgunþætti milli 7 og 9 ...
t
I veir nýir þættir hefja göngu sína
á Bylgjunni í október. Þátturinn
Reykjavík síðdegis verður sendur
út í síðasta skipti á morgun, 28.
september, en í stað hans kemur
nýr þáttur, ísland í dag. Það er hinn
kunni útvarpsmaður Jón Ársæll
Þórðarson sem mætir af miklum
krafti á Bylgjuna á mánudaginn
og stjórnar þessum þætti. Þá mun
ætlunin að endurvekja viku-
skammtinn, sem var í umsjá Ein-
ars Sigurðssonar, fyrrum útvarps-
stjóra Bylgjunnar og núverandi
blaðafulltrúa Flugleiða. Þáttur þessi
verður sendur út fjórða hvern
sunnudag og meðal stjórnenda
verða Ingvi Hrafn Jónsson, fyrr-
um fréttastjóri ríkissjónvarpsins,
og Sigursteinn Másson ...
^SUNDAKAFFI V/SUNDAHÖF Sími: 36320
Höfum opnað nýjan matsal í vesturenda hússins m/ölkrá. Allar veitingar. Bjóöum upp á fjölbreyttan matseöil dagsins. Einnig sérrétti. Boröapantanir í síma 36320. Opið föstudaqa 18-01 laugardaga 18-01
Þjónað til borðs, þú heyrir bara Ijúfa, lága tónlist Sundakaffi - ölkrá - bar - Sundahöfn
e x t i r • skattafsláttur
lánsréttindi •
Með reglulegum sparnaði,
hæstu vöxtum, skattafslætti
og lánsrétti leggurðu Grunn
sem er sniðinn að þínum þörfum.
Grunnur er húsnæðisreikningur Landsbankans.
Hann er bundinn í 3 til 10 ár og nýtur ávallt
bestu ávöxtunarkjara sem bankinn býður á
almennum innlánsreikningum sínum. Leggja þart
inn á Grunn eigi sjaldnar en ársfjórðungslega.
Hámarksinnlegg á ári er nú rúm 360.000,- eða
90.000,- ársfjórðungsiega. Þannig gefur til dæmis
360.000 króna innlegg 90.000 krónur í
skattafslátt.
Grunni fylgir sjálfkrafa lánsréttur að sparnaðar-
tímanum loknum, en skilyrði er að lánið sé notað
til húsnæðiskaupa eða endurbóta og viðhalds.
Hámarkslán er nú 1,8 milljónir króna.
Grunnur er þannig bæði góð sparnaðarleið fyrir
þá sem hyggja á húsnæðiskaup eða byggingu
og kjörinn Hfeyrissjóður fyrir sparifjáreigendur.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
/l
| • .mmmm * * mb .
l............... '
lánsréttindi • h œ r r i v e x t i r • skattafsláttur