Pressan - 29.08.1991, Side 23

Pressan - 29.08.1991, Side 23
FIMMTUDAGUR PRESSAN 22. ÁGÚST 1991 23 Ertu hrceddur um að þú fylgist ckki nógu vel mvð? Horfirðu ó alla fróttatímana og lest öll dagblöðin? Þorirðu ekki að viðurkenna að þú hefur ekki graznan grun um hver Pedro fllmodovar er? Ef svo er ertu líklega ^ (IPPLYSINGflFIKILL Fylgistu af ákafa med fréttunum af ualdaráninu í Sovétríkjunum? Mundirðu verða alveg frá þér ef þú misstir af fréttatímanum í kvöld og þar með nýjustu fréttum af því hvernig Jelt- sín gengur að halda uppi andófi við nýja valdhafa eða hvort blóðug átök hafi brotist út? Horfirðu kannski bœði á Stöð 2 og Ríkissjón- varpið til að missa örugg- lega ekki af neinu? Gleypt- irðu í þig Moggann í morg- un og hlustaðir á dœgur- máladeildina með öðru eyr- anu? Kaupirðu DV til að lesa í hádeginu, ef ske kynni að eitthvað hefði gerst á þeim klukkutímum frá því Mogginn fór í prentun þar til DV kom út? Lœturðu PRESSUNA og „s/úðrið“ aldrei framhjá þér fara? — Ef þú getur játað á þig þótt ekki sé nema einn þriðja af þessu ertu alveg áreiðan- lega haldinn því sem sér- frœðingar nefna upplýsinga- angist. Upplýsingaangist kallast óttinn við að fylgjast ekki nógu vel með. Þeir eru haldnir upplýsingaangist sem eru aiveg skithræddir um að þeir fylgist ekki nógu vel með því sem er að ger- ast í listalífi, viti ekki hvað verður í tísku næsta vetur eða hvað er að gerast í stjórnmálum heima og er- lendis. Það er ólíklegt annað en margir kannist við þessa til- finningu, því hverjir eru fréttaþyrstari en einmitt ís- lendingar? Við bæði gefum út og lesum ógrynni af blöðum og tímaritum, að ógleymdu öllu því magni sem við flytjum inn. HVERSU ILLA HALDINN ERTU? Þörfin fyrir að fylgjast með eykst svo þegar stórat- burðir eins og valdaránið í Kreml eða Flóastríðið ger- ast. Eða sátu menn ekki rauðeygir af svefnleysi fyrir framan skjáinn í vetur, þeg- ar barist var við Flóann? Annars getið þið bara geng- ið úr skugga um það sjálf, hversu illa þið eruð haidin, með því að lesa eftirfarandi fullyrðingar og telja hve margar þeirra eiga við ykk- ur. 1. Þú ásakar sjálfa(n) þig reglulega fyrir að fylgjast ekki nógu vel með því sem gerist í kringum þig. 2. Þú finnur til sektar- kenndar frammi fyrir sí- stækkandi staflanum af ritum, bókum og grein- um, sem liggja í haugum heima hjá þér og bíða þess að verða lesnar. 3. Þegar upp kemur í samræðum nafn frægrar persónu, listamaður sem er í tísku, mikilvæg dag- setning úr samtímanum, tónlistarstefna eða frétt, sem þú hefur aldrei heyrt minnst á áður, ásakarðu sjálfa(n) þig í hljóði og lætur eins og þú sért inni í málinu með því að kinka kolli. 4. Þegar stórir atburðir gerast viltu ekki fyrir nokkurn mun missa af sjónvarpsfréttum klukk- an átta og ellefu, 19:19, hádegis- og kvöldfréttum útvarpsins auk þess sem þú reynir að lesa öll dag- blöðin. 5. Áður en þú kaupir uppáhaldstímaritið þitt í bókabúðinni flettirðu í gegnum nokkur önnur tímarit; um hagfræði, vís- indi, bíla, listir eða kvik- myndir, jafnvel þótt þessi málefni eigi ekkert skylt við áhugamál þín og smekk. 6. Þú kaupir mikið magn tímarita, bóka og uppsláttarrita sem þú lest aldrei í, nema kannski nokkrar línur. 7. Þér finnst þú oft ófær um að skýra þótt ekki sé nema einn þriðja af hug- mynd, atburði eða ástandi ákveðins tíma- bils, sem þú taldir þig hafa skilið. 8. Þú ert fúl(l) út í sjálfa(n) þig fyrir að geta ekki fylgt leiðbeiningar- bæklingnum sem segir hvernig þú eigir að gera við sjónvarpið þitt, koma saman rúminu sem þú keyptir í IKEA, fá græna fingur, nota nýja ör- bylgjuofninn þinn, og svo framvegis. 9. Þú hefur áhyggjur af því að vita ekki hvernig nota á alla takkana á myndbandstækinu þínu eða hljómtækjasamstæð- unni og blótar sjálfri(um) þér í sand og ösku fyrir að hafa týnt notkunar- leiðbeiningunum. 10. Þú kaupir þér há- tæknitæki eftir lestur flókinnar grcinar, þannig að þú fáir á tilfinninguna að þú hafir betra vald á tækninni. 11. Það kemur fyrir að þú kallar bók um vísindi, hagfræði eða heimspeki „stórkostlega“, „snilli“, „tímamótaverk" eða „nauðsynlega", jafnvel þótt þú hafir varla skilið orð af því sem sagt var og skrifað um hana í um- fjöllun í fjölmiðlum. 12. Þegar þú horfir á sjónvarpið, lest dagblað eða tekur þátt í samræð- um gefurðu þér lengri tíma og veitir mikla at- hvgli nýjum fréttum, sem þér stendur í rauninni á sama um. 13. Þegar frétt vekur áhuga þinn skiptirðu á milli stöðva til að finna hana á hinni stöðinni og sjá hvernig hún er með- höndluð á mismunandi hátt. Tékkar svo á út- varpsstöðvunum. 14. Á klósettinu lestu hvaða dagblað, auglýs- ingabækiing eða snepil annan, sem til fellur. Þú gengur jafnvel svo langt að lesa aftan á þvottaefn- ispakka ef hann er við höndina. 15. Á vörusýningum, í listsýningarsölum, á fyr- irlestrum, í apótekum, verslunum, kvikmynda- húsum og biðstofum tek- urðu alla þá bæklinga sem þú kemur höndum yfir. Þú gleymir þeim síð- an í töskunni, skúffunni eða í blaðakörfunni, fram til þeirrar stundar er þú ákveður að henda þeim. 16. Þú sýnir hörð við- brögð við fréttum eða upplýsingum sem þú skil- ur eiginlega ekki. Þú hef- ur til dæmis áhyggjur af því að Dow Jones-vísital- an skuli hafa lækkað um tíu stig og nagar neglurn- ar niður í kviku frammi fyrir óskiljanlegum línu- ritum sérfræðinganna. 17. Hvert svo sem inni- haldið er finnst þér bréf sem þú færð send í hrað- pósti eða með símfaxi merkilegri en bréf sem berast þér eftir venjuleg- um leiðum, í gegnum bréfalúguna. 18. Þér finnst upplýs- ingar sem þú færð úr blaða-, útvarps- eða sjón- varpsfrétt merkilegri en það sem þú verður áskynja í óformlegum samræðum. 19. Þú heldur að mann- eskjan við hliðina á þér skilji það sem þú skilur ekki. 20. Þú ásakar sjálfa(n) þig fyrir það eitt að láta þér detta í hug að segja „ég veit það ekki“. 21. Þú kallar hugmynd, staðreynd eða gögn sem þú skilur ekki upplýsing- ar. AFVÖTNUN EINA RÁÐIÐ Ef aðeins fáar eða jafnvel engin af þessum fullyrðing- um á við þig hefurðu ekki lesið PRESSUNA og þaraf- leiðandi ekki þessa grein. Þú tekur því gaumgæfilega íhugun fram yfir upplýsing- ar og á meðan þú situr og smakkar á veröldinni vaxa trén án þinnar hjálpar, ávextir þroskast og stríð eru ' háð. Þér, sem innan við helm- ingur fullyrðinganna á við, er óhætt að óska til ham- ingju, því þú hefur stjórn á upplýsingaangist þinni. Þú lest aðeins eitt valið dag- blað og horfir ekki á hvaða þátt sem er í sjónvarpinu. Þú ert í hópi þeirra sem vantreysta sjónvarpinu eftir æsinginn fyrstu daga Flóa- stríðsins og tekur félagsskap góðra vina framyfir. Ef meira en tveir þriðju fullyrðinganna eiga við þig er óhætt að segja að upplýs- ingastreymið hafi gert þig áttavillta(n). Og við því er aðeins ein iækning: Horfðu eða hlustaðu ekki á fleiri en einn fréttatíma í ljósvaka- miðli á dag og haltu þig frá dagblöðum annan hvern dag. Lestu hægt, þykkt og gott sagnfræðirit um það málefni sem plagar þig hvað mest. Ef fleiri en fimmtán full- yrðingar eiga við þig, hvað þá allar, ertu „húkt“ á upp- lýsingastreyminu. Þú ert þegar orðin(n) angistar- full(ur) við lestur þessarar greinar og segir við sjálfa(n) þig: Hvar get ég komist yfir meiri upplýsingar um þetta efni? Það er aðeins til eitt ráð handa þér: „Afvötnun". Settu sjónvarpið þitt inn í geymslu í mánuð. ÞVERÖFUG ÁHRIF UPP- LÝSINGASTREYMISINS Það sorglega við þetta allt er það, að þrátt fyrir að við séum svona áköf í að fylgj- ast með fréttum, og lesa öll þau tímarit og bæklinga og horfa á alla þá fréttatíma sem við komumst yfir, er allsendis óvíst að við séum nokkuð upplýstari en ef við létum það eiga sig nema endrum og eins. 1 öllu þessu upplýsingastreymi, sem yfir okkur flæðir, er nefnilega heill hellingur af hráum upplýsingum sem eftir er að vinna úr og greina. Þess vegna er ansi hætt við að flóðið hafi þveröfug áhrif. Við verðum engu nær, því við skiljum ekki upplýsing- arnar. Áf þessu stafar angist- in. Og sanniði til; þetta á eftir að versna. VARNIR GEGN FRÉTTA- FLÓÐINU Það er aðeins eitt ráð til að verjast þessu og það er að komast að því hvað mann sjálfan raunverulega langar til að vita. Það er hægt með því að spyrja sig spurninga eins og: Hvers vegna hefur fréttamaðurinn valið að segja frá þessum smáatriðum? Hvaða smáat- riði mundi ég vilja þekkja? Hvaða merkingu hafa þess- ar tölur? Hvað segir frétta- maðurinn mér ekki? Ruglar hann ekki saman upplýsing- um og skoðunum? Hvers vegna fær þessi frétt svona mikið vægi? Meira en hin? Hvernig gæti hún gagnast mér í lífinu? Hefurðu ekki á tilfinningunni að það sé ákveðið fyrir þig hvað er mikilvægt og hvað ekki? Ertu viss um að valdatakan í Sovétríkjunum hafi meiri áhrif á líf þitt en evrópska efnahagssvæðið? Samantekt: Margrét Elísabet Ólafsdóttir

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.