Pressan - 29.08.1991, Side 5
FIMMTUDAGUR PRESSAN 29. ÁGÚST 1991
5
✓
I síðustu PRESSU var sagt að Guð-
mundur G. Þórarinsson væri tek-
inn til starfa hjá Landsbankanum.
Þetta er ekki alveg
rétt. Guðmundi hef-
ur verið falið að sjá
um sölu á þeim eign-
um sem bankinn
hefur leyst til sín á
undanförnum mán-
uðum og árum, ekki
sem starfsmaður bankans heldur
sem verktaki á prósentum. Saman-
lagt verðmæti þeirra eigna sem
bankinn hefur leyst til sín mun vera
hátt í tvo milljarða króna. Prósent-
urnar til Guðmundar þurfa því ekki
að vera stórar til að þetta teljist með
alfeitustu embættum landsins...
MT ótt þrjú ár séu liðin frá því Goð-
gá hf„ útgáfufélag Helgarpóstsins,
var tekið til gjaldþrotaskipta hafa
skiptalok enn ekki farið fram. Hins
vegar er búið að taka saman frum-
varp um úthlutunargerð úr búinu,
sem liggur frammi tii sýnis fyrir
hagsmunaaðila. Skiptafundur er
boðaður föstudaginn 6. september
i og komi ekki fram andmæli gegn
frumvarpinu má búast við að loks
hilli undir jarðarför útgáfufélags-
ins. ..
F
J_Jftir hrakfarir ungra sjálfstæðis-
manna á landsfundinum á ísafirði
kallaði Davíð Oddsson nafna sinn
Stefánsson á sinn
fund og talaði yfir
hausamótunum á
honum. Á þessum
fundi fengu ungir
sjálfstæðismenn að
heyra hug forystu
flokksins til klúðurs-
ins á ísafirði. Davíð Stefánsson mun
ekki hafa verið upplitsdjarfur þegar
hann gekk af fundinum...
N
X ^ ú er mikið rætt um þjonustu-
gjöld vegna halla ríkissjóðs. í þeirri
umræðu hafa spjót unnenda vel-
ferðarkerfisins eink-
um beinst að Jóni
Baldvini Hanni-
balssyni og Sig-
hvati Björgvins-
syni, ráðherrum úr
röðum Alþýðu-
flokks. í þessu sam-
bandi er athyglisvert að skoða hvað
danskir kratar vilja gera í þessum
efnum, en Danir eru líka að skera
niður og breyta skattheimtu. Meðal
þess sem stjórnmála- og efnahags-
málanefnd danska Jafnaðarmanna-
flokksins leggur til er að sjúklingar
greiði 900 íslenskar krónur fyrir
hvern dag á sjúkrahúsi og 900 krón-
ur fyrir hverja læknisheimsókn. Pá
leggja þeir til upptöku skólagjalda
hjá grunnskóla- og menntaskóla-
nemum upp á 2.700 krónur á mán-
uði. Loks má nefna að þeir vilja tvö-
falda leikskóla- og dagmæðragjöld
og taka upp bókasafnsgjald upp á 90
krónur íslenskar við hverja út-
tekt...
A
IX, nýafstaðinni ráðstefnu BSRB
vakti ræða Gunnars Gunnars-
sonar, fyrrverandi framkvæmda-
stjóra Starfsmannafélags ríkisstofn-
ana, mikla athygli. Gunnar er nú
starfsmaður Sjúkraliðafélags ís-
lands, en greindi frá því að hann
hefði tekið að sér það verkefni að
vinna að kjaramálum Prestafélags
Islands. Prestar sögðu sig sem kunn-
ugt er úr samtökum opinberra
starfsmanna, afsöluðu sér verkfalls-
rétti og hafa nú undirbúið kröfur til
að leggja fyrir kjaradóm í haust.
Ráðstefnugestir ráku upp stór augu
þegar Gunnar lýsti því yfir að prest-
ar ætluðu að fara fram á 300 pró-
senta launahækkun og þætti ekki
mikið. Sjúkraliðum og fleirum þótti
þetta einkennilegur boðskapur, sér-
staklega þar sem Gunnar sagði í
sömu ræðu að sér sýndist ekki lag
fyrir opinbera starfsmenn að gera
miklar kröfur í haust. . .
UGAVEGI 116
i
mcunni
Ödýrar helgar- og vikuférðir
í september, október, nóvember
og desember.
Verðifi tr komiö ei takmarkað
sætaframkaO
Pantaðo stnt tll að komast í teriiia
sem tér kentar.
Verðdæmi: sep./okt. nóv./des.
★ GLASG0W 3 nætur verð frá 23.960,- 23.960
★ L0ND0N 3 nætur verð frá 31.140,- 32.120,-
★ AMSTERDAM 3 nætur verð frá 27.080,- 26.090,-
★ EDINB0RG 3 nætur verð frá 23.595,-
★ LUXEMBURG 4 nætur verð frá 32.090,-
★ BALTIMORE 3 nætur verð frá 39.640
’* 1M - I0LAMM 20. >menk», 4 iat», wi H 34.000,-
★ KIRKJUIiSTARFERÐ til Þýskalands 28. september, l viko.
Farorstjóri Hörður Áskelsson, orgelleikori. Verð kr. 50.240,-
Verð pr. mann miðaó við tvíbýli.
Innifalið flug og gisting.
Ekki innifolið flugvallarskattur og forfallogjold.
Höfum eimtig á boðstólum lengri borgarferöir
- Haföu samband viö okkur og
fáöu nánari upplýsingar.
Alla fimmtudaga
29. ágúst, uppselt
5. september, uppselt
12. september, 5 sæti laus
19. september, laus sæti, 2 eða 3 vikur
26. september, laus sæti, 1, 2 eða 3 vikur
3. október, uppselt
Verðdæmi 26. september:
1 VÍkð kr. 41.900,”milaivíó2ííbúð.
2 vikur kr. 57.900,- mM.nzíiiíL
Vertii Ixkkir el tlelri era umi í íkH.
Iinaatslittir er leflii il elnireiifi verti.
talMM er flei, ilslln. flitilinr til n fri IIhviUI erlnf Is i| íslnsk
Imntiin.
Ekkl lnifalln lliivillirskittir n firtillaililf.
FERÐASKKIFSTOFA
REYKJAVÍKUR
AÐALSTR/CTI 16 101 RE YKjAVIK
sími 621490.