Pressan - 08.11.1990, Page 21
FIMMTUDAGUR PRESSAN 8. NÓVEMBER
21
Jón Páll Sigmarsson
sterkasti fjármálamadur heims
Enginn
Schwarz-
enegger
I bakhúsi viö Suðurlandsbraut eru undarlegir menn á
ferli. Þeir hegða sér eins og smiðir en líta ekki út fyrir að
vera það. Verkfœrin íhöndum þeirra virðast hafa annað
hlutverk en að negla, saga og hefla. Þeir ganga til verks
með sérkennilegri einbeitingu, eins og maður gerir ráð
fyrir að musterissmiðir hafi gert til forna. Enda eru þeir
að reisa musteri, þar sem menn munu svitna, öskra og
að lokum umbreytast.
Yfir þessu öllu vakir maður sem í daglegu tali er kall-
aður „sterkasti maður heims“, svona til að aðgreina
hann frá hinum hluta mannkynsins.
Það er ekki einfalt mál að fá Jón
Pál Sigmarsson í viðtal. í fyrsta lagi
virðist hann ekki vera mikið fyrir að
spjalla um siálfan sig. Flestum virð-
ist það í mótsögn við sjónvarpstrúð-
inn sem öskrar „I’m a Viking", en
svona er það nú samt. Þá er maður-
inn með eindæmum upptekinn
þessa dagana. Það liggur beint við
að spyrja hann hvort hann ætli nú
að fara að græða peninga — er bísn-
issmaðurinn að brjótast út úr líkam-
anum?
„Nei, ég er ekki að þessu til að
græða peninga, ég er ekki þannig
maður. Ég er í raun eins og venjuleg-
ur íslenskur verkamaður sem er að
reyna að láta drauminn rætast.
Þetta er fyrst og fremst hugsjón."
Jón sér vantrúarsvipinn á blaða-.
manninum og brosir þar sem hann
situr uppi á væntanlegu afgreiðslu-
borði í hálfkaraðri líkamsræktar-
stöð sinni. Blaðamaðurinn segist
hafa heyrt að stöðin komi til með að
kosta 50 milljónir króna og að
bankastjórinn í Grjótaþorpinu,
Herluf Clausen, hafi lagt peningana
til.
Jón Páll neitar því að Herluf sé
þátttakandi í ævintýrinu. „Ég hef
hins vegar heyrt svona sögur — mér
skilst að Herluf eigi að hafa lánað
okkur fyrir tækjunum."
Jón segir að hann sé að sjálfsögðu
ekki einn í þessu. Með honum séu
nokkrir kunningjar úr „bransanum"
og þá komist menn auðvitað ekki
hjá því að skulda eitthvað. Hann
segist ekki vera ríkur maður. Hann
grípi ekki í digra sjóði til að fjár-
magna slík ævintýri. Meðal annars
hafi hann orðið að selja íbúð sína,
þannig að hann hann fær að búa hjá
kunningjum í bili.
ENGINN PAPPÍRS-PÁLL
Jón Páll segir að fjármálin séu
ekki hans deild í fyrirtækinu.
„Ég er enginn Pappírs-Páll,“ segir
hann brosandi en segir síðan alvar-
legri í bragði að hann hafi aldrei tek-
ið bankalán. Hann hafi einu sinni
gert tilraun til þess vegna íbúðar-
kaupa en móttökurnar í bankakerf-
inu hafi gert hann afhuga því. Þá
neitar hann því staðfastlega að
hann sé að verða einhver íslenskur
Arnold Schwarzenegger. Segir þó
að ferill Schwarzeneggers sé athygl-
isverður og hann hafi gaman af
myndum hans.
Margir sem fylgjast með Jóni Páli
eru sannfærðir um að hann sé ríkur
— annað komi ekki til greina miðað
við hve eftirsóttur hann sé til að aug-
lýsa vörur og taka þátt í auglýsing-
um. Þá fái hann dágóðar summur
fyrir að vinna kraftakeppnir víða
um heim. Aðrir halda því reyndar
fram að þetta sé allt saman orðum
aukið og sagt hefur verið að hann
verði að vinna þær keppnir sem
hann tekur þátt í — einfaldlega til að
eiga fyrir fargjaldinu heim.
Jón Páll segir að hann hafi unnið
töluvert fyrir kunningja sinn í Skot-
landi sem reki mjólkurbú. „Hann
hefur verið að framleiða íslenskt
skyr og koma því á markaðinn. Ég
bý hjá honum þegar ég er úti og
hann hefur verið að reyna finna eitt-
hvað að gera fyrir mig.“ — Hógvær
athugasemd frá manni sem mun
vera orðinn nokkuð þekktur á Bret-
landseyjum og birtist reglulega í
auglýsingatímum þar.
LÆTUR SKAPIÐ BITNA
Á LÓÐUNUM
Jón segist ekki vera að hugsa um
að breyta um lífsstíl — hann ætli
áfram að standa í kraftakeppnum.
En sér hann sjálfan sig vera að fást
við þetta um fimmtugt? Jón Páll seg-
ist síður en svo vera á niðurleið.
„Ég vann keppnina „Sterkasti
maður heims" í fyrsta skipti 1984,
en þegar ég tapaði titlinum árið eftir
afskrifuðu mig margir. Menn fóru að
velta því fyrir sér hvort ekki væri
hægt að finna frambærilegri mann.
Það er nú kannski hægt að svara
þessu með að benda á að síðan í ág-
úst hef ég bætt við mig þrem titlum,
þar á meðal titlinum „Sterkasti
maður í heimi“.“
Jón Páll hefur unnið þann titil fjór-
um sinnum eða oftar en nokkur
annar.
Það vakti athygli að um síðustu
helgi fór fram kraftakeppni hér á
landi án þátttöku Jóns Páls. Frá um-
boðsmanni hans fór harðorð frétta-
tilkynning, þar sem vakin var at-
hygli á tilraunum til að útiloka Jón
Pál. Hann sjálfur segist ekki vilja
ræða þetta, en greinilegt er að hon-
um gremst hvernig mál hafa þróast.
Hann játar að allt svona stúss fari
illa í sig — segir að friður og sátt séu
honum mikilvæg. Hann neitar þó
að hann sé skaplaus, hann reyni
bara að beina því að lóðunum. I
framhaldi af því förum við að ræða
um drauma manna og kraftatröllið
kemur blaðamanni dálítið á óvart
með því að læða út úr sér að hann
Ég leita ekki og hef aldrei leitad neitt
eigi sér í raun þann draum að geta
séð sem flesta^ hamingjusama í
kringum sig. f hugskoti blaða-
mannsins flýgur hjá mynd af Jóni
Páli í „súpermann“-búningi að út-
breiða frið og sáttfýsi — ekki svo
ólíkindalegt þegar á allt er litið!
LÍÐUR BEST HEIMA
í framhaldi af því freistast maður
óneitanlega til spyrja Jón Pál hvar
hann eigi sínar bestu stundir og enn
kemur hann á óvart.
„Mér líður best heima hjá mér, ég
er líklega það sem menn kalla heim-
ilismaður. Ég hef gaman af að elda
og reyni að gefa mér góðan tíma í
það.“ Jón Páll brosir hógværlega
þegar hann er spurður hvort hann
sé góður kokkur — segist þó halda
að það bragðist ágætlega sem hann
eldar.
„Þá hef ég afskaplega gaman af
því að leika mér með guttanum mín-
um, þó að alltof lítill tími hafi gefist
til þess undanfarið."
Jón Páll á sjö ára gamlan son en
hanp og móðir piltsins slitu samvist-
ir fyrir nokkrum árum. Ég spyr
hvort það hafi tekið á að ganga í
gegnum skilnað. Jón Páll gefur lítið
út á það — segir að það sé lífsreynsla
sem nánast annar hver íslendingur
kynnist. Hann játar þó að fjölskyld-
an sé honum mikilvæg. „Ég tel nú
að lífið sé lítils virði án þess að eiga
fjöiskyldu."
Jón Páll segist ekki eiga í neinu
föstu sambandi núna, enda komi
ferðalögin illa heim og saman við
slíkt. — En er hann að leita að þeirri
einu réttu?
„Ég leita ekki og hef aldrei leitað
neitt."
Jón Páll segir aðspurður að hann
hljóti stundum athygli kvenna og
sérstaklega í formi tvíræðra athuga-
semda.
„Ég fæ stundum að heyra athuga-
semdir eins og: „Ekki vildi ég vera
í rúminu með þér; þú ert svo þungur
og stór.“ — Ég segi nú bara þá að
sannur herramaður taki þungann
að sjálfsögðu af með olnbogum og
hnjám.“
HENTI SÍMASTAUR í TÁNA Á
MICHAEL CAINE
Stundum leitar sú hugsun að
manni að Jón Páll hafi alla burði til
að ná heimsfrægð, en hann segir
sjálfur að slíkt gerist hægt. Úti í hin-
um stóra heimi fari oft lítið fyrir
„heimsfrægð" íslendinga. Hann
segir til dæmis að ekki sé hlaupið að
því að komast að í kvikmyndum,
eins og Schwarzenegger hefur gert.
Nú er reyndar á leiðinni í kvik-
myndahús mynd þar sem Jón Páll
sést í smáhlutverki. Það er hinn
kunni breski leikstjóri Michael
Winner sem leikstýrir og myndin
heitir Bullseye. Með aðalhlutverkin
fara ekki ófrægari kappar en Roger
Moore og Michael Caine. Jón Páll
gerir reyndar lítið úr sínum þætti.
„Þeir leika menn á flótta og fara í
gegnum leikvang þar sem Hálanda-
leikarnir fara fram. Ég hendi síma-
staur í tána á Michael Caine.“
Á morgun leggur Jón Páll enn
einu sinni land undir fót. Áfanga-
staðurinn er Japan og þar ætlar
kappinn að bregða sér í líki jóla-
sveins og taka þátt í kynningu á ís-
landi um leið og eftirlíking af Höfða
verður vígð. Hann segist að sjálf-
sögðu hlakka til ferðalagsins en
hugurinn er greinilega í líkamsrækt-
armusterinu, sem í dag er eina
heimilið sem sterkasti maður í
heimi á.
Sigurður Már Jónsson