Pressan - 09.01.1992, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR PRESSAN 9. JANÚAR 1992
FYRS1&FREMST
jón ólafsson. Hyggst auka hlut sinn í Stöö 2. kristIn einarsdóttir.
Var í Perlunni og vildi í útsendingu en var hafnað.
JÓHANN ÓLI í
ODDAAÐSTÖÐU
1. apríl rennur út sam-
komulag um stjórn Stöðvar 2
milli Eignarhaldsfélags Versl-
unarbankans og annarra
hluthafa. Þá má búast við
nokkurri togstreitu um völd-
in. Þannig háttar til að í raun
skiptist stjórnin í tvær blokk-
ir. Annars vegar Jóhann J.
Ólafsson, Harald Haralds-
son í Andra og Jón Ólafs-
son í Skífunni. Hins vegar
Pál Kr. Pálsson, forstjóra
Vífilfells og fulltrúa Eignar-
haldsfélagsins, og Valsarana
Stefán Gunnarsson og
Gunnstein Skúlason. Milli
þessara blokka er síðan Jó-
hann Óli Guðmundsson í
Securitas. Hann hefur verið
talinn heldur hallur undir þá
Jóhann, Harald og Jón en
eitthvað mun hafa spillt því
að undanförnu. Það getur því
margt gerst þann 1. apríl.
Jón Ólafsson í Skífunni
mun þegar farinn að undir-
búa breytt valdahlutföll. Það
hefur borist út að Skífan sé til
sölu fyrir rétt verð til að Jón
geti aukið hlut sinn í Stöð 2.
KRISTÍN
Á BEKKNUM
í PERLUNNI
Eins og þjóðin veit hefur
landsfeðraþáttur Rásar 2 í
Perlunni á gamlársdag verið
kærður til útvarpsráðs vegna
þess að fulltrúi Kvennalistans
var ekki með. Svo vill til að
fulltrúi Kvennalistans, Krist-
ín Einarsdóttir, var stödd í
Perlunni á meðan á útsend-
ingu stóð.
Kristín hafði verið í sams-
konar þætti sem Stöð 2 og
Bylgjan stóðu fyrir niðri á
Hótel Borg á gamlársdag. Þar
voru sömu landsfeður nema
hvað Friðrik Sophusson
var þar í stað Davíðs Odds-
sonar, sem kom inn á uppi í
Perlu. Þegar þættinum á
Borginni lauk fóru Iandsfeð-
urnir að tygja sig til ferðar
upp í Perlu. Kom þá í ljós að
Kristín hafði ekkert frétt af
því. Lagði þá Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráð-
herra fast að Kristínu að
koma með og bauð henni bíl-
far. Þegar upp í Perlu kom var
síðan Stefán Jón Hafstein
spurður að því hvort Kristín
yrði ekki með úr því hún væri
á svæðinu. Stefán Jón sagði
þá að Kristín „væri ekki á
teikniborðinu" fyrir þáttinn.
Varð hún því að sitja til hliðar
á meðan landsfeðurnir spjöll-
uðu og var augljóslega ekki
sátt við hlutskipti sitt.
SAMKOMULAG Á
YFIRBORÐINU
Meirihluti sjálfstæðis-
manna í bæjarstjórn Ólafs-
fjarðar hefur náð samkomu-
lagi eftir rúmlega hálfs árs
deilur. Eins og kunnugt er af
fréttum þurftu þrir af fjórum
fulltrúum flokksins að fara í
pólitískt orlof eftir að atlaga
þeirra að bæjarstjóranum,
Bjarna Grímssyni, mis-
tókst.
Fulltrúarnir þrír hafa aftur
KAUPIR
YOKO ONO
HEILSUHÆLIÐ
í HVERAGERÐI?
„Það er ekkert leyndar-
mál að Yoko sýndi hælinu
mikinn áhuga þegar hún
kom hingað í fyrra. Hún
dvaldi hér dagstund og
sagði eftir það að á hælinu
væri veitt mjög góð þjón-
usta og auðvelt væri að
selja hana útlendingum.
Taldi hún að samsvarandi
þjónusta erlendis stæði
þessu langt að baki,“ sagði
Gunnlaugur Jónsson, í
stjórn Náttúrulækninga-
hælisins í Hveragerði, þeg-
ar hann var spurður um
áhuga listakonunnar frægu
Yoko Ono á hælinu. Á
ferðalagi hennar hér í fyrra
kom fram að hún taldi
möguleika á því að fjárfesta
í hælinu, sem hlýtur að telj-
ast jákvætt fyrir það. —
Ekki þá síst vegna þess að
Yoko þykir hafa ágætt fjár-
málavit og yfirleitt fjárfest
skynsamlega fyrir þau
miklu auðæfi sem hún hef-
ur undir höndum eftir lát
Johns Lennon.
Gunnlaugur sagði að á
undanförnum mánuðum
hefðu ýmsir möguleikar
verið kannaðir varðandi
erlendar fjárfestingar í hæl-
inu og hefur meðal annarra
Grímur Sæmundsen
læknir unnið að því, en fyr-
irtæki hans, Máttur, er nú í
samstarfi við heilsuhælið.
Gunnlaugur sagði að allt of
snemmt væri að segja til
um hvort eriendir aðilar
kæmu inn í fyrirtækið, en
ef svo bæri undir þá vissi
hann hvar Yoko væri að
finna.
tekið sæti í bæjarstjórn og bú-
ið er að gera samkomulag um
skiptingu helstu embætta.
Óskar Þór Sigurbjörns-
son, forseti bæjarstjórnar og
eini fulltrúi flokksins sem hélt
störfum, verður áfram for-
seti.
Allt bendir til að það sam-
komulag sem gert hefur ver-
ið sé meira á yfirborðinu, þar
sem djúpstæður ágreiningur
hefur verið milli manna.
Sigurður Björnsson, sem
var framkvæmdastjóri Fisk-
mars, verður formaður bæj-
arráðs og Þorsteinn Ás-
geirsson tekur síðar við af
honum. Kristín Trampe
verður varaforseti bæjar-
stjórnar.
„Auðvitað er hætt við að
sárin verði lengi að gróa. Það
gáfu allir eitthvað eftir til að
samkomulag gæti tekist.
Þetta hefur verið persónuleg-
ur ágreiningur en ekki mál-
efnalegur," sagði Óskar Þór
Sigurbjörnsson.
Hann aftók að gjá hefði
myndast milli sín og hinna
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins
og eins milli þremeninganna
og Bjarna Grímssonar bæjar-
stjóra.
Óskar Þór sagði ekki rétt
að hann hefði hafið viðræður
við minnihlutann um mynd-
un meirihluta.
Af öllu þessu má sjá að
samkomula^ sjálfstæðis-
manna á Olafsfirði er brot-
hætt.
ALLT MAN
HANN MATTI
Matthías Bjarnason hef-
ur reynst yngri sjálfstæðis-
mönnum tregur í taumi.
Hann hefur staðið eins og
klettur í vegi fyrir fjölmörg-
um málum sem þeir hafa vilj-
að ná fram.
Nú síðast skipaði hann sér í
forystusveit þeirra sjálfstæð-
isþingmanna af landsbyggð-
inni sem ekki voru tilbúnir að
kyngja frjálsri verðmyndun á
olíu. Þetta mál er dálítið við-
kvæmt fyrir flokk sem hefur
látist hafa frelsi í atvinnumál-
um á oddinum. Sérstaklega
þar sem þetta gerðist á sama
tíma og Jeltsín innleiddi
frjáisa verðmyndun í fyrrum
Sovétlýðveldinu Rússlandi.
(Margir sjálfstæðismenn eru
sannfærðir um að Jón Slg-
urðsson viðskiptaráðherra
hafi lekið um andstöðuna í
Sjálfstæðisflokknum.)
Þegar yngri menn í flokkn-
um hafa dregið fram sam-
þykktir síðasta landsfundar
hefur Matti hins vegar sagst
muna eftir eldri samþykktum
þar sem tekið var sérstaklega
fram að innleiða skyldi frjálsa
verðmyndun á jafnmikilvæg-
um vörum og olíu. Og þegar
Matti man langt aftur setur
aðra hljóða. Enginn getur
deilt við hann. Enginn sjálf-
stæðismaður man jafnlangt
aftur og Matti. Að minnsta
kosti enginn þeirra sem enn
eru í pólitík.
páll kr. pálsson. Guðmundur Óli gæti stutt hann og félaga. haraldur haraldsson. Guðmundur Óli gæti líka stutt hann og félaga hans.
Jón baldvin hannibalsson. Keyrði Kristínu í Perluna til að hún gæti verið með. stefán jón hafstein. Vildi hvorki Kristínu né aðrar kvenna-
listakonur. sigurðurbjörnsson. Vék úr bæjarstjórn en verðurformaður bæjarráðs. matthías bjarnason. Man tvöfalt lengra aftur en næsti
þingmaður Sjálfstæðisflokks.
Munduð þið lána Rúss-
um óhikað ef þeir ætl-
uðu sér út í fiskeldi,
Sverrir?
„Ef þessi spurning heföi
veriö lögö fyrir fjármála-
menn fyrir fimm árum
heföu þeir ugglaust svar-
aö játandi strax. Ég geri
ráö fyrir aö menn
mundu hika núna."
Landsbankinn hikar við að
lána Rússum 800 milljónir
vegna samnings um síldar-
sölu. Bankinn hefur hins veg-
ar lánað mikið til fiskeldisfyrir-
tækja — og tapað miklu.
L í T I L R Æ Ð I
af manni ársins
Það er alltaf svo voða bjart
yfir mér á jólaföstunni og
framundir áramót og ekki
að undra.
Áramótin eru nefnilega
fyrir mér „dagar vona", vona
um það að verða nú ærlega
hampað fyrir unnin afrek á
liðnu ári.
Það er nefnilega um ára-
mótin sem okkur afreks-
mönnum þjóðarinnar er lyft
á stall og við verðlaunaðir
fyrir ágæti okkar.
Það er um áramótin sem
menn ársins, „gæfusmiðir"
íslensku þjóðarinnar, eru
krýndir, einn af öðrum með
pomp og pragt svo allir megi
vita hverjir það eru sem
sköruðu framúr, þjóðinni til
heilla, á árinu sem var að
líða.
Og engan ætti að undra þó
mér finnist ég ætti svo sann-
arlega að vera í hópi fjöl-
margra útnefndra manna og
kvenna ársins, slík gersemi
sem ég er.
En miklum væntingum
fylgja stundum sár von-
brij?ði.
Eg var hvorki útnefndur
vinsælasti rithöfundurinn
né metsöluhöfundur ársins
sem stafar ef tii vill af því að
engin bók kom út eftir mig á
árinu.
Hefði komið út eftir mig
bók hefði ég möglunarlaust
borgað forleggjaranum mín-
um þrjátíu þúsund krónur til
að hann gæti útnefnt hana
til „hinna íslensku bók-
menntaverðlauna" með hin-
um bókunum sem útgefend-
ur útnefna í auglýsingaskyni
á jólabókavertíðinni ef þeir
tíma eða eiga fyrir því.
Og þá hefði útgefandinn
minn líka séð til þess að ég
fengi verðlaunin af því að
dómnefndin er á vegum út-
gefenda.
Það bregst varla að „vin-
sælasti maður ársins" sé í
leiðinni „óvinsælasti maður
ársins" og þessvegna gat ég
augljóslega ekki orðið „vin-
sælasti maður ársins".
Hefði ég verið eitthvað í
íþróttum á árinu, til dæmis
tekið þátt í sundi kvenna,
hefði ég áreiðanlega orðið
íþróttamaður ársins og auð-
vitað sárnaði mér að vera
ekki kjörinn poppari ársins,
popptónskáld ársins eða
poppljóðskáld ársins, en það
var auðvitað útaf því að ég
var ekki á poppmyndbandi
ársins.
Ég bjóst við að verða val-
inn forsíðustúlka ársins, en
mér skilst að ég hafi aldrei
komið til greina vegna þess
að við útnefninguna er mik-
ið tillit tekið til þess hver hafi
bestu framkomuna og
brjóstin.
Og af því að ég er ekki í
„détt-settinu“ kom ég ekki
til greina þegar best klæddi
maður ársins og verst
klædda kona ársins voru val-
in.
Og skrítið fannst mér að
verða ekki briddsspilari árs-
ins.
Ég var auðvitað voða
spenntur þegar „athafna-
maður ársins" var útnefnd-
ur. Þar fannst mér ég hljóta
að eiga mikla sigurvon en
fljótlega kom í ljós að at-
hafnamaður ársins verður
að vera bisnessmaður af því
að „kaupsýsla" er á íslandi
sama og „athafnir".
Ég hef lengi haft augastað
á fálkaorðunni og satt að
segja finnst mér, eins og
fleirum, að ég sé vel að
henni kominn og hef aðeins
orðað það við Vigdísi.
Auðvitað nægir mér ekk-
ert minna en stórriddara-
krossinn þegar þar að kem-
ur, úr því verið er að hengja
þetta á mann á annað borð.
Um leið og ég óska
„mönnum og konum ársins"
hjartanlega til hamingju
með að vera svona framúr-
skarandi langar mig að til-
nefna „mann ársins".
Þetta er sá maður sem á
Þorláksmessu færði okkur
heiðurshjónunum meiri
gæfu en okkur hafði órað
fyrir að við fengjum að njóta
á liðnu ári.
Maður ársins er Þórður
fisksali í Borgarnesi.
Þakklætinu til Þórðar
verður aðeins lýst í Ijóði:
Heilagur andi hampi þér
hamingjan þig geymi.
Hátíðaboöskap barstu mér
bestu skötu í heimi.