Pressan - 11.07.1991, Page 4

Pressan - 11.07.1991, Page 4
4 FIMMTUDAGUR PRESSAN 11.JÚU1991 DRAUMA DINNER PRESSAN bað ELÍSA- BETU JÖKULSDÓTTUR skáld og blaðamann að vera gestgjafi í ímynduðu kvöldverðarboði. Gest- irnir máttu vera hverjir sem er; lifandi, frægir, látnir, skáldsagnapersón- ur, teiknimyndafígúrur eða bara vinir og vanda- menn. Eiísabet býður tíu gestum: Charles Chaplin: hann er svo kynþokka- fullur Guðmundu Elíasdóttur: hún er gáfuð og skemmtileg Einari Benediktssyni: ég ímynda mér að hann hafi svo fallega rödd Marilyn Monroe: ég myndi spyrja hana hvort hún hefði verið myrt Samuel Beckett: til að vita hvort hann er samræðuhæfur Viktoríu Bretadrottningu: það væri gaman að vita hvort hún er farin að slappa af Sigurði Sigurjónssyni: mig langar til að kynnast honum í venjulegu partii Sitjandi tarfi: höfðingja Sioux-indíána. Hann er ómótstæðilegur og mig langar líka til að heyra alvöru indíánasögur Elísabetu Ó. Rónalds- dóttur: kvikmyndagerðarmanni og vinkonu minni. Þá get- um við skemmt okkur brjálæðislega vel, lika dag- inn eftir. Höskuldi Skarphéðins- syni: skipstjóra, til að borga brúsann. i$hrdingub og ævintýri hans í Reykjavík Áður en ég gat nokkrum vörnum við komið hafði Reimar keypt miða handa okkur báðum í litia rellu sem var að sýna listflug yfir Reykjavík. Flugmaðurinn var ítali. Stúlkurnar horfðu á hann eins og fjöldi tungla í fyllingu. Eiki Strandamaður stóð við hliðina á mér. — Ég gleymi því ekki svo lengi sem ég lifi þegar ég var einu .sinni að fljúga yfir Frakk- landi, sagði Eiki. Það kvikn- aði í flugvélinni. Ég var einn þeirra fáu sem voru svo heppnir að vera með fallhlíf. Ég sá farþegana springa allt í kring þegar þeir lentu á jörðinni. Aumingja fólkið. — Taktu þetta ekki nærri þér, Nasi minn, hvíslaði Reimar. Þetta er tútal ímynd- Jóka í Skaparanum stóö fyrir Skaparakuöldi á Borginni um sídustu helgi, þar sem tíska kom- andi vetrar var sýnd. illl og bómull. Mjúkir litir. Mjúk sniö. Vidskiptavinir Skaparans eiga ekki eftir aö verda fyrir vonbrigö- um þegar sumri hallar. Lífleg sviðsframkoma skaparamódelanna spillti heldur ekki fyrir, en Jóka velur módelin sín af göt- unni. En því nenna ekki allir. Og sumum er hreint ekki vel við að sjá pönkara með hund. „Það hefur komið fyrir að fólk frjósi þegar það mætir mér með hundinn," segir Frikki. ,,Og sumir ganga yfir á hina gangstétt- ina á Laugaveginum." Þeir eru þó ekki á því að það sé svo erfitt líf að vera pönkari þó sumir líti þá hornauga. „Það er áreiðanlega erfið- ara að vinna og halda heim- ili,“ segja þeir. Fólk sé með samviskubit haldi það sig ekki á ákveðinni braut og byggi sér framtíð, sem ekki sé annað en draumur. Og svo er það hann Bjössi vin- ur þeirra, sem striplaðist á Laugardalsvellinum, en hann er nú látinn. „Fólk lamdi hann á Laugavegin- um út af þessu og var alltaf að segja honum hvað hann væri ógeðslegur. Samt var þetta besta auglýsing sem við höfum fengið. Mér finnst að fólk — og löggan — eigi að taka þetta til sín,“ segir Palli, sem hefur skoðanir á flestu eins og Frikki. Líka lýðræðinu. „Mér finnst að fólk eigi fullan rétt á að vita allt sem þessir karlar gera og segja. Það ætti líka að taka af þeim þessi fríðindi og láta sjómann í sjávarút- vegsráðuneytið og bónda í land- búnaðarráðuneytið. Fólk sem er tilbúið að taka þetta að sérl án þess að horfa í peningana. Þjóðin ætti líka að hafa rétt á að fara með uppsagnarbréf til þingmanna. Og löggan. Hún á ekki að vera ógnvaldur( eins og hún er í dag,“ segir Palli, „Ef mig langar til að taka hann með þá tek ég hann með,“ segir Paili pönkari. Hann er að tala um hundinn sinn, sem reyndar er fjögurra mán- aða gömui tík. Palli fer með hana í bæinn, þrátt fyrir öll boð og bönn, enda finnst honum þau vera fáránleg. að fara með tíkina upp í Ell- iðaárdal, sem er ekki bein- línis hentugt fyrir bíllausan mann eins og hann. Verð- ugt mál til umhugsunar, en eitt liggur þeim þó enn þyngra á hjarta og það er umgengni barna við hunda. „Fólk er að hneykslast á því að hundar bíti börn, sem þeir gera reyndar ekki held- Með Palla er Frikki vinur hans, sem hefur jafn ákveðnar skoðanir á málinu og hann. Þeir eru báðir ákafir stuðningsmenn hundahalds. „Er ekki skárra að hafa hundaskít í bænum en glerbrot sem börnin skera sig á?“ spyr Frikki. „Þú ættir að sjá hvernig er umhorfs hérna fyrir utan á laugardags- og sunnudags- morgnum." Hann bendir út um gluggann á Hressó. „Það þarf annars að búa til fleiri skítasvæði hér í bæn- um fyrir hunda." Palli þarf ur glefsa þeir í þau, en engu að síður eru það oft foreldr- arnir sem hvetja börnin til að fara og klappa hundun- um, þó barnið hafi ekki tek- ið eftir að þarna væri neinn hundur! Og svo hneykslast þeir á því þegar hundurinn glefsar í barnið, en átta sig ekki á því að þetta er eina aðferð hundsins til að verja sig fyrir ókunnugum krakka og segja: láttu mig í friði." Þeir segja að þegar þeir banni börnum að klappa hundinum skilji fólk það þegar það nennir að hlusta. Ragnar Kjartansson er einn úr hópi ungra leiklistaráhuga- manna Gamanleikhússins, sem sýndi Graenjaxla í íslensku óperunni um síðustu helgi. Ragnar á ekki langt að sækja leiklistaráhugann, því foreldrar hans eru báðir kunnir leikhús- menn, þau Guðrún Ásmunds- dóttir og Kjartan Ragnarsson. Ragnar hefur sjálfur helgað sig leikhúsinu í sumar og er á för- um með Gamanleikhúsinu til írlands og Hollands á sunnu- daginn. Eitt enn. Þó hann segist ekki vera á föstu er hann það næstum því. Eða vildi að minnsta kosti vera það. Hvað borðar þú í morgunmat? Annaðhvort heimabakaða brauðið hennar mömmu eða Cheerios. Pönkaranir oy, átfMdaáatdLcL Rýtingsstungan un. Pabbi hefur aldrei stigð upp í flugvél. No listflug, kúnstflug, sagði Reimar við kallinn sem túlkaði fyrir ítal- ann. Just flug. — Þú getur alveg talað ís- lensku við mig góði, sagði kallinn önugur. Á meðan þessir menn voru að tala þetta og Reimar að borga farið var ég sem í draurni. Allt í einu var ég staddur um borð í litlum ára- bát. Allt í einu voru Reimar og ítalski flugkappinn að lyfta mér um borð í vélina. Eg sat fyrir miðju. Flugkapp- inn fyrir framan og Reimar aftastur. í þessari flugferð fékk ég sönnur fyrir því að Reimar var brjálaður. Hreyf- illinn fór í gang og litla sjó- flugvélin brunaði fram Skerjafjörðinn og hófst á loft. Það var gott að vera rammlega reyrður í sætið, Ströndin seig undan manni og svo blasti bærinn við fyrir neðan. Ha, ha, ha, ha, ha, heyrðist í Reimari. Bærinn var eins og módel af sjálfum sér sem ég hafði eitt sinn séð í Miðbæjarskólanum. Flug- kappinn tók eina netta dýfu. Ég heyrði fyrir aftan mig að Reimar hló eins og vitfirr- ingur. Ég hafði ekki lyst á því að snúa mér við til að sjá framan í hann. Allt í einu heyrði ég Reimar kalla: List- flug. Kúnstflug! Ég var að vona að ítalinn hefði ekki heyrt þetta, en ó, hann lét út hönd og otaði kátur þumli til himins og hellti svo rellunni í spuna svo hafflöturinn skutlaðist til og frá fyrir neðan okkur. Ha, ha, ha, ha, ha, ha, ha, heyrðist í Reim- ari. Svo rétti ítalinn vélina úr dýfu og sveif inn til lending- ar. Ég var svo feginn að hafa sloppið við að verða mér til skammar með stórslysi í sæt- ið að ég komst hjálparlaust frá borði. Þegar við komum í land fréttist að annar mað- ur hefði keypt miða. Eiki sjálfur. Baráttan milli föður og sonar tók þarna á sig furðulega mynd. Þegar Eiki sá að Reimar þorði að fljúga gat hann ekki hugsað sér að vera minni maður. — List- flug, kúnstflug, kallaði Strandamaðurinn um leið og hann var sestur í sætið fyrir aftan ítalann, og ég er viss um að hann hefur ekki haft hugmynd um hvað hann var að kalla því hann kunni ekki stakt orð í út- lensku. En ítalinn var alveg með á nótunum og skildi hann vel. ítalinn tók maka- lausar krúsidúllur yfir Skerjafirðinum og hann hef- ur örugglega þrælfílað þetta sjálfur því hann ætlaði aldrei að lenda. Á meðan afgreiddi Reimar í sjoppunni gulur af afbrýðisemi. Hann risti pylsubrauð að endilöngu með hárbeittum hnífi og reiddi pylsurnar fólkið löðr- andi í tómat og sinnep. Nú kom flugmaðurinn fljúgandi inn fjörðinn á haus. Fólk stóð á víð og dreif um ströndina og klappaði. Sumir voru með pylsur, aðrir að éta Prins, nokkrir að lepja Póló og ýmsir að svæla Cool. Allir höfðu það prýðilegt því sólin glampaði á sjónum. Allir nema Reimar. Hann varð því þyngri sem pabbi hans var lengur á lofti. Loks kom rell- an inn til lendingar og ítal- inn ók henni alveg upp í flæðarmál. Strandamaður- inn sat í sætinu sínu fullkom- lega stjarfur. Hann var eins og stórlúða í framan sem vaknar við vondan draum, það er verið að landa henni. Nokkrir menn gengu til og byrjuðu að bisa við að ná honum úr vélinni. Loks gekk | það og aumingja kallinn | stóð í fjörunni svartur í fram- an og gapti eins og háhyrn- ingur. Aumingja kallinn. hann gat ekki staðið óstudd- ur. Allt í einu gerðist nokkuð óvænt. Reimar kom gang- andi með pylsuhnífinn reiddan snjóhvítur í framan. Allt í einu tók hann undir sig stökk til föður síns með hníf- inn á lofti. Ég hljóp til en varð of seinn. Reimar brá rýtingnum á hálsinn á föður sínum svo blóðbunan stóð út í loftið. Framhald. Ólafur Gunnarsson Kanntu að elda? Já, svona dá- lítið. Hefurðu farið á tónleika með Sykurmolunum? Já, einu sinni held ég. Veistu hvað er í tísku í sumar? Ég er lítið inni í þeim málum. Gengurðu með sólgleraugu? Nei, ég týni þeim alltaf. Læturðu lita á þér hárið? Ég hef einu sinni gert það. Það var fyrir nokkrum dögum, fyrir leik- ritið. Ertu búinn að sjá Doors- myndina? Já. Mér fannst hún flott, en það vantaði samt eitt- hvað í hana. Hefurðu átt heima í útlönd- um? Nei, ég hef alltaf búið á Fróni og er stoltur af því. Kanntu dönsku? Já, eitthvað pínulítið. Áttu fjallahjól? Nei. Ertu í Ijósum? Nei, ég hef aldrei farið í Ijós. En ferðu í sólbað í sundlaug- unum? Já, stöku sinnum. Hvernig stelpur eru mest kyn- æsandi? Þessu er erfitt að svara. Gætirðu hugsað þér að reykja hass? Já, kannski þegar ég verð níræður og á stutt eftir. Áttu mótorhjól? Nei. En bíl? Nei, ekki heldur. Við hvað ertu hræddastur? Að klifra upp á háaloft. Syngur þú í baði? Já, alltaf. Hvert ætlarðu um verslunar- mannahelgina? Ég verð í út- löndum. Hefurðu farið á sveitaball? Ég hef ekki farið á sveitaball enn- Þá- Hvert er takmark þitt í lífinu? Ætli það sé ekki að vera ham- ingjusamur og deyja i ró og næði.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.