Pressan - 29.08.1991, Side 14

Pressan - 29.08.1991, Side 14
 VIRÐISAUKASKATTUR Gjalddagi virðisaukaskatts / landbúnaði er 1. sept. Skýrslum til greiðslu, þ.e. þegar útskattur er hærri en innskattur, og núllskýrslum má skila til banka, sparisjóða og pósthúsa. Einnig má gera skil hjá innheimtumönnum ríkissjóðs en þeir eru tollstjórinn í Reykjavík, bæjarfógetar og sýslumenn úti á landi og lögreglustjórinn á Keflavíkurflugvelli. Athygli skal vakin á því að bankar, sparisjóðir og pósthús taka aðeins við skýrslum sem eru fyrirfram áritaðar af skattyfirvöldum. Ef aðili áritar skýrsluna sjálfur eða breytir áritun verður að gera skil hjá innheimtumanni ríkis- sjóðs. Inneignarskýrslum, þ.e. þegar innskattur er hærri en útskattur, skal skilað til viðkomandi skattstjóra. Til að komast hjá álagi þarf greiðsla að hafa borist á gjalddaga. Bent skal á að ekki er nægilegt að póstleggja greiðslu á gjalddaga. m RÍKISSKATTSTJÓRI D JJreytingar verða á helgardag- skrá rásar tvö í vetur. Ekki er enn ákveðið hverjar breytingarnar verða, en búið er að ráða ritstjóra helgar- dagskrárinnar. Það er Sigurður Val- geirsson. sem hef- ur nú umsjón með þættinum „ísland í dag" á Bylgjunni ásamt Hallgrími Thorsteinssyni. Sigurður tekur til starfa á rás tvö nú um mánaðamótin. Stefán Jón Haf- stein, dagskrárstjóri rásarinnar, kemur aftur til starfa um mánaða- mótin. Stefán Jón er að ljúka við bók sem hann hefur verið að skrifa, þar sem hann segir ferðasögur frá Afríku. . . F .Lalnn og aftur ætlar nyr rekstrar- aðili að reyna fyrir sér í veitinga- staðnum við Lækjargötu, sem geng- ið hefur undir ýmsum nöfnum, t.d. Tunglið og Lídó. U m aðra helgi verð- ur staðurinn opnaður að nýju undir rekstrarstjórn Sverris Rafnsson- ar, en hann er aðeins 24 ára að aldri. Til stóð að opna eitthvað fyrr, en eins og oft vill verða stóð á sam- þykkt Signýjar Sen, deildarstjóra hjá lögreglustjóraembættinu.. . SÍMI13303 ATARI 1040STE lAUGAVEGI 51. lot REYKJAVIK SlMI 624770. FAX 624860

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.