Pressan - 11.07.1991, Síða 24

Pressan - 11.07.1991, Síða 24
24 FIMMTUDAGUR PRESSAN 11. JÚLÍ 1991 „Ég er enginn heitapottsspekingur" segir Konráð Friðfinnsson og lætur Troggs á fóninn. ÞJÓÐMÁ LASPEKING UR Á GRETTISGÖTUNNI 'Jííjjnr tðlcnðhnf Jjjóðgöguv Það bar til fyrir einum þremur áratugum að nýr blaðamaður var að hefja störf á Tímanum. Eins og oft er með nýliða á dag- blöðum var ungi maðurinn settur í að þýða teikni- myndasögur, meðal annars sjálfan Skugga sem var um árabil helsta stolt TTmans. Nú er þess að geta að ungi maðurinn hafði talsverðan áhuga á leikritum og átti síðar eftir að hasla sér völl á þeim vettvangi. Það er skemmst frá því að segja að honum fannst ýmislegt athugavert við tilsvör Skugga og félaga en eink- um fannst honum kynlegt að ein persónan svaraði aldrei fyrir sig þótt á hana vaeri yrt. Þessi fígúra gekk undir því virðulega nafni Sir James og unga manninum fannst ótækt að Sir James legði aldrei neitt til mál- anna meðan Skuggi lét móðan mása. Þess vegna ákvað blaðamaðurinn að leggja Sir James orð í munn frekar en láta hann þegja þunnu hljóði. Þannig varð Sir James á fáum dög- um ein málglaðasta teikni- myndafígúra sem sögur fara af og tilsvör Skugga féllu alveg í skuggann. Al- veg þangað til einhver les- andi Tímans missti þolin- mæðina, hringdi æstur á ritstjórnarskrifstofurnar og benti unga blaðamannin- um á eitt mikilvægt atriði sem honum hafði sést yfir: Sir James var hundur. (Úr blaöamannasögum) Sagan á það til að endur- taka sig, fyrst sem harm- leikur og síðan sem skop- leikur. Um það leyti sem ungi blaðamaðurinn lét hundinn Sir James fjasa á síðum Tmans fæddist hon- um sonur (blaðamannin- um, ekki hundinum). Sonur hans óx úr grasi og hóf kornungur störf við blaða- mennsku eins og faðir hans og var vitanlega settur í að þýða teiknimyndasögur. Þetta var á Vísi sem skart- aði meðal annars sjálfum Tarzan apakóngi. Það virð- ist loða við þessa ætt að sætta sig ekki fyllilega við sköpunarverk annarra eins og sannaðist nú aftur. Um þetta leyti stóð Tarzan í ströngu við að berja á glæpaflokki sem fór með ránum og gripdeildum um frumskóginn. Ungi blaða- maðurinn tók sig til og gaf bófunum ný nöfn og skírði þá eftir heimsfrægum sov- éskum skákmeisturum. Þannig varð reginskúrkur- inn Karpov helsti óvinur Tarzans og hafði sér til full- tingis gaura eins og Belyav- sky og Balasjov. Þá fannst blaðamanninum helstil leiðigjarnt hversu auðveld- lega Tarzan fór jafnan með sigur af hólmi, og þess vegna máttu hjartahreinir lesendur Tarzans sætta sig við athugasemdir eins og: „Og hversu frumlegt sem það nú var sigraði apamað- urinn enn einu sinni." Það er skemmst frá því að segja að kvörtunum rigndi yfir ritstjóra Vísis frá lesendum sem höfðu miklaráhyggjur af sálarheill Tarzans. Rit- stjórar blaðsins sáu sitt óvænna og brugðu að lok- um á það ráð sem yfirleitt reynist vel þegar hantera þarf vandræðagemsa: Ungi blaðamaðurinn var umsvifalaust hækkaður í tign. (Úr blaöamannasögum) ,,Eg gel í sjálfu sér ekki suarad því hvad fœr manri til ad tjá sig um þjódmálin. Þetta eru mest hugdettur sem madur fœr. Ég er ekki alla daga ad hugsa um þetta en það kemur kannski allt í einu eitthvad sem mann langar til ad skrifa um og þá drífur madur bara í því,“ sagdi Kon- ráð Friöfinnsson þjóðmála- spekingur, en Konráð er einn þeirra sem skeiða reglulega fram á ritvöllinn — bœði á lesendasíðum DV ogMorgun- blaðsins. Einnig lætur hann í Pétur frændi minn útskrif- aðist með stúdentsprófi frá einhverjum fjölbrautaskól- anum í vor. Foreldrar hans héldu heldur leiðinlega veislu til að fagna þessum at- burði með þurrum snittum og bragðlausum osti. Með þessu var drukkið freyðivín eða hálfvolgt sinalkó. Ný- stúdentinn var daufur í boð- inu enda skemmt sér ærlega með félögum sínum kvöldið áður. Augun voru blóð- hlaupin og kominn var tóm- atsósublettur á nýju stúd- entsfötin og grasgræna í húf- una. Hvað ætlar hann að fara að læra? spurði ég pabba hans þar sem hann stóð og horfði stoltur á son- inn drekka skjálfandi 5ta freyðivínsglasið. Hann ætlar að verða læknir, það er svo gott að hafa lækni í ættinni. Eða er það ekki? SAMBAND VIÐ NÁNUSTU ÆTTINGJANA Samband við nánustu ætt- ingja mótast því miður af miklum tímaskorti. Læknir- inn er upptekinn af vöktum á spítalanum og á stofunni og hittir því maka sinn og börn sjaldan. Auk þess þurfa læknar að sinna ýmsum sér heyra í Þjóðarsálinni. Það er líklega réttnefni að kalla menn sem Konráð þjóðmála- spekinga. Konráð segist hafa haft skoðanir á ólíklegustu hlut- um allt frá unga aldri. Fyrir fimm til sex árum hóf hann að skrifa í blöðin og hefur haldið því áfram. Hann þver- tekur þó fyrir að vera einn af „heitapottsspekingum" landsins. „Eg fæ skoðanir mínar að litlu leyti frá öðrum — ég er V" 4 ÓTTAR GUDMUNDSSON áhugamálum sem tilheyra starfinu eins og laxveiðum, hestamennsku, skytteríi, fé- lagsmálastússi, hundarækt og jeppaferðum, sem auka enn á tímaskortinn. Læknir- inn þarf að stunda ráðstefn- ur og þing og vera í alls kon- ar aukastörfum sem hlaða utan á sig í sífellu. Flestir læknar reyna þó að vera heima á tyllidögum fjöl- skyldunnar eins og við skírn og fermingu barna sinna og önnur hver jól og stórafmæli maka síns 5ta hvert ár. Ást- ríkir læknar sjá til þess að þeir eru ekki á vakt daginn sem þeir gifta sig en þó hefur það komið fyrir að píptæki heyrðist væla úr vasa brúð- guma i miðri athöfn. Hann bað prestinn og söfnuðinn að bíða augnablik og skrapp í símann, talaði við einhvern sjúklinginn, símsendi lyfseð- il í apótek og hringdi síðan á deildina og spurðist fyrir um mikið einn og hugsa þá mitt. Þá les ég mikið og fylgist vel með og reyni þannig að fá skoðanir á sem flestu." Konráð er titlaður sjómað- ur í símaskránni en segist reyndar ekki hafa komið á sjó síðan 1986. Hann segist hafa sinnt hinu og þessu síðan, en orðið „landbúnaðarverka- maður" túlki kannski best starfssviðið. Hann segist vinna í törnum og auglýsi þá gjarnan eftir starfi. Þess á milli veltir hann fyrir sér þjóðmálaumræðunni í risher- líðan nokkurra sjúklinga. Að þessu búnu kom hann aftur inn í athöfnina eins og ekk- ert hefði í skorist. Þessi hjón eru að skilja núna en konan nær honum ekki með sér til prests eða fógeta þar sem hann er svo upptekinn á vöktum. VEIKINDI í FJÖLSKYLDUNNI Þegar læknirinn sjálfur eða einhver úr fjölskyldunni verður veikur bregðast flest- ir læknar þannig við, „ad þetta lagist af sjálfu sér“. Allir læknar trúa á eigin ódauðleika og eru því yfir- leitt kærulausir um eigin heilsu. Þeim finnst ótrúlegt að þeir geti veikst af venju- legum sjúkdómum eins og hálsbólgu og bakverkjum. Sama máli gegnir um nán- ustu ættingja. Fjölskyldan á að vera heilbrigðið holdi klætt og allar kvartanir um veikindi eru því afgreiddar sem nöldur og uppgerð. Þess vegna er læknabörnunum yfirleitt ekki ansað, þegar þau kvarta um einhverja sjúkdóma. „Þetta lagast," er svarið sem þau fá, hvort sem um er að ræða kláða, bergi sínu á Grettisgötunni. Hann segist reyndar vinna í svipuðum törnum þegar hann fer í gegnum þjóðmála- umræðuna og ræðst gjarnan á afmarkaða málaflokka. Trúmálin eru efst á baugi hjá honum núna og biblían þá gjarnan höfð við höndina — helst við hlið kaffibrúsans. „Ég nenni ekki að rífast um þjóðmálin, það borgar sig ekki að eltast við svoleiðis," segir Konráð og aftekur að hann haf i lent í ritdeilu — seg- eyrnaverki, lungnabólgu eða beinbrot. Læknabörnin fá því yfirleitt verri læknis- þjónustu en önnur börn þar sem foreldrið trúir því alls ekki að barnið geti orðið veikt. Læknar vita mætavel að fjölskyldan má ekki og á aldrei að veikjast, enda er það órækt vantraust á lækn- inn og hæfni hans. Sumir læknar bregðast þó öðruvísi við og verða óðir og upp- vægir í hvert skipti sem ein- hver fjölskyldumeðlimur kvartar um sjúkdóma eða einkenni. Þá er rokið til og hringt í alla mögulega kol- lega út um allan heim og þeir spurðir álits. Síðan er fjölskyldumeðlimurinn sendur í alls konar rann- sóknir; blóðprufur, ómskoð- un, röntgenmyndir, öndun- arpróf, áreynslupróf, heila- sneiðmyndir, mergástungur, mænustungu og kviðspegl- un. Sá veiki í fjölskyldunni lætur sér batna fljótlega og lærir að minnast ekki á veik- indi við lækninn foreldri sitt framar. FÁIÐ YKKUR HEIMILISLÆKNI! Samband læknisins við ist ekki hafa minnsta áhuga á því. Hann játar þó að hann sé pólitískur. „Ég hef aðhyllst vinstristefnu. Engar öfgar heldur bara góða vinstri- stefnu." En þjóðmálaumræðan yfir höfuð fær ekki alltof háa ein- kunn hjá Konráð. „Hún er nú stundum á lágu plani — menn eru svo mikið að tala um það sama. Það er eins og allir stoppi í efnahagsmálun- um og reyni ekkert til að koma með ferska strauma." ættingja mótast af áhuga hans til að sinna þeim eitt- hvað. Læknirinn getur alltaf borið því við að hann sé á vaktinni og þannig skotið sér undan hefðbundnum ættartengslum og sleppt því alveg að mæta í fermingar- veislur, ættarmót, afmæli eða erfidrykkjur. Hann sendir þá makann á vett- vang sem segir viðstöddum með miklum raunasvip frá því hversu mikið læknirinn verði að vinna (fyrir lítil laun). Yfirleitt er skynsam- legast fyrir læknafjölskyldur að eiga sér góðan heimilis- lækni svo að læknirinn sjálf- ur sé ekki að meðhöndla fjölskyldu sína. Aðrir ætt- ingjar geta stöku sinnum haft gagn af lækninum og látið hann skrifa upp á lyf í gegnum síma eða beðið hann að ýta á eftir innlagn- ingarbeiðni á spítala eða elli- heimili. Flestir sjúklingar ættu þó að halda sig frá nán- um ættingjum sínum úr læknastétt. Frændsemi og vinátta villa lækni sýn og sjúklingurinn fær því ekki þá þjónustu sem hann á að fá heldur eitthvað alit annað. SJÚKDÓMAR 06 FÓLK Læknirinn og ættingjar hans

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.