Pressan - 29.08.1991, Side 24

Pressan - 29.08.1991, Side 24
24 FIMMTUDAGUR PRESSAN 29. ÁGÚST 1991 ‘Jit'nnr téícttgfwr |)jóÖéöfluf Lárus Salómonsson, fyrrum lögregluþjónn á Seltjarnarnesi og víöar, þótti maöur rammurað afli, eins og bræöur hans, sem allir voru annálaöir krafta- menn. Af þeim bræörum eru til margar sögur. Ein sagan segir frá því þegar Lárus starfaði viö jarövinnu í fallegri sveit. Lárus haföi meöal annars þann starfa aö bera börurásamt öðrum manni, sem hét Jón, en hann var hvergi nærri eins hraustur og Lárus. Þeir skiptu meö sér verkum á þann hátt aö Lárus hélt um aftari endann á börunum en Jón um þann fremri. Börurnar voru um tveir metrar aö lengd. Eftir að búiö var aö moka á börurnar uröu Lárus og Jón aö ganga meö þær talsverðan spöl áöur en þeir gátu losað sig viö hlassið. Lækur einn, nokk- uö mikill, lengdi leið þeirra talsvert. Lækurinn var um hálfur þriöji metri á breidd. Lárus og Jón voru oftsinnis búnir aö hafa orö á því hversu þreytandi þaö væri aö þurfa aö ganga meö bör- urnar meðfram læknum aö tarna. Eitt sinn sagöi Lárus viö Jón aö hann heföi fundið leið sem myndi spara þeim mörg sporin. Jón varö vit- anlega forvitinn mjög og spuröi Lárus hvaöa lausn hann heföi á þessu. Lárus svaraöi eitthvaö á þá leiö aö þeir gætu allt eins stokkið yfir lækinn, sem var hvort eö er ekki breiöari en hálfur þriðji metri. Jón var meira en svo til meö aö reyna þessa aöferð Lárusar. Þegar þeir höföu mokaö hefðbundnu hlassi í börurnar tóku þeir undir sinn endann hvor, Jón þann fremri og Lárus þann aftari. Viö svo búiö gengu þeir aö lækjarbakkanum. Þeir undirbjuggu sig fyrir stökkiö góöa. Jón stóö á bakkabrúninni og hélt ör- uggum höndum um bör- urnar og sama geröi Lárus, þar sem hann stóö um tveimur metrum aftar. Þeir stigu báðir tvö skref til baka. Áöur en þeir stukku töldu þeir saman upp aö þremur og hlupu síöan og stukku. Jón rétt náöi á bakkann hinum megin lækjarins, en Lárus ekki. Eins og áöur sagöi voru börurnar um tveir metrar, en lækurinn var hálfur þriöji metri. Til allrar blessunar var vatniö í læknum ekki nema hálfur annar metri á dýpt. Lárus komst upp meö hjálp Jóns. Ekki reyndu þeir félagar þessa aöferö oftarog létu sig hafa þaö aö ganga fyrir enda lækjarins. (úr kraftamannasögum) Hvað gerir maður ekki fyrir Danmerk- urferð? segir Ingibjörg Tönsberg sem fór fyrir manninn sinn til Danmerkur að læra að kyngreina hænur „Þaö er lika hægt aö gera þaö meö svokallaðri klóakaðferö, en þá kikir maður í botninn á þeim og skoöar ytri kynfærin. Þaö eru fáir sem kunna það." Það er óhœll ad segja að starf Ingihjargar Tönsberg, sem húri hefur haft með höndum síöastliðin 37 ár, sé nokkuð óvenjulegt. Hún kyn- greinir hœnuuriga og hefur gert það fyrir alifuglabœndur á suðvesturhorrúnu þessa tæpa fjóra áratugi. Ingibjörg er annars kennari að mennt. h'yrir skömrnu átti hán sjö- tuí’safmœli, en aldurinn fœr liana ekki til að hœtta starf- inu á meðan alifuglabœndur þurfa á henni að halda. — Hvað kom til að þú byrj- aðir í þessu starfi og hvers vegna hefurðu sinnt því tneira og minna ein? „Maðurinn minn, Einar Tönsberg, var framkvæmda- stjóri Alifuglabús bakara- meistara, og hann hafði átt sér þann draum að kynna sér nýja kyngreiningaraðferð. Þegar svo kom að því að hann átti að fara á námskeið í Danmörku lenti hann í bíl- slysi og þurfti að vera undir læknishöndum. Hann sagði þá við mig: „Farðu fyrir mig.“ Mér leist ekki of vel á hug- myndina, en hann ýtti á eftir mér og ég hugsaði með mér: „Hvað gerir maður ekki fyrir Darimerkurferð?" Eg ætlaði að kenna þetta öðrum þegar heim kæmi, en ekki að vera í þessu sjálf. Á námskeiðinu lærði ég að nota tæki sem maðurinn minn var búinn að kaupa, en það var vont að læra á það. Mér fannst þetta algjört torf. Það var þýsk eftirlíking af jap- önsku tæki. Meðan á nám- skeiðinu stóð fór ég á sýningu og komst þar í kynni við um- boðsmann japanska tækisins. Okkur samdist um það að hann lánaði mér tæki heim til íslands, sem ég skilaði svo ef mér líkaði það ekki. En þeim var ekki saman að jafna og ég hélt japanska tækinu. Ég kom heim með það 27. nóv- ember 1953“ Hvernig fer kyngreining fram? „Maður gegnumlýsir ung- ana innan frá með tækinu þegar þeir eru sólarhrings- gamlir. Það er líka hægt að gera það með svokallaðri kló- akaðferð, en þá kíkir maður í botninn á þeim og skoðar ytri kynfærin. Það eru fáir sem kunna það.“ Er erfitt að sjá hvers kyns ungarnir eru? „Já, það er erfitt, því það er lítill munur á útliti innri kyn- færanna. Hjá hönunum getur maður séð eistun, en eggja- stokkarnir í hænunni eru óljósir. Við góðar aðstæður má þó ná allt að 98% árangri. Þá skiptir miklu máli að hafa rétta birtu." Hvers vegna ersvona mikil- vœgt að kyngreina ungana 24 tímum eftir að þeir koma úr eggjunum, en ekki fyrr eða t.d. tveimur dögum síðar? „Fyrstu tímana eru þeir all- ir slímugir. Þá er lítið skemmtilegt að eiga við þá. Eftir sólarhring eru þeir venjulega orðnir þurrir. Þá er best að taka ungana, áður en þeir fara að éta. Um leið og þeir byrja að éta fer meltingin af stað, saur myndast í þörm- unum, sem gerir það erfiðara að nota tækið, og taugakerfið byrjar að virka. Þegar það fer að virka verða þeir órólegri, en á meðan það er óvirkt er hægt að meðhöndla þá án þess að það hafi nokkur áhrif á þá.“ Ingibjörg segist hafa byrjað að nota kyngreiningartœkið í febrúar 1954 og frá þeim degi flakkað ein um suðvestur- hornið. „Þetta er voðalega strangt meðan á því stendur, því ég þarf að keyra í allskyns veðr- um og oft að leggja af stað klukkan fimm á morgnana. En vinnan er í törnum. Það var til dæmis mikið að gera í mars, apríl og maí síðastliðn- um, en ekki nema tveir dagar í júlí og einn núna í ágúst." Hvað kyngreinirðu marga unga á einum degi? „Ég kyngreini um 600 unga á klukkustund og hef mest kyngreint 10.000 unga á einum degi.“ SJÚKDÓMAR OG FÓLK Ertu kannski fullorðið barn alkóhólista? (FYRRI HLUTI) Húm sagðist heita Sjöfn Iðunnardóttir og var síð- asti sjúklingur minn þennan dag. „Hvað get ég gert fyrir |)ig?“ spurði ég og virti hana fyrir mér. Hárið varskollitað og stuttklippt. Hún var ómáluö, klædd í bláan galla- jakka, svartar buxur og her- mannaskó. Um hálsog herð- ;ir bar luin palestínskt sjal. „Eg þarf að fá eitthvaö til að sofa af." sagði hún. „Það er búið að vera svo mikiö stress á mér síöustu vikurnar. Ég bjó fyrir noröan en kynntist strák sem var héðan og fintti heim til lians. Nú er hann farinn og ég stend eftir ein og ólétt." Hún sagði rauna- sögu sína svipbrigöalítiö: strákurinn hafði drukkið mikið og barið haiia nokkr- um sinnum. Hann hafði lent í fíkniefnasmygli og sat nú inni og beið dóms. Hún var atvinnulaus. peningalaus og vonlítil á lífið og framtíðina. Við spjölluöum Iengi saman og hún féllst á að taka engin svefnlyf. Nokkrum dögum síðar kom hún aftur og við héldum viðtölum áfram. PABBI DRAKK MIKIÐ Sjöfn var ákaflega óörugg OTTAR GUDMUNDSSON og kvíöin ung kona. Mér fannst hún stundum eins og hræddur, umkomulaus fugls- ungi. í viðtölum sat hún á stólbríkinni og virtist bíða þess að luisið spryngi í loft upp. „Kg hef alltaf verið svona," sagði hún. „Pabbi var mikill drykkjumaður og allt heimilið var undirlagt af ástandinu á honum." Hún virtist bæði hata og elska föður sinn og í sálardjúpun- um ólgaði óslökkvandi reiöi gagnvart þessum manni. Hún lýsti fyrir mér ótal at- vikum þegar pabbi hafði lof- að einhverju en svikið. Stundum var liann ástríkur og hvers manns hugljúfi en á öðrum tímum gat hann ver- ið miskunnarlaus og hrána- legur. „Ég vissi aldrei við hverju mátti búast." mælti Sjöfn. „Ég fór að kenna mig við mömmu til að ná mér. niðri á honum." „Já." sagði ég. „Þú berð öll merki þessa uppeldis, mikið af einkenn- um þínum, taugaveiklun, kvíða og óöryggi, má rekja til þess að þú ert fullorðið barn alkóhólista.” Hún horfði á mig stórum auguin. „Hvernig lýsir það sér?" „Á seinni árum hafa margir orð- ið til þess að skrifa um þá sem alast upp við mikla drykkju. Þeir hafa ýmis sam- eiginleg persónuleikaein- kenni." „Eins og liver?" spurði hún. „Það hefur veriö búinn til listi um þessi ein- kenni," sagði ég, „það er best að þú fáir liann með þér heim." LISTINN GÓÐI UM SAMEIGINLEG EINKENNI FULLORÐINNA BARNA ALKÓHÓLISTA 1. Fullorðin börn alkóhól- ista (Fba) þekkja ekki þaö sem kallast getur eðlilegt ástand. Þau veröa því að geta sér til um hvernig það sé. 2. Fba segja ósatt þegar þau gætu allt eins sagt satt. Þau hafa vanið sig á að ljúga. 3. Fba dæma sig sjálf aí fullkomnu miskunnarleysi. 4. Fba eiga erfitt með að skemmta sér eða staka á. 5. Fba taka sig og heim- inn ákaflega alvarlega. 6. Fba eiga erfitt með ná- in kynni við annað fólk og þá sérstaklega hitt kvnið. Þeim finnst torvelt að trevsta öðrum manneskjum. 7. Fba sækjast stöðugt eftir viðurkenningu og hrósi, en eru þó aldrei reglu- lega ánægð. 8. Fba finnst þau vera öðruvísi en annað fólk og eru því oft mjög einmana. Þeim finnst margir vera and- snúnir sér. 9. Fba eru annaðhvort mjög ábyrg eða algjörlega ábyrgðarlaus. 10. Fba eru mjög trú og trygg sínum nánustu. jafnvel þótt viðkomandi eigi það alls ekki skilið. 11. Fba eru oft mjög fljót- huga og taka örlagarikar ákvarðanir að lítt athuguðu máli. Mörg þeirra eru lengi að vinna sig út úr þeim ógöngum sem slíkt getur haft í för með sér. 12. Fba eru mjög óörugg með sig og efast stöðugt um eigið ágæti eða mannkosti. Sjöfn horfði á mig stórum augum. „Ég þekki mikið af þessum einkennum. Hvað á ég að gera?" „Við skulum ræða það betur næst." sagði ég. „en ég tel að þú eigir að fara á fundi í samtökum sem nefnast fullorðin börn alkóhólista og bvggja á hugmvndafræði AA-samtak-

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.