Pressan - 25.04.1991, Blaðsíða 23

Pressan - 25.04.1991, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR PRESSAN 25. APRÍL 1991 23 ... fær Páll Hjálmtýs- son og Burt Bacharach fyrir stærsta sigurinn á kosninganótt SJÓNVARPIÐ Föstudagsrokk er tíu þátta röð sem ríkissjónvarpið byrjar að sýna á föstudagskvöldið, korteri fyrir miðnætti. Fyrsti þátturinn fjallar um soul-tónlist og þar má sjá kappa á borð við James Brown, Otis Redding og Marvin Gaye, að ógleymdum The Supr- emes. Næsti þáttur verður eftir mánuð og þá verður fjallað um Ríó tríóið og Gunna Þórðar. STÖÐ 2_________________________ Tvíburar Dead Ringers er mynd þar sem Jeromy Irons, Óskars- verðlaunaleikarinn frá síðasta mánuði, fær að leika tvo menn, tvíbura. Annar tvíburinn er meira klikkaður en hinn. Loks fer hann alveg yfir strikið og þá er voðinn vís fyrir hinn helming- inn. Irons leikur þetta af miklum þrótti en sagan sjálf er ekki merkileg. Músarhjörtum skal bent á að þetta er hryllings- mynd. BÍÓIN__________________________ Betri blús Mo Better Blues eftir Spike Lee er sýnd i Laugarásbiói. Það þarf ekki að segja þeim sem sáu Do The Right Thing að fara á þessa mynd, en það er ágætt að þeir viti það fyrirfram að hún er ekki eins góð. Danzel Whasing- ton er hins vegar rosalegur leik- ari — og æðislega flottur gæi. Flugsveitin Flight of the Intru- der i Háskólabíói er mynd eins og allir héldu að væri hætt að framleiða núna. Þegar framleið- endurnir þurfa að selja hana sem eftirmála af Top Gun ætti að vera ljóst að eitthvað er að. Og það er eitthvað að. Sofið hjá óvininum Sleeping with theEnemyí Bióhöllinni hef- ur einn afgerandi kost, Juliu Ro- berts. Annað í myndinni er ekki iþyngjandi. Uppvakningar Awakenings í Stjörnubíói sýnir að Robin Willi- ams er hörkuleikari og að Robert de Niro þarf ekki alltaf að vera betri helmingurinn þegar tveir leikarar leiða saman hesta sína. Dansar vid úlfa Dances with Wolves í Regnboganum er Ósk- arsverðlaunamynd sem Evrópu- búar elska. Hún gefur þeim kost á því að velta sér upp úr hvað Ameríkanar eru barnalegir og grunnir. LEIKHÚSIN Ráðherrann klipptur eftir Ernst Bruun Olsen er sýnt á Litla sviði Þjóðleikhússins. Ein fyrir- spurn til forsvarsmanna íeik- hússins: Afhverju var mér ekki sagt að þetta væri sama leikrit og ég sá í Sjónvarpinu fyrir nokkru? Söngvaseiður eða Sound of Music hefur slegið í gegn. Þeir sem ætla að sjá þennan söngleik á þessu leikári verða að fara að kaupa sér miða. Það eru hugsan- lega einhver sæti laus seinni hluta næsta mánaðar. Dampskipið fsland, Ég er meistarinn, Fló á skinni og Sigrún Astrós ganga enn í Borgarleikhúsinu. Líka 1932 — en ekki eins vel. Menn, menn, menn eru þrír einþáttungar sem Stúdentaleik- húsið sýnir í Tjarnarbíói. Það eru félagar í leikhúsinu sem leggja til verkin. KLASSÍKIN____________________ Sinfónían heldur svokallaða Bónus-tónleika í kvöld, en það skal leiðrétt strax að þeir eiga ir rnr 5 14 [T 35“ 40 45 :Í4Ö r ?— 5— ?— 10 r ■ íó r ■ * P ■ v p ■ ■ 43 47 ■ ÞUN6A GATAN LÁRÉTT: 1 auðæfi 6 lostafengin 11 mjög 12 trjóna 13 dúk 15 gos- sprunga 17 nærskyrta 18 berg 20 aíhenti 21 glerhallur 23 nudd 24 úlf 25 eindregin 27 afhjúpar 28 hetjusagan 29 fórnarblóð 32 skraut 36 gull 37 forsögn 39 þrammi 40 tré 41 dundi 43 mylsna_44 óstöðug 46 dvalarstaður 48 kaldakol 49 op 50 dráp 51 nefin LÓÐRÉTT: 1 kákar 2 neitun 3 ái 4 núningur 5 nákvæmni 6 eftirleit 7 gróp 8 sál 9 kjagar 10 skári 14 ullarkembu 16 garði 19 flautu 22 múrstein 24 hæfa 26 veiðitæki 27 misþyrming 29 dæld 30 rannsókn 31 spil 33 verndarvættir 34 afturenda 35 letingjann 37 pækil 38 með 41 móða 42 keppur 45 blása 47 vendi. Græna kortið Green Card i Bíó- borginni með frönsku leikverk- smiðjunni Gerard Depardieu er létt amerísk gamanmynd með smá rómans. Leikstjóranum Pet- er Weir tekst ekki að bæta miklu við þann flokk bíómynda. ekkert skylt við verðstríðið á höfuðborgarsvæðinu. Á tónleik- unum leikur Rudolf Buchbind- A r n er pianókonsert nr. 20 eftir Moz- art með hljómsveitinni en auk þess leikur hún Sinfóniu nr. 25 í g-moll og Haffner-serenöðuna eftir sama mann. Peter Máté, tékkneskur píanó- leikari, leikur verk eftir Ferenc l.iszt á tónleikum í Hafnarborg í kvöld. Söngsveitin Fílharmónía flyt- ur Nelson-messuna eftir Haydn í Kristskirkju á laugardaginn kl. 17.00 og síðan aftur á sunnudag- inn á sama tíma. Kammersveit Reykjavíkur leikur verk eftir Mozart og J.G. Naumann í Áskirkju á sunnudag- inn kl. 17.00. POPPIÐ______________________ Bubbi Morthens verður á Skipaskaga i kvöld og leikur og syngur á skemmtistaðnum Ströndinni. SJÓIN Dragsjóin á Moulin Rouge eru það skemmtilegasta í bæjarlíf- inu. Þeir sem efuðust um það hafa sannfærst á kosningavök- unni hjá rikissjónvarpinu. Yfir strikið býður einnig upp á villt og kynferðisleg sjó, þó þau séu byggð á hefðbundnara kyn- lífi. ið viðlíka umfjöllun og innrétting Ölkjallarans á sinum tíma. Ástæðan var að eigandi Ölkjall- arans vildi verða fyrstur til að opna bjórkrá þegar banninu yrði aflétt. Ög eins og aðrir frumherj- ar þurfti hann að borga það dýru verði. Ölkjallarinn fékk ekki leyfi til að hafa opið til klukkan þrjú. Þetta átti að vera ný lina til að kenna fólki að hætta hugsa um að græða á bjórnum. En þessi lína náði ekki lengra en ut- an um Ölkjallarann. Eftir að hann opnaði hafa allir fengið að hafa opið til þrjú ef þeir vilja. En NÆTURLÍFIÐ Öikjallarinn á horni Pósthús- strætis og Kirkjustrætis á sér sér- kennilega sögu. Það sérkenni- lega við söguna er að ris hennar verður í raun áður en hún hefst. Áður en bjórinn var lögleiddur (það eru bara tvö ár siðan þó enginn geti lengur imyndað sér hvernig hægt var að lifa í bjór- lausu landi) var Ölkjallarinn for- síðuefni blaðanna með reglu- legu millibili. Endurbygging Þjóðleikhússins hefur ekki feng- Gordon Rouge Brut þessi lina nægði til að hengja Öl- kjallarann. Frá því að hann opn- aði hefur hann verið tínd bjór- krá. Þangað fer enginn nema þeir sem vilja ekki láta sjá sig á bjórkrám. Og þeir eru allnokkrir. Og sem betur fer eru þeir þag- mælskir. MYNDLISTIN___________________ Yoko Öno og Fluxus verða á Kjarvalsstöðum um helgina. Yoko mætir á opnunina þannig að þeir sem vilja vera menn með mönnum, að ekki sé talað um konur með konum, verða að mæta. Þeir sem geta enn ekki fyrirgefið henni að hafa eyðilagt Bitlana geta reynt að kasta í hana eggi- Wu Shan Zuan sýnir í Gallerii List. Þetta er sami Shan Zuaninn og gerði veitingahúsið 22 eins og það á að vera um daginn. Daníel Magnússon sýnir nokk- ur verka sinna á Café Splitt á Klapparstígnum. Öll eru verkin í hefðbundnum Daniels-stíl. Þetta er meðaljón hópi alvöru kampavína, sem eins og kunnugt er koma frá héraðinu Champagne í Frakk- landi. Yfirleitt saman- standa kampavínin af þremur berjategundum, Chardonnay, Pinot Noir og Pinot Meunier, en stundum er einungis um að ræða tvær af þessum berjategundum. Gordon Rouge er þurrt og eins og önnur kampavín er best að drekka það sæmilega kalt. Kampa- vín er hægt að drekka bæði fyrir mat og með mat. Flaskan af Gordon Rouge Brut kostar 2190 krónur. Baltasar opnar sýningu i Hafn- arborg í dag. Ef að likum lætur eru öll verkin í hefðbundnum Baltasar-stíl. VEITINGAHÚSIN_________________ Þjónn, fer ekki að líða að þvi að ég fái pitsuna sem ég pantaði fyr- ir hálftíma? Það er enn smábið. Það er nefniiega svo rosalega mikið að gera í dag. Hver kannast ekki við svona til- svör frá þjónustuliði á veitinga- húsum? Það er eins og það sé gestinum að kenna að eigandi staðarins setti alla þessa stóla í salinn og einhverjir settust í þá og keyptu sér pitsu. Þjónustufólk er alltaf að íþyngja gestinum með einhverjum þjónaraunum. Gestinum koma þessar raunir ekkert við. Hann vill fá matinn sinn á réttum tíma og ef það tekst ekki á þjónninn ekki að reyna að réttlæta það heldur að biðjast af- sökunar. Og þó þetta sé ekkert nema óþolinmæði í gestinum á þjónninn samt að biðjast afsök- unar. Gesturinn hefur nefnilega alltaf rétt fyrir sér. Þannig var það í gamla daga og þannig á það að vera i framtiðinni. Ef þjónninn trúir því ekki á hann að fá sér aðra vinnu. ÁÐUR ÚTI NÚNA INNI Nú hafa hvalveiðar verið bann- aðar um tima. Það er þvi erfitt að ná i súran hval. Og fyrst svo er er & súr hvalur að sjálfsögðu kominn í tísku. Þeir sem vilja vaxa í aug- um gesta sinna eiga þvi að leita dyrum og dyngjum að súrum hval. Það er álíka exótískt að bjóða upp á slíkan munað og að framreiða steingerð risaeðluegg. Og fyrst allt bendir til að Halldór Ásgrímsson verði ekki sjávarút- vegsráðherra næstu árin er vis- ara að geyma eitthvað til betri tima. Eftir eitt eða tvö ár verður fólk tilbúið að drepa fyrir súran hval. Og þá skiptir það engu þó þvi þyki hann vondur. ÁÐUR INNI NÚNA ÚTI Það er sjálfsagt ekkert jafn ómögulegt í dag og að eiga „The Art of the Deal“ eftir Donald Trump. Það er ekki bara að menn eigi ekki að binda trúss sitt við þá sem tapa, heldur er Don- ald Trump tákn um þá trú á ævin- týri sem reið húsum fyrir fáum árum. I dag eiga menn að trúa á heilbrigða skynsemi og heil- brigð skynsemi leyfir mönnum ekki að trúa á ævintýralegar lausnir. Og þegar heilbrigð skyn- semi knýr dyra flýgur Donald Trump og allt sem hann stóð fyr- ir út um gluggann. HÚSRÁD__________________ Eg þarf að skila af mér íbúd sem ég er búinn að vera með í leigu en mér hrýs hugur við að mála hana. Líklega kemst ég ekki hjá því þar sem ég er búinn að negla mikið af nögl- um í veggina. Hvað á ég að gera? Taktu naglana úr og settu hvitt tannkrem í naglaförin (ef vegg- irnir eru hvítir). Þegar tannkrem- ið er þornað skaltu strjúka létt yf- ir með sandpappír. Húseigand- inn tekur ekki eftir neinu — alla vega ekki strax. VIÐ MÆLUM MEÐ______________ að Sigurður A. Magnússon verði ráðinn sem fast skemmtiatriði í Litrófs-þætt- ina hann og Arthúr Björgvin gætu orðin vinsælli en Abbott og Cost- ello <&- -• að Háskólabíó og Stjörnubíó kaupi sér poppvéi eins og al- vöru-bíó og að Laugarásbió noti sína vél til að selja heitt popp en selji það ekki volgt að settir verði upp veðbankar á íslandi Eurovision og jafnvel islenski fót- boltinn geta orðið skemmtileg ef lagt er undir að bankarnir hætti að láta við- skiptavinina taka númer það leiðir bara til þess að þrýst- ingur á gjaldkerana minnkar og þeir vinna hægar Vinsœlustu myndböndin 1. Bird on a Wire 2. Cadillac Man 3. Wild at Heart 4. Another 48 Hours 5. The Freshman 6. Impulse 7. Beyond the Stars 8. The Flash 9. Heart Condition 10. Stella

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.