Pressan - 15.11.1990, Blaðsíða 5

Pressan - 15.11.1990, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR PRESSAN 15. NÓVEMBER 5 u ■ ^ú bregður svo við hjá kröt- um á Austurlandi að þeir geta valið úr hópi manna til að skipa fyrsta sæti listans í kom- andi kosningum. Um síðustu helgi var Eiríkur Stefáns- son, verkalýðsfor- maður á Fáskrúðs- firði og sveitar- stjórnarmaður, kjör- inn formaður kjördæmisráðs og hann og hans menn hafa nú fjögurra vikna frest til að ganga frá tilhögun framboðsmála. Þrír munu gefa kost á sér í fyrsta sæti, þeir Gunnlaugur Stefánsson, prestur í Heydölum og fyrrverandi alþingismaður, Her- mann Níelsson, íþróttakennari á Egilsstöðum og fyrrverandi formað- ur Ungmennafélags Austurlands (UÍA), og Stefán Benediktsson, þjóðgarðsvörður í Skaftafelli og fyrrverandi þingmaður Bandalags jafnaðarmanna. Magnús Guð- mundsson, bæjarstjórnarmaður á Seyðisfirði, sem skipaði annað sæti listans síðast, gefur ekki kost á sér ofar. Ekki er talið útilokað að odd- viti listans verði valinn í opnu próf- kjöri... v lm axandi óróleika gætir meðal félaga í Alþýðuf Iokknum um skipan framboðslista f lokksins í Reykjavík í komandi kosning- um. Til þess er tekið að þeir sem helst eru nefndir í sæti á eftir formanni og vara- formanni koma úr öðrum flokkum og margir hverjir fall- kandídatar þar. Margt alþýðuflokks- fólk leggur nú áherslu á, að fundnir verði „almennilegir kratar" til að takast á við „aðkomumennina" í prófkjöri. í þessu sambandi hafa m.a. verið nefndir Árni Gunnars- son alþingismaður, en hann verður ekki áfram í framboði á Norðurlandi eystra, og Birgir Árnason, hag- fræðingur hjá EFTA, fyrrum aðstoð- armaður Jóns Sigurðssonar við- skipta- og iðnaðarráðherra og for- maður Sambands ungra jafnaðar- manna... ÍEins og sagt var frá í PRESS- UNNI á dögunum sagði Ólafur E. Friðriksson, varafréttastjóri Stöðvar 2, starfi sínu lausu og var reiknað með að hann hætti um miðjan desem- ber. Nú er Ólafur hins vegar búinn að yfir- gefa stöðina, mán- uði fyrr en ætlað var. Ákveðið hefur verið að Sig- mundur Ernir Rúnarsson frétta- maður taki við starfinu og mun sú ákvörðun hafa komið flestum á óvart innanbúðar... C C9á landsfrægi bílasali Alli Rúts hefur verið lýstur gjaldþrota, en hann rekur þó enn Bílasölu Alla Rúts. Þegar viðskiptavinur spurði hver ætti fyrirtækið svaraði starfs- maður þess að það ætti eitthvert hlutafélag og benti á að rétt væri að tala við forstjórann, hann Alla... jM ■ WMeðal þeirra sem ætla að taka þátt í prófkjöri Alþýðuflokksins á Suðurlandi er Guðlaugur Tryggvi Karlsson jppS^lS hagfræðingur. Guð- j laugur Tryggvi hef- %' ur tvívegis áður glímt í prófkjöri á Suðurlandi en ekki . haft erindi sem erf- —J iði. Hann er því að leggja í slaginn í þriðja sinn... að er urgur í heimamönnum á Grundarfirði þessa dagana vegna þess að togari Hraðfrystihúss Grundarfjarðar, Krossanes, er hætt- ur að landa heima. Afrakstur tveggja síðustu veiðiferða hefur ver- ið seldur á fiskmörkuðum í Reykja- vík. Þetta er viðkvæmt fyrir sveitar- stjórn Eyrarsveitar, því að við skuld- breytingar hjá fyrirtækinu, með að- stoð hlutafjársjóðs og sveitarfélags- ins, var það skilyrði sett að landað yrði í Grundarfirði. Finnst mönnum verða lítið um svör hjá oddvitanum, Ragnari Elbergssyni, og stjórnar- manninum Sigurði Lárussyni, sem einnig er formaður verkalýðs- félagsins, en það setti einnig slík skilyrði.. . ANNA POLLA OG PÉTUP R SPILA PÉTTU SVEIFLUNA. OPIÐ TIL KL. 3.00 Geisladiskar. Verð frá kr. 690,-. AFSLÁTTUR í NÓVEMBERTILBOÐI JAPIS Gerðu innkaupin snemma í ár og njóttu rólegra daga í desember. Væri ekki skynsamlegt að dreifa kaupunum yfir lengra tímabil og jafna greiðslubyrðina. Þannig minnkar þú jólastressið og desemberdagarnir verða mun ánægjulegri. Við komum til móts við þig með fulla verslun af nýjustu vörunum frá Sony, Technics og Panasonic 15% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM VERSLUNARINNAR gegn staðgreiðslu eða 10% afslætti og þægilegum afborgunarkjörum. (1. afborgun eftir áramót). Síðasta sending fyrir jól er komin! Nýttu þér nóvembertilboðið meðan úrvalið er mest. Geislaspilarar. Verð frá kr. 16.900,-. Útvarpsklukkur. Verð frá kr. 2.330,-. Örbylgjuofnar. Verð frá kr. 16.900,-. NÓVEMBERTILBOÐIÐ GILDIR EINNIG I EFTIRTÖLDUM VERSLUNUM: Málningarþiónuslan Akranesi • Kauplélag Borglirðinga Borgarnesi • Versl. Óltars Sveinbjörnssonar Hellissandi Einar Guðfinnsson Bolungarvík • Póllinn Isafirði • Rafsjá Sauðárkróki • Bókaverslun Þórarins Stefánssonar Húsavfk • Kaupfólag Héraðsbúa Egilsstöðum • Tónspil Neskaupstað Kaupfólag Hóraðsbúa Seyðisfirði • Hátiðni Hornafirði • Brimnes Vestmannaeyjum • Kaupfólag Árnesinga Selfossi • Nýja vídeóleigan Keflavík. lSart\6' ,taa&ur Verðtr*Kr .20.B00’" JAPISð BRAUTARHOLTI ■ KRINGLUNNI ■ AKUREYRI ■

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.