Pressan - 29.08.1991, Side 15

Pressan - 29.08.1991, Side 15
FIMMTUDAGUR PRESSAN 29. ÁGÚST 1991 15 komið upp á í húsum Ör- yrkjabandalagsins, rétt eins og öðrum húsum. — En hefur þetta mál kall- að á breytingar hvað varðar eftirlit með íbúum hússins? „Þetta hefur verið hugsað, en ég vil ekkert segja meira um þetta,“ sagði Anna Ing- varsdóttir. Anna Ingvarsdóttir og Ás- gerður Ingimarsdóttir sögðu- báðar að í húsinu væru skrif- stofur Öryrkjabandalagsins og eins sæju vaktmenn um að hleypa fólki inn í húsið. EFTIR14 DAKA ,,Ég hefekkert um þetta að segja. Ég var í sumarfríi þeg- ar þetta kom upp. Eg tel þetta ekki vera blaðamál," sagði Ásgerður Ingimarsdóttir, framkvœmdastjóri Öryrkja- bandalagsins, þegar hún var spurð um atvik sem varð í húsi Öryrkjabandalagsins númer tíu við Hátún í Reykja- vík. í síðasta mánuði, 21. júlí, fannst einn íbúanna látinn í íbúð sinni. Eftir því sem PRESSAN kemst næst hafði maðurinn, sem var rúmlega fimmtugur, verið látinn í tvær vikur þegar hann fannst. „Það er einum of mikið að segja tvær vikur,“ sagði Anna Ingvarsdóttir, en hún hefur yfirumsjón með íbúðum Öryrkjabandalagsins. Ánna sagði að í Hátúni 10 væri ýmis þjónusta fyrir íbú- ana, en hún fer eftir þörfum hvers og eins. Sumir þurfa heimahjúkrun, heimilishjálp eða annað. Anna sagði að maðurinn, sem fannst látinn, hefði ekki þurft neina slíka þjónustu og lát hans hefði komið á óvart, þar sem ekki var vitað til þess að hann væri veikur. Þeir íbúanna, sem ekki þurfa þjónustu, hefðu ekki tilkynningaskyldu og því gæti tilfelli sem þetta Hús Öryrkjabandaiagsins i Hátúni 10. Það var í íbúð á fimmtu hæð hússins sem fimmtugur maður var látinn í tvær vikur án þess að nokkur vissi. Ibúi í Hátúni lOa, húsi Oryrkjabandalagsins FANNST LÁTINN Landsbanki Islands Lögfræðiskrifstoía ættingja aðstoðarbankastjórans rukkar fyrir bankann Bankastjórn Landsbanka íslands hefur falið lögmanns- stofu Bjarna Stefánssonar, Guðmundar Péturssonar og Péturs Guðmundarsonar og fleiri lögfrœðinga að annast innheimtu fyrir aðalbankann í Austurstrœti. Samkvœmt heimildum PRESSUNNAR þykir ráðstöfun þessi gagn- rýnisverð vegna þess að Bjarni er sonur Stefáns Pét- urssonar, aðstoðarbanka- stjóra Landsbankans, Guð- mundur er bróðir Stefáns og Pétur bróðursonur. Landsbankinn ákvað á síð- asta ári að fela sjálfstæðum lögfræðistofum innheimtu einstakra útibúa bankans. Innheimtumál bankans eru á verksviði Sverris Hermanns- sonar bankastjóra og Björns Líndal aðstoðarbankastjóra. Breytingin var á sínum tíma gerð í andstöðu við vilja lög- fræðideildar bankans. Stefán var lengst af aðallögfræðing- ur Landsbankans, en varð að- stoðarbankastjóri 1989. Guðmundur Pétursson, sonur hans Pétur Guðmund- arson og Bjarni Stefánsson reka lögmannsstofu á Suður- landsbraut 4a ásamt Hákoni Árnasyni, Guðríði Guð- mundsdóttur og Jakobi Möll- er. Að sögn Björns Líndal var ákvörðun um að ráða lög- fræðistofu þessara aðila í inn- heimtustörf tekin án þess að Stefán Pétursson kæmi þar nærri málum. „í þessu litla landi er oft erfitt um vik að eiga við skyldleika og tengsl. En Stefán kom þarna hvergi nærri. Ákvörðun þessi var tekin í ljósi þess að þessi stofa hefur starfað fyrir bankann og við búum við góða reynslu af því samstarfi og störfum hennar. Það eru nú nokkrar lögfræðistofur sem annast innheimtu fyrir einstök útibú bankans og ekki annað að heyra en útibúin séu ánægð með þetta fyrirkomulag." Sú stofa sem varð fyrst til ,að fá innheimtuverkefni af þessu tagi frá Landsbankan- um var lögfræðistofan Lög- menn Höfðabakka 9, þar sem reka saman stofu Vilhjálmur Árnason, fv. stjórnarformað- ur íslenskra aðalverktaka (og um skeið meðeigandi Sverris Hermannssonar og fleiri í Ögurvík/Kirkjusandi), Ólaf- ur Axelsson, Eiríkur Tómas- son, Árni Vilhjálmsson og Hreinn. Loftsson, sem nú er aðstoðarmaður forsætisráð- herra. „Sigurður er mjög jákvæður á aðra en sjálfan sig, þá sem í kringum hann eru. Hann er einarð- ur við það sem hann er að gera, hvort sem það er í íþróttum eða annað. Vegna þess hve jákvæð- ur hann ér eignast hann mikið af vinum," segir Stefán Jóhannsson, þjálfari hans. „Hann er jákvæður og hefur góð áhrif á aðra. Það er gott að vera riálægt honum á æfingum. Hann er líka hreinskiíinn um það sem miður fer, en segir það á réttan hátt," segir Geirlaug Geirlaugsdóttir spretthlaupari. „Hann er blíður og tilfinninga- næmur, barngóður og listakokkur. Hann er mjög orðvar og hallmælir aldrei neinum, ekki einu sinni helstu keppinautum sínum," segir Vilhelmína R. Ólafsson, hálfsystir hans. „Hann er ákveðinn og gerir allt til að ná þeim markmiðum sem hann setur sér. Hann er góður húmoristi og skemmtilegur félagi,“ segir Krist- ján Harðarson, vinur hans og gamall félagi úr íþróttunum. „Hann er traustur og sannur íþróttamaður sem kann bæði að vinna og tapa,“ segir Ingibjörg Vagnsdóttir. „Sigurður er heiðarlegur, bjartsýnn, ósérhlífinn og samvisku- samur. Hann er ljóðelskur, mikill heimilismaður og góður kokkur,“ segir móðir hans, Svanhvít Sigurlinnadóttir. „Þótt hann eignist mikið af vinum gleymir hann þeim stundum. Hann kann sér ekki hóf í mörgu, ofgerir sér til dæmis á æfing- um,“ segir Stefán Jóhannsson, þjálfari Sigurðar. „Hann er mjög áhrifagjarn og leiðist því stundum út í ýmislegt," segir Geirlaug Geir- laugsdóttir. „Hann er alltaf of seinn. Hann skipuleggur tíma sinn ekki nógu vel. Svo er .hann óttalegur grallari," segir Vilhelmína R. Ólafsson. „Hann er stundum kærulaus, sér- staklega ef vel gengur á æfingum. Þá slepp- ir hann því heldur að mæta á stefnumót en hætta á æfingunni áður en hann er búinn að fá nóg,“ segir Kristján Harðarson. „Hann er of hæverskur þegar að honum er vegið,“ segir Ingibjörg Vagnsdóttir. „Hann er óþolinmóður þegar hann þarf að gera eitthvað sem hann hefur ekki áhuga á,“ segir Svanhvít Sigur- linnadóttir. Sigurður Einarsson spjótkastari Sigurður Einarsson lenti i 6. sæti í spjótkasti á heimsmeistaramótinu i frjálsum iþróttum i Tókýó i Japan. UNDIR ÖXINNI Gunnar Kristinsson hitaveitustjórí Nú er Ijóst að greiðslustaða Hita- veitunnar hefur aldrei verið verri og kostn- aður við veitingahús- ið Periuna hefur farið 300 milljónum fram úr áætlun. Getið þið setið áfram þegar svona er komið? . „Ég reikna með því, þar til annað kemur frá borgaryfirvöldum. Ef þú ert að leita að ein- hverjum til að hengja fyrir þetta mál finnur þú hann ekki hér. Þú ættir að tala við borg- arstjóra. Við stýrum ekki fjármálum borgar- innar hér." Því var haldið fram að ekki þyrfti að taka nein lán vegna Perl- unnar. Nú er komið á daginn að Hitaveitan tók 300 milljóna króna lán frá Raf- magnsveitunni. „Það er algengt að fyrirtæki láni hvert öðru." Af hverju var al- menningi ekki skýrt frá því? „Ég lít þannig á að þetta sé innanhúss- mál. Við reynum að gera okkar fjárhags- áætlanir. Stundum standast þær, stund- um ekki, og það er allt- af pólitísk spurning hvort á að taka lán eða ekki. En þú ert að tala við rangan mann vegna þessa máls." Hitaveitustjóri hefur svarad fyrir- spurn borgarstjóra um viðbótar- kostnað við útsýnishúsið í Öskju- hlíð. Þar kemur fram að kostnað- urinn hefur aukist um tæpar 300 milljónir króna frá því kostnaöar- áætlunin var endurskoðuð í april siðastliðnum.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.