Pressan - 25.04.1991, Page 26
Gunnar Vilhjálmsson,
kjósandi sem kaus Al-
þýðubandalagið í fyrsta
sinn
Eina leiðin til að
fá eitthvað fyrir
það sem maður
var búinn að
borga fyrir
Fyrst ég borgaði fyrir kosn-
ingabaráttuna hvort sem var
þá fannst mér eðlilegast að
kjósa þá, segir Gunnar.
Kosninganrslitin
hafa haft mikil
áhrif á hann og
hann er eins og
allt annar maður
— segja nánustu vinir
Júlíusar Sólnes
Júlíus Sólnes er breyttur
maður eftir kosningaúrslitin.
Davíð Oddsson, kaþólskur
prestlaerlingur í Hollandi, seg-
ist skammast sín fyrir að vera
kominn á þing.
Enn ruglingur með kenni
tölur
Davíð Oddsson
var ekki kosinn
á þing heldur
alnafni hans
— Kjartan Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Sjálf-
stæðisflokksins, skilaði
inn vitlausri kennitölu til
yfirkjörstjórnar
17. TÖLUBLAÐ 2. ÁRGANGUR
FIMMTUDAGURINN 25. APRÍL 1991
STOFNAÐ 1990
HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HUÓMAR
Tölvur, prentarair, hugbúnaður, netbúnaður, samskiptakerfi, umbrotskerfi og alhliða þjónusta
MICROTÖLVAN
SuðurlandsbVaut 12 - sími 688944
Davið Oddsson og Jón Baldvin Hannibalsson verða að láta sér
nægja að skipta á milli sín fjórum ráðuneytum.
Lítiö til skiptanna í stjórnarmyndunar-
viðrœöunum
Gömltt stjórnarflokkarnir
keyptu flest ráðuneytin
Reykjavík, 25. apríl
„Þegar við ætluðum að
fara að skipta ráðuney tun-
um á milli okkar kom í ljós
að okkur var sniðinn
þrengri stakkur en við
töldum,“ sagði Jón Baid-
vin Hannibalsson á sam-
eiginlegum blaðamanna-
fundi hans og Davíðs
Oddssonar í gær. A fund-
inum kom fram aö nokkrir
af ráðherrum fyrri ríkis-
stjórnar höfðu gengið frá
sölu ríkisins á ráðuneyt-
um sínum rétt eftir kosn-
ingar. Svo virðist sem þeir
sjálfir séu kaupendurnir í
fíestum tilfellum.
„Framsóknarmenn og Al-
þýðubandalagsráðherrarnir
hafa gengið lengst," sagði
Davíð Oddsson. „Halldór As-
grímsson er þannig þinglýst-
ur eigandi sjávarútvegsráðu-
neytisins og Sigfúsarsjóður,
sem er í eign Alþýðubanda-
lagsins, á öll ráðuneytin sem
Alþýðubandalagið hafði í síð-
ustu ríkisstjórn."
Það kom jafnframt fram á
fundinum að forsætisráðu-
neytið er nú eign Eddu Guð-
mundsdóttur, eiginkonu
Steingríms, og hlutafélag í
eigu Finns Ingólfssonar og
Guðmundar Bjarnasonar er
skráð fyrir heilbrigðisráðu-
neytinu. Umhverfis- og dóms-
málaráðuneytið hafa verið
sameinuð pulsuvagninum í
Austurstræti.
En hvað hyggjast þeir Dav-
íð og Jón Baldvin gera?
„Lögfræðingar segja að
það sé lítið við þessu að gera.
Fyrst um sinn munum við því
reyna að deila þeim ráðu-
neytum sem eftir eru," sagði
Jón Baldvin.
„Ég skil ekki óánægju þess-
ara manna," sagði Ólafur
Ragnar Grímsson, stjórnar-
formaður Sigfúsarsjóðs, í
samtali við GULU PRESS-
UNA. „Ég veit ekki annað en
Sjálfstæðisflokkurinn hafi
viljað báknið burt. Þegar það
er farið grípa þeir til þess að
væla á blaðamannafundum.
Ég skil ekki þessa menn."
Reykjavík, 25. apríl
Asta Ragnheiöur Jó-
hannesdóttir, sem var í
öðru sæti á lista Fram-
sóknar í Reykjavík,
hefur sent skrifstofu
Aiþingis bréf þar sem
hún krefst þess að fá
greidd þriggja mánaða
biðlaun alþingis-
manns. Hún rökstyður
kröfu sína með því að
hún hafi verið inni á
þingi í klukkutíma á
kosninganóttina og
eigi þar með rétt á
biðlaunum.
„Auðvitað fylgdi ýmiss
kostnaður þessari þing-
setu minni þó stutt væri,“
sagði Ásta Ragnheiður í
samtali við GULU PRESS-
UNA. „Hingað flykktist
alls konar fólk sem ég
þurfti að veita bæði í mat
og drykk. Fólk sem ef-
laust hefði ekki látið sjá
sig ef ég hefði ekki verið
komin inn á þing sam-
kvæmt fréttum sjón-
varpsstöðvanna."
Ófremdarástand viö Midbœjarbarnaskólann
T
150 VEGLAUS GAMAL-
MENNI A VERGANGI
Guttormur P. Einarsson
Lít ekki á þetta
sem ósigur
atvinnustef nunnar
Asta Ragnheiöur
Jóhannesdóttir
KREFST
BIÐLAUNA
Reykjavík, 25. apríl
„Aðkoman var óhugnan-
leg,“ segir Guðrún Hall-
dórsdóttir, skólastjóri
Námsflokka Reykjavíkur,
um ástandið sem blasti við
henni þegar hún sneri til
vinnu í gær.
„Hér voru hátt á annað
hundrað gamalmenni sem
gátu enga björg sér veitt. Eftir
aðhlynningu gátu þau fáu
sem máttu mæla sagt mér að
þeim hefði verið ekið á kjör-
stað af bílstjórum stjórnmála-
flokkanna en þeir hefðu hins
vegar ekki hirt um að aka
þeim aftur heim. Þess í stað
voru þau skilin eftir, algjör-
lega bjargarlaus."
„Það er ekki hlutverk yfir-
kjörstjórnar í Reykjavik að
Unnið er að því að koma
gamla fólkinu til síns heima
eftir kosningarnar. Auk gamal-
mennanna voru nokkur ung
börn í vanskilum i Miðbæjar-
barnaskólanum.
aka kjósendum heim eftir að
þeir hafa neytt atkvæðisrétt-
ar síns," sagði Jón G. Tómas-
son, formaður yfirkjörstjórn-
ar. „Við urðum varir við þetta
fólk þegar við vorum að loka
kjörstöðum og í stað þess að
henda þeim út á Guð og
gaddinn leyfðum við þeim að
halda kyrru fyrir í skólanum.
Það er mun meira en hægt er
að ætiast til af yfirkjörstjórn."
Að sögn Guðrúnar Hall-
dórsdóttur er nú unnið að því
að finna út hvar hver eigi
heima og koma þeim þangað.
„Þetta er mikið verk og
stundum finnst manni það
hálf tilgangslaust. Mér skilst
að líkur bendi til að það verði
forsetakosningar næsta sum-
ar og þá tekur sama vitleysan
við,“ sagði Guðrún.
ísafirði, 25. apríi
„Eg tel alls ekki að út-
koma mín bendi til þess að
fólk hafi hafnað atvinnu-
stefnu ríkisstjórnarinn-
ar,“ sagði Guttormur P.
Einarsson, atvinnumála-
fulltrúi ríkisstjórnarinnar
og frambjóðandi frjáls-
lyndra á Vestfjörðum, eftir
að kosningaúrslit lágu fyr-
ir. Guttormur fékk aðeins
31 atkvæði í kosningun-
um.
„Ég hlýt fyrst og fremst að
líta á þetta sem persónulegan
ósigur," sagði Guttormur.
„Það getur hver maður sagt
sér það sjálfur þegar hann tel-
ur sín nánustu ættmenni og
sína bestu vini að þeir eru
fleiri en 31. Þó það sé sárt
verð ég að viðurkenna að
eitthvað af mínu fólki hefur
brugðist. Og þegar manns
eigið fólk bregst getur maður
varla ætlast til þess að vanda-
lausir rjúki til og kjósi mann á
þing.“
Guttormur telur að einhver
sér nakominn hafi brugöist í
kosningunum.
Ásta Ragnheiður vill bið-
laun fyrir klukkutíma
þingsetu.