Pressan - 09.01.1992, Qupperneq 16
16
FIMMTUDAGUR PRESSAN 9. JANÚAR 1992
Eiríkur Tómasson
hæstaréttarlögmaður
Ákærði
ekki
saksóknara
Eiríkur Tómasson hæstaréttarlögmaður, sem var skipaður
sérstakur ríkissaksóknari í máli gegn Braga Steinarssyni vara-
ríkissaksóknara og fleirum, hefur ákveðið að ákæra ekki í mál-
inu.
í bréfi sem Eiríkur hefur sent Böövari Bragasyni, lögreglu-
stjó-a í Reykjavík, segir meðal annars:
„Að lokinni athugun á máli þessu er niðurstaða mín, ekki síst
með tilliti til þeirra gagna sem aflað var með frekari rannsókn
málsins, að ekki sé tilefni til þess að gefa út ákæru í því. Ástæð-
an er sú að kærðu hafa að mínum dómi ekki gerst sek um refsi-
vert brot með því að fella tré þau, sem stóðu á mörkum lóð-
anna númer 53 og 59 við Safamýri hér í borg, hvorki sam-
kvæmt ákvæðum almennra hegningarlaga né öðrum refsi-
ákvæðum."
Snemma á síðasta ári sagaði Bragi ásamt tveimur manneskj-
um öðrum niður tré í garði nágranna síns. Þetta var kært til
lögreglu og 5. júlí í sumar var Eiríkur skipaður sérstakur sak-
sóknari í málinu. Hann fór fram á frekari rannsókn á málinu
og að henni iokinni sá hann ekki ástæðu til að aðhafast neitt
frekar og því er málið látið niður falia.
Konur í bönkum vilja jafnrétti
í kröfugerð bankamanna er sérstök jafnréttisáætlun. Þar er
tekin fyrir staða kvenna innan bankanna, en konur eru um 75
prósent starfsmanna í bönkum. Þrátt fyrir það eru engar konur
í mestu áhrifastöðunum. Þeim þykir þetta misrétti og eins eru
þær óánægðar með launamun kynjanna.
Ríkisbankarnir hafa ekki séð ástæðu til að samþykkja jafn-
réttisáætlanir. Stjórnendur þeirra segja að þeirra sé ekki þörf.
Bankamenn vilja jafna hlut kynjanna í stjórnunarstörfum og
tryggja að konur njóti sömu endurmenntunar og karlar. Jafn-
réttisnefnd skal vera starfandi til að tryggja að þessu verði fylgt
eftir. Þetta er í fyrsta sinn sem krafa um jafnréttisáætlun er sett
fram sem krafa í kjarasamningum.
Jafnréttisráði hafa borist fimmtíu jafnréttisáætlanir, frá því
að ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar ákvað að beina þeim tilmæl-
um til opinberra fyrirtækja að þau semdu slíkar áætlanir.
VERÖLD ER
RJALDÞROIA
OG GETUR EKKI
SfflÐIÐ VID
SAMNINGA
Svavar Egilsson hefur rekið Veröld í
gjaldþrot. Hann hefur neyðst til að
skila inn starfsleyfi sínu. Óvíst er
hversu miklir fjármunir glatast.
Neyðarhnapparnir ólöglegir
Tryggingastofnun ríkisins hefur í heimildaleysi borgað tug-
milljónir fyrir neyðarhnappa sem aldraðir og fatlaðir nota í
heimahúsum. Þessir hnappar komu við sögu í fréttum PRESS-
UNNAR fyrir skömmu, en það þykir líða langur tími frá því
stutt er á þá og þar til hjálp berst.
Árið 1990 borgaði Tryggingastofnun 31 milljón fyrir slíka
hnappa án þess að hafa til þess heimild á fjárlögum. Trygginga-
ráð veitti heimild fyrir greiðslunum, án þess að gert væri ráð
fyrir þeim í fjárlögum eða fjáraukalögum. Ríkisendurskoðun
hefur gert athugasemd við þessa málsmeðferð og minnt á að
það sé fjárveitingavaldsins að samþykkja slíkan kostnaðar-
auka.
Þrátt fyrir niðurskurð í hefðbundnum Iandbúnaði
Fjárfest í vélum og tækjum
fyrir milljarð á síðasta ári
Fjárfesting í vélum og tækjum í hefðbundnum landbúnaði
varð um 900 milljónir króna á nýliðnu ári, þrátt fyrir minnk-
andi bústofn og niðurskurð á framleiðslu vegna búvörusamn-
ings. Er það 200 milljóna króna aukning frá árinu áður. Þá var
fjárfest í útihúsum fyrir 450 milljónir til viðbótar.
Fjárfesting í vélum, tækjum og útihúsum í hefðbundnum
landbúnaði náði hámarki á árunum 1984 til 1987. Þá var ár-
lega fjárfest í vélum og tækjum fyrir um 1.000 milljónir og í úti-
húsum fyrir um 850 milljónir að núvirði. Þrátt fyrir niðurskurð
hefur lítt dregið úr fjárfestingu í vélum og tækjum og var
reyndar um talsverða aukningu á síðasta ári að ræða. Hins veg-
ar hefur dregið allnokkuð úr fjárfestingu í útihúsum, sem eru
öll hús nema íbúðarhús býlanna. Fjárfesting í ræktun og girð-
ingum hefur einnig dregist verulega saman á síðustu árum.
Fjárfesting í öðrum landbúnaði, þ.e. fiskeldi og loðdýrarækt,
hefur stórlega minnkað og er nú svo komið að fjárfesting
vegna loðdýra er komin í núllið. Frá 1980 til 1991 var 3,2 millj-
örðum króna varið til fjárfestingar í loðdýrarækt, en 8,8 millj-
örðum í fiskeldi, þar af 7,5 milljörðum 1985 til 1989.
Svavar Egilsson hefur ekki tekist að bjarga rekstri Ferðamiðstöðvarinnar
Veraldar og hann bað um gjaldþrot í dag. Þeir farþegar sem áttu að fara til
Kanaríeyja í morgun á vegum Veraldar fóru á vegum Flugleiða. Veröld gat
ekki greitt flugið og ekki heldur fyrir gistingu ytra. Eins er ógreidd gisting
fyrir þá sem eru á Kanaríeyjum. Þeir farþegar eiga á hættu að vera reknir
út af hótelunum greiði þeir ekki gistinguna sjálfir.
Svavar Egilsson í Veröld
hefur játað sig sigraðan og
óskað eftir að fyrirtækið
verði tekið til gjaldþrota-
skipta. Svavar gat ekki staðið
við gerða samninga um Kan-
aríeyjaferðir. Þeir farþegar
sem áttu að fara á vegum Ver-
aldar til Kanaríeyja fóru út á
vegum Flugleiða. Veröld gat
ekki greitt fyrir flugið og ekki
heldur fyrir gistingu ytra.
Farþegarnir eru allir búnir að
greiða ferðirnar að fullu. Alls
eru þetta sjötíu og átta far-
þegar sem hafa greitt fimm til
sex milljónir króna til Verald-
ar. Á þessari stundu er óvíst
hver tekur á sig kostnað
vegna ferðarinnar. Þeir far-
þegar sem eru nú á Kanarí-
eyjum eiga á hættu að verða
vísað út af hótelunum þar
sem Veröld hefur ekki greitt
gistinguna. Allt bendir til að
fólkið verði að tvígreiða.
Þetta er ekki allt. Búið er að
svipta Ferðamiðstöðina Ver-
öld heimild til að selja flugfar-
seðla fyrir flugfélög. Þetta
var gert eftir að Veröld gat
ekki staðið í skilum með
greiðslur vegna sölu á far-
seðlum. Leyfi Veraldar til
ferðaskrifstofurekstrar hefur
verið fellt úr gildi.
Það var Ijóst strax eftir ára-
mót að Veröld hafði ekki bol-
magn til að standa við skuld-
bindingar sínar.
Ferðaskrifstofan átti að
greiða fyrir flugið til Kanarí-
eyja strax eftir áramót. Þegar
greiðslur höfðu ekki borist á
þriðjudag var sýnt í hvað
stefndi. Það var síðan eftir
mikil fundahöld í gær að
ákveðið var að Flugleiðir, í
samvinnu við Úrval/Útsýn,
tækju ferðirnar yfir.
Einar Sigurdsson, blaða-
fulltrúi Flugleiða, sagði í gær
að ekki væri búið að ákveða
endanlegan frágang þessa
máls en ákveðið hefði verið
að bjarga því að farþegarnir
kæmust í ferðalög sín.
í þessari einu ferð átti Ver-
öld sjötíu og átta sæti. Búið er
að greiða Veröld ferðirnar að
fullu, samtals á milli fimm og
sex milljónir króna.
Enn er óvíst hvað er búið
að borga mikið inn á aðrar
ferðir sem á að fara síðar.
Ljóst er að þær verða ekki
farnar á vegum Veraldar.
Flugleiðir og Úrval/Útsýn
taka ferðirnar yfir.
í allan gærdag ríkti mikil
spenna um hvernig þetta mál
mundi leysast og varð ekki
Ijóst fyrr en síðdegis.
Þeir farþegar sem eru á
Kanaríeyjum þurfa væntan-
lega að greiða hótelunum
sem þeir eru á, þar sem Ver-
öld hefur ekki staðið skil á
þeim greiðslum. Eindagi
greiðslnanna er í dag.
VERÖLD SVIPT HEIMILD
TIL FARSEÐLAÚTGÁFU
Þegar Veröld gat ekki greitt
BSP-gjöldin fyrsta virka dag
ársins var strax ákveðið að
stöðva farseðlaútgáfu fyrir-
tækisins. Veröld greiddi þessi
gjöld of seint um miðjan síð-
asta mánuð. Þá var ákveðið
að fyrirtækið fengi ekki frek-
ari tækifæri.
BSP-gjöldin eru hluti flugfé-
laganna í farseðlum sem
ferðaskrifstofurnar selja fyrir
hönd flugfélaganna. Veröld
var aðeins með farseðla frá
Flugleiðum og SAS. Önnur
flugfélög höfðu hætt við-
skiptum við Veröld.
Reyndar er ekkert svigrúm
til. Ef ferðaskrifstofur greiða
ekki BSP-gjöldin á réttum
tíma eru þær sviptar heimild
til farseðlaútgáfu. Veröld
greiddi tveimur dögum of
seint og því fór sem fór.
Talsverður hluti þess sem
Veröld greiddi nú er tilkom-
inn vegna þess að Svavar Eg-
ilsson notaði farseðla frá
Flugleiðum og SAS til að
greiða með vanskilaskuldir.
TRYGGINGIN
DUGAR EKKI
Allar ferðaskrifstofur verða
að hafa sex milljóna króna
tryggingu. Tryggingin er að-
eins til að koma farþegum
sem eru staddir erlendis
heim ef ferðaskrifstofa hættir
rekstri. Þetta gerir að verkum
að þeir viðskiptavinir Verald-
ar sem hafa greitt inn á ferðir,
en eru ekki farnir út, tapa
væntanlega peningunum
sem þeir hafa þegar greitt.
„Hjá okkur gilda þær regl-
ur að við förum ekki fyrr en
búið er að greiða báðar ferð-
irnar, út og heim aftur," sagði
Einar Sigurðsson, blaðafull-
trúi Flugleiða.
Einar sagði þetta mikið
áfall fyrir Fiugleiðir. Veröld á
pöntuð sæti tii Kanaríeyja í
vetur og Flugleiðir hafa gert
ráð fyrir þeim í vélarnar.
Vegna þessara síðustu at-
burða er óvíst hvert fram-
haldið verður.
Veröld hefur verið í haröri
samkeppni við Úrval/Útsýn
með Kanaríeyjaferðirnar.
Veröld hefur boðið ódýrari
ferðir, undirboð eins og það
er kallað. Eftir __ að Veröld
stöðvast situr Úrval/Útsýn
eitt að þessum markaði,
ásamt Flugleiðum. Eins og
kunnugt er eru Fiugleiðir
einn stærsti eigandi Úr-
vals/Útsýnar.
SKANDLA ÍSLAND
OG INGÓLFUR
Svavar Egilsson óskar eftir
gjaidþroti í dag.
Svavar horfir fram á tals-
vert peningalegt tjón. Það
gera margir aðrir. Meðal
þeirra er Ingólfur Guö-
brandsson. Hann lánaði
Svavari Egilssyni í Veröld veð
í einbýlishúsi sínu fyrir um
tveimur og hálfu ári. Veðið
var vegna láns upp á sex
milljónir króna. I dag er
skuldin á milli níu og tíu millj-
ónir. Ingólfur á á hættu að
tapa um 10 milljónum króna
vegna þessa.
Þá eiga fleiri óskyldir aðilar
mikið undir. Skandia ísland
(Reykvísk trygging) á á hættu
að tapa um 16 milljónum
vegna fyrirgreiðslu til handa
Svavari.
Ekki er talið að mikil alvara
hafi fylgt tilboði þeirra feðga,
Andra Más og Ingólfs. En eins
og komið hefur fram í PRESS-
UNNI buðu þeir 40 milljónir
króna í Veröld. Svavar tók
ekki tilboðinu.
Sá eini sem þeir feðgar
voru búnir að fá til liðs við sig
var Gísli Örn Lárusson, fram-
kvæmdastjóri Skandia ís-
land, sem var búinn að lofa
að greiða tvær milljónir inn í
hið nýja hlutafélag.
Sigurjón Magnús Egilssón