Pressan - 27.09.1990, Blaðsíða 27
r
0S8! 'W'. .W. .u.t.l-i- r.i.n'l
Fimmtudagur 27. sept. 1990
27
kvikmyndir helgarinnar
FIMMTUDACUR
27. september
Stöð 2 kl. 23.15
ÁELLEFTU
STUNDU***
(Deadline USA)
Bandarísk bíómynd frá 1952
Leikstjóri: Richard Brooks
Adalhlutverk: Humphrey Bogart,
Ethel Barrymore, Kim Hunter, Ed
Begley
Ritstjóri dagblaðs og starfsfólk hans
óttast að missa vinnuna með til-
komu nýrra eigenda þar sem núver-
andi eigendur blaðaútgáfunnar sjá
sér ekki fært að halda starfseminni
áfram. Um þær mundir sem verið er
að ganga frá sölu f yrirtækisins er rit-
stjórinn að rannsaka feril Rienzis
nokkurs, sem talinn er forsprakki
glæpahrings. Þegar betur er að gáð
tengist Rienzi einnig óupplýstu
morðmáli. Takist ritstjóranum að
koma upp um glæpahringinn í tæka
tíð er blaðinu og starfsfólkinu e.t.v.
borgið. Spennandi og skemmtileg
mynd, vönduð afþreying.
FOSTUDAGUR
28. september
Stöð 2 kl. 21.25
BARA VIÐ TVÖ*
(Just You and Me, Kid)
Bandarísk bíómynd frá 1979
Leikstjóri: Leonard Stern
Aöalhlutverk: George Burns,
Brooke Shields, Burl Ives
Burns leikur gamlan fjöllistamann
sem situr uppi með unglingsstúlku
sem hefur strokið að heiman. Þetta
er vandræðaleg og hallærisleg gam-
anmynd í flesta staði. Shields er von-
laus leikkona þrátt fyrir stórkostlegt
útlit en handritið er óásjálegt í alla
staði. Burns rembist eins og rjúpan
við staurinn við að halda vitleys-
unni á floti og verðskuldar eina
stjörnu fyrir þrautseigjuna.
Ríkissjónvarpið kl. 22.15
DÁTAR**,/2
(Yanks)
Bandarísk bíómynd frá 1979
Leikstjóri: John Schlesinger
Adalhlutverk: Richard Gere, Lisa
Eichhorn, Vanessa Redgrave,
Villiam Devane
Nokkuð hjartnæm mynd sem fjallar
um ástarsambönd bandarískra her-
manna og breskra kvenna í síðari
heimsstyrjöldinni. Þrátt fyrir góða
spretti nær hún ekki þeirn áhrifa-
mætti sem til var ætlast og hlýtur að
teljast í hópi margra miðlungsverka
Schlesingers sem hefur gert a.m.k.
eitt meistaraverk, Midnight Cow-
boy.
Stöð 2 kl. 23.20
ÖLDURÓT
(Eaux Troubles)
Frönsk spennumynd
Þessa mynd höfum við ekki séð og
í þokkabót fylgja engar upplýsingar
um efni hennar, ártal eða aðstand-
endur.
Stöð 2 kl. 00.50
FURÐUSÖGUR VI**
(Amazing Stories VI)
Bandarísk bíómynd frá 1985
Framleidandi: Steven Spielberg
Leikstjóri: Martin Scorcese, Paul
Michael Glaser, Donald Pertie
Adalhlutverk: Sam Waterston,
Helen Shaver, Max Gail, Kate
McNeil, Chris Nash, Sid Caesar,
Lea Rossi
Ein skásta myndin úr þessum innan-
tóma flokki hugverka; hrollur sem
vekur ekki ótta vegna sláandi al-
vöruleysis. Hér koma þó góðir
menn við sögu í leikstjórn og árang-
urinn er betri en í hinum myndun-
um. Fyrsta sagan segir frá hryllings-
sagnahöfundi sem fer að sjá óhugn-
anlega persónu í hvert skipti sem
hann lítur í spegil. Önnur sagan er
um lögregluþjón sem ásakar sig um
að vera valdur að dauða vinnufé-
laga síns. Sú þriðja er um útbrunn-
inn töframann sem fær kærkomið
tækifæri til að sanna sig með ein-
stökum spilastokk. Við mælum
helst með fyrstu sögunni.
LAUGARDAGUR
29. september
Stöð 2 kl. 21.20
PETER GUNN**
(Peter Gunn)
Bandarísk sjónvarpsmynd frá 1989
Leikstjóri: Peter Strauss
Aöalhlutverk: Peter Strauss,
Barbara WilUams, Pearl Bailey
Pétur þessi Gunnarsson kvað vera
hetja frá tímum Keflavíkursjón-
varpsins. í þessari nýlegu sjónvarps-
mynd er persónan endurlífguð og
lendir í nýjum ævintýrum. Gunn á
m.a. í höggi við lögreglumenn sem
snúið hafa af vegi dyggðarinnar, en
slíka starfsmenn ríkisins kallar kan-
inn sóðalöggu (a Dirty Cop). Þokka-
leg afþreying en efnið býður ekki
upp á meira. Aldrei mjög spennandi
og aldrei leiðinleg.
Ríkissjónvarpið kl. 21.30
DÁÐADRENGUR
(Good Boy)
Bandarísk bíómynd frá 1988
Leikstjóri: Tom Robertson
Adalhlutverk: Richard Farnsworth,
Anne Ramsey, Ryan Francis,
Maureen Sullivan
Þessa mynd höfum við ekki séð en
hún fjallar um sumar í lífi tólf ára
drengs og vina hans í litlu þorpi í
Mississippi. Hljómar ágætlega.
Stöð 2 kl. 22.55
HÁSKAFÖR**
(The Dirty Dozen; The Deadly
Mission)
Bandarísk sjónvarpsmynd frá 1987
Aöalhlutverk: Telly Savalas, Ernest
Borgnine, Vince Edwards, Bo
Svenson
Stjörnur meðalmennskunnar í lítt
minnisstæðri endurgerð gamallar
stríðsmyndar: Harðsnúin sérsveit
þarf að bjarga vísindamönnum úr
klóm nasista. Vel gert, ófrumlegt og
þokkalega spennandi.
Ríkissjónvarpið kl. 23.00
SPRENGJUTILRÆÐIÐ í
BIRMINGHAM***
(Who Bombed Birmingham?)
Bresk sjónvarpsmynd frá 1990
Leikstjóri: Mike Beckham
Adalhlutverk: John Hurt, Martin
Shaw
Byggt á sönnum atburðum: í nóv-
ember 1974 gerði írski lýðveldisher-
inn sprengjuárás á tvær krár í Birm-
ingham með þeim afleiðingum að
21 lést. Sex írar voru snarlega teknir
fastir og fundnir sekir þó þeir stæðu
fast á sakleysi sínu. Varð réttlætið að
víkja vegna þess hve lögreglunni lá
á að leysa málið? Skítalykt af mál-
inu. Gæðamynd sem tekur á heitu
og viðkvæmu efni. Frábær leikur og
vönduð framleiðsla í hvívetna.
Breskt þjóðerni er gæðamerki á
sjónvarpskvikmyndir.
Stöð 2 kl. 00.30
INNRÁS ÚR
GEIMNUM***
(Invasion of the Body
Snatchers)
Bandarísk bíómynd frá 1978
Leikstjóri: Philip Kaufman
Aöalhlutverk: Donald Sutherland,
Brooke Adams, Leonard Nimoy,
Jeff Goldblum, Don Siegel
Alveg rosalega skemmtileg og
krassandi hrollvekja sem jafnframt
vekur upp söknuð eftir gamla góða
Tónabíói, en þar var hún sýnd.
Geimverur yfirtaka iíkama fólks
með skelfilegum afleiðingum.
Skemmtileg undantekning frá þeirri
reglu sem yfirleitt gildir um myndir
með söguefni á borð við þetta, en
þær eru oftast rusl. Háspenna og
vandaður óhugnaður.
SUNNUDAGUR
30. september
Stöð 2 kl. 12
TIL HINSTU HVILU***
(Resting Place)
Bandarísk sjónvarpsmynd frá 1986
Leikstjóri: John Korty
Aöalhlutverk: John Lithgow,
Richard Bradford, M. Emmet
Walsh
Vönduð sjónvarpsmynd um klikkun
kynþáttamisréttisins: Stríðshetja
lætur lífið í Víetnam. Þegar á að
jarðsetja manninn í heimabæ sínum
kemur babb í bátinn því maðurinn
var svartur en kirkjugarðurinn að-
eins ætlaður hvítum.
Ríkissjónvarpið kl. 21
NÚ FÆRIST ALVARA
f LEIKINN
Ný tékknesk sjónvarpsmynd sem
við þekkjum hvorki haus né sporð
á. Nú færist alvara í leikinn ...
Stöð 2 kl. 21.50
SKUGGI**1/2
(Casey's Shadow)
Bandarísk bíómynd frá 1978
Leikstjóri: Martin Ritt
Aöalhlutverk: Walter Matthau,
Alexis Smith, Robert Webber,
Murray Hamilton
Hestatamningamaður þarf að ala
upp þrjá syni sína einn eftir að kon-
an yfirgefur fjölskylduna. Karlinn
hefur ekki sýnt sömu ákveðnina við
synina og bikkjurnar sínar og því
þarf hann að taka á honum stóra sín-
um í hlutverki uppalandans. Fremur
hugnæm mynd sem þó nær ekki
þeim áhrifum sem hún hefði getað
með aðeins betra handriti. Ágætur
leikur. Meðmæli.
Stöð 2 kl. 23.45
MARAÞ0N-
MAÐURINN ****
(The Marathon Man)
Bandarísk bíómynd frá 1976
Leikstjóri: John Schlesinger
Aöalhlutverk: Dustin Hoffman, Sir
Laurence Olivier, Roy Scheider,
William Devane, Marthe Keller
Frábær spennumynd, óhugnanleg,
vel leikin og raunveruleg: Hoffman
leikur námsmann af gyðingaættum
sem flækist í njósnamál. Olivier
leikur gamlan nasista og er vægast
sagt andstyggilegur. Næstbesta
mynd Schlesingers en jafnframt gott
dæmi um fjölhæfni hans þegar höfð
eru í huga verk gjörólík henni, eins
og sú besta þeirra, Midnight Cow-
boy. Eindregin meðmæli.