Pressan - 11.07.1991, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR PRESSAN 11.JÚIÍ1991
23
Konur eru betri en karl-
menn. Þetta vita allir að er
rétt, en er ekki kominn
timi til að horfast í augu
við þessa stadreynd og
játa hana? Hætta öllum
metingi og einfaldiega
sætta sig við það? Þaö þarf
ekkert að benda á neinar
visindalegar sannanir
þessari fuUyrðingu tU
stuðnings. Né heldur fara
að metast um afrek manna
er skráð hafa verið í bæk-
ur. Það vita hvort eð er all-
ir að afrek kvenna hafa
ekki átt greiðan aðgang að
síðum sögubóka. Nei, það
nægir að horfa í kringum
sig, á það sem við augum
blasir dags daglega, til að
sjá að þetta er rétt. Við
skulum bara líta á nokkur
dæmi.
Vanmáttur
karla
rökstuddur með
1 Við erum fallegri. Þið karl-
menn getið alveg reynt að
sannfæra sjálfa ykkur og aðra
um að stæltir vöðvar séu fal-
legir, en prófiði bara að stilla
upp, hlið við hlið, venjulegum
kvenlíkama og venjulegum
karllíkama, og bera þá sam-
an. Utlínur okkar eru einfald-
lega mun yndislegri. Þær eru
mjúkar. Straumlínulagaðar.
Líkamshár okkar eru ekki
eins ... villt. Og satt að segja
þá eru leyndustu líkamspart-
ar okkar mun meira aðlað-
andi. Leyndardómsfyliri.
Áhugaverðari. Og skilja auk
þess eitthvaö eftir handa
ímyndunaraflinu.
Við lítum vel út í buxum
og í pilsi. í alvöru, við gerum
það. Á meðan þið, karlmenn,
æ þið vitið hvernig þið eruð
þegar þið eruð komnir í pils.
Þið eruð meira að segja asna-
legir í skotapilsum, þó þau
eigi að vera virðuleg. Þið er-
uð ekki með réttu hnén fyrir
pils, kálfvöðvarnir skaga
langt út, líkt og þeir væru fót-
leggjunum óviðkomandi, og
svo hafið þið ekki hugmynd
um hvernig þið eigið að sitja.
dæmuni
allir þessir fínu kokkar karl-
kyns, sem standa og veifa í
kringum sig sleifum og senda
frá sér fingurkoss. En ég er að
tala um eldamennsku sem
virkar. Þann þátt sem hefur
með þrautseigju og þolin-
mæði að gera. Þann kraft
sem gerir okkur kleift að
galdra fram máitíð sjö daga
vikunnar, allan ársins hring.
Nema þegar þið eldið á laug-
ardagskvöldum. Þá látið þið
líka eins og það sé eitthvert
afrek. En það erum við sem
þið getið stólað á. Það erum
við sem höldum ykku- á lífi.
vilji að samlokan þeirra sé
rétt skorin.
í þokkabót verðum við svo
að benda ykkur á hvers
vegna þið eigið að senda
mömmu ykkar stóran blóm-
vönd á mæðradaginn, þó svo
hún hafi sagt ykkur að hafa
ekki áhyggjur af þessu. Kort
sé alveg nóg. Þið bregðið
ekki einu sinni svip, þegar þið
segið frá því að móðir ykkar
hafi ekki viljað neitt nema
kort.
Við erum hugulsamar í
garð annarra og gerum fólki
greiða án þess að hugsa nán-
ar út í það. Þið karlmennirnir
mynduð — kannski — gera
það umbeðnir. Kannski. Það
þarf ekki að biðja okkur. Ná-
iði muninum?
4 Við kunnum
að brjóta saman lök.
Þannig að öll horn liggi
saman. Þannig aðhægt
sé að raða þeim snyrti-
lega upp í skáp. Prófiði bar,
að fara úr laxveiðigallanum,
inn í þvottahúsið, og reynið
að leika þetta eftir.
Hundar taka okkur fram
yfir ykkur. Þetta er eitt af
mikilvægustu atriðunum
varðandi eðlislæga yfirburði
okkar. Hundar segja alltaf
sannleikann. Þeir eru eins og
Adam og Eva áður en þau
kynntust syndinni, þeir haga
sér samkvæmt eðlishvöt. Og
þeir kjósa að leggjast hjá okk-
ur, ekki ykkur.
Við höfum betri kjöltu. Til
|að halda á börnum og lesa
'fyrir þau. Til að ieggja tímarit
í hana. Hún er mjúk og tekur
á móti þér eins og útbreiddur
faðmur. Þér líður
ekkieinsog þúsitjir
á hörðu eldhúsborði,
eins og þegar þú situr
í kjöltu karlmanns.
7 Við erum betri vinir
Við skiljumað
það skiptir máli að
halda sambandi við
fólk og gefa sér
tíma fyrir það. Við
hlustum á vini okkar tala um
hluti sem eru þeim ofarlega í
huga, en setjumst ekki í hæfi-
lega fjarlægð, störum upp í
loft og byrjum að fara yfir nýj-
ustu stöðuna í 1. deildinni.
g Við erum fljótari að „ná“
hlutunum. Og ég get lofað
ykkur því að þetta er mikil-
vægt. Þið eruð svo hrikalega
lengi að taka við ykkur, að
óratíma tekur að útskýra fyr-
ir ykkur hluti eins og:
— Hvers vegna
eitthvað er algjör
klikkun og að
þettajsem hann
gerði hafi verið
skelfílegt. (Ó, vá!
segið þið þegar við'
erum búnar að útskýra
þetta fyrir ykkur.
„Þetta er skelfílegt.“)
— Hvað börnin meina með
því, þegar þau ségja að þau
10 Við þolum sársauka bet-
ur. Já, það er ekki hægt að
komast hjá því að minnast á
það. Það erum við sem fæð-
um börnin inn í þennan heim
og hættum á að eignast fleiri
en eitt, og jafnvel fleiri en tvö,
þó svo við þekkjum þann
sársauka sem fylgir fæðingar-
hríðunum. Karlmenn myndu
aldrei hætta sér út í slíkt, eins
og ummæli eins kunningja
míns sanna, sem mælti eftir-
farandi við konuna sína, sem
var að fara að fæða annað
barn þeirra: „Hvernig get-
urðu hugsað þér að ganga i
gegnum þetta aftur? Þetta er
eins og fara viljandi þangað
sem þú veist að þú munt fót-
brjóta þig.“ „Þetta er miklu
verra en að fótbrjóta sig,“
svaraði hún.
Við getum giskað á hve
mikinn hita barnið hefur með
því aðeins að leggja höndina
á enni þess. Okkur skeikar
sjaldan um nema nokkrar
kommur. Þið þykist kannski
geta þetta líka. En stundum
segið þið: „Nei, krakkinn er
alveg hitalaus," þegar hann
er í rauninni með 40 stiga
hita.
Svo leggist þið í rúmið og
kveinkið ykkur, jafnvel þótt
það eina sem að ykkur amar
sé venjulegt nefkvef.
f
12 Við höfum fallega rit-
hönd. Eg meina, hvar voruð
þið eiginlega í skriftartímun-
um? Sofandi? Eða þjáist þið
aðeins af vægum vélartrufl-
unum?
13 Við borðum ekki fituna
utan af kjötinu. í alvöru, j»ð
er ógeðslegt. Við skárum líka
fituna af áður en við vissum
hvað hún er rosalega, rosa-
lega óholl fyrir okkur. En þið,
strákar, átuð hana. Oj bara.
Við svörum skilaboðum
samviskusamlega. Við segj-
um ekki nærri því eins oft og
þið. „Æ, jaaá. — Þetta datt
bara alveg úr mér.“
Við erum betri kokkar.
Þið hagið ykkur svo sem eins
og þið vitið hvað þið eruð að
gera í eldhúsinu. Og svo eru
Hvers
vegna
eru konur svona
miklu betri en karlar?
15 Við elskum ykkur. Þrátt
fyrir ykkar augljósa vanmátt
þykir okkur reglulega vænt
um ykkur. Okkur finnst þið
reglulega sætir þegar þið er-
uð nýkomnir úr klippingu og
eyrun gægjast undan hárinu.
Við kunnum að meta það að
hafa ykkur nálægt þegar við
vöknum upp við hávaða um
miðja nótt. Við elskum bassa-
hljóminn í rödd ykkar. Og
skyrturnar ykkar. Við kunn-
um líka afskaplega vel að
meta það hvað þið eruð fljótir
að ljúka ykkur af inni á bað-
inu, svo við getum hangið
þeim mun lengur þar inni.
Við kunnum vel að meta
styrk faðmlög þegar við er-
um kysstar. Svei mér þá, við
gætum ekki án ykkar verið.
Samt erum við betri en þið.
Svo hvað um þetta? Þið borg-
ið? Við kunnum líka alveg
sérlega vel að meta þetta hjá
ykkur.
Margrét Elisabet Ólafsdóttir
þýddi og staðfærði