Pressan - 11.07.1991, Síða 27

Pressan - 11.07.1991, Síða 27
27 FIMMTUDAGUR PRESSAN 11.JÚLÍ1991 ... fá Sniglarnir. Það er æðislegt að sitja í hit- anum og sjá þá bruna framhjá svartkiædda og friðlausa. Brru- ummm. ÁÐUR ÚTI NÚNA INNI Klæðist því sem þið viljið og í guðanna bænum pæiið ekki of mikið í því. Skyndi- lega hafa menn nefnilega átt- að sig á því að fðt hafa eng- an tilgang eða merkingu. Það var allt saman tilbúning- ur blaðamanna sem reyndu að selja blöðin sín með því að lesa aðra eins dellu og afturhvarf til sjöunda áratug- arins út úr sniði tískukóng- anna í París og London. Hugsið ykkur. Og gervöil heimsbyggðin trúði þessu og reyndi af veikum mætti að fá áhuga á þessu leiðinlegasta tímabili allra timabiia. Allt vegna þess að einhver jap- anskættaður tískuhönnuður reyndi að vekja athygli í her- sýningu tískunnar. Gleymið því öllu sem þið hafið heyrt og lesið og klæðist því sem þið viljið. ÁÐUR INNI NÚIMA ÚTI Tilrauninni „Nýi maðurinn" er Iokið og dæmd mislukkuð. Þar með falla af stalli hetjur á borð við Sting, Peter Gabriel, Phil CoIIins, Mick Jagger, Bob Geldof og að sjálfsögðu Val- geir okkar Guðjónsson. Og þeir sem taka við eru Rod Ste- wartar allra landa og þar með Rúnar okkar Júlíusson. Þetta eru niðurstöður breskra tíö- arandafræðinga. Mjúki nýi maðurinn er búinn að vera og kominn nýr maður fram á sjónarsviðið, eða öllu heldur nýr strákur, með gamalkunn strákaáhugamál; fótbolta, brennivín, stelpur og rokk og ról. 0 Í4 25 36 4Ö* POPPIÐ Danska blúsbandið Peter Quer- ling Blues Connection heldur tónleika á Nillabar í Firðinum í kvöld í tengslum við Listahátíð Hafnarfjarðar. Þetta þrumugóða blúsband er skipað þremur Dön- um og einum Islendingi, honum Ólafi Sigurðssyni. Sem er ekkLsá sami og fréttamaðurinn á Sjón- varpinu. Porthátíð Útideildar Reykjavíkur verður haldin í kvöld í portinu við Tryggvagötu 12. Þótt ótrú- legt megi virðast varð að fresta hátíðinni vegna veðurs í síðustu viku, en ekkert virðist þó ætla að hamla því að hægt verði að halda hana í kvöld. Á tónleikun- um, því þetta eru tónleikar, koma fram helstu bílskúrsbönd bæjarins: Leprous, Cazbol, Morbid Silence, Insectary, Gor, Strigaskór nr. 42, Putrid, Sjálfsfróun/Scums of Society, In memoriam (Mortuary) og Sororicide. Það þarf ekki að taka fram að tónlistin verður í þyngri kantinum; dauðarokk, þungarokk og ruslrokk. Við mælum hikstalaust með þessari hátíð fyrir alla unglinga bæjar- ins. Stuðið byrjar klukkan sex og stendur fram á kvöld. (Athugið að mæta snemma. Portið er lítið.) Þetta er víst skammtur okkar borgarbúa hvað tónlist af léttara taginu varðar þessa helgina. Hörðustu menn í bransanum þeysa í kringum landið í sumar, svo sem Sálin, Síðan skein sól, GCD og Stjómin, og leyfa lands- byggðinni að njóta góðs af. Skemmtanaljónum gefst kostur á að vinna sér inn utanlandsferð á Hótel Borg á föstudagskvöldið þegar stofnaður verður nýr ferðaklúbbur. Ennþá vantar nafn á klúbbinn og eru verðlaunin vegleg reisa fyrir tvo. Tilvalið að skella sér á Borgina og lífga upp á ímyndunaraflið með einum tvöföldum (eða sóda) og komast úr sólinni. Allir þangað. Eða hingað: Vinir Dóra eru ný- komnir úr mikilli sigurferð um <9 Chicago þar sem þeir spiluðu á hinni árlegu blúshátíð. Hljóm- sveitin verður með útgáfutón- leika á Púlsinum föstudag og laugardag vegna breiðskífurinar Blue lce. Blái ísinn hlýtur að vera besti ísinn í bænum. Vinir Dóra verða líka á Tveimur vinum á fimmtudaginn. Og nú er Rauða myllan að hasla sér völl í lifandi tónlist umfram klæðskiptingasönginn. Á fimmtudagskvöldið leikur hljómsveitin Orgill í Myllunni. Orgill? Jú, leggið við hlustir. Or- gill á til dæmis eitt lag á nýút- kominni safnplötu Skifunnar. Vinir Dóra í heitum blús á B.L.U.E.S. ELECTRA, þeirri mætu blús- krá í Chicago, en það er kunnara en frá þurfi að segja að þeir vinir eru að verða heimsfrægir — að minnsta kosti í blúsheiminum. Á myndinni eru Halldór Bragason á Fender, Guðmundur Pétursson á einhverju allt öðru en Fender og Johnny Skinner á hörpu. |4T r 7— r~ r- f P P L ■ 32 - ■ ■ ■ 43 : 47 : :: ■ t KROSSGATAN LÁRÉTT: 1 blóðtökuverkfæri 6 hrottar 11 kvenmannsnafn 12 unn- usta 13 skemmum 15 málsháttur 17 bið 18 hljóðfæri 20 vætla 21 ríki 23 kveikur 24 lögun 25 dáð 27 Dani 28 lykkjur 29 búts 32 aðdróttun 36 gjálpi 37 eira 39 lengdarmál 42 arinn 41 forms 43 deila 44 rolan 46 ofstopamenn 48 vesali 49 vindbára 50 drápið 51 bölvar. LÓÐRÉTT: 1 villidýr 2 skári 3 hangs 4 ánægja 5 sterkir 6 hlaupalag 7 flasa 8 ummæli 9 tungumál 10 slæpti 14 karfa 16 fædd 19 hænsn- fugl 22 hnokkatré 24 rjóða 26 dyngja 27 misþyrming 29 hraukum 30 kæpu 31 ásakanir 33 duglegan 34 etja 35 hrellir 37 starfað 38 atlaga 41 lappi 42 vökva 45 sköp 47 ótta. STÓÐ 2 Hnefaleikakappinn Raging Bull á föstudagskvöldið klukkan hálfeitt eftir miðnætti. Þetta er ein af örfáum myndum sem allir verða að sjá. Stærsti leiksigur Ro- berts DeNiro og þar með eitt mesta leikafrek allra tíma. Og svo mælum við með undarlegri sálarflækjumynd, Togstreitu Blood Relations, sem verður á dagskrá (ef Guð lofar) á laugar- dagskvöldið. VINSÆLUSTU MYNDBÖNDIN 1. My Blue Heaven 2. Quick Change 3. Henry and June 4. Kill Me Again 5. Dark Side of the Moon 6. Back Stamb 7. Nikita 8. Flatliners 9. Men at Work 10. No Better Blues SJÓNVARPIÐ Við hljótum- að mæla með Is- iensku knattspyrnunni sem er á dagskrá á laugardaginn kl. 16. Ef það er eitthvað sem íþrótta- fréttamennirnir okkar kunna alls ekki þá er það að stjórna um- ræðum. Þeir eiga bara að sýna fótbolta og það gera þeir von- andi sem mest núna. VEITINGAHUSIN________ Auðvitað er ekkert nema gott eitt að segja um Perl- una. En hvernig á maður að vera klæddur á þessu geðveika sumri? í stutt- buxum og netabol? Ekki getur maður klætt sig upp í smóking eða síðan kjól og setið í glampandi sól- skini. Þá skiptir engu hvort hlýtt er eða svalt. Kvöldklæðnaður virkar einfaldlega ekki ■ sól- skini. Og svo er eitt: Má maður borða með sólgler- augu? Best er líklega að bíða með þaö þar til í haust eða vetur að' fara í Perluna. Þá verða þeir kannski búnir að ákveða hvað á að vera í matinn og búnir að taka allan mat- seðilinn í gagnið. Mest selda viskilð 1. Ballantine's 2. Ballantine's, 12 ára 3. Jameson 4. Chivas Regal, 12 ára 5. Jim Beam 6. Red Label 7. White Horse 8. Grant's Stand Fast 9. Bell's Extra Special 10. Haig's Dimple, 12 ára KLASSIKIN Við hljótum að mæla eindregið með Sumartónleikum á Norð- austurlandi sem haldnir eru á þremur stöðum frá föstudegi til sunnudags: i Akureyrarkirkju, Húsavíkurkirkju og Reykjahlíð- arkirkju. Það er Barokkhópur Akureyrarkirkju sem gælir við hlustir áheyrenda: Margrét Bó- asdóttir sópran, Björn Steinar Sólbergsson orgel, Lilja Hjaltadóttir fiðla, Sigríöur Hrafnkelsdóttir fiðla og Ri- chard Korn bassi. P' 75Á an BONNIE RAITT — LUCK OF THE DRAW Bonnie hefur verið að gera góðar blús-popp- rokk-plötur i 20 ár. í fyrra fékk hún einar fjórar Grammy-viðurkenningar fyrir siðustu plötu, sem var hennar fyrsta hjá nýju útgáfufyrirtæki. Luck of the Draw er þónokkru betri en hún. Gefum henni 7 af 10. Og það eru fleiri sumartónleikar. í Skálholtskirkju á laugardag og sunnudag, kl. 15. Þar flytur Kol- beinn Bjarnason flautuleikari verk eftir Karóiínu Eiríksdótt- ur. Á mánudag halda þær Halifríð- ur Ólafsdóttir flautuleikari og Atalia Weiss pianóleikari tón- leika í Selfosskirkju, kl. 20.30., og flytja m.a. verk eftir Bach og Schubert. Þær stöllur verða aftur á ferðinni í Norræna húsinu á miðvikudagskvöldið kl. 20.30. Svo eru vitaskuld tónleikar í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar á þriðjudaginn. Að þessu sinni Hildigunnur Halidórsdóttir ásamt píanóleikara. MYNDUSTIN Hvernig væri að drífa sig í Nor- ræna húsið að sjá sýningu Þor- valdar Skúlasonar? Og af því kaffistofa Norræna hússins er svo svæfandi er ráðlegt að vinda sér beint upp í Perluna og skoða stórmeistarasýninguna. HÚSRÁÐ Konunni minni er meinilla við að ég fari á vðllinn með strákunum. í hvert sinn sem ég vil fara á vðllinn býr hún til einhverja furðulega ástæðu fyrir því að ég þurfi að vera heima einmitt þetta ákveðna kvðld. Hvað á ég að gera til að komast á völlinn án þess að hætta hjónabandinu? Þú mátt aldrei láta líta út fyrir að þú hafir nokkurn áhuga á fótbolta. f hvert sinn sem leikur er framundan skaltu byrja að tala um að þú ætlir að gera eitthvað ákveðið kvöldið sem leikur- inn er, eitthvað sem konan þín veit að þú hefur gaman af. Síðan skaltu biðja ein- hvern kunningja þinna að hringja í þig rétt fyrir leik og spjalla lengi við hann í síma. Eftir símtalið skaltu segja konunni þinni að þessi kunningi þinn standi í skiln- aði og sé afskaplega langt niðri. Þó þér sé það þvert um geð verðirðu að fara á völlinn með honum til að hressa hann við. Ef konan sér í gegnum þetta skaltu gera þér upp alkóhólisma og fara á Vog. Þegar þú ætlar á vöilinn skaltu síðan segja konunni að þú sért að fara á AA-fund. VIÐ MÆLUM MEÐ Að fólk láti hjónabðnd sín snúast um ást og fleira i þeim dúr en ekki heimilisrekstur, súp- ermarkaðsferðir og glugga- umslög o Að fólk fyrirgefi óvinum sínum en gleymi ekki hvað þeir heita, einaog JFK benti á Að fólk átti sig á að það er ekki til mikið af mjög góðu fólki í heiminum og hætti þar af ieiðandi að líta á sjálft sig sem vont og stundum illa innrætt Að fólk fari að ráðum Páls postula og reyni allt en haldi því sem gott er I tilefni þess að Steingrímur ■Hermannsson m.v.tív.v?® hefur tilnefnt sjálfan sig einn besta hag- fræðing þjóðarinnar rifjum við upp ummæli George Bernards Shaw: Þó allir hag- fræðingar heimsins yrðu lagðir niður og látnir mynda beina línu kæmust þeir aidrei að niðurstöðu. •srjf. Loksins, loksins, loksins. The Beach Boys eru að setja á markað sína eigin sólarolíu. BÍÓIN HRÓI HÖTTUR Robin Hood REGNBOGANUM Jújú, allt er þetta mikið ævintýr og jújú, víst er Kevin Costner sætur. Ekkert nýtt umfram það sem sást í fyrstu Indiana Jones-myndinni. UNGI NJÓSNARINN Teen Agent BÍÓHÖLLINNI & BÍÓBORGINNI Það er erfitt að skilja hvers vegna nokkrum detíur í hug að búa til grínútgáfu af James Bond-myndunum, sem eru fyrir löngu orönar grínútgáfur af James Bond-myndunum.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.