Pressan - 14.03.1991, Blaðsíða 22

Pressan - 14.03.1991, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR PRCSSAN 14. MARS 1991 LISTAPÓSTURINN Dallas í Laugardals- höllinni Eitt það bitastœdasta í leikhúsi alþýdunnar und- anfarib er tvímœlalaust uppfœrsla Sjálfstœdis- flokksins á Dallas undir því þjódlega nafni Sátt og sam- lyndi. Vœru veitt sápukúlu- verölaun á Islandi fœru þau vœntanlega til þeirra Þorsteins Pálssonar og Davíös Oddssonar fyrir besta skapgeröarleikinn. Þorsteinn var hreint óborg- anlegur í hlutverki hins ör- ugga en pínulítið spœlda flokksleiötoga sem ber hlý- hug til fóstbróður síns Dav- íös sem með metnaði og skapfestu vill verða þjóð sinni að sem bestu liði, bla bla bla bla. Fjölmiðlar fá síðan klapp á bakið fyrir tónlistina og Morgunblaðið sérstakar þakkir fyrir fiðlu- tónlistina í hjartnœmustu atriðunum. Ahœttuleikinn á síðan þjóðin sem mun vœntanlega borga brúsann á komandi kjörtímabili. Þóra Kristín Asgeirsdóttir Safnari af guós náö „Ljósmyndarinn safnar umhverfi sínu og samtíd,“ segir séra Örn Fridriksson prófastur. „Ég sýni á Kjarmlsstööum um 35 vélar frá árunum beggja vegna heimsstyrjald- ar og reyni með þeim að gefa sem fjölbreyttasta mynd af safninu í heild en alls telur það um 250 vélar," segir Örn Friöriksson prófastur í Þing- eyjarsýslu en hann sýnir ^ merkar myndavélar í forsal ; Kjarvalsstaöa. Örn á stœrsta safn gamalla myndavéla á ís- landi en þœr eru nú í fyrsta sinn til sýnis almenningi. „Ég hef verið safnari alla mína tíð og byrjaði með því að safna frímerkjum^g-því næst myntum, bóKum og loks gömlum hlutum sem ég gat komið höndum yfir og þá kom það af sjálfu sér að ég fór að safna myndavélum enda hef ég verið að fást við ljós- rnyndun frá unglingsárum." Er nœgilegt pláss á prests- setrinu fyrir þessi býsn? „Já það rúmast allt ein- hvernveginn. Mig vantar nú samt tilfinnanlega skápa með gleri undir allar myndavél- arnar, þetta hefur verið mest „Það má segja það, maður safnar umhverfi sínu og samtíð með Ijósmyndun." AÐ ÞÍNUM DÖMI GUNNAR KVARAN / síðasta Listapósti fór Kjartan Guðjónsson listmál- ari hörðum orðum um vœnt- anlegar breytingar á Korp- úlfsstööum og orðaði það þannig að lifandi listsköpun yrði úthýst þaðan og þeim myndlistarmönnum sem hefðu þar aðstööu og staður- inn gerður að grafhýsi yfir Erró. Listapósturinn spuröi Gunnar Kvaran listfrœðing hvort Myndhöggvarafélagið yrði látið fara frá Korpúlfs- stöðum, hvort staðurinn yrði í framtíðinni Errósafn og hvaða breytingar aðrar vœru vœntanlegar? „Það hefur ekki enn verið tekin endanleg ákvörðun um tilvist Myndhöggvarafélags- ins á Kórpúlfsstöðum. Eitt er þó víst að Errósafnið verður í miðskipi Korpúlfsstaða og listamaðurinn er í þann mund að Ijúka 11 stórum mál- verkum sem fjalla um lista- söguna. Starfsfólk listasafna Reykjavíkur vinnur nú af miklum krafti við að skrá og vinna úr gögnum sem lista- maðurinn hefur gefið Reykja- víkurborg. Allt miðast við að gera Errósafnið lifandi og skemmtilegt." Fréttamynd ársins í A.S.Í. Samtök fréttaljósmynd- ara og Blaðamannafélag Islands stóðu fyrir Ijós- myndasamkeppni meðal fréttaljósmyndara. Alis bárust um 400 mynd- ir í keppnina frá um 30 ljós- myndurum og verður valin besta myndin úr eftirtöld- um efnisflokkum: a) Portr- ett, b) Almennar fréttir, c) íþróttir, d) Daglegt líf, e) Myndasyrpur, f) Skop, g) Opinn flokkur. Auk þess verður valin fréttamynd ársins. 100 myndir af þeim sem bárust í keppnina verða á sýningu sem haldin er í tengslum við keppnina og verður opnuð föstudag- inn 15. mars kl. 13.30. Á opnun sýningarinnar verð- ur jafnframt tilkynnt um úr- slitin og veittar viðurkenn- ingar fyrir bestu ljósmynd- irnar. ofan í skúffum hjá mér.“ Þú segist hafa fengist viö Ijósmyndun frá unglingsár- unum. Er Ijósmyndun kannski einn angi af söfnun- aráráttu? „Það má segja það, maður safnar umhverfi sínu og sam- tíð með ljósmyndun." Nú ertu prestur. Datt þér aldrei í hug að gerast atvinnu- Ijósmyndari? „Það hvarflaði aldrei að mér. Skólabróðir minn gerð- ist hinsvegar atvinnuljós- myndari. Það var ekki fyrr en löngu seinna að mér fór að finnast það skrítið að mér hefði ekki einusinni dottið það í hug.“ Þér hefur ekki dottið í hug að senda inn myndir á sýn- inguna núna? „Nei, ég hef ekki tekið myndir í mörg ár utan nokkr- ar slidesmyndir. Ég hef verið svo tæpur til heilsunnar." Áttu þér einhverja uppá- haldsvél á sýningunni? „Já, það er ein sem mér áskotnaðist núna í vetur. Það er ekkert verksmiðjumerki á henni. Það hefur sennilega dottið af. Gefandinn sagði mér að þetta væri Zeiss Ikon sem er afskaplega fínt merki. Þessi vél er úr fínum harðviði með rauðbrúnum belg og málmurinn í henni er svokall- að gull messing lúxusútgáfa og miklu fínna en það sem al- mennt er notað. Linsan er síð- an í topplagi. Ég hef aldrei séð neitt í líkingu við þessa vél. Hvorki hér né erlendis. Ég vil hinsvegar koma því að að ég er algerlega á móti þeim vélum sem eru sérstak- lega framleiddar til að plokka peninga af söfnurum. Slíkar vélar eru yfirleitt ekki fram- leiddar til að vera notaðar heldur til að geyma í læstum skápum. Þær eru því einskis virði fyrir mér. Ef ég á að monta mig af minni söfnun þá er það kannski hvað mér hefur tekist að ná góðu safni án þess að eiga nokkurn tíma pening." Listahátíö barna í apríl Hátíöinni lýkur vœntanlega meö þingfundi í Alþingishúsinu Reykjavíkurborg og menntamálaráðuneytiö efna til Listahátíðar barna í Reykjavík dagana 20. til 28. apríl. Hátíðin veröur sett með opnunarhátíð í Borgarleik- húsinu og er haldin í tengsl- um við barnamenningarátak menntamálaráðuneytisins. Sérstök nefnd um barna- menningu var sett á laggirn- ar í janúar á síðasta ári og Reykjavíkurborg gekk síðan til liðs viö nefndina nú um áramótin. Hátíðin mun því veröa haldin í samvinnu þessara tveggja aðila. Tilgangurinn er að sögn Guðrúnar Ágústsdóttur að- stoðarmanns menntamála- ráðherra sá að vekja áhuga á listsköpun barna og virðingu fyrir viðfangsefnum þeirra. Einungis börn munu koma fram á hátíðinni en uppá- komur í tengslum við hana verða víðsvegar um borgina á hverjum degi er hátíðin stendur yfir. Allir skólar og dagvistarheimili í borginni fengu bréf í lok desember Guðrún Ágústsdóttir. með fyrirspurn um hvort þau vildu tengjast hátíðinni á ein- hvern hátt og er undirbún- ingur í fullum gangi í þeim skólum er þess óskuðu. í lok hátíðarinnar er síðan stefnt að því að börnin haldi þingfund í Alþingishúsinu, en svipuð hugmynd var fram- kvæmd í borgarstjórn á ári æskunnar þar sem börnin fengu að spreyta sig sem borgarfulltrúar og tóku að sögn viðstaddra atvinnufólk- inu fram í flestum málum. Þórarinn Eldjárn snýr aftur til Forlagsins / nœsta mánuði kemur út hjá Forlaginu Ijóöabókin Hin háfleyga moldvarpa eftirÞór- arin Eldjárn. í samtali við Listapóstinn sagði Þórarinn að bókin vceri að mörgu leyti framhald á bókinni Ydd sem kom út hjá Forlaginu 84. „Þetta er lítil ljóðabók sem inniheldur um 40 stutt ljóð í óbundnu formi. Titill bókar- innar sem er sóttur í eitt ljóð- ið í bókinni vísar til þeirrar Dreki fékk hönnunarverðlaunin í ár „Það framtak sem Hönn- unardagurinn er verður því mikilvœgara sem tíminn líð- ur“ segir Sigurður Halldórs- son arkitekt sem rekur teikni- stofuna Glámu ásamt félög- um sínum þeim Halldóri Gíslasyni og Jóhannesi Þórð- arsyni arkitektum. Gláma hlaut verðlaun Hönnunar- dagsins að þessu sinni fyrir barskápinn Dreka. Hönnun- ardagurinn var haldinn 7. mars en slíkir dagar til kynn- ingar á íslenskri hönnun voru einnig haldnir 1988 og 89. Áœtlað er að halda slíkan dag annað hvert ár frá þess- um degi. Það er Form ísland, félag áhugamanna um hönn- un, sem á heiðurinn af þessu framtaki. „íslendingar ættu að ein- beita sér að því að framleiða vandaða og góða vöru fyrir fjársterka kaupendur í stað þess að stíla inn á fjöldafram- íeiðslu," segir Sigurður. „Ég held að það standi íslenskri hönnun fyrir þrifum að fyrir- tækin eru hrædd við að gefa hönnuðum frjálsar hendur. Það eru að koma fleiri og fleiri sérmenntaðir hönnuðir úr námi og mikið af því fólki er með mjög góðar hug- myndir. Fyrirtækin verða að mæta þessu fólki með opnum huga. Það er altalað að ís- lenskt handverk er mjög gott og íslensk hönnun verður að fá að koma þar á móti. Það myndi tvímælalaust skila sér í árangri. Ég held að árangur okkar núna sé því að þakka Arkitektarnir Sigurður og Jóhannes í „Fengum frjálsar hendur. Árangurinn þakka." Glámu: því að að við fengum algerlega frjálsar hendur við að hanna húsgögnin." Vinnið þið allar hugmyndir saman á teiknistofunni? „Já, við vinnum hugmynd- irnar saman en einum er síð- an falið að fylgja þeim eftir. Við komum úr mjög ólíkum skólum og það er bæði kostur og galli. Ég er menntaður í Osló og Jóhannes í Skotlandi og í Bandaríkjunum. Halldór nam síðan í Bretlandi og á Italíu. Það fer því allt í gegn- um ákveðna síu en svo vill aftur á móti koma fyrir að maður er peppaður upp í alls kyns vitleysu sem maður léti aldrei eftir sér ef að maður væri einn. Við tókum þátt í Hönnunardeginum fyrst og fremst okkur til skemmtunar en auðvitað vekur þetta at- hygli á okkur sem hönnunar- fyrirtæki og framleiðand- anum sem er Axis í Kópavogi," sagði Sigurður að lokum. Barskápurinn Dreki blöndunar á háu og lágu sem ég hef verið að fást við í gegn- um tíðina. Það er að segja ég hef ýmist verið að skrifa um lítilsiglda hluti á uppskrúfuðu formi eða öfugt." Nú varst þú mjög harður talsmaður sjálfsútgáfu þegar þú á sínum tima fórst út í að gefa bækurnar þínar út sjálf- ur. Er þessi endurkoma þín til Forlagsins þá einhverskonar hugsjónalegt skipbrot? „Nei.nei. Þetta er einungis spurning um tímabil. Á þeim tíma hentaði mér mjög vel að gefa út sjálfur. Núna er ég með svo margt annað í takinu sem mig langar að takast á við eftir að bókin er komin á prent. Þessvegna vil ég gjarn- an vera laus við samninga við pappírskaupmenn og annað tímafrekt vafstur. Bókaútgáfa hefur einnig orðið erfiðari með árunum. Hún hefur ver- ið að þjappast saman í stærri blokkir og það er því erfiðara fyrir þá sem standa einir að láta í sér heyra. Ég sé samt ekki eftir þeim tíma sem ég stóð í útgáfunni sjálfur. Það var að mörgu leyti lærdóms- ríkur tími,“ sagði Þórarinn Eldjárn að lokum. Það má geta til gam- ans að eftir Þórarin Eldjárn sem kom út 84 var fyrsta bókin sem kom út hjá Forlaginu.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.