Pressan - 25.04.1991, Page 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 25. APRÍL 1991
9
Með bréfi til forsætísráðherra hefur Ólafur Ólafsson forstjóri Álafoss beðið ríkið um að feiia niður
lán sem ríkið veitti til sameiginlegs dótturfyrirtækis Álafoss hf. og Hildu hf. í Bandaríkjunum.
Samkvæmt upplýsingum hjá stjórnvöldum liggur fyrir að Álafoss hafi tekið tíl sín hluta af láninu,
sem nemur nú 82,5 milljónum króna, þar sem starfsemi nýja fyrirtækisins hófst aldrei. Bent er á að
7 milljónir króna af lánsupphæðinni voru frystar á bankareikningi, áður en Hilda hf. varð
gjaldþrota.
Jón Sigurðarson, þáverandi forstjóri Álafoss og Hanna Holton stjórnarformaður Hildu skrifa
undir yfirlýsingu um samstarf í Bandaríkjunum.
/ -
Hr. íoraatisráðherra
Steíngrirrjr Keraiannsaon
Foraatisráður.eytið
Roykjavík
Mosfell3bte. 3. april. 1591
Eíni; Víkjandi lán.
Ríkissjóður hefur í cegr.un Iðnlánaojóð, veitt Alafossi h.í. og
dótturíélecí þess lán r.eð skilyrtua endurcreiðsluákvaðun.
Sndurcreiðsla lánanna er háð afkonu oq creiðslugetu fyrir-
tekisir.s.
Alafcss h.f. er er.n i njöfl alvarlecrí fjárhacsstóíu, vecr.a
uppsafnaðs taps fyrri ira , ofl mikilla eicna sem fólEflið heíur
haft frá stofr.un.
A siðastlíðr.u ári komu ýmsir sjóðir o® Landsbar.ki Islar.cs
fyrirtekinu til hjálpar með þvi að leysa til sín eigr.ir.
Atvinnutrycflincasjóður Otflutnincsflreina samþykkti að veita
Alafossi h.f. aukið ián að uppheð kr. 100 milljónir. Aðeir.s
<0,0 milljónir fást lár.aðar if lofuðum 100 milljór.ur.
Stjórn Alafoss h.f. hefur samþykkt að reyna til þrautar eð
trycflja rekstur félacsíns r.eð því eð lakka er.n frekar skulcir
fyrirtakisir.s. Verður leitað til nokkurra lénadrottr.a í þvi
sambar.di.
Ar.nar aðaleiffar.di íyrírtakisins Sarband Isl. Saxvinr.ufélaca
r.efur þeffar samþykkt að leysa til sin skuldir og ábyrffðir að
upphað kr. S4.C milljónir.
Akureyrarbar hefur lýst yíír vilja sír.um og áhuca til að kcma
til r.6ts víð félscið flecn þvi að skuidir verði lakkaðar ofl
neikvatt eíflið fé jaír.eð með niðurfellincu skuióa.
>ess er farið á leít víð Rikissjóð, að har.n íalli frá ááur-
r.efndux lánum é hendur Alcfossi h.f. að upphað 91,0 miilj.
króna auk láns til sar.eiflinlegs dótturféltgs Alafoss h.f. og
Hildu h í. cn Hilda h.í. hefur verið lýst ffjeicþrota. Lár.in
eru eir.s oo áður secði með skilyrtum endurcreiðsluékveðum þ.e.
vikjar.dí lán.
Alt/cu •/InlcU ■ M.tj.u.h . rOBnJSIS • ISI2I ■ JttUtd
TthfÁnt 3SI-I4C6300 ■ Ttl</ttJU-l4S73S0 • T,U. 2033cU/ti ú ■ Bttl: TJjSttu.il Bttkt/ItiltKÍ ■ M.njri Btettk
«iccive» ________________________n.c«.cs icn«
Bónarbréf forstjóra Álafoss til forsætisráðherra.
ÁLAJPOSS
E viðreisn kemst á koppinn
geta einhverjir þingmanna krata lát-
ið sig dreyma um ráðherrastól, það
er fyrir utan þá sem
hafa þá fyrir; þau
Jón Baldvin
Hannibalsson, Jón
Sigurðsson og Jó-
hanna Sigurðar-
dóttir. Sá sem er
heitastur er Sig-
hvatur Björgvinsson en Eiður
Guðnason kemur líka til greina. Þó
er líklegra að Eiður yrði gerður að
forseta þingsins ef kratar fengju
færri ráðherra en sjálfstæðismenn.
Pá kemur einnig til greina að Rann-
veig Guðmundsdóttir yrði ráð-
herra ef umhverfisráðuneytið félli til
krata ...
lEiginkona Þorsteins Pálsson-
ar fyrrum formanns Sjálfstæðis-
flokksins, Ingibjörg Rafnar fyrr-
verandi borgarfull-
trúi, er í forsíðuvið-
tali í tímaritinu
Heimsmynd sem
kemur út um helg-
ina. Ingibjörg fjallar
þar um átökin á
toppnum og lífið
með Þorsteini og ásakar meðal ann-
ars eldri karlana í þingflokknum fyr-
ir að hafa ekki unnt Þorsteini að
leiða flokkinn. Hún víkur einnig að
Davíð Oddssyni í viðtalinu og seg-
ir að hann sé „margslunginn karakt-
er“ .. .
Á síðasta ári sótti fyrirtækið einn-
ig um 100 milljón króna víkjandi lán
frá ríkinu en fékk 60 milljónir. Nú
rétt rúmu ári síðar er farið fram á
niðurfellingu, samtals að fjárhæð 91
milljón króna, sem felur einnig í sér
niðurfellingu á láni sem fyrirtækið
fékk árið á undan vegna markaðs-
aðgerða í Evrópu „auk láns til sam-
eiginlegs dótturfélags Álafoss hf. og
Hildu hf, en Hilda hf. hefur verið lýst
gjaldþrotá', eins og segir í bréfi for-
stjórans til forsætisráðherra.
PENINGUM KASTAÐ í
BANDARÍKJUNUM
Umrætt lán ríkisins til fyrirhugaðs
dótturfyrirtækis Álafoss og Hildu í
Bandaríkjunum var samtals að fjár-
hæð 82,5 milljónir króna miðað við
núgildandi verðlag. Skilyrði fyrir
þessari lánveitingu voru, að af sam-
starfi þessara tveggja fyrirtækja
yrði í Bandaríkjunum, enda talið
nauðsynlegt að fyrirtækin samein-
uðust til þess að halda velli á mark-
aðnum þar. „Menn gerðu ráð fyrir
að af því yrði, enda var búið að
stofna fyrirtækið. Síðan varð aldrei
neinn rekstur, en mennirnir tóku
hins vegar peningana til sín," sagði
einn heimildarmaður við blaðið.
Brot af þessum peningum sem rík-
ið lánaði vegna nýja fyrirtækisins í
Bandaríkjunum var fryst á banka-
reikningi, eða aðeins um 120 þús-
und dollarar, um 7 milljónir króna.
„Væntanlega hafa þeir haft ein-
hvern snefil af siðferðiskennd,"
sagði einn heimildarmanna PRESS-
UNNAR.
Enn á eftir að koma í ljós hvað inn-
heimtist af láninu sem ríkið veitti.
Svo virðist sem Álafoss og Hilda hafi
skipt jafnt þeirri upphæð sem eftir
stóð þegar búið var að frysta 7 millj-
ónirnar, eða hafi haldið eftir rúmum
37 milljónum hvort. Jafnvel er talið
að hið sameiginlega fyrirtæki eigi
bakkröfu á Álafoss. PRESSAN fékk
hins vegar ekki svör við því í gær,
hvort ríkið hygðist sækja þessa pen-
inga, eða gefa þá.
ÁLAFOSS VÍSAR
ALFARIÐ Á HILDU
Ólafur Ólafsson segir að fyrirtæk-
ið hafi skilað iðnaðarráðherra ítar-
legri greinargerð eftir að ljóst varð
að Hilda hf. sleit heildarsamkomu-
laginu. Óskað var eftir því að stjórn-
völd tækju afstöðu til málsins, segir
Ólafur.
— Þið frystuð hluta af láninu?
„Já, allt það sem þá var ekki ráð-
stafað."
— Annað tókuð þið sjálfir til rekst-
ursins. Eru það ekki vafasöm vinnu-
brögð?
„Nei, það var notað fyrir rekstur-
inn úti, þar á meðal greiðslu á skuld-
um.“
Ólafur sagði að nýja félagið hafi
haft það markmið að eiga tvö fyrir-
tæki, dótturfélög Hildu hf. og Ála-
foss hf. í Bandaríkjunum. „Stofnuð
var bráðabirgðastjórn sem sá um
rekstur þessara eigna, það er hluta-
félögin og þann rekstur sem á bak
við þau voru.“
— Þið frystuð 7 milljónir, er ekki
eðlilegt að þið verðið látnir standa
skil á þeim hluta sem eftir stendur
og snýr að ykkur?
„Þegar samningur var undirritað-
ur 88/89 fórum við af stað. Síðan
sleit Hilda hf. samkomulaginu við
okkur. Við sendum strax ítarlegt
bréf, þann 20. júní árið 1990 til
Hönnu Holton stjórnarformanns
Hildu hf. Síðan létum við málið í
hendur lögfræðings og gerð var ít-
arleg álitsgerð um réttarstöðu Ála-
foss hf. vegna slita á samkomulagi
um sameiningu á starfsemi frá 11.
júní árið 1989. Við sendum strax öll-
um aðilum upplýsingar, þar á meðal
iðnaðarráðherra, um að það hefði
verið gróflega brotið á okkur. Jafn-
framt kröfðumst við þess að ekkert
yrði gert við óráðstafaða fjármuni
fyrirtækisins og stefndum Hildu hf.“
— Engu að síður hefur meginhiuti
peninganna farið til annars en rekst-
urs ytra, þar sem starfsemi sameig-
inlega fyrirtækisins þar var ekki
hafin?
„Jú, starfsemin var alltaf í gangi.
Það er algjör misskilningur að við
höfum tekið þátt í þessu. Við tókum
mjög alvarlega á málinu. Það er
ekki við Álafoss að sakast. í haust
endurtókum við afstöðu okkar til
málsins og óskuðum eftir afstöðu
stjórnvalda, en við höfum ekki feng-
ið nein svör.“
ÓVISS FRAMTÍÐ ÞRÁTT
FYRIR MILLJARÐA
TILKOSTNAÐ
Frá því Álafoss var stofnað er talið
að ríkið, Atvinnutryggingasjóður og
Hlutafjársjóður hafi veitt fyrirtæk-
inu aðstoð sem nemi uppreiknuð að
minnsta kosti 700 milljónum króna,
en taka skal fram að hluti af þessu
eru skuldbreytingar og lán með veð-
um, sum utan félagsins. Að auki er
sýnt að aðrir lánardrottnar, bankar
og sjóðir hafa veitt fyrirtækinu um-
talsverð lán og myndu því tapa
verulegum fjármunum kæmist fyr-
irtækið í þrot, ekki síst Landsbank-
inn. Samkvæmt greinargerð sem
forsvarsmenn Álafoss tóku sjálfir
saman að beiðni stjórnvalda í byrj-
un síðasta árs var talið að beint tap
við gjaldþrot myndi nema 600—800
milljónum króna og lenda á „hinum
ýmsu sjóðum bönkum, eigendum
og öðrum, svo sem Byggðastofnun,
Landsbanka og sjóðum sem eru
með einfaldri ábyrgð ríkissjóðs'*.
Auk þess er skýrt tekið fram að ef
ekki finnist nýir eigendur bendi allt
til þess að eignir myndu standa van-
nýttar um lengri eða skemmri tíma
eins og staða atvinnumálanna er
um þessar mundir og tapið því
verða enn meira.
í bréfinu til forsætisráðherra þar
sem farið er fram á niðurfellingu
lánanna segir forstjóri Álafoss að
stjórn fyrirtækisins hafi samþykkt
að reyna til þrautar að tryggja rekst-
ur félagsins með því að lækka enn
frekar skuldir fyrirtækisins. Verði
leitað til nokkurra lánardrottna þess
í því sambandi og hafi annar aðal-
eigandi fyrirtæksins, SIS, þegar
samþykkt að leysa til sín skuldir og
ábyrgðir að upphæð krónur 94
milljónir. Þá hafi Akureyrarbær lýst
yfir vilja sínum og áhuga til að koma
til móts við félagið gegn því að
skuldir verði lækkaðar og neikvætt
eigið fé jafnað með niðurfellingu
skulda.
Athygli vekur hins vegar að for-
stjórinn bendir jafnframt á, að ekki
sé einsýnt að þetta dugi: „Þrátt fyrir
þær skuldbreytingar sem nú er unn-
ið að er framtíð Álafoss hf. ekki
tryggð. Þar skiptir mestu markaðs-
staða fyrirtækisins og þau efnahags-
legu skilyrði sem fyrirtækið býr við
á hverjum tíma. Það er þó ljóst að ef
þær skuldbreytingar sem nú er unn-
ið að ná ekki fram að ganga á fyrir-
tækið engan möguleika á því að
halda áfram rekstri þrátt fyrir góða
verkefnastöðu," segir forstjórinn í
erindi sínu til stjórnvalda.
Miðað við þessa hreinskilni for-
stjórans má fullyrða að stjórn fyrir-
tækisins undir formennsku Sigurð-
ar Helgasonar, fyrrverandi stjórnar-
formanns Flugleiða, eigi ekki öf-
undsverða mánuði framundan, en
auk Sigurðar sitja nú í stjórninni
þeir Guðjón B. Ólafsson forstjóri
Sambandsins, Páll Gústafsson fyrir
hönd Framkvæmdasjóðs, Gylfi Þ.
Gíslason fyrrverandi prófessor og
Þorsteinn Sveinsson varaformaður
Sambandsins.
Kristján Þorvaldsson
eir Alþýðuflokksmenn sem
harðast ganga fram gegn viðreisn-
arstjórn munu flestir vera nýgengnir
í flokkinn, að sögn
stuðningsmanna
viðreisnarinnar.
Stuðningsmenn
vinstristjórnar segja
hins vegar ómak-
lega að sér vegið
með slíkum fullyrð-
ingum. Viðreisnarkratar benda hins
vegar á að meðal þeirra Alþýðu-
flokksmanna sem einlægast boða
vinstrasamstarf sé Reynir Ingi-
bjartsson forystumaður húsnæðis-
samvinnufélagsins Búseta. Reynir,
sem er fyrrverandi framsóknar- og
alþýðubandalagsmaður, hefur tekið
sig til ásamt hópi fólks sem kallar sig
„Kjósendur Alþýðuflokksins11 og
boðað til fundar á Hótel Borg klukk-
an 12.00 í dag þar sem mótmæla á
kröftuglega hugmyndum um við-
reisn . . .
í*jórði vinsælasti maður lands-
ins, samkvæmt vali hlustenda Rásar
2, Sigurður Pétur Harðarson, lék
5000. íslenska lagið í
þætti sínum Landið
og miðin á rásinni í
gærkvöldi. Nefna
má að Sigurður hef-
ur einungis starfað á
Rás 2 í 10 mánuði,
þannig að líklega
verður hann að teljast dugmesti vin-
ur íslenskra tónskálda, sem meta af-
rek sín eftir spilun í Ríkisútvarpinu.
Ljóst er að plötuútgefendur teija
Sigurð Pétur líka sinn mann, því fyrr
í vetur færðu þeir honum viður-
kenningu fyrir 3000 leikin íslensk
lög í útvarpinu .. .