Pressan - 29.08.1991, Side 12

Pressan - 29.08.1991, Side 12
12 FIMMTUDAGUR PRESSAN 29. ÁGÚST 1991 FYRRUM SAMHERJAR SAKA HVOR ANNAN UM STHLO Á NAFNI J.P. INNRÉTTINGA Tvö fyrirtæki eru rekin undir nafninu J.P. innréttingar og vill hvórugur deiluaöilinn gefa nafnið eftir Málaferli eru nú í uppsiglingu vegna harðra deilna fyrr- um samherja um eignarréttinn á nafninu J.P. innrétting- um. Nú nota tvö fyrirtæki nafn þetta; annað er fyrirtæki Jóns Péturssonar í Skeifunni 7, en hitt er fyrirtæki fyrrum starfsmanna Jóns á Skemmuvegi 26 í Kópavogi. Inn í málið blandast ásakanir um okurleigu, útburðar- mál, nafnbreytingar og gjaldþrot hlutafélaga beggja að- ila og meintur stuldur á skilti með ofangreindu nafni. komist að þeirri niðurstöðu að um einkamál væri að ræða sem væri viðkomandi manna að leysa úr. Ekki hefur orðið framhald á þeirri lögreglurannsókn. I maí 1990 lögðu Einis-menn fram umsókn í vörumerkjadeild iðnaðar- ráðuneytisins um skrásetningu á vörumerkinu „J.P. innréttingum" sem sinni eign. Tilskildir tveir mán- 14. nóvember. í skiptabók vegna þrotabús Einis hf. er skráð: „Sam- þykkt er að selja þann rétt sem þrotabúið kann að eiga til firma- nafnsins J.P. innréttingar til Jóns Péturssonar. Kaupum þessum fylgja öll einkenni sem fylgja nafninu, s.s. skilti og eða vörumerki. Ekki er ljóst hvort hið gjaldþrota félag keypti nafnið eða fékk af því afnotaréttindi J.P. innréttingar, Skeifunni 7. Pað fyrirtæki rekur Jón Pét- ursson. Fyrirtæki Jóns hét áður J.P. innréttingar hf., en nafni þess var síðar breytt í Skógvið hf. og hefur nylega verið tekið til gjaidþrotaskipta. Nú rekur Jón fyrirtæki sitt undir firmanafninu J.P. innréttingar og húsgögn hf. J.P. innréttingar, Skemmuvegi 26. Það fyrirtæki reka fyrr- um starfsmenn Jóns Péturssonar. Þeir keyptu fyrirtæki Jóns 1988 og stofnuðu Eini hf. Þegar Jón ætlaði að láta bera þá út úr húsnæðinu í Skeifunni settu þeir Eini í gjald- þrot. Nú reka þeir f yrirtæki sitt undir firmanafninu J.P. inn- réttingar sf. Jón Pétursson stofnaði fyrirtækið J.P. innréttingar hf. fyrir tæpum 30 árum og rak óslitið þar til um ára- mótin 1987/88 að hann seldi það nokkrum starfsmönnum sínum og syni. Kaupendur voru Andrés G. Jónsson, Ólafur Kr. Óskarsson, Gunnar Stefán Gunnarsson, Gud- mundur I. Jónsson og sonur Jóns, Vilhjálmur Jónsson, sem stofnuðu hlutafélagið Eini hf. utan um rekst- urinn. Kaupverðið var um 7 milljón- ir króna að þávirði. Auk þess tóku Einis-menn húsnæði Jóns og vélar í Skeifunni 7 á leigu. Um svipað leyti breytti Jón nafni fyrirtækis síns úr J.P. innréttingum hf. í Skógvið hf., en hélt sömu kennitölu. ÚTBURÐUR VEGNA VANSKILA Á MEINTRI OKURLEIGU Árið 1989 kom upp deila milli Ein- is-mjmna og Jóns um leiguna í Skeif- unni. Deila þessi leiddi til þess að Vilhjálmur yfirgaf Eini og stofnaði sjálfstætt fyrirtæki, Smíðakjallar- ann sf. Deilan magnaðist upp og Einis-menn hættu að standa skil á leigunni. Þeir halda því fram að leiguupp- hæðin hafi verið alltof há. „Þetta var í raun okurleiga, enda minnkuð- um við tvisvar við okkur húsnæðið sem við leigðum. Leigan fyrir hús- næði og vélar var áfram um 800 þúsund krónur á mánuði, þrátt fyrir minnkun aðstöðunnar, en við feng- um út það mat að eðlileg leiga væri um 400 þúsund. Við buðumst til að greiða þá upphæð auk þess að gera upp vanskilin, en þessu hafnaði Jón," sagði Olafur Oskarsson í sam- tali við PRESSUNA. Jón taldi sig hins vegar hafa geng- ið eins langt á móti Einis-mönnum og unnt var og liðið þeim meiri van- skil en eðlilegt og sanngjarnt hefði verið. Þessu til stuðnings bendir Jón á að hann hafi átt stærstu kröfuna sem ekki greiddist í þrotabúi Einis. I mars 1990 fékk Jón fógetaúr- skurð um að Einis-menn skyldu rýma húsnæðið og hefðu til þess 48 klukkustunda frest. Einis-menn mótmæltu þessu og töldu ekki fram- kvæmanlegt að rýma fyrirtæki með yfir 20 starfsmönnum með slíkum fresti. Þeir brugðu þá á það ráð 9. mars að fara til embættis borgarfóg- eta og biðja um gjaldþrot fyrirtækis síns og fóru fram á innsiglun þess. Úrskurðurinn kom samdægurs og daginn eftir var fyrirtækið innsigl- að. EINIS-MENN FENGU MERKIÐ SKRÁSETT í IÐNAÐAR- RÁÐUNEYTINU Skömmu eftir þetta kvaddi Jón RLR á vettvang í Skeifunni 7. Sagði hann að brotist hefði verið inn í fyr- irtækið, þaðan fjarlægt ýmislegt sem hann kvaðst eiga, meðal ann- ars skilti með nafninu J.P. innrétting- um. Jón benti á að skiltið væri kom- ið upp á húsnæði Einis-manna við Skemmuveg í Kópavogi. RLR yfir- heyrði Einis-menn, en virðist hafa uðir liðu án andmæla. Skrásetning- in var auglýst 19. júlí og hlaut gildi 28. september. í júní 1990 var fyrirtækið J.P. inn- réttingarsf. stofnað af Ólafi, Andrési og Gunnari. í sama mánuði var fyr- irtækið J.P. innréttingar og húsgögn hf. stofnað af Jóni og fjölskyldu. Vil- hjálmur, sonur Jóns, var skráður framkvæmdastjóri. Ennfremur gerðist það í sama mánuði að Vil- hjálmur seldi Jóni föður sínum helmingshlut sinn í Smíðakjallaran- um sf. Hinn hlutinn átti Jódís Vil- hjálmsdóttir, kona Jóns. JÓN PÉTURSSON KEYPTI NAFNIÐ AF BÚSTJÓRA Lögmaður Jóns Péturssonar telur að skrásetning Einis-manna á vöru- merkinu standist ekki, því nafnið hafi ekki verið á lausu, enda sé það notkunin sem tryggi réttinn og Jón hafi notað þetta merki í 30 ár. Merk- ið sé því verðmæti sem lá í þrotabú- inu og það hafi Jón keypt af bú- stjóra. Þau kaup fóru fram í skiptarétti 1987. Kaupverðið er kr. 25.000 og greiðist í réttinum." Jón telur sig með þessu hafa keypt réttinn til nafnsins af bústjóra og gildir þar einu þótt umdeilanlegt sé hvað hann hafi selt 1988, eignarrétt eða afnotarétt. Einis-menn segja hins vegar að merkið hafi þeir keypt persónulega, en ekki fyrirtæki þeirra, og því hafi skiptaréttur ekki getað framselt nafnið. Þeir hafi álit tveggja lögfræðinga um þetta. BÚSTJÓRI: VERIÐ AÐ MISNOTA DÓMSTÓLA „Við keyptum vitaskuld nafnið á sínum tíma, enda vorum við ekki að kaupa spýtnadrasl. Nafnið sem slíkt kom hins vegar ekki fram á endan- legum kaupsamningi og því segir Jón að við höfum ekki keypt það. Það breytir þvi ekki að Jón lagði nafnið niður þegar hann breytti nafni fyrirtækis síns í Skógvið og það var því á lausu þegar við skrá- settum það sem okkar vörumerki, enda var það þá hvergi á skrá. Inn- brotatali vísum við til föðurhús- anna,“ segir Ólafur. Bústjóri Einis, Gísli Baldur Garð- arsson, segir hins vegar að af þeim gögnum sem hann hafi haft undir höndum sem bústjóri hafi verið álitamál hvort Einir hefði keypt nafnið á sínum tíma. „En nafnið átti Jón áður og hafi það færst af Jóni til þessara aðila þá tel ég að kaup- samningurinn sem gerður var í skiptarétti taki af öil tvímæli um að Jón hefur aftur öðlast fullt tilkall til nafnsins. Af því hvernig málið er út- listað nú virðist mér að hér sé ekki á ferðinni deila um efnislegan rétt, heldur persónulegur ágreiningur einstaklinga sem færður er í þennan búning með það fyrir augum að misnota dómstólana til að ná sér niðri á gagnaðilanum." TOLLSTJÓRI MEÐ 18 MILUÓNA KRÖFU Á JÓN 14. júní 1991 var fyrirtæki Jóns, Skógviður hf., úrskurðað gjald- þrota. Þar mun aðeins vera um eina umtalsverða kröfu að ræða, upp á 18 milljónir króna, frá Tollstjóra. Um er að ræða endurmat Tollstjóra á söluskatti J.P. innréttinga hf. frá ár- unum 1983 til 1985ogerupphæðin, sem upprunalega var 4 milljónir, uppreiknuð með vöxtum og kostn- aði. Lögmaður Jóns segir kröfuna óraunhæfa og umdeilanlega og unnið sé að því að fá hana lækkaða eða fellda alfarið niður. Hann segir að hér sé um að ræða mismunandi mat á því hvað í rekstri teljist sölu- skattsskylt og hvað ekki, enda sé hvorki um kæru né viðurlög að ræða af embættisins hálfu. Ágrein- ingurinn snýst að hans sögn ekki um að Jón hafi stolið söluskatti, heldur að hann hafi ekki innheimt nægi- lega mikinn söluskatt af þjónustu sinni. 9. september 1991 verður mál- sókn Jóns á hendur J.P. innrétting- um sf. þingfest, hafi þeir ekki látið af notkun nafnsins. Að sögn Ein- is-manna má þá búast við gagnmál- sókn af þeirra hálfu og ennfremur segja þeir framundan málsókn gegn Vilhjálmi Jónssyni til að fá frá hon- um hans hlut r persónulegum ábyrgðum eigenda Einis í bönkum og víðar. Friðrik Þór Guðmundsson |

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.