Pressan - 15.11.1990, Blaðsíða 30

Pressan - 15.11.1990, Blaðsíða 30
Bóndi í Vopnafirði Arfleiddi belju að skuldunum og losnaði við þœr I sláturhúsið — sé fram á nýtt og betra líf, segir Hólmsteinn Jörundsson íslenskir hugvitsmenn GULDU AFHROÐ A ÓLYMPÍULEIKUM HUGVITSMANNA — brjóstvitið það eina sem við get- um boðið ón frek- ari fjórstuðnings, segir Guttormur Einarsson Bruggarar seldu Hjálpræðis- hernum messuvín — voru dul- búnir sem nunnur 7. TÖLUBLAÐ 1. ÁRGANGUR FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER Kokkteilsósa / fullkomin ■ massavis Petta hús í Hafnarfirði var nýlega selt til Grikklands fyrir um 57 milljónir. Ð 1990 Guðlaug Hrafnsdóttir tók lagið á blaðamannafundi sem hún hélt eftir atlög- una. Flutt med lögregluvaldi úr kirkju SÖNG HÁTT OG FALSKT mengunarvörn Straumsvík, 15. nóvember_____ Fyrir tilviljun hafa ís- lenskir hugvitsmenn kom- ist að því að svokölluð kokkteilsósa er ein besta mengunarvörn fyrir álver sem þekkist. Svo virðist sem reykur frá álverksmiðjum, sem leiddur er í gegnum þykkt lag af kokkteilsósu, hreinsist ger- samlega af öllum hættuleg- um efnum. Þrátt fyrir ítrek- aða leit finnst heldur ekkert af þessum efnum í kokkteil- sósunni á eftir og er þá full- komlega óhætt að neyta hennar. Það var Þorfinnur Jóseps- son bílvélavirki sem komst að þessu fyrir tilviljun þegar hann var að borða hádegis- matinn sinn á verkstæðinu. Hann tók eftir að þegar hann borðaði kokkteilsósu var loft- ið á verkstæðinu mun hreinna en ella. Sósan hefur verið vinsælt viðbit með frönskum kartöfl- um og hamborgurum á ís- landi frá því snemma á átt- unda áratugnum. Hún hefur verið nokkurs konar ,,tabú“, þar sem þjóðin hefur hálf- skammast sín fyrir að borða hana. Nú hefur þessi sósa hins vegar fengið uppreisn æru á dálítið einkennilegan hátt. Reykjavík, 15. nóvember Að undanförnu hefur orðið vart mikillar eftir- spurnar eftir ísienskum húsum til að reisa erlendis að sögn Garðars Halldórs- sonar, Húsameistara ríkis- ins, sem hefur umsjón með þessum útflutningi. Upphaf þessa má rekja til þess að japanskur kaupsýslu- maður lét reisa eftirmynd Höfða í tengslum við ísiands- sýningar í Japan. Þar sem það þótti mjög velheppnað komu strax fyrirspurnir frá Japan um fleiri hús; meðal annars viðbygginguna við Landsbankann í Austur- stræti, pylsuvagninn við Tryggvagötu og hegningar- húsið við Skólavörðustíg. „Svo virðist sem Japanir vilji hvaða hús sem er, svo framarlega sem það er ís- lenskt. Einn lét sér meira að segja lynda að taka Akureyr- Ullin og lambid Geta leyst flóttamanna- vandamálið Genf, 14. nóvember Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur sent Rauðakrossi íslands fyrispurn og óskað eftir upplýsingum um þær vörur sem Rauðikrossinn hefur boðið flóttamönnum. Ástæða fyrirspurnarinn- ar er sú að hvar sem ís- Starfsmenn Rauðakross- ins gengu frá sýnishorn- um af íslensku vörunum í gær. lenski Rauðikrossinn kem- ur að gefa þessa vöru virð- ast flóttamenn hreint og beint gufa upp. „Þeir eru að velta því fyr- ir sér hvort ekki megi leysa flóttamannavandann í eitt skipti fyrir öll með því að fjöldaframleiða Álafoss- teppin og niðursoðna kindakjötið," sagði Guðjón Magnússon, formaður Rauðakrossins. Framsókn utan úr geimnum fj Selfossi, 15. nóvember Erfðafræðilegar rann- sóknir á bændum á Suður- landi hafa leitt fram ný og óvænt tíðindi. Eins og skýrt var frá í GULU PRESSUNNI fyrir skömmu leiddu rannsóknirnar í ljós að Eggert Haukdal væri í raun samtíðarmað- ur Móse spámanns. Nú hef- ur jafnframt komið í ljós að fylgni við Framsóknar- flokkinn er „genísk“ og byggist á vissum erfða- galla. Steinþór Þóroddsson, for- stöðumaður rannsóknar- hópsins, sagði í samtali við GULU PRESSUNA, að fundist hefði sama frávikið í erfðavís- um langflestra þeirra fram- sóknarmanna sem kannaðir voru. Við blóðrannsóknir hefði komið í ljós að þetta væri ættgengt. Það vekur athygli í niður- stöðum rannsóknarhópsins að frávikið er tiltölulega nýtil- komið. í sýnum frá því snemma á síðustu öld finnst það ekki. „Tilgáta okkar er sú að Kópavogi, 14. nóvember__ Þrjátíu og sjö ára gömul kona var flutt með lögregluvaldi úr miðri messu í Kársnes- kirkju á sunnudaginn fyrir að standa of ná- lægt altarinu og syngja of hátt og of faiskt. „Ég var bara að veg- sama minn Guð," sagði konan þegar hún var leidd út í lögreglubíl. Haraldur Brjánsson prestur sagði að hann hefði mátt þola það í hátt ,á annað ár að konan stæði þétt upp við altarið og syngi hástöfum í hverri einustu messu. Á sunnudaginn hefði þolin- mæði hans hins vegar irostið og hann hringt á ögregluna og óskað eftir 5ví að konan yrði fjar- lægð. „Ef ég hefði ekki gripið til aðgerða nú hefði söfn- tðurinn gefist endanlega upp,“ sagði Haraldur. ,Það voru margir hættir pð mæta til messu vegna conunnar." þetta frávik hafi orðið til vegna stökkbreytingar þegar lífrænar agnir úr loftsteinum blönduðust lífríkinu á Suður- landi," sagði Steinþór. „Það má því segja að fram- sóknarmennska hafi komið utan úr geimnum. Það sem er kannski ógnvænlegast við þetta allt saman er að þrátt fyrir að þess sjáist kannski ekki merki þessa dagana, þá teljum við okkur hafa sann- anir fyrir því að hún breiðist hratt út á næstu árum.“ arkirkju þegar ekkert annað bauðst," sagði Garðar Hall- dórsson. Fljótlega eftir að útflutning- urinn til Japans hófst fór að bera á eftirspurn frá öðrum löndum, en þar sem starfs- menn húsameistara eru fáir hafa þeir ekki undan að teikna húsin upp. Því hefur verið gripið til þess ráðs að flytja húsin sjálf utan. „Þó þetta geti þýtt ein- hverja húsnæðiseklu mega menn ekki gleyma því að þetta gefur góðan pening," sagði Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra. „Það er hins vegar athyglisvert að eft- irspurnin beinist fyrst og fremst að húsum í húsbréfa- kerfinu. Útlendingar virðast ekki vilja líta við húsum með lánunum hans Alexanders." Framsóknargenin hafa meðal annars fundist í Stefaníu og Brynjóifi á Skörðugili. Kuennalistinn BOÐIÐ AÐ TAKA ÞÁTT í RÍKIS- STJÓRN MEÐ KONTRA-SKÆRULIDUM Reykjavík, 14. nóvember Kvennalistanum á Is- landi hefur verið boðið að taka þátt í útlagastjórn Kontra-skæruliða í Nic- araqua. Þetta tilboð kom í kjölfar yfirlýsingar Kvennalistans á síðasta ársfundi flokksins. Þar lýstu konurnar því yfir að þær væru tilbúnar að taka þátt í ríkisstjórn. Ekkert tilboó barst frá ís- lensku stjórnmálaflokkunum né öðrum flokkum á Vestur- löndum, utan hvað fyrirspurn kom frá sænska miðjuflokkn- um um hvaða ráðuneyti kon- urnar hefðu hugsað sér. Það var síðan í gær að til- boð barst frá Kontrunum, sem vilja fá konurnar án skil- yrða. „Við eigum eftir að skoða þetta mál í okkar hópi,“ sagði ingibjörg Hafstað, starfsmað- ur Kvennalistans. „Okkur þykir dálítið einkennilegt að Kontrarnir skuli óska eftir myndum af okkur en í fljótu bragði ætti það ekki að standa í veginum. Við mun- um láta málefnin ráða.“

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.