Pressan - 09.01.1992, Blaðsíða 40
40
FIMMTUDAGUR PRESSAN 9. JANÚAR 1992
ólíkindum
— Það kostar sitt að
halda uppi þeim 27 vá-
tryggingarfélögum sem
leyfi hafa til starfrækslu hér
á landi. Árið 1990 hljóðaði
liðurinn „umboðslaun og
kostnaður’’ hjá þeim öllum
upp á samtaís 1.692 millj-
ónir króna, einn komma
sjö milljarð. Þar af var þessi
liður upp á samtals 1.130
milljónir hjá aðeins tveimur
félögum — Sjóvá-Almenn-
um og Vátryggingarfélagi
íslands. Fimmtán félaganna
voru rekin með samtals
289 milljóna króna tapi, en
tólf með samtals 327 millj-
óna króna hagnaði. ..
— Tölur yfir selt vín
fyrstu niu mánuði ársins
eru komnar. Bjór er á leið-
inni út, sömuleiðis brenni-
vín og séníver. Af algeng-
um tegundum sem sækja
mest á eru léttvinin, bitter-
ar, madeira, romm og, jú
einmitt, kampavín. Spyrjið
bara Davíð. . .
— Bráðabirgðatölur yfir
mannfjöldann á íslandi 1.
desember hafa litið dagsins
ljós. Reykvíkingar mældust
99.653, sem er fjölgun um
2.084 eða 2,14 prósent.
Þetta er fjölgun um 40
stykki á viku, tæplega 6 á
dag. Með sama áiramhaldi
fæðist (eða flyst til borgar-
innar) hundraðþúsundasti
borgarbúinn síðla kvölds
29. júlí árið 1992. Yfirgnæf-
andi líkur eru á þvi að
þessi merkilegi borgarbúi
verði afkvæmi aðfluttra
hjóna frá Suðureyri...
Við seljum það ekki dýrar
en við keyptum, en óáreiðan-
legar heimildir fregna að rík-
isstjórnin muni brátt gefa út
yfirlýsingu um ýmsar breyt-
ingar í frjálsræðisátt. Meðal
þess sem ákveðið hefur verið
að gera er:
1) Verktöku fyrir Varnarlid-
id verður dreift. Hingað til
hafa íslenskir aöalverktakar
séð um framkvæmdir og
Keflavíkurverktakar um við-
hald. Hér eftir verður ístaki
og Ármannsfelli hleypt inn á
þennan markað.
2) Samkeppni í flutningum
verður örvuð. Það verður
gert með því að banna að
markaðshlutdeild Eimskipa-
félagsins fari upp fyrir 70 pró-
sent. og með því að Flugfélag-
id Ernir og Flugfélag Austur-
lands fá leyfi til millilanda-
flugs.
3) Einokun ÁTVR til sölu á
víni og tóbaki í heildsölu
verður afnumin. Hér eftir fá
umboösmenn áfengis og tób-
aks að selja á skrifstofum sín-
um.
4) Losað verður um höft á
olíuverslun. Hingað til hafa
þrjú olíufyrirtœki skipt olíu-
innflutningi frá Sovétríkjun-
um bróðurlega á milli sín.
Hér eftir eiga olíufélögin þrjú
að skipta olíuinnflutningi frá
Noregi bróðurlega á milli sín.
5) Afgreiðslutími banka
verður gerður frjálslegri. All-
ir bankar eru nú opnaðir kl.
9.15, þegar venjulegt fólk er
komið í vinnu, en lokað kl.
16.00, þegar venjulegt fólk er
enn í vinnu. Hér eftir gildir sú
tilskipun að bankarnir hafi
opið frá kl. 9.05 til 16.05.
6) Ýmsar opinberar stofn-
anir verða seldar. Þeirra á
meðal Orðabók Háskólans,
Kvikmyndaeftirlit* ríkisins,
Sendiráð íslands í París, Emb-
ætti veiðistjóra, Sauðfjár-
veikivarnir, Lögregluskóli
ríkisins, Söngmálastjóri þjóð-
kirkjunnar og Hagstofa ís-
lands.
7) Ýmis verkefni hins opin-
bera verða boðin út. Nefna
má framkvæmd kosninga,
opinberar heimsóknir, mót-
töku erinda til fjárlaganefnd-
ar, mat á landbúnaðarafurð-
um, loðnuleit, hraðaeftirlit á
vegum, eftirlit með vínveit-
ingahúsum og rannsóknir á
lífríki Mývatns.
GLÖTUÐU
HLUTABRÉFIN
f GLATAÐA
BANKANUM
Það er með ólíkindum
hversu fólk er gjarnt á að
glata hlutabréfum sínum.
Meira að segja bréfum ekki
eldri en frá 1988 í jafnmerki-
legri stofnun og Útvegsbank-
anum.
Nú hefur verið höfðað mál
fyrir bæjarþingi Reykjavíkur
til ógildingar hlutabréfum í
Útvegsbanka íslands hf. Um
er að ræða 88 bréf í eigu 53
aðila, sem öll voru gefin út
23. febrúar 1988 og öll eru
glötuð og hafa „ekki fundist
þrátt fyrir mikla leit”. Nafn-
verð bréfanna er alls
1.690.000 krónur, sem fram-
reiknað telst í dag samsvara
nálægt 2,8 milljónum.
Níu bréfanna voru 100 þús-
und krónur að nafnvirði og
meðal eigenda slíkra glat-
aðra bréfa eru Tómas A. Tóm-
asson veitingamaður (Tommi
í Tommaborgurum), Útgerð-
arfélagið Akkur hf. og Hrað-
frystistöð Vestmannaeyja,
sem Sigurdur Einarsson ríki
og fleiri reka. Meðal eigenda
annarra glataðra bréfa í hinni
merkilegu fésýslustofnun eru
Haukur Hjaltason í Dreif-
ingu, Fasteignaþjónustan,
Bústoð hf. og Flutningsmiðl-
unin hf. Leggjum til að menn
passi betur upp á verðmæti
sín.
TVÍFARAKEPPNI PRESSUNNAR - 26. HLUTI
Svipurinn leynir sér ekki. Sami hörkulegi munnsvipurinn.
Sama nefiö; langt og íbjúgt. Meira ad segja sömu skegg-
broddarnir. Þad eina sem vantar er að Guðmundur H. Garð-
arsson fái sér hatt og ptri augun. Þá vœri ekki hœgt að
þekkja hann og Dustin Hoffman í hlutverki Dutch Shultz í
sundur. Dutch var sem kunnugt er glœpaforingi sem drottn-
aöiyfir ríki sínu á gullöld mafíunnar í New York. Guðmund-
ur drottnar líka yfir sínu ríki, lífeyrissjóöi verslunarmanna.
Og eins og Dutch hafði sinn ákveöna stíl meðal mafíósa
þannig hefur Guðmundur H. einnig mótað sér eigin stíl með-
al lífeyrissjóða-kónga.
PRESSAN hefur stundum
fjallað um mjög geðþekkar
tekjur forstjóra landsins.
Minna hefur farið fyrir
ábendingum um furðulegt
launamisrétti forstjóranna í
millum.
Dæmi: Einar Sveinsson,
forstjóri Sjóvár-Almennra,
hafði árið 1990 762 þúsund á
mánuði að núvirði, en Axel
Gíslason í Vátryggingarfélag-
inu 805 þúsund eða 5,6 pró-
sentum hærri tekjur. Sem er
hvað furðulegast fyrir þær
sakir að sama ár var VIS rek-
ið með 160 milljóna króna
tapi en S-A með 30 milljóna
króna hagnaði!
Annað dæmi: Sigurður
Helgason, forstjóri Flugleiða,
var með 752 þúsund á mán-
uði en Hörður Sigurgestsson,
forstjóri Eimskipafélagsins,
með 1.036 þúsund á mánuði
eða 38 prósentum hærri tekj-
ur. Samt höfðu Flugleiðir 309
milljónum króna meiri hagn-
að (77 prósent) og 5.800 millj-
ónum króna meiri veltu (84
prósent).
Þriðja og síðasta dæmi: Val-
ur Valsson, bankastjóri fs-
landsbanka, var með 787
þúsund á mánuði en Björgvin
Vilmundarson, bankastjóri
Landsbankans, með 978 þús-
und eða 24 prósentum hærri
tekjur. Samt var íslandsbanki
með 362 milljónum króna
eða 409 prósenta meiri hagn-
að.