Pressan - 29.08.1991, Side 18

Pressan - 29.08.1991, Side 18
18 FIMMTUDAGUR PRESSAN 29. ÁGÚST 1991 smaa letrið Nú er komið haust. Þá koma haustumræðuefnin. Það er nefnilega tiska i þeim efnum eins og öllum öðrum. Vortiskan og sumartiskan i umræðuefn- unum er úrelt. Dæmi: Nú tala menn ekki lengur um góða veðrið. Nú er það vonda veðr- ið: rigningin, súldin, kuldinn, trekkurinn. Veðrið er sem sagt sigilt umræðuefni eins og rnykingar og megrun og sjón- varpsdagskráin. Vinnurðu í banka? Þá eru allar líkur á þvi að kaffitiminn fari i þessar umræð- ur: Fyrst er farið yfir kladdann og athugað hverjir hafa hætt að reykja upp á siðkastið og at- hugað hvernig það gengur. (Innan sviga eru s agðar nokkrar sögur af ættingjum og vinum sem hafa hætt að reykja igegn- um tiðina og árangur þeirra ti- undaður.) Þeir sem eru hættir að reykja segja frá raunum sin- um — og þá er komið að öðru umræðuefni. Það er að segja: Þegar viðkomandi hætti að reykja hlóðust aukakilóin upp! Bömmer! Það þýðir aðeins eitt: megrun. En hvernig erhægt að vera i megrun og vera líka ný- hættur að reykja? Það er ein- faldlega ekki hægt. Þess vegna verður bara að byrja að reykja aftur. Og ná af sér spikinu. Svo er hægt að hætta aftur að reykja, fitna, byrja að reykja, grennast (kannski), hætta... Þegar hér er komið sögu er kaffitiminn i bankanum auðvit- að búinn, en enginn nennir að fara að vinna alveg strax. Það beinir talinu að veðrinu og samanburði við siðasta ár, þar- siðasta ár og haustið 1983. Þeg- ar veðrinu hafa verið gerð skil er hægt að segja sögur af par- ketti, þvi það er alltaf einhver sem er að leggja parkett en ennþá fleiri sem ætla að leggja parkett. Þegar allir eru búnir að leggja sitt til málana um parkett og aðrar umbætur heima við er talinu vikið að sjónvarpsdag- skrá gærkvöldsins, rennt yfir framhaldsþáttinn og örlög per- sónanna hörmuð. Ef einhver lumar svo á verulega djúsi kjaftasögu er hún auðvitað lát- in flakka. Nú talar enginn lengur um Jón Óttar og Völu Matt eða Jón Óttar og Elfu (ekki einu sinni Jón Óttar og Mar- gréti Hrafns) — nei, nú eru komnar splunkunýjar sögu- hetjur i frásagnir ef innlendum % I « ástum. Um hverja er kjaftað i kaffitimanum i bankanum? Ja, ef þú bara vissir það! TVÍFARAKEPÞNI PRESSUNN- AR - 10. HLUTI Tvifarar vikunnar hafa afger- andi sérstöðu að þvi leyti að annar þeirra hefur smátt og smátt orðið líkari hinum: Helgi Guðmundsson, ritstjóri Þjóð- viljans, hefur á dularfullan hátt likst Svavari Gestssyni meira og meira. Helgi byrjaði á hár- greiðslunni og skegginu. Það varauðvelt. Þeir eru líka svipað- ir á hæð svo Helgi þurfti ekki að gripa til aðgerða þess vegna. En Helgi lét ekki þar við sitja: Hann tileinkaði sér af hreinni snilld göngulag Svavars, lima- burð allan og takta; framburð, ræðustil — já, og jafnvel skoð- anir. Og nú er Helgi i gamla starfinu hans Svavars, sem rit- stjóri Þjóðviljans: formennska i Alþýðubandalaginu hlýtur að vera næst á dagskrá. Þetta er þróun sem hefur staðið i tvo áratugi — og sér ekki fyrir end- ann á henni ennþá. Eða hvað? Er maðurinn á Þjóðviljanum kannski Sv, var r?t Hvar er Helgi? Gáum (Snobb ■■ IVtil ANTIK Hún er nauðsynleg til að falsa ættarsöguna. Kaupa kommóðu eða ottóman hjá Fjólu í Antikhúsinu og segja öllum að þetta sé ættargrip- ur úr móðurætt. BENZ 500 SEC Eftir stutta útlegð er Benz- inn aftur orðinn eina al- mennilega stöðutáknið. Þeir sendisveinar sem reyndu að kaupa þá fyrir nokkrum ár- um hafa allir misst þá í fjár- nám. X CHANEL Chanel-veski og -skartgripir eru ómissandi nú þegar all- ar þjónustustéttirnar eru komnar með Cartier. Og því þykkari sem gullkeðjurnar eru því betra og þvi stærra sem Chanel-merkið er því betra. DINNER Fólk á ekki að láta sjá sig á veitingahúsum á íslandi nema í hádeginu. Kvöld- verðarboð í heimahúsum eru hins vegar allt annar handleggur. Ef fólk vill fara út að borða á það að skreppa á Russian Tea Room í New York eða Max- im's í París. EÐALVIN Það er ekkert sem sýnir fág- un betur en góður smekkur á vínum. Því er nauðsynlegt að sérpanta. Hægt er slá tvær flugur í einu höggi og panta einn kassa af flöskun- um sem Lichtenstein hann- aði fyrir Taittinger. Það er ekki bara kampavín heldur myndlist. *1cemcuufo ufivpJýUtUýCiSi utn Uuesutúj, jxú yeiusi heypt jz&i oincíitufu cuuu+vta ocj, itnjohoS- yjfiA. pieJúLkcut uppsuuui j%Uui FERÐATOSKUR Þótt það skipti miklu máli að ferðast til réttra staða er enn nauðsynlegra að hafa réttu ferðatöskurnar. Þar koma engar aðrar en Louis Vuitton til greina. GESTGJAFINN Það er stórkostlegt að kom- ast að með matarboð í Gestgjafann og hafa nógu frægt fólk í heimsókn. Næst- besti kosturinn er að fá út- tekt á heimilinu í Húsum og híbýlum. HEIMILISHJÁLP Austurlensk heimilishjálp er nauðsynlegri en uppþvotta- vél. Au pair-stúlkur ganga alls ekki. Þær eru ávísun á úrlausnir á gelgjuskeiðs-sál- arkreppum og of mikil freisting fyrir húsbóndann. IRISH SETTER Þótt börn séu ekki jafnilla séð og fyrir nokkrum árum hafa þau ekki enn velt heimilishundinum af stalli. Og rétti hundurinn er Irish Setter. Aðrir hundar eru eins og innborgun á setter- inn. JEAN PAUL GAULTIER Fyrir þá sem nota gleraugu til að sýna fram á góðan smekk er Gaultier öruggasta valið. Karabíska hafið er eina sumarleyfið sem gildir. Ef fólk hefur geymt hana til brúðkaupsferðarinnar á það að gifta sig strax. Ef það er þegar gift á það að skilja og gifta sig upp á nýtt. LOVÍSA MATTHÍASDÓTTIR Eini málarinn sem er óum- ræðilega dýr og óumræði- lega smekklegur er Lovísa Matthíasdóttir. KARABISKA HAFIÐ Skemmtisigling um MORGUNBLAÐIÐ Fyrir þá sem vilja láta taka mark á sér er nauðsynlegt að skrifa í Morgunblaðið. Það er þó ekki sama hvar greinin birtist. Hún verður að lenda á leiðaraopnunni. Til þess þarf að skrifa eitt- hvað sem Styrmi Gunnars- syni líkar. Best er að skrifa með veiðileyfasölu. NÍTJÁN HUNDRUÐ OG FIMMTÍU Einbýlishúsið má ekki vera miklu yngra en frá 1950 og úr steinsteypu, — alls ekki timbri. Það verður að vera stórt og líta út fyrir að vera dýrt. Rándýrt. OPNANIR Það er hrein lífsnauðsyn að mæta á allar opnanir hjá Listasafni íslands og á Kjar- valsstöðum. Og það er jafn- hættulegt að láta sjá sig á öðrum opnunum nema ef vera skyldi hjá Gallerí Nýhöfn. Það eru ekki nema alkar og partísjúklingar sem þræða hvaða opnanir sem er. PERSNESK TEPPI Eitt persneskt teppi er ekki nóg heldur verður fólk að eiga mörg. Og það verður að þekkja frá hvaða héraði þau eru og kunna söguna á bak við hvernig því áskotnuðust þau. QUOTATION Það er í sjálfu sér í lagi að lesa einhverja góða quot- ation-bók en enn betra að geta vitnað til persónulegs samtals við Halldór Laxness, Jack Lang eða Jóhannes Nordal. ROLEX Rolex er sett hér sem víti til varnaðar. Tag Heuer er rétta úrið í dag. STYRKTARFÉLAG ÍSLENSKU ÓPERUNNAR Eini félagsskapurinn sem er algjörlega nauðsynlegur. Þeir sem geta haldið úti samsæti yfir mynd- banda-óperum og fundið rök fyrir því að Islenska óperan standist samanburð við helstu óperuhús heims- ins eru á grænni grein. TOYOTA LANDCRUISER Ef fólk getur ekki átt bæði bens og jeppa á það að halda jeppanum en sleppa Bensinum. Eini alvörujepp- inn er Toyota Landcruiser af stærri gerðinni. UMRÆÐUEFNI Það á helst aldrei að tala um það sem er íslenskt eða gerist á Islandi. Alþjóða- pólitík er skárri en sú ís- lenska en þó er albest að ræða um næturklúbba í New York, matsölustaði í París og bera saman þjón- ustuna á Business Class hjá þekktum flugfélögum. VIÐTÖL Fólk á ekki að þiggja viðtal ef því er boðið það af ein- hverju tilefni. Alvörufólki er boðið viðtal bara vegna þess að það er það sjálft. Eftir að glanstímaritin lögð- ust í pólitískar ekkjur og fallna viðskiptajöfra skal all- ur vari hafður á þeim. Opnuviðtal í Morgunblaðinu er líkast til skásti kosturinn ef Jóhanna Kristjónsdóttir eða Elín Pálmadóttir tekur það. ÞINGVALLAVATN Súmarbústaður með báta- skýli á Nesjavallalandi er í raun það eina sem má sætta sig við með góðu móti. Þó kemur til greina að kaupa gamlan bústað í hvilftinni inn af Valhöll. ÉS I S7*500dölfsöi ÆVISÖGUR Á sama hátt og með viðtöl er gallinn við ævisögur sá að þær seljast ekki nema aðalpersónan hafi gert ein- hvern óskunda af sér eða lent óþyrmilega milli tannanna á fólki. í stað þess að stefna á eigin ævisögu fyrir ellilaun á fólk að láta sér nægja að lesa ævisögur amerískra viðskiptajöfra. OFUND Lykilorðið í umræðum um menn og málefni er öfund. í stað þess að taka þátt í árás- um pöpulsins á að taka upp hanskann fyrir þá sem verða fyrir þeim. Árásirnar á að skýra með því að pöpullinn stjórnist af öfund. Það bendir til að fólk hafi ástæðu til að öfunda þig. Gurtnar Smári Egilsson m

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.