Pressan - 09.01.1992, Blaðsíða 38

Pressan - 09.01.1992, Blaðsíða 38
38 FIMMTUDAGUR PRESSAN 9. JANÚAR 1992 TÓMSTUNDIR & NÁMSKEIÐ AFRÍSKIR DANSAR Nanette Nelms kennir afríska dansa í Kramhúsinu, svokallaða Afrocarabian dansa. Nanette þessi er íslendingum að góðu kunn því hún hefur áður dvalið hér og kennt við miklar vinsældir. Dansarnir eru mjög kraftmiklir og veita fólki mikla útrás. Þeir eru góð líkamsrækt og henta fólki á öllum aldri. Undir dansinum leikur karab- íski bumbuslagarinn Rockas og sér um að menn missi ekki taktinn og slái ekki slöku við. AÐ LÆRA AÐ GERA SKATTSKÝRSLUNA Nú líður að því að menn þurfi að gera skattframtöl sín. Það hefur mörgum fundist snúið í gegnum tíð- ina að fylla út skattskýrsluna. Þetta er þó hlutur sem menn verða að kunna einhver skil á. Tölvuskóli Reykjavíkur býður upp á námskeið í gerð skattframtala. Þar er farið yfir helstu ákvæði skattalag- anna, útreikning á tekju- og eignar- skatti, rétt til endurgreiðslna eins og vaxtabóta og barnabóta. Gerð eru raunhæf skattframtöl og fólki kennt að fylla út allar þær skýrslur sem skila þarf með framtali. SKYNDIHJÁLP Það er alltaf að sannast að öllum er nauðsyn að kunna eitthvað fyrir sér í skyndihjálp. Hvernig á að bregðast við ef fólk kemur að um- ferðarslysi? Eða ef stendur í sessu- nautnum? Hvað á að gera ef einhver slasast í útilegunni? Það geta komið upp þær stundir þegar líf veltur á því að fólk kunni til verka og viti hvað á að gera. Námsflokkarnir eru með nám- skeið í skyndihjálp. Þar eru bæði bókleg kennsla og verklegar æfing- ar í almennri skyndihjálp við slas- aða og sjúka. Einnig er farið yfir hvernig bregðast skal við, verði stór- slys eða náttúruhamfarir. REIKI Gudrún Ólafsdóttir reikimeistari heldur námskeið í reiki. Reiki er al- heimsheiti á ákveðinni heilunarað- ferð þar sem fólk fær aðgang að al- heimsorkunni, sem á að örva mjög vitundarþroska fóiks. Námskeið Guðrúnar heita „reiki eitt“ og „reiki tvö“. Það fyrra er opn- un og innsigling en það síðara veitir aðgang að orku á hærri tíðni og er jafnframt aðferð til að senda svo- kallaða heilunarorku. Yfirleitt eru þessi námskeið haid- Dans Nýjung WTHE OlJTSIDEll S“ mætt til starfa á ný Við erum öðruvísi en aðrir skólar; við kennum CLUB, HOUSE, FUNK, MODERN og allt það nýjasta í dansheiminum hverju sinni. Afhending skírteina laugardaginn 11. janúar kl. 13-18 í Dans Nýjung á 3. hæð í Kringlunni. Kennsla hefst mánudaginn 13. janúar. „The Outsider's" Dans Nýjung er eini dansskólinn, sem sérhæfir sig í barna - og unglingadönsum. 10 vikna námskeið 2x í viku Kennarar með margra ára reynslu Aldurshópar: 7—9 ára, 10—12 ára, 13—14 ára, 15 ára og eldri. Sér strákatímar!! Dans Nýjung „Outsider's" er ekki í FÍD né DSÍ. Ath.: Munið Barnabæ á daginn í Kringlunni. Allt fyrir barnið í dansi, leik, söng o.fl., o.fl. frá 5 ára aldri. in um helgi en að öðrum kosti verða þau haldin þrjú kvöld í miðri viku. RÉTT LÍKAMSBEITING í allri vinnu skiptir rétt líkamsbeit- ing miklu máli. Það er ekki sama í hvernig stellingum er unnið eða hvernig bakinu er beitt þegar þung- um hlut er lyft. Mikið af þeim kvill- um sem hrjá nútímamanninn í dag má einmitt rekja til kyrrsetu og vit- lausrar líkamsbeitingar. Hjá Námsflokkum Reykjavíkur er hægt að komast á námskeið í lík- amsbeitingu. Hún er kennd bæði verkleg og bókleg. Farið er í gegn- um vinnustellingar, lyftitækni og mikilvægi réttrar líkamsstöðu. Þetta er ugglaust námskeið sem mundi margborga sig fyrir marga að fara á. L'ORÉAL 0.VUÍ Q*\#|TAt 5 d. VI IMV. ammóiTdS HEJE-SHAMPOO loréa. UOREAL

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.