Pressan - 29.08.1991, Síða 26

Pressan - 29.08.1991, Síða 26
26 FIMMTUDAGUR PRESSAN 29. ÁGÚST 1991 LP LISTAPÓSTURINN Á LAUGARDAGINN verður opnuð í vestursal Kjarvals- staða sýning á verkum franska listamannsins Philippe Cazal, sem er ein skærasta stjarnan í franskri samtímalist. Cazal fæddist ár- ið 1948 og lauk námi frá Art Décoratif í París 1973. Um Cazal hefur verið sagt að hann nálgist raunveruleik- ann innan frá: listhluturinn og fyrirmyndin eru eitt og hið sama. Allar sviðsetningar eru fullkomlega sambærilegar við raunveruleikann, sérstak- lega þann veruleika sem birt- ist okkur í auglýsingum. Caz- al notar í list sinni sömu hluti, efni, tækni og boðskiptamál og einkenna neyslusamfélag- ið hvað mest... NÆSTKOMANDI þriðjudag verða síðustu sumartónleik- arnir í Listasafni Sigurjóns Ól- afssonar. Þeir hafa verið fast- ur liður í menningarlífinu í sumar og tekist sérlega vel og verið Birgittu Spur og öðrum aðstandendum safnsins til sóma. Undantekningarlítið hefur verið fullt hús, enda dagskráin metnaðarfull og verði aðgöngumiða stillt i hóf. Á þessum síðustu tón- leikum spila þau Björn Árna- son fagottleikari og Hrefna Eggertsdóttir píanisti. Þau flytja verk eftir Deuienne, Spohr, Pierné, Transmann og Neumann, en síðastnefnda verkið er tileinkað Birni.. . Valgaröur Gunnarssort AUGNAYNDI íNÝHÖFN Mannslikaminn veröur hálf- gerður skúlptúr í leikmynd- inni... Eins og nutimalist sé of mikið sköpuö fyrir eyrun en ekki augun: þannig að fólk getur ekki skilið listina fyrr en eftir miklar og fræðilegar útskýr- ingar. Gwendolyn Sampé á Púlsinum Tónlistin er í blóðinu Draumsýnir Birgittu ,,Ég reyni ad skapa myndir sem eru augnayndi. Mér finnst eins og of mikid af nú- tímalist sé skapad fyrir eyrun en ekki augun, það er að segja: fólk getur ekki skilið listina fyrr en eftir miklar og frœöilegar útskýringar," segir Valgarður Gunnarsson list- málari, sem opnaði sýningu á uerkum sínum í Nýhöfn um síðustu helgi. Og mikið rétt. Myndir Valgarðs eru svo sannarlega fyrir augað: Ijóð- rœnar og töfrandi. Valgarður (fæddur 1952) nam í Myndlista- og handíða- skólanum en fór svo til náms í New York í kringum 1980. Upphaflega var hann í grafík en heillaðist af málverkinu og færði sig yfir á þau miðin. Síðasta áratuginn hefur hann unnið að auglýsingagerð meðfram listsköpuninni en síðasta misserið hefur hann helgað sig myndlist einvörð- ungu. En hvernig fer það saman að vinna að auglýsing- um og myndlist? „Auglýsingagerð og mynd- list eru alls ekki skyldar greinar. Það er fyrst og fremst spurning um hugarfarið, hvernig maður nálgast við- fangsefnið. Það er allt annar handleggur að selja vöru með auglýsingum en að vinna að myndlist: það er erf- itt að gera auglýsingar af þeirri einlægni sem nauðsyn- leg er í myndlistinni. Oft var líka erfitt að svissa yfir eftir heilan dag í vinnu og tók ein- att langan tíma að hita sig upp. Það er eiginlega nauð- synlegt að geta helgað sig myndlistinni; maður gengur á sjálfan sig með því að hugsa sífellt um aðra hluti." Er hægt að tala um ein- hverja ákveðna megin- strauma í íslenskri myndlist nú um stundir? „Nei. Fólk kemur alls stað- ar að úr námi; frá mörgum löndum í Evrópu og Ameríku og hefur ólíkar hugmyndir með sér í farteskinu. Það er mikil breidd í myndlistinni og fólk fær að gera það sem það vill. Þetta á líka við í útlönd- um þar sem ég þekki til, það er engin „rétttrúnaðarstefna" í gangi. Menn hafa frjálsar hendur — en kannski er alltaf verið að bíða eftir nýjum blómum. Hvenær þau spretta er erfitt að segja til um.“ En hvernig vinnur Valgarð- ur myndirnar sínar? „í stórum dráttum má segja að ég teikni fyrst í skissubæk- ur, það er aldrei neitt fullmót- að heldur einfaldir hlutir, form eða fígúrur. Þegar ég byrja að mála mynd má segja að ég byrji á fullt af myndum á léreftinu: ég ákveð ekki einu sinni í upphafi hvernig myndin á að snúa, hún getur þess vegna endað á hvolfi! Ég vinn ekki með módel eða ljósmyndir, enda er ég ekki að mála einhverja ákveðna persónu. Ég mála manneskj- una talsvert, eða að minnsta kosti eitthvað lifandi, menn, fugla eða tré. Jú, þær eru yfir- leitt einar á ferð, manneskj- urnar, en stundum tvær — að minnsta kosti eru þær aldrei þrjár saman. Ég veit ekki af hverju." London og syngur nútíma- djass fyrst og fremst. „Ég syng flestan djass, en hef sjálf mest gaman af nútímadjass- inum. Annars hef ég líka ver- ið að vinna í leikhúsi, með hreyfingar og söng, þar sem ég nota ljóð. Því hefur verið vel tekið. í vor flutti ég til Par- ísar og er núna að kanna jarð- veginn þar. París hefur orð á sér fyrir gott tónlistarlíf og ég hef meiri áhuga á að starfa þar en í Bandaríkjunum." Hvað dró þig til íslands? „Sigurður Halldórsson bauð mér. Við vorum saman í Guildhall," segir Gwendo- lyn. Sigurður er bassaleikar- inn í Loftfélagi íslands, en það er nafnið á hljómsveitinni sem leikur á tónleikunum með Gwendolyn. ,,Eg kalla sýninguna Draumsýnir, uegna þess að þú sérð alltaf eitthuað riýtt þegar þú horfir á myndirnar. Það er mikið að gerast í þeim, lög í huerri mynd, rneð- al annars vegna þess að ég tek ofan í til að ná meiri dýpt og fjölbreytileika,“ sagði Birg- itta Óskarsdóttir i stuttu spjalli um sýningu sína á Ijós- myndum í Asmundarsal. Birgitta lauk námi frá Pratt Institute í New York síðastliðið vor, en þar lagði hún stund á listræna ljósmyndun. Myndir Birgittu eru settar á svið í orðsins fyllstu merkingu. Hún notar töluvert af leikmunum og mannslíkama sem hálfgerðan skúlptúr i leikmyndinni. „Kannski var ég að reyna að búa til minn eigin heim, sem íslendingur i New York," sagði hún um myndefnið og þær persónu- legu skírskotanir sem myndirnar hafa að geyma. ,,Þar sem tilraunir mínar til að verða forseti Bandaríkj- anna hafa ekki tekist ákvað ég að gera tónlistina að at- vinnu minni," sagði Gwendo- lyn Sampé skellihlœjandi í stuttu spjalli við PRÉSSUNA. Gwendolyn er menntuð í stjórnmálaheimspeki, en þegar hún hafði lokið námi fór hún á flakk og endaði í söngnámi uið Guildhall Scho- ol of Music and Drama í London. Tónlistin er henni reyndar í blóð borin. Hún segir að það sé skylda í fjölskyldunni að syngja. „Það syngja allir í minni fjölskyldu, en það hef- ur enginn annar gert sönginn að atvinnu sinni," segir Gwendolyn. Hún hefur fram til þess aðallega starfað í

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.