Pressan - 08.11.1990, Side 10

Pressan - 08.11.1990, Side 10
10 FIMMTUDAGUR PRESSAN 8. NÓVEMBER Oskjuhlíðarhúsiú MILLJONIR Framkvœmdir keyröar áfram þótt endanleg nýting lœgi ekki fyrir Samningur sá sem var undirritaöur viö Brauöbœjar- menn 18. október síöastliöinn kostar Hitaveitu Reykja- víkur og Reykjavíkurborg aukalega um 30 milljónir króna. Vegna hugmynda Brauöbœjarmanna um nýtingu Öskjuhlíöarhússins, Perlunnar, og þann veitingarekstur sem þar þarfaö vera veröur aö rífa niöur veggi og auka viö þann húsakost sem fyrir er. Heildarkostnaöur viö húsiö, á verölagi dagsins í dag, er nú áœtlaöur um einn milljaröur króna. „Ég tel að það hafi verið hand- vömm hjá þeim að semja ekki strax við þann aðila sem kæmi til með að sjá um reksturinn. Ég sagði þeim fyrir tveimur árum að þeir ættu að flýta sér að finna rekstraraðila, því að hann ætti örugglega eftir að koma með sínar hugmyndir um breytingar á húsnæðinu," sagði Skúli Þorvaldsson, veitingamað- ur á Hótel Holti. Skúli hefur verið í samningaviðræðum við þá hita- veitumenn um rekstur staðarins, en ekki náðist samkomulag þeirra í milli. Nú, þegar samið hefur verið við Bjarna I. Árnason veitingamann í Brauðbæ, kemur í ljós að þær hug- myndir sem hann og samstarfs- menn hans í Brauðbæ hafa um veit- ingareksturinn koma ekki heim og saman við innréttingar Öskjuhlíðar- hússins. TVÆR SKRIFSTOFUR FJARLÆGÐAR Brauðbæjarmenn ætla að hafa allt annan rekstur á fjórðu hæð hússins en áður var fyrirhugað. Það er næsta hæð fyrir neðan sjálfan veitingastaðinn, þar sem menn munu elta steikurnar í hring. Þar átti meðal annars að vera skrifstofu- aðstaða. Nú er hins vegar byrjað að rífa niður veggi á hæðinni en sam- kvæmt upplýsingum sem fengust frá Benedikt Olgeirssyni, verk- fræðingi hjá SH-verktökum í Hafn- arfirði, sem sjá um verkið, eru ein- göngu hlaðnir milliveggir rifnir. Eitthvað af þeim mun þó hafa verið búið að flísaleggja. „Hugmyndir okkar ganga út á að hafa töluverðan rekstur á fjórðu hæðinni. Við ætlum að hafa þarna ísbúð og kaffiteríu. Þetta var ekki inni í myndinni áður en við komum til. Hugmyndin er að hafa þarna að- stöðu fyrir fólk sem vill skoða húsið en um leið vernda efstu hæðina fyr- ir miklum umgangi," sagði Bjarni I. Árnason. Hann sagði einnig að þessar hugmyndir kæmu heim og saman við það sem starfsmenn borgarinnar hefðu viljað gera og tók hann fram að þetta hefði allt verið gert í besta samkomulagi við þá. 300 FERMETRA JARÐHÝSI FYRIR BJARNA Vegna breyttrar skipunar á fjórðu hæð Öskjuhlíðarhússins þurfti að breyta þeim þjónustuhúsum sem verða fyrir utan sjálft húsið. Þar er fyrirhugað að verði jarðhýsi, sem séu nokkurs konar þjónustuhús fyr- ir veitingareksturinn. Meðal annars verður að reisa um 300 fermetra jarðhýsi sem ekki var reiknað með, en talið er að kostnað- ur við það verði ekki undir 15 millj- ónum króna. Hús þetta á að koma í staðinn fyrir skrifstofurnar á fjórðu hæð auk þess sem talið er að vanti einhverja lageraðstöðu. Jóhannes Zoéga, umsjónarmað- ur byggingarinnar og fyrrverandi hitaveitustjóri, staðfesti það í sam- tali við PRESSUNA að starfsemin yrði öll stærri í sniðum en áður hefði verið ætlunin. „Þetta verður talsvert öðruvísi rekstur en ætlunin var að hafa á Skúlatímabilinu og þarna verður að gera ákveðnar breytingar. Ég get hins vegar ekki gefið upp neinar tölur um hvað það kostar," sagði Jóhannes. Það kom hins vegar fram hjá honum að áætl- aður heildarkostnaður við Öskju- hlíðarhúsið væri um einn milljarður króna á verðlagi dagsins í dag. Það er því óhætt að segja að húsið sé að verða komið í gott perluverð. ARKITEKTINN HÉLT ÁFRAM AÐ TEIKNA Að sögn Skúla Þorvaldssonar hóf- ust viðræður við hann í október 1989 um að taka við rekstri staðar- ins. Hinn 14. febrúar á þessu ári mun síðan hafa komið ákveðið til- boð frá hitaveitumönnum og segist Skúli hafa svarað því fimm dögum seinna eða 19. febrúar. Síðasti fund- ur þeirra í milli var síðan 11. apríl. Eftir það gerðist síðan ekkert næstu fimm mánuði eða fram til 11. september. Þá sagðist Skúli hafa heyrt aftur frá hitaveitumönnum, sem hefðu enn leitað eftir samning- um við hann. Skúli sagðist hafa hafnað því, enda þá löngu orðið Ijóst að ekki semdist. Allan þennan tíma var fram- kvæmdum haldið áfram við húsið og einhverjir veggir og „veggstubb- ar“ (eins og einn viðmælenda PRESSUNNAR kaus að orða það) reistir. Þrátt fyrir að ljóst væri að rót- tækar breytingar yrði að gera þegar rekstraraðili fengist virðast umsjón- armenn hússins ekki hafa séð ástæðu til að hægja á framkvæmd- um eða hætta þeim. „Við unnum þetta eftir ákveðnu tímaplani, sem gengur út á það að húsið verði opnað næsta vor. Ein- hverra hluta vegna tókst ekki að fá rekstraraðila fyrr og við því er ekk- ert að segja. Aðvitað er leiðinlegt að þurfa að færa til veggi sem nýbúið er að reisa en þeir sem voru að vinna þetta unnu undir ákveðinni tímapressu," sagði Ingimundur Sveinsson, arkitekt hússins, þegar hann var spurður að því af hverju ekki þótti taka því að hægja á fram- kvæmdum. Hann sagðist ekki treysta sér til að gefa upp kostnaðar- verð vegna breytinganna. Ingimundur tók fram að Skúli hefði verið nokkurs konar ráðgjafi við hönnun hússins og staðfesti Skúli það. Sagðist hann meðal ann- ars hafa ráðlagt að færa eldhúsið upp á sjálfa veitingasöluhæðina, en upphafíega mun hafa verið ætlunin að hafa það á fjórðu hæð. Skúii sagði jafnframt að allan þann tíma sem hann hefði verið í sambandi við þá sem eru að reisa húsið hefði hann haft uppi varnaðarorð um að breytingar yrðu óhjákvæmilegar þegar rekstraraðili fengist. Fram kom hjá flestum framantöld- um viðmælendum PRESSUNNAR að þeim þætti ekki um háar upp- hæðir að tefla, þó enginn þeirra drægi beinlínis í efa að talan yrði ná- lægt 30 milljónum króna, eins og heimildir PRESSUNNAR herma. Til að gefa einhverja vísbendingu um hve lengi húsaleigan fyrir Öskju- hlíðarhúsið verður að greiða þetta upp má benda á eftirfarandi: Húsa- leigan sem Brauðbæjarmenn eiga að greiða verður 4% af veltu að frá- dregnum virðisaukaskatti. Menn telja nokkuð nærri lagi að nettóvelt- an verði um 200 milljónir króna á ári og húsaleiga samkvæmt því um 8 milljónir. Það tekur því um fjögur ár að fá inn fyrir þeim breytingum sem hafa verið ákveðnar eftir 18. október. Sigurður Már Jónsson S.ÞÓR

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.