Pressan - 29.08.1991, Page 11
FIMMTUDAGUR PRESSAN 29. ÁGÚST 1991
11
✓
I næstu viku er boðaður skipta-
fundur í þrotabúi Skemmtiga/ðsins
hf., sem er fyrirtæki sem Ólafur
Ragnarsson stofnaði á sínum tíma
utan um rekstur tívólísins í Hvera-
gerði. Fyrirtækið stofnaði Ólafur
eftir að hafa keypt ýmis tæki af Sig-
urði Kárasyni, en eitthvað voru
þau viðskipti málum blandin, því
dæmið gekk ekki upp og í júlí 1988
var Skemmtigarðurinn hf. tekinn til
gjaldþrotaskipta. Kröfur í búið eru
að núvirði alls um 220 milljónir. Þar
af námu kröfur Fjárfestingarfélags
Islands um 42 milljónum að núvirði,
vegna skuldabréfa sem ættuð eru
frá Sigurði. . .
A
XjLðalfundur Heimdallar hefur
verið boðaður í næstu viku, nokkru
fyrr en vanalega. Formannsskipti
verða á fundinum
þar sem Birgir Ár-
mannsson lætur af
formennsku. Sá sem
er talinn líklegastur
arftaki Birgis er
Kjartan Magnús-
son, sonur NATÓ-
Manga. Davíð Stefánsson, for-
maður SUS, mun þegar hafa lýst yfir
stuðningi við Kjartan en hins vegar
mun Sveinn Andri Sveinsson
borgarfulltrúi leita logandi ljósi að
mótframbjóðanda. Mismunandi af-
staða þeirra til Kjartans sýnir enn á
ný klofning meðal yngri sjálfstæðis-
manna. Davíð er helsti forystumað-
ur svokallaðs MA-kvartetts, sem er
hópur manna sem útskrifuðust frá
MÁ, en Sveinn Andri hefur farið fyr-
ir svokallaðri Vöku-klíku. Þessir
hópar sameinuðust um stuðning við
Árna Sigfússon á sínum tíma, en
nú hefur slitnað upp úr því sam-
starfi...
F
M. yrir rúmu ari skýrði PRESSAN
frá því að franskur maður, sem síð-
ast sást til hér á landi fyrir rúmum
tuttugu árum, væri enn eftirlýstur af
frönskum yfirvöldum. í vikunni birt-
ist síðan auglýsing í Morgunblaðinu
þar sem lýst var eftir manninum,
Bernard Journet, og þeir sem
kynnu að vita um afdrif hans eða
verustað voru beðnir að hafa sam-
band við franskan lögmann. Ætt-
ingjar mannsins munu því enn ekki
hafa gefið upp alla von...
LITLA BÓNSTÖÐIN SF.
Síðumúla 25 (ekið niðurfyrir)
Simi 82628
Alhliða þrif á bílum
komum inn bílum af
öllum stærðum
Opið 8:00—19:00 alla daga
nema sunnudaga
f
Baðsett
ágóöuverði
Vegna hagstæöra samninga og magninnkaupa
á baðsettum getum við boðið í einum pakka:
WC, HANDLAUG,
BAÐ og STURTUBOTN
á einstöku verði.
/l&NORMANN
J.þorláksson & Norðmann hf.
Suðurlandsbraut 20 - Sími: 91 -8 38 33
W3833
VIÐ
3. til 24. október 1991
3 vikur ó frábæru verði - kr. 49.900.- á mann - 2 í íbúð
Innifalið í verði erfíug, gisting, fíutningur tiC og frd fCugveCCi d ‘Benidorm og
ísCensfffararstjórn.
'Effi innifaCið í ofangreindu verði er fCugvaCCarskattur, innritunar- og
forfaCCagjaCcí- samtaCs ff. 3.250.-
(jist er d Torpa, spCunfqinýrri, CoftffeCcCri íBúðaróggpingu miðsvceðis d
Levante ströncdnni.
GÓÐAR ÍBÚÐIR MEÐ STÓRUM SVÖLUM
FALLEG SUNDLAUG - GÓÐUR GARÐUR
LjósmyncCir tiCsýnis d sfjrifstofunni.
fÞetta er síðasta fiaustferðin d Bessu dri, —
- : FERDASKRIFSTOrA
svo nauosynlepjt er aðpanta semfyrst. ^ ^ Y K J AV í K U R ' ‘
Sjdumst! RFYKIAVÍK TRAVEL ^