Pressan - 25.04.1991, Page 10
10
FIMMTUDAGUR PRESSAN 25. APRÍL 1991
HASSSMYGLARI
SLAPP MEB SMÁDÚM
VEGNA MIS1AKA VID
LÖGREGLDRANNSÚKN
Mikilvirkur fíkniefnainnflytjandi, Sverrir Þór Einars-
son, var nýlega dæmdur í rúmlega mánadarfangelsi fyrir
Hæstarétti. Dómurinn verður að teljast mjög vægur mið-
að við að flutt voru inn þrjú kíló af hassi. Vegna mistaka
í lögreglurannsókn hafnaði héraðsdómurinn að taka
nokkuð mark á skýrslum lögreglunnar en mjög umfangs-
miklar lögregluaðgerðir leiddu til handtöku Sverris í um-
deildri lögregluaðgerð á Hótel Loftleiðum fyrir nokkrum
árum. Niðurstaða dómsins er því eingöngu byggð á játn-
ingu Sverris um innflutning á 700 grömmum af hassi.
Aldrei fékkst neinn til að gangast við hinum 2,3 kílóun-
um af hassi. Söluverð hassins, komið á götuna, má áætla
um 4,5 milljónir króna. Innflytjandinn hefði þó líklega
aldrei borið nema helming þeirrar upphæðar úr bítum.
Anddyrið á Hótel Loftleiðum var krökkt af lögreglumönnum þegar Sverrir
Þór hitti þýska tálbeitu lögreglunnar.
KEYPTl HASSIÐ EN FÉKK
ANNAN í INNFLUTNINGINN
Málið á rætur sínar að rekja allt
aftur til maí 1986 þegar Sverrir Þór
lagði á ráðin um kaup á hassi er-
lendis og sölu þess hér á landi í
ágóðaskyni. í ákæru ríkssaksókn-
ara kemur fram að ákærði fór til
Amsterdam skömmu síðar til að út-
vega hass. Hann flutti hins vegar
ekki efnið sjálfur til landsins.
Fljótlega komst ávana- og fíkni-
efnadeild lögreglunnar að því að
Sverrir Þór væri að leggja á ráðin
um að flytja inn hass frá Hollandi. Á
miðnætti 20. júní framkvæmdi toll-
gæslan á Keflavíkurflugvelli ásamt
fíkniefnalögreglunni í Reykjavík
fíkniefnaleit hjá þýskum farþega
sem hingað var kominn. Fundust þá
í fórum hans þrjú kíló af hassi. Þjóð-
verjinn játaði þegar að hann hefði
átt að flytja þetta inn fyrir Sverri og
lýsti fyrir lögreglunni með hvaða
hætti hann hefði átt að hafa sam-
band við Sverri.
ÁKVEÐIÐ AÐ ÚTBÚA TÁLBEITU
Nú fóru hlutirnir að gerast hratt
því lögreglan ákvað að útbúa tál-
beitu til þess að ná til Sverris Þórs.
Þjóðverjinn féllst a' að taka þátt í því
gegn því að Sverrir fengi ekki að
vita um handtöku hans á Keflavík-
urflugvelli. Kom þá þegar fram að
hann óttaðist hefndaraðgerðir
þeirra sem stóðu að málinu. Féllst
lögreglan á þessa samninga sem
verður að teljast mistök í ljósi dóms-
niðurstöðunnar.
Þrír lögregluþjónar héldu nú af
stað með Þjóðverjanum frá Kefla-
víkurflugvelli að Hótel Loftleiðum.
Þar var hann skráður inn á herbergi
og þaðan hringdi hann í Sverri. Þá
þegar höfðu tveir lögregluþjónar
komið sér fyrir við heimili Sverris
og veittu þeir honum eftirför að
Hótel Loftleiðum.
Þess var vandlega gætt að hafa at-
burðarásina nákvæmlega eins og
fyrirhugað hafði verið til að skapa
ekki tortryggni hjá Sverri. Einnig
var þess vandlega gætt að fíkniefnin
misfærust ekki.
Þegar Sverrir kom á Hótel Loft-
leiðir fór hann inn og gaf sig á tal við
ferðamenn. Hann gekk síðan um í
anddyrinu þar til allt í einu að hann
vatt sér að Þjóðverjanum og tók
brúna leðurtösku sem hafði að inni-
halda þrjú kíló af hassi. Hann gekk
áleiðis út og um leið stukku lög-
regluþjónar á hann.
Við húsleit heima hjá Sverri fund-
ust 5.061 bandarískir dollarar, 7.850
danskar krónur og eitthvað af pund-
um og sænskum krónum.
SVERRIR KOMST SJÁLFUR
AÐ SAMKOMULAGI
LÖGREGLUNN A R OG
ÞJÓÐVERJANS
Bæði Sverrir og Þjóðverjinn voru
nú úrskurðaðir í gæsluvarðhald. í
framburði Þjóðverjans kom fram að
hann hafði eingöngu tekið að sér að
flytja hassið inn og átti að fá greiðslu
frá Sverri fyrir. Við yfirheyrslu yfir
Sverri kom fram að hann taldi sig
ekki bera ábyrgð á þessum þrem
kílóum sem hingað voru komin. Ját-
aði hann að hafa farið til Amster-
dam til að finna sö lumann sem hefði
áhuga á að senda hass til íslands.
Sagði Sverrir að engin ákvörðun
hefði verið tekin um hve mikið það
yrði né hvenær. Hann hefði bara
skilið eftir símanúmer sitt og haldið
síðan heim á leið.
Við yfirheyrslur segist Sverrir
aidrei hafa átt von á meiru en 700
grömmum og þegar upp var staðið
var ekki hægt að sanna innflutning
á meira magni á hann.
Þegar leið á yfirheyrslurnar kom í
ljós að Sverrir hafði komist að því að
Þjóðverjinn var handtekinn í Kefla-
vík og þar hefði hassið fundist. Ekki
er vitað hvaðan Sverri bárust upp-
lýsingar um það.
Hélt Sverrir því nú fram við yfir-
heyrslur að samið hefði verið við
Þjóðverjann um að leggja gildru fyr-
ir sig og hefði þannig átt að koma
meiri sök á sig en hann raunveru-
lega hefði átt. I niðurstöðu dómsins
skipti þetta verulegu máli.
SAMBÝLISKONA SAGÐIST
HAFA ORÐIÐ FYRIR
ÞVINGUNUM LÖGREGLUNNAR
í ákærunni er einnig gerð krafa
um refsingu yfir sambýliskonu
Sverris, Þurídi Björgu Birgisdóttur.
Því var hafnað á báðum dómstig-
um. Þá er forvitnilegt að þegar mál-
ið var tekið fyrir hélt hún því fram
að framburður hennar hjá lögregl-
unni hefði verið fenginn með þving-
unum sem hefðu verið í því fólgnar
að henni var sagt að búið væri að úr-
skurða hana í 10 daga gæsluvarð-
hald og jafnframt hafi henni verið
sagt að hún ætti á hættu að rúmlega
ársgamall sonur hennar yrði settur
á vistunarheimili.
Niðurstaða dómsins hlýtur aðl
vera mikið áfall fyrir lögregluna. í|
dómnum er lögregiurannsókninni |
sem slíkri hafnað. Var því eingöngu
unnt að byggja á framburði hinna
ákærðu fyrir dómi. Því var Sverrir
eingöngu dæmdur fyrir innflutning
á þeim 700 grömmum af hassi sem
hann játaði fyrir dómnum. Var þá
höfð hliðsjón af því að Sverrir hafði
fimm sinnum áður verið dæmdur til
refsingar, meðal annars fyrir brot á
fíkniefnalögunum.
Sverrir var dæmdur í fangelsi í 3
mánuði, þar af 2 skilorðsbundið. Þá
kemur 10 daga gæsluvarðhald til
frádráttar þannig að Sverrir er að-;
eins dæmdur í 20 daga fangelsisvist
þrátt fyrir að hér hafi verið um mjög
stórt smyglmál að ræða. Þá var fall-
ist á kröfu ákæruvaldsins um upp-
töku á þeim gjaldeyri sem náðist.
Þess má geta að málsmeðferðin
dróst mjög á langinn vegna kröfu
um að Asgeir Fridjónsson, saka-
dómari í ávana- og fíkniefnamálum,
viki sæti. Var málinu skotið til
Hæstaréttar sem komst að þeirri
niðurstöðu að Ásgeiri bæri að víkja.
Það var Því Hjörtur O. Aðalsteins-
son sem kvað upp dóminn. Verjandi
Sverris var Púll Arnór Pálsson
hæstaréttarlögmaður.
Hæstiréttur lengdi fangelsisvist
Sverris um einn mánuð en staðfesti
sýknu Þuríðar. Þá breytti Hæstirétt-
ur niðurstöðunni um upptöku gjald-
eyris þannig að Sverrir hélt þeim
peningum eftir.
„Það eru auðvitað ákveðin skila-
boð í þessum dómi sem við erum
búnir að skoða," sagði Björn Hall-
dórsson, yfirmaður fíkniefnadeildar
lögreglunnar, þegar hann var spurð-
ur að því hvort deildin hefði brugð-
ist við því á einhvern hátt að þarna
hefði umfangsmikilli lögreglurann-
sókn verið hafnað eins og hún lagði
sig-.
„I þessu eru einnig skilaboð um
að það sárvantar reglur um óhefð-
bundnar rannsóknir," sagði Björn.
Sigurður Már Jónsson