Pressan - 15.11.1990, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR PRESSAN 15. NÓVEMBER
15
Nýr yfirlögfrœdingur íslandsbanka
GAMLIFELAGINN
FÉKKINNHEIMTUNA
Stjórn íslandsbanka hefur
ákveðið að flytja innheimtu-
starfsemi sína á Suðurnesjum
til og hefur hún verið fengin
Lögfræðistofu Suðurnesja sf.
í Hafnargötu 35 í hendur.
Annar af eignaraðilum henn-
ar í dag er Jón G. Briem hér-
aðsdómslögmaður, sem ráð-
inn hefur verið forstöðumað-
ur lögfræðideildar íslands-
banka frá og með næstu ára-
mótum. Jón er því orðinn
verktaki fyrir væntanlegan
vinnuveitanda sinn nú þegar.
Meðeigandi Jóns er Ásbjörn
Jónsson héraðsdómslögmað-
ur og mun hann halda þess-
um feita bita eftir þegar Jón
hverfur á braut.
Innheimtan er reyndar
ekki flutt um langan veg, því
hingað til hefur hún verið í
höndum Lögfræðiskrifstofu
Gardars Garðarssonar og Vil-
hjálms H. Vilhjálmssonar
hæstaréttarlögmanna. Stofa
þeirra er í Hafnargötu 31. Að
sögn Vilhjálms er viðskiptun-
um við þá hætt án nokkurra
skýringa, en þeir hafa séð um
þessi viðskipti fyrir Útvegs-
bankann síðan 1971. Þegar
Útvegsbankinn hf. var stofn-
aður unnu þeir fyrir hann og
samstarfið hefur haldið -g
áfram síðan fslandsbanki tók 04
til starfa.
Að sögn Guðmundar
Haukssonar, bankastjóra ís-
landsbanka, er ákveðin
ástæða fyrir þessum flutning-
um en hann treysti sér ekki til
að gefa hana upp í samtali við
blaðamann PRESSUNNAR.
Hann neitaði því aifarið að
þessir flutningar tengdust á
nokkurn hátt ráðningu Jóns
G. Briem og sagði að ekki
hefði verið ætlunin að skiptin
færu fram fyrr en á næsta ári.
Garðar og Vilhjálmur hefðu
hins vegar farið fram á að
skiptin yrðu strax og hefði
verið orðið við því. Þá kom
það fram hjá Eiríki Alexand-
erssyni, útibússtjóra íslands-
banka í Keflavík, að þessi
ákvörðun um flutningana
væri ekki frá honum komin.
— En gerir íslandsbanki
kröfu um að Jón hætti öllum
afskiptum af lögfræðistof-
unni?
„Annað væri brot á reglum
Islandsbanka — hann mun al-
veg losa sig úr henni,“ sagði
Guðmundur.
Jón G. Briem tók fram að
hann kæmi ekki til með að
eiga í lögmannsstofunni eftir
að hann hæfi störf hjá ís-
landsbanka. „Eftir fyrsta
janúar mun ég engra hags-
muna eiga að gæta á þessari
lögmannsstofu," sagði Jón.
DAVALDURINN .
KOMINN Á KREIK
Friðrik Páll Ágástsson, „dá-
valdurinn" sem PRESSAN
fjallaði um 11. október síðast-
liðinn, er enn á ný kominn á
kreik með námskeið í „dá-
leiðslu og viviation". Vekur
strax athygli að frá því í sum-
ar hefur námskeiðsgjaldið
hækkað úr 4.500 krónum í
7.500 krónur eða um 67%.
í grein PRESSUNNAR kom
meðal annars fram að banda-
ríski kennarinn, sem Friðrik
Páll vísaði á, sagðist þá nýver-
ið hafa sent honum gögn sem
utanskólanemanda — en
hvernig menn læra dáleiðslu
þegar kennarinn er í annarri
heimsálfu er önnur saga. Nú
hefur Friðrik Páll hins vegar
bætt nýjum titli í safn sitt;
„Registrated hypnotherap-
ist“. Úr auglýsingum hans er
hins vegar horfin setningin
„Hann tekur einnig fólk í
einkatíma í dáleiðslu".
PRESSAN fékk nýlega bréf
frá lesanda sem greindi frá
því að Friðrik Páll hefði hald-
ið námskeið í dulspeki á Hót-
SKIPTAFUNDUR
HJÁ LINDALAX
Skiptafundur verður hald-
inn í gjaldþrotamáli Lindalax
næsta þriðjudag. Á fundinum
munu kröfuhafar fara fram á
að þrotabúið höfði inn-
heimtumál gegn þeim hlut-
höfum í Lindalaxi sem ekki
greiddu hlutafé sitt með
reiðufé.
Meðal þeirra hluthafa sem
greiddu með öðrum hætti
eru; Þorvaldur Guðmunds-
son í Síld og fisk, Eirtkur Tóm-
asson hæstaréttarlögmaður
og Sœmundur Þórðarson
skipstjóri.
el Holti sumarið 1989 og
hefði þá aðspurður sagst
„vera af indíánaættum og
skyggn og hefði lagt stund á
trúarfræði indíána og heim-
speki þeirra" og „verið þjálf-
aður meðal indíána frá alda
öðli“.
ÞUSUND MIBAR EFTIR
06 HÚSIB ENN í EIGU
HJÁLPARSVEIIANNA
Lukkutríóshúsið í Grafar-
vogi er enn í eigu Landssam-
bands hjálparsveita skáta.
Ein milljón skafmiða var
gefin út. Þrátt fyrir að aðeins
séu um eitt þúsund miðar eft-
ir óseldir hefur vinningsmið-
inn ekki komið fram.
Björn Hermannsson hjá
Lukkutríóinu segir að senni-
lega klárist miðarnir í þessari
viku. Það er ekki fyrr en allir
miðarnir eru uppseldir sem
kemur í ljós hvort einhver
hefur verið svo óheppinn að
henda vinningsmiðanum. Ef
svo er mega skátarnir ráð-
stafa húsinu að eigin vild eftir
ár.
„Þetta hús er búið að valda
okkur miklum höfuðverk.
Við ætluðum að slá í gegn
með þessu happdrætti en svo
varð ekki. Gróa á Leiti byrjaði
að hrekkja okkur strax hálf-
um mánuði eftir að við sett-
um miðana í sölu,“ sagði
Björn Hermannsson.
Það var 20. október 1989
sem sala á happdrættismið-
unum hófst. Nú þegar nokkur
hundruð miðar, af einni millj-
ón, eru eftir verður æ meira
spennandi að sjá hvort vinn-
ingsmiða upp á 15 milljóna
króna hús hafi verið hent.
Lukkutríóshúsið er 192 fer-
metra einbýlishús með glæsi-
legum innréttingum.
RANNSOKNIN Á
EDDU SIGRÚNU
HELDUR ÁFRAM
Arnar Guðmundsson,
deildarstjóri hjá rannsóknar-
lögreglunni, segir að unnið sé
að rannsókn á meintum fjár-
svikum Eddu Sigrúnar Olafs-
dóttur lögmanns, en Arnar
vildi ekki tjá sig frekar um
málið.
Veistu hvenœr rannsóknar-
gögnin veröa send ríkissak-
sóknara?
„Ég get ekki dagsett hve-
nær það verður," sagði Arnar
Guðmundsson.
Eins og kunnugt er kærði
einn af fyrrverandi skjólstæð-
ingum Eddu Sigrúnar hana til
rannsóknarlögreglunnar. í
kærunni er henni gefið að
sök að hafa dregið sér hluta
af slysabótum kæranda.
Rannsóknarlögreglunni hef-
ur borist vitneskja um fleiri
atvik, svipaðs eðlis, frá trygg-
ingafélögum.
ENN ÚVISSA
UM ÍBÚDINA Á
SNORRABRAUT
Enn ríkir fullkomin óvissa í
málum hjónanna Árna Óla
Þórissonar og Þjóöbjargar
Jónsdóttur, en eins og PRESS-
AN greindi frá 22. október
var kjallaraíbúð þeirra við
Snorrabraut gerð verðlaus
með vafasamri þinglýsingar-
gjörð starfsmanns Bygging-
arfulltrúans í Reykjavík.
Þau hjónin eru nú að láta
teikna íbúðina upp á nýtt til
að fá hana samþykkta og
hafa að því leyti ágætt sam-
ráð við aðra núverandi eig-
endur í húsinu. Enn er hins,
vegar ekki sýnt hvaða áhrif
áðurnefnd þinglýsingargjörð
hefur í þessu sambandi, en
hún hefur ekki verið gerð
ómerk þrátt fyrir vafasaman
tilgang.
Hundir
IÖXINNI
I Werner
| Rasmusson
I apótekari
— Afkoma tyfsata
I byggist á því að selja
™ sem allra mest af sem
10 allra dýrustum lyfjum.
IÞarf ekki að breyta
þessu?
„Meðalverð á lyfseðli
er reyndar um 2.300
krónur með virðisauka-
skatti. Mjög dýr lyf eru
sjaldgæf — og það þvi
miður get ég sagt sem
n apótekari!"
y — Fullyrt er i DV að lyl
Ihér séu 40% dýrari en á
hinum Norðuríöndun-
um. Er þetta ekki stað-
reynd?
„Sjálfur heilbrigðisráð-
herra hefur lýst því yfirað
þetta sé röng tala. Hún er
vitlaus um nálægt 20%."
— Getur þú með góðu
móti neitað því að apó-
Itekarar séu í allsherjar-
samkrulli i lyfjafram-
leiðslu, innflutningi og
dreifingu í Pharmaco,
Toro og Delta?
„Öllum er reyndar
frjálst að hefja fram-
leiðslu lyfja og stofna
y lyfjaheildsölu, uppfylli
^ þeir opinber skilyrði.
I Hluthafar i Pharmaco og
I Delta eru síðan á milli 50
I og 60.1 Pharmaco er mik-
(pj ill meirihluti hluthafa ekki
I apótekarar og þar á eng-
I inn hluthafi yfir 10%
I hlutafjár."
— Er það ekki stað-
C reynd að þessi fyrirtæki
og önnur náskyld vita
I vart aura sinna tal og
I hafa því ákveðið að
■ leggja fé i önnur fyrir-
I tæki?
„Pharmaco varstofnað
| 1956, en hefur ekki greitt
| arð fyrr en nú nýverið.
■ Fyrirtækið er vel rekið og
C hugar einfaldlega að fjöl-
H breyttari starfsemi."
— Er ekki bara verið
I að dreifa hagnaðinum at
I ótta við að sjálfvirka
I ásóknin í skattpening-
I ana verði stöðvuð?
„Menn hafa verið
■ óhressir með að eiga allt
a sitt undir misvitrum
4 stjórnarherrum. Okkur
Ifinnst að það ætti síst að
telja það okkur til lasts að
við viljum nýta þekkingu,
reynslu og fjármagn okk-
ar til að taka þátt í t.d.
matvælaiðnaði, sem
staðið hefur höllum fæti.
Þetta er vissulega liður í
að skjóta fleiri stoðum
O undir rekstur fyrirtækj-
2^ anna, svo þau séu ekki
I eingöngu háð lyfjamark-
1 aðinum."
— Segir það ekki sína
| sögu að hluthafar í Delta
| skuli, að sögn einnar út-
I varpsstöðvarinnar, hafa
I haldið aðalfund sinn á
R Karabíska hafinu — og
það með mökum?
„Þetta er brosleg gróu-
saga. Aðalfundur Delta
var haldinn 22. febrúar. I
október fórum við hins
vegar tólf saman í hóp í
ferðalag um þessar slóðir,
í frí eins og okkur er frjálst
að gera. Og þó þetta værí
sannleikur; hverjum
kæmi það þá við?"
n -i
7
Apótekarar hafa verið i
sviðsljósinu vegna hás lyfja-
verðs og vaxandi umsvifa
lyfjafyrirtækja.