Pressan - 15.11.1990, Blaðsíða 12

Pressan - 15.11.1990, Blaðsíða 12
12 I'IMMTUIWiIIR PRESSAN 15. NÓVKMHKR Starfslokasamningur Jóns H. Bergs tryggir honum 550 þúsund krónur á mánuöi til œviloka. Stjórn Sláturfélags Sudurlands berst nú hatrammri baráttu fyrir dómstólum til að fá hnekkt eftirlaunasamn- ingi Jóns H. Bergs, fyrrverandi forstjóra fyrirtœkisins. Samningurinn fœrir Jóni sömu mánaðarlaun og núver- andi forstjóra, eða um 550.000 krónur, allt til œviloka. Jón var aðeins 61 árs þegar hann lét af störfum 1988. Miðað við meðalœvilengd íslenskra karlmanna þarfSS að greiða þessa upphœð í 15 ár eða 100 milljónir króna alls. SS hefur þegar tapað málinu í borgardómi en hefur áfrýjað til Hœstaréttar. Einu ári eftir að Jón hætti störfum hjá SS hætti fyrirtækið að greiða honum umsamin eftirlaun og höfðaði hann þá mál á hendur SS, sem hann vann í borgardómi í vor. Það var Sigríöur Ólafs- dóttir borgardómari sem kvað upp dóminn. Var SS gert að greiða Jóni laun eins og um hafði verið samið auk þess sem félaginu var gert að af- henda honum afsal fyrir forstjóra- bifreiðinni R-355. Var þar um að ræða Buick Electra-bifreið sem var metin á 2,5 milljónir síðasta vor. Töldu núverandi förráðamenn SS að slík gjöf væri „alveg fráleit". ig eftirlaunasamning hann hafði gert við fyrrverandi formann stjórnar, Gísla 'Andrésson, árið 1984, fjór- jUtn árum áður en honum var sagt upp. Gísli er nú látinn en núverandi stjórn dregur í efa heimild hans til að gera slíkan samning. í eftirlaunasamningi Jóns segir orðrétt: „Þau laun, sem miða skal upphæð eftirlauna við, skulu vera þau sömu og nýr forstjóri fær, sem ráðinn verður í stað Jóns H. Bergs. Laun þessi skulu þó aldrei vera lægri en þau laun er Jón H. Bergs hafði, er hann lét af störfum .. STJÓRNIN VISSI EKKI AF SAMNINGNUM Við málflutning kom fram að stjórn SS setti Jóni þá kosti að hætta eða vera rekinn ella, en hann hafði verið forstjóri fyrirtækisins síðan í janúar 1957. Virðist núverandi stjórn íéiagsiris ekki hafa verið ljóst hvern- KOSTAR UM 100 MILUÓNIR Þetta þýðir það að Jón H. Bergs hefur sömu laun og Steinþór Skúla- son, núverandi forstjóri SS. Sam- kvæmt úttekt Frjálsrar verslunar var Steinþór með 550.000 krónur í mánaðarlaun í ágúst síðastliðnum. Ef svo fer sem horfir má því gera ráð fyrir að SS þurfi að greiða tveimur forstjórum laun, að minnsta kosti í 15 ár frá 1988 að telja. Forstjóralaun fyrirtækisins kosta það því 200 millj- ónir króna á þessu tímabili. Núverandi stjórnarformaður SS, PúllLýösson, sagðist ekki vilja tjá sig um málið en staðfesti að mikilvægt væri fyrir fyrirtækið að losna undan þessum skuldbindingum. JÓNSAKAÐUR UM ÁFENGISNEYSLU Það er greinilegt að SS sækir það fast að fá þessum samningi rift og var Jón borinn þungum sökum fyrir dómi. Segir í málf lutningi lögmanns SS að honum hafi verið vikið frá störfum vegna þess ,,að hann hafi í raun verið orðinn óhæfur til starfa vegna áfengisneyslu og mistaka í starfi sem forstjóri fyrirtækisins, svo og að hann hafi ekki upplýst stjórn félagsins um raunverulega stöðu þe_ss“. í dómnum gerði Jón þá kröfu að ummælin um áfengisneyslu yrðu dæmd dauð og ómerk og var það gert, enda gátu SS-menn ekki sann- að þau á neinn hátt. JÓNI KENNT UM LAUGARNESHÚ SIÐ Þá er Jón sakaður um mikil fjár- festingarmistök við kaup á Vöru- húsinu Eiðistorgi hf., sem hafi kost- að SS tugi milljóna. Honum er kennt um að ráðist var í byggingu Laugarneshússins sem nú er ætlunin að láta ríkið kaupa til að bjarga fyrirtækinu. Segir lög- maður SS að húsið ,,sé eins og myllusteinn" um háls SS. Þá er tekið fram að tap fyrirtækis- ins hafi verið orðið mikið í tíð Jóns og kemur fram að tap SS árið 1987 var um 77 milljónir og um 210 millj- ónir 1988. Einnig er bent á að í raun hafi þegar verið orðið tap á fyrir- tækinu árið 1986. Ailt er þetta tekið sem dæmi um erfiðleika fyrirtækis- ins undir stjórn Jóns. Þá má geta þess að Jón virðist ekki vera sá eini sem nýtur slíkra eftirlaunasamninga, því í málsskjöl- um kemur fram að sambærilegir samningar hafi verið gerðir við tvo deildarstjóra sem unnu hjá fyrirtæk- inu. Sigurður Már Jónsson SVONA SAMNINGAR ERU ALGENGIR „Það er mjög algengt að það séu gerðir svona samningar við for- stöðumenn stórra fyrirtækja sem geta búist við því að hafa ekki mjög langan starfsaldur. Maður er búinn að vinna vel, að því er maður álítur, alla ævina og svo kom það frekar óvænt að ég hætti störfum þannig að það reyndi fyrr á þennan samn- ing en maður bjóst við,“ sagði Jón H. Bergs, fyrrverandi forstjóri Sláturfé- lags Suðurlands, þegar hann var spurður um samning þann sem hann gerði á sinum tíma. Jón rekur nú lögmannsstofu í Reykjavík. — Þér finnst ekki siöleysi að halda til streitu svona samningi í Ijósi þess hvernig staða fyrirtœkisins er í dag? „Þetta er bara samkvæmt samn- ingum. Er ekki vaninn að fara eftir þeim? Það er hins vegar ekkert ólík- legt að ég hefði verið tilbúinn að semja um eitthvað annað af því að þetta bar að fyrr en maður hafði bú- ist við. Það var bara ekkert talað við mig um það, mér var bara sent bréf um riftun. Þá vil ég líka taka það fram að þegar ég hætti var fyrirtæk- ið í hópi efnuðustu fyrirtækja lands- ins.“ — Þú gerir þó kröfu til þess að það verði greitt eftir þessum samningi? „Að sjálfsögðu. Maður ætlast til þess að staðið sé við samninga. Samningar eru gerðir til að þeir haldi og það er ein aðalreglan í lög- fræði — að samningar eiga að halda. Þá er ekki við mig að sakast þó að laun núverandi forstjóra séu há,“ sagði Jón og tók fram að erfitt hefði verið að fá uppgefin laun nú- verandi forstjóra. Jón segist ekki hafa fengið nein laun frá fyrirtækinu síðan dómurinn var kveðinn upp.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.