Pressan - 08.11.1990, Side 14
14
FIMMTUDAGUR PRESSAN 8. NÓVEMBER
\
\
Hann hugsar lengra en til líðandi stundar!
Hygginn stjórnandi, sem oft þarf að sinna aðkallandi verkefn-
um erlendis, hefur kynnt sér ótvíræða kosti Saga Class farmiða Flugleiða.
Hann getur t.d. flýtt brottför sinni ef vel gengur eða seinkað
henni komi eitthvað óvænt uppá. Hann kann að notfæra sér tengiflugsrétt-
indi Saga Class farþega. Hann nýtir sér líka 50% makaafsláttinn og tryggir
fleira en viðskiptasambönd sín erlendis.
Hann hugsar lengra en til líðandi stundar og notar því Saga
Class farmiða Flugleiða.
FYRIR ÞÁ SEM ERU AÐEINS Á UNDAN
l væntanlegri bók sinni fjallar
Þórarínn Tyrfingsson á opinská-
an hátt um leið sína til alkóhólisma.
Það sem vafalaust kemur einna
mest á óvart í því sambandi er, að
Þórarinn rekur sjúkdóminn ekki síst
til mikillar drykkju í tengslum við
handboltann. Eftir leiki, einkum á
ferðalögum, var nær undantekn-
ingarlaust dottið hressilega í það.
Sem sé: íþróttirnar voru ekki það
aðhald sem ætla mætti...
að kom fram í PRESSUNNI
um daginn að frænka Jóhannesar
Gunnarssonar, formanns og fram-
kvæmdastjóra Neyt-
endasamtakanna,
ynni á skrifstofunni
með honum. Þetta
hefur verið gagn-
rýnt í stjórn samtak-
anna en Jóhannes
gaf þá skýringu í
PRESSUNNI að frænkan hefði verið
fengin til að sjá um bókasafn sam-
takanna og halda því við. Hún hefði
verið í fullu starfi við að koma safn-
inu í fastar skorður og síðan í hluta-
starfi við að halda starfi sínu við.
Samkvæmt reikningum samtak-
anna eru bóka- eða blaðakaup
þeirra ekki umtalsverð og vandséð
að fullt starf sé að halda reiðu á
þeim. í fyrra voru bækur og blöð
keypt fyrir 30 þúsund, árið á undan
fyrir 20 þúsund og árið þar á undan
fyrir 34 þúsund krónur. Fyrir þessa
fjármuni er ekki hægt að fá fleiri
bækur en svo að fullvaxinn maður
gæti borið þær...
í* angelsismálastofnun ríkisins er
ný stofnun, en við hana hafa miklar
vonir verið bundnar og stóð til að
efla starfsemina þar jafnt og þétt.
Innan stofnunarinnar ríkti hins veg-
ar engin ánægja þegar fjárlaga-
frumvarpið fyrir næsta ár leit dags-
ins ljós. Þar er stofnuninni úthlutað
22,2 milljónum króna og miðað við
óbreyttan starfsmannafjölda eða
átta manns. Haraldur Johannes-
sen, forstjóri stofnunarinnar, mun í
kjölfarið hafa ritað fjárveitinga-
nefnd Alþingis bréf, þar sem hann
lýsir vanþóknun sinni á afgreiðslu
frumvarpsiris og krefst þess að mið-
að verði við tólf starfsmenn, enda
hafi hástemmdar yfirlýsingar verið
gefnar um eflingu stofnunarinn-
ar...
68 55
H4ÍU