Pressan - 11.07.1991, Blaðsíða 10

Pressan - 11.07.1991, Blaðsíða 10
lu FIMMTUDAGUR PRESSAN 11. JÚU 1991 MIKUBARBUR UPAR TUGUMB MILLJÚNA Sambandið hefur loksins greitt inn hlutafé það sem lofað var að leggja í verslunarrekstur Miklagarðs hf. Hlutaféð fer fyrst og fremst í skuldbreytingar og yfirtöku skulda en rekstrarstaða fyrirtækisins verður áfram erfið. Verulegt tap varð á rekstri fyrirtækisins í fyrra og stefnir í áframhaldandi taprekstur í ár nema til komi aukning hlutafjár. Aðalfundur Miklagarðs hf. verður nú 18. júlí næstkom- andi en fundinum hefur verið frestað tvisvar. Fyrir fund- inn verða lögð gögn um rekstur fyrirtækisins fyrstu fimm mánuði ársins. Þar kemur væntanlega fram að tap fyrir- tækisins stefnir í að verða verulegum mun meira en gert var ráð fyrir — jafnvel svo að skipti hundruðum milljóna króna. Þetta er meðal annars ástæðan fyrir því að aðal- stjórn Sambands íslenskra samvinnufélaga tregðaðist við að standa við loforð um 400 milljóna króna hlutafjár- aukningu. Það var loksins gert 28. júní og þá að mestu í formi skuldbreytinga. Lausafjárstaða fyrirtækisins hef- ur verið afleit og hafa nokkur fyrirtæki neitað að af- greiða vörur þangað nema gegn staðgreiðslu. Mikligarður hf. var stofnaður 26. apríl 1989 á grunni samnefnds sam- vinnufyrirtækis með smásöluversl- un að höfuðmarkmiði. Á fyrri árs- helmingi 1990 voru smásöfuversl- anir KRON sameinaðar verslunar- rekstri Miklagarðs. Haustið 1990 varð Sambandið meirihlutaeigandi í Miklagarði hf. og í október sam- þykkti stjórn Sambandsins að inn- flutningsstarfsemi Verslunardeildar Sambandsins skyldi sameinuð starf- semi Miklagarðs hf. frá 1. janúar að telja. VERSLUNARDEILDIN ER SKEMMDA EPLH) Sú ákvörðun Sambandsins að setja Verslunardeildina inn í Mikla- garð sætti mikilli andstöðu meðal starfsmanna Miklagarðs hf. enda varð um 500 milljóna króna tap á rekstri Verslunardeildarinnar í fyrra. Sambandið tók reyndar á sig þetta tap en uppsprettan sjálf, þ.e.a.s. reksturinn, er nú innanbúðar hjá Miklagarði hf. Verslunardeildin hefur verið rekin með miklu tapi um margra ára skeið, en starfsemi henn- ar fólst í heildsölu og smásölu. Með Verslunardeildinni fylgdu lagerar og margvíslegur tækjakostur, sem áhöld eru um hvernig nýtist Mikla- garði hf. En Verslunardeildin er ekki eina deildin sem tap varð á í fyrra. Tölu- verður kostnaður varð af yfirtöku KRON fyrir Miklagarð, en fyrirtæk- ið hafið gengist í ábyrgðir fyrir við- skiptakröfur KRON undir það síð- asta — annars hefði KRON ekki fengið neinar vörur frá heildsölum. Þá hefur ekki enn fengist botn í ým- is viðskipti KRON og Miklagarðs, en Mikligarður keypti meðal annars rekstur Kaupstaðcir í Mjódd á verði sem talið er allt of hátt en þar fylgdu eingöngu lagerar, innréttingar og viðskiptavild. Síðast en ekki síst þá mun hafa orðið tap á rekstri Miklagarðs hf. í fyrra, en ekki liggja fyrir staðfestar tölur um hve mikið þáð var. Tala ná- lægt 50 milljónum króna hefur ver- ■ ið nefnd, en þetta er eitt af því sem opinberað verður á aðalfundinum. NÝTT HLUTAFÉ FYRST OG FREMST SKULDBREYTINGAR OG YFIRTAKA SKULDA Mikill dráttur varð á að Samband- ið legði til það hlutafé sem það hafði lofað. í rekstraráætlunum Mikla- garðs hf. var gert ráð fyrir að 400 milljónir yrðu greiddar 1. janúar. Þessir peningar komu ekki fyrr en 28. júní. Bæði Ólafur Fridriksson framkvæmdastjóri og Björn Ingi- marsson, væntanlegur fram- kvæmdastjóri Miklagarðs og núv'er- andi fjármálastjóri Sambandsins, staðfestu að þessi dráttur. yrði til þess að auka tap af rekstri Mikla- garðs á þessu ári. í áætlunum var gert ráð fyrir að tapið yrði 39 millj-1 ónir króna en þær áætlanir eru nú kolfallnar. Stjórnarformaður Sambandsins, Sigurdur Markússon, sagði hins vegar í samtali við PRESSUNA að alls ekki væri hægt að líta svo á að um drátt væri að ræða, því engin formleg ákvörðun hefði legið fyrir um að greiða inn hlutaféð 1. janúar. Hann játaði því þó að Miklagarðs- menn hefðu líklega gert ráð fyrir þessu fyrr. En innborgun hlutafjárins er með þeim hætti að óvíst er hvaða áhrif það hefur á lausafjárstöðu fyrirtæk- isins. Samkvæmt heimildum PRESSUNNAR felst hlutafjáraukn- ing Sambandsins fyrst og fremst í yf- irtöku skulda og skuldbreytingum. Skuldbreytingar eru meðal annars tilkomnar vegna skulda Miklagarðs hf. við Verslunardeildina frá því á síðasta ári. Björn Ingimarsson sagði að með hlutafjáraukningunni væri tryggt að veltufjárhlutfall fyrirtækisins yrði komið yfir 1. í ársskýrslu Sambands- ins frá því í maí var reyndar búið að reikna inn þessa hlutafjáraukningu og kemur þar fram að hlutur Sam- bandsins í Miklagarði er 93%. EKKERT GREITT Á RÉTTUM TÍMA OG HEILDSALAR LOKA Sjálfsagt verða margir til að gleðj- ast ef lausafjárstaða Miklagarðs rýmkast, því eins og heildsali nokk- ur orðaði það þá „falla allir víxlar og skuldabréf og ekkert er greitt fyrr en á síðustu stundu". Þá munu nokkrir heildsalar og framleiðslu- fyrirtæki hafa breytt viðskiptum við Miklagarð í þá veru að afgreiða ekki vörur þangað nema gegn stað- greiðslu. Olafur Friðriksson stað- festi að slíkt tíðkaðist og játaði því að á meðal slíkra fyrirtækja væru Sól hf., Vífilfell og Sláturfélag Suður- lands. Hann tók þó fram að viðskipti við þessa aðila væru takmörkuð og þar að auki nyti fyrirtækið verulegs staðgreiðsluafsláttar. í ár er gert ráð fyrir að velta Mikla- garðs hf. verði 4.825 milljónir króna. í fyrra velti Mikligarður um 2.700 milljónum og Verslunardeild- in 2.159 milljónum, en velta hennar hafði þá dregist saman um rúmlega 23% frá fyrra ári. Virðist því vera gert ráð fyrir að velta KRON tapist í ár. Miklagarðsmenn segjast vera ánægðir með reksturinn það sem af er árinu en samkeppnisaðilar þeirra segjast lítið finna fyrir samkeppni þaðan. SKIPT UM FRAMKVÆMDA- STJÓRA AÐ KRÖFU LANDSBANKANS Um næstu mánaðamót hættir Ól- afur Friðriksson sem framkvæmda- stjóri og fer utan til náms. Hann kom til starfa í nóvember á síðasta ári og því hefur brottför hans vakið at- hygli. Samkvæmt heimildum PRESSUNNAR var það krafa Lands- bankans og Sambandsins að Ólafur hætti. Var leitað til Helga Jóhanns- sonar, forstjóra Samvinnu- ferða-Landsýnar, um að hann tæki við framkvæmdastjórastarfinu, en hann hafnaði boðinu eftir nokkurra daga umhugsun. Talið er að ef Mikligarður eigi að hafa möguleika verði að leggja fyr- irtækinu til meira hlutafé. Einnig er því haldið fram að áfram verði að skera niður, enda séu starfsmanna- fjöldi og húsnæði þrisvar sinnum meiri en eðlilegt sé í kringum veltu fyrirtækisins. Eignir fyrirtækisins eru metnar á 1.665 milljónir króna en skuldir eru 1.358 milljónir — 90% af því skammtímaskuldir. Eignirnar eru þó fyrst og fremst lagerar og innrétt- ingar. Fyrirtækið á engar fasteignir heldur leigir það húsnæði undir verslanir sínar. Leigan hefur verið hagstæð, enda leigt af dótturfyrir- tækjum Sambandsins. Má sem dæmi taka að fyrir Holtagarða greiðir fyrirtækið 2% af sölu, sem telst vera góð leiga. Sigurður Már Jónsson

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.