Pressan - 29.08.1991, Page 4
4
FIMMTUDAGUR PRESSAN 29. ÁGÚST 1991
DRAUMA
PRESSAN bað Rósu
Ingólfsdóttur að vera
gestgjafa í ímynduðu
kvöldverðarboði. Gest-
irnir máttu vera af öllum
stærðum og gerðum, lífs
eða liðnir. Eina skilyrðið
var að þeir væru Rósu að
skapi og hún segði les-
endum hversvegna hún
hefði valið þá. Rósa vildi
að veislan yrði haldin í
ljósakiptunum í gamla
skíðaskálanum og hon-
um ætti að planta niður
efst á Höfðabakka, þar
sem útsýnið er æðislegt:
Jónas Kristjánsson
faðir náttúrulækninga-
stefnunnar. Hann ætti að
elda matinn og reifa
ástandið á Náttúrulækn-
ingaheimilinu.
Agnar Kofoed Hansen
og
Alfreð Elíasson
Þessar Loftleiðakempur,
hugsjónamenn og mann-
vinir sem stóðu fyrir utan
allt klíkuvesen ættu að
ræða ástandið i flugmál-
um núna.
Guðlaugur Rósinkrans
til að ræða ástandið i
Þjóðleikhúsinu.
Peter Sellers
Hann ætti að vera með
endalausa ristilbrandara,
Jónasi til heiðurs.
Lára Ragnarsdóttir
prakkari og frænka min.
Hún ætti að sjá um fífla-
lætin með Peter Sellers.
Krútsjeff
Hann ætti að lemja skón-
um í borðið og ræða
ástandið í Sovét á krass-
andi hátt.
Walt Disney
Þessi mesti listamaður 20.
aldarinnar ætti að segja
mér af vist sinni í frysti-
kistunni.
Hér
,sko
AIVÖRU
stúdíó
Er það gamalt eða nýtt eða
kannski hvort tveggja í senn?
Á föstudaginn opnaði
kvikmyndafélagið Nýja bíó í
nýjum húsakynnum í
Skipholti 31. Húsnæðið er
reyndar ekki nýtt nema fyrir
þá Nýjabíósmenn. Það var
sérstaklega teiknað fyrir
starfsemi af þessu tagi, en
Gisli Gestsson kvikmynda-
gerðarmaður lét á sínum tíma
byggja húsið. Hljóðsetningar-
stúdíóið Kot, sem allir kvik-
myndagerðarmenn á landinu
er
form en blúsinn,"
segir hún um muninn á þessu
tvennu. En Andrea lætur
ekki staðar numið við djass
og blús, enda kannski eins
gott, þegar á að lifa af söngn-
um. Hún er auðvitað áfram í
Todmobile með Eyþóri og
Þorvaldi. Þau ætla í hljóm-
leikaferð um landið í haust.
„Fólk úti á landi þekkir okkur
ekki nema úr sjónvarpinu,
því við höfum ekkert spilað
þar," segir Andrea. Nú verður
sumsé breyting þar á.
Gælunnar freistað í NY
Andrea Gylfadóttir
hefur slegið í gegn
sem blússöng-
kona í sumar.
Það má heyra
tónleikagesti
taka andköf
þegar tónninn
hjá Andreu
titrar af
tilfinningu í trega-
fyllstu lögunum. „Tjáningar-
formið í biúsnum er nokkuð
frjálst og það þarf ekki að
vera grátkona eins og ég til
að syngja hann,“ segir hún.
„Annars er líka glens og grín
inn á milli. Blúsinn er ekki
eintómur tregi." Andrea
syngur blús á Púlsinum með
Blúsmönnum Andreu um
helgina, en á sunnudags-
kvöldið ætlar hún að syngja
djass á sama stað. í djasssveit-
inni verða með henni Kjartan
Valdimarsson, Matthías Hem-
stock, Þórður Högnason og
Sigurður Flosason. „Djassinn
Hljómsveitin Deep Jimi and
the Zep Creams, sem hefur ver-
ið að gera það gott á öldurhús-
um óorgarinnar í sumar, heldur
síðustu tónleika sína um þessa
helgi. I næstu viku er förinni
heitið til New York þar sem
sveitarmeðlimir ætla að dvelja
næstu fjóra mánuðina. Eins og
nafn hljómsveitarinnar gefur til
kynna leika þeir félagarnir ein-
göngu tónlist Deep Purple,
Jimi Hendrix, Led Zeppelin og
Cream. Að sögn Júlíusar Guð-
mundssonar trommuleikara
ætlar hljómsveitin að reyna fyr-
ir sér í New York með eigin tón-
list.
Júlíus segir að ferðin hafi verið
í bigerð í þrjú ár, en þeir séu þó
ekki búnir að koma sér upp
neinum samböndum ytra, ætli
að láta kylfu ráða kasti. Undir-
búningur hefur aðallega miðast
viðæfingar, en þeireru búnirað
æfa alla daga og öll kvöld í allt
sumar. „Það gerist áreiðanlega
eitthvað i New York, þó svo það
verði ekki í sambandi við tón-
listina," sagði Júlíus og hafði
ekki miklar áhyggjur af því.
Jóhanna Gunnarsdóttir er
fædd 30. október 1971.
Hún er nýflutt heim frá
Ítalíu og vinnur núna í
versluninni 17 í Kringl-
unni. Jóhanna er á föstu.
Áttu kött? Já.
Hlustarðu á Megas? Nei.
Hvað borðar þú í morgun-
mat? Ekkert.
Kanntu að elda? Nei, ég
sé sko ekki um það.
Hefurðu farið á tónieika
með GCD? Ég hef ekki
hugmynd um hvaö það er.
Gengurðu með sólgler-
augu? Já. Til að vera gella þegar það er sól.
Læturðu iita á þér hárið? Nei, ég er Ijóshærð og þarf þess
ekki.
Ertu búin að sjá Hróa hött? Nei.
Kanntu dönsku? Svona...
Áttu fjallahjól? Nei.
Ertu í Ijósum? Já.
En ferðu í sólbað í sundlaugunum? Nei, ég hef ekki haft
færi á því síðan ég kom heim.
Kitlar þig? Já, hræðilega.
Hvernig strákar eru mest kynæsandi? Eins og Fabio. Mjög
grannir og stæltir.
Hugsarðu mikið um það í hverju þú ert? Já, hræðilega
mikið. Sef ekki á næturnar stundum.
Gætirðu hugsað þér að reykja hass? Neei.
Áttu mótorhjól? Nei.
En bíl? Nei, ég á ekki neitt.
Við hvaö ertu hræddust? Drauga.
Syngur þú í baði? Nei, ég er alltaf svo stutt í baöi að ég hef
ekki tíma til þess.
Hefurðu farið á sveitaball? Ójá. Þegar ég var uppi í sveit, 14
ára.
Er Bubbi Morthens sætur? Nei. Því miður er hann það ekki.
Ertu daðrari? Nei.
Hvernig finnst þér Woody
Allen? Hann er yndislegur.
Ferðu ein í bíó? Nei.
Finnst þér soðin ýsa góð?
Já, með kartöflum.
Fyrsti gír
ishrdingub
og ævintýri hans
í Reykjavík
Sérhvert mannsbarn man
hvernig gamla Volgan leit
út. Hún var eins og akandi
rúnnstykki. Hugsiði ykkur
Reimar um borð í fyrsta öku-
tímanum hjá Hreiðólfi að
kana á hundrað eftir Lækjar-
götunni. Hreiðólfur hafði
slitið ökukennarabremsuna
úr sambandi. Eiki beljaði
eins og stórgripur, svo
hræddur var hann. Reimar
hins vegar, sjálfum sér líkur,
steig bensínið í botn.
Slatti af fólki var að gefa
öndunum þennan dag. —
Stígðu á bremsuna drengur,
æpti Hreiðólfur, — eða við
erum skildir að skiptum.
— Hvar er bremsan?
spurði Reimar. — Þessi
lengst til vinstri?
— Nei, þaö er pedallinn í
miðjunni, kallaði ég.
— Reyndu að minnsta
kosti að beygja, Kútur minn,
sagöi Eiki.
— Veriði ekki að skipta
ykkur af þessu, sagði Reim-
ar. — Hver er að keyra, ég
eöa þið? Honum datt ekki í
hug að beygja þegar hann
fékk um það fyrirmæli. Þá
vildi hann miklu fremur aka
beint út í tjörnina og það var
einmitt það sem hann gerði.
Einn, tveir og þrír og Volgan
stakk sér beint út í tjörn.
Tveir svanir lögðu buslandi á
flótta með vængi á lofti. Svo
flaut Volgan á tjörninni eins
og franskbrauð með okkur
fjóra innanborðs. Reimar sat
undir stýri og leit svo í bak-
sýnisspegilinn og sagði við
mig: — Nasi, ekki orð. Ef þú
svo mikið sem geispar þá
færðu aldrei að vera meö
mér framar.
Ég hafði vit á aö halda mér
saman. — Það var lán í óláni
að ég var á Volgunni, sagði
Hreiðólfur. — Hugsiöi ykkur
ef þetta heföi verið Impalan
mín.
— Er ekki best að stíma í
land? spurði Strandamaður-
inn. — Að minnsta kosti
reyna að koma út akkerinu?
Þeir stigu út úr Volgunni
sitt hvorum megin, gömlu
skipsfélagarnir, og ýttu
henni í land. Það flaut ekki
einu sinni inn í bílinn, enda
var hann hannaður til að
þola rússneskar aðstæður.
— Enginn blaðaljósmynd-
ari á bakkanum, sagði Reim-
ar. — Lánið leikur ekki við
mig.
Hálftröllin Eiríkur og
Hreiöólfur hófu stafninn á
Volgunni úr tjörninni, þeir
voru svo hraustir að þeir
báðu mig ekki einu sinni að
stíga út. Þeir renndu bílnum
inn á götu. Forvitið fólk var
aö fylgjast með. — Á hvað
eruð þið aö glápa? spurði
Reimar út um opinn glugg-
ann. — Sjerap, sjerap. Hald-
iði áfram að blæða brauði á
bra bra.
— Jæja, vinurinn, sagði
Hreiðólfur og studdi sig við
dyrnar hjá Reimari. — Hvað
ertu að hugsa um að gera
næst?
— Ja, nú veit ég ekki,
sagði Reimar.
— Viltu ekki reyna aö setja
í fyrsta gír og starta?
— Ha, sagði Reimar. —
Gerði ég það ekki áðan?
— Nú heldurðu að það eigi
að gerast einu sinni á dag?
— Já, það hélt ég. Reimar
virtist í raun og sann alveg
dolfallinn. Eiki settist aftur í
hjá mér. Hvorugri kempunni
hafði orðið meint af volkinu.
— Nú set ég í fyrsta gír, sagði
Reimar og setti í fyrsta.
— En þú tekur ekki af stað
fyrr en ég er búinn að tengja
ökukennarabremsuna mína,
sagði Hreiðólfur. Þegar það
var afstaðið tók Reimar aftur
út á Lækjargötuna. Hann
sagöi: — Nú set ég í annan.
Stuttu síðar bætti hann við:
— Og nú set ég í þriðja.
Hann nam staðar á horni og
sagði þegar hann tók af stað:
— Nú set ég í fyrsta.
— Heyrðu væni, sagði
Hreiðólfur. — Hættu þessu.
Annars veröur þetta að leið-
um ávana.
— Nú set ég í þriðja, sagði
Reimar.
— Viltu hafa hljóð í vagn-
inum þegar þú skiptir, sagði
Hreiðólfur.
— Lofaðu drengnum aö
hafa sína hentisemi, Hreið-
ólfur, sagði Strandamaöur-
inn.
— Eirikur, sagði Hreiðólf-
ur. — Þótt þú hafir verið kap-
teinninn í gamla daga þá er
það ég sem ræð hér í bíln-
um. En engu að síður, þar
sem þú bjargaðir mér úr
Dormbankanum, þá tel ég
mig eiga þér nokkra skuld
að gjalda. Talaðu bara eins
og þú eigir lífið að leysa, vin-
ur, sagði hann við Reimar.
Reimar lét ekki segja sér
það tvisvar. — Og nú set ég
í annan, sagði Reimar. Stuttu
síðar bætti hann við: — Og
nú set ég í þriðja. Daginn eft-
ir fórum við frændurnir á
bílasölur og þá sá Reimar
gamlan Kadilakk og varð
ástfanginn upp fyrir haus.
Ólafur Gunnarsson
Eigendur Nýja bíós: Hilmar
Oddsson, Þorgeir Gunnars-
son, Ólafur Tryggvason, Guö-
mundur Kristjánsson og
Sonja B. Jónsdóttir.
2:
notuðu á meðan það var og
hét, var einnig þar til húsa þar
til fyrir fjórum árum. Eigendur
Nýja bíós eru að vonum
ánægðir með að hafa hreppt
húsið og buðu fólki í faginu
að koma og skoða þegar það
var opnað eftir nokkrar til-
færingar. Mátti í boðinu sjá
menn eins og Hrafn Gunn-
laugsson, Svein Sveinsson í
Plús film og Björn Emilsson
frá sjónvarpinu.
„Hérna erum við með
alvöru hljóðstúdíó og alvöru
upptökustúdíó," sagði Guð-
mundur Kristjánsson kvik-
myndagerðarmaður, fram-
kvæmdastjóri og einn af
eigendum Nýja biós, við
PRESSUNA.
Hrafn Gunnlaugsson og
Björn Emilsson.