Pressan - 09.01.1992, Blaðsíða 22
22
FIMMTUDAGUR PRESSAN 9. JANÚAR 1992
&VESSAN
Útgefandi
Blað hf.
Ritstjóri
Gunnar Smári Egilsson.
Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar:
Hverfisgötu 8-10, sími 62 13 13.
Faxnúmer: 62 70 19.
Eftir lokun skiptiborðs:
Ritstjórn 621391, dreifing 621395 (601054),
tæknideild 620055, slúðurlína 621373.
Áskriftargjald 600 kr. á mánuði.
Verð í lausasölu 190 kr. eintakið.
Allt í besta lagi
í PRESSUNNI í dag er sagt frá því hvernig stjórn
Síldarverksmiðja ríkisins tókst að tapa 25 milljón-
um af fé skattborgara. Stjórnarmenn veittu
óskyldu fyrirtæki lán eftir að aðrir höfðu hafnað
því en sást yfir eða kærðu sig ekki um að taka veð
fyrir láninu. Þegar fyrirtækið fór síðan á hausinn
höfðu Síldarverksmiðjurnar engar tryggingar fyrir
láninu og milljónirnar glötuðust.
Sjálfsagt þykir þetta ekki stórt mál í stjórn Síldar-
verksmiðja ríkisins. Þeir sem sitja þar í stjórn hafa
ekki kippt sér upp við það þótt þeir hafi tapað millj-
ón á dag undanfarin misseri. 25 milljónir eru því
ekki meira en tæplega mánaðartap. Eins og des-
ember að frádregnum hátíðisdögunum.
Þessir menn hafa aldrei borið neina ábyrgð á
ákvörðunum sínum í stjórn fyrirtækisins og munu
sjálfsagt ekki heldur gera það í framtíðinni. Ef
spurt er hvort nauðsynlegt sé að almenningur
greiði milljón á dag til Síldarverksmiðjanna benda
þeir út á sjó og segja að þetta sé loðnunni að
kenna. Það sé einfaldlega ekki til nógu mikið af
loðnu til að standa undir fjárfestingunum sem þeir
réðust í fyrir fjármuni almennings.
Þeir treysta á að fólk sé fljótt að gleyma. Að eng-
inn muni eftir að þeir ráku Síldarverksmiðjurnar
með sama glórulausa tapinu þegar allar þrær voru
að springa undan loðnunni.
En hvort sem fólk er fljótt að gleyma eða ekki; þá
er ljóst að Þorsteinn Pálsson er ekki lengi að því.
Og ef hann man eitthvað er hann að sama skapi
fljótur að kyngja því.
Síðastliðið vor hló hann að ósvífninni í stjórnar-
mönnum Síldarverksmiðjanna þegar þeir komu
og heimtuðu peninga úr ríkissjóði eftir að hafa rek-
ið fyrirtækið lóðrétt til andskotans, — eins og það
heitir á Landsbankamáli. Nú hlær ekki Þorsteinn
heldur nafni hans Gíslason, stjórnarformaður Síld-
arverksmiðjanna. Hann hefur fengið endurnýjað
traust Sjálfstæðisflokksins til að halda áfram á
sömu braut með Síldarverksmiðjurnar.
Þótt þjóðin sé orðin vön því að fá samskonar
skilaboð frá stjórnmálamönnum þá eru þau
óhugnanleg engu að síður. Að það skipti akkúrat
engu máli hvernig gæslumenn almenningseigna
fara með þær. Það skiptir engu máli þótt þeir sói
þeim eða týni, hendi út um gluggann eða inn í
brennsluofninn. Það er í lagi.
Það er meira að segja í allra besta lagi.
Vinnudeilur og verkalýðs-
barátta komust á nýtt stig í
vikunni. Forsagan er sú að
forráðamönnum álversins í
Straumsvík fannst ekki ein-
leikið hvað verkamennirnir
hjá fyrirtækinu voru orðnir
feitir. Þeir gerðu samnorræna
könnun á málinu og komust
að því að starfsmenn í ker-
skálunum í Straumsvík voru
um 15 prósentum feitari en
sambærilegir verkamenn í
Noregi. Stjórnendur fyrirtæk-
isins ákváðu því að taka af
þeim brauðið með morgun-
kaffinu og láta þá fá kökur í
staðinn. Til að dyija tilgang-
inn sögðu þeir þetta gert til
að mæta skakkaföllum á ál-
markaðinum vegna offram-
boðs frá Rússlandi. Verka-
mennirnir í Straumsvík létu
ekki bjóða sér þetta og fóru í
stræk. Ekki bólar á lausn í
þessari baráttu um brauðið —
eða öllu heldur; baráttunni
um vínarbrauðið.
Forráðamenn íþróttafélags
fatlaðra hafa sýnt af sér
óvanalega stórmennsku og
lagt Sighvati Björgvinssyni
heilbrigðisráðherra lið í
þrengingum þeim sem hann
hefur átt í að undanförnu. í
stað þess að skipa sér í flokk
þeirra sem ráðast á ráðherr-
ann gáfu þeir út fyrsta tölu-
blað fyrsta árgangs nýs tíma-
rits. Það ber heitið Hvati.
Dálítið undarleg og tvíræð
fyrirsögn birtist í kunnum
dálki Morgunblaðsins, Fólk í
fréttum, á sunnudaginn.
Fréttin fjallaði um Einherja,
sem er félagsskapur þeirra
sem náð hafa þeim árangri að
fara holu í höggi í golfi. Með
fréttinni var mynd af hóp
manna og önnur af feðgum,
þeim Hrólfi Hjaltasyni og
Hjalta Þórarinssyni. Yfir
þessu öllu stóð fyrirsögnin:
„Feðgar gera það reglulega".
HVERS VEGNA
Ættum við ekki
að sækja um
aðild að EB?
KRISTJÁN JÓHANNSSON REKSTRARHAGFRÆÐINGUR SVARAR
Mistakist EB og EFTA að
ganga frá samningnum um
Evrópska efnahagssvæðið
mun jarðarförin ekki fara
fram í kyrrþey, ef marka má
það fjaðrafok, sem orðið hef-
ur út af gagnrýni lögfræðinga
Evrópudómstólsins á fyrir-
hugaðan EES-dómstól. Á
meðan andstæðingar EES-
samnings bíða og vonast eftir
útfarartiikynningu leitar sér-
fræðinganefnd á vegum EB
og EFTA að leiðum til að
finna nýja lausn á dómstóla-
þætti EES-samningsins. Is-
lendingar leiða á þessu miss-
eri starf EFTA og Portúgalir,
sem eru fyrrum félagar okkar
í EFTA, leiða starf ER Portú-
galir hafa lýst því yfir að þeir
muni setja lausn á EES-samn-
ingnum á oddinn, en ljóst er
að fáar þjóðir eiga jafnmikið
undir farsælum lyktum EES-
samningsins og einmitt ís-
land. Ólíklegt verður að telja
að hægt verði að ná jafnhag-
stæðum samningum með tví-
hliða viðræðum, þar sem í
þeim mundi EB án efa þrýsta
verulega á um fiskveiðiheim-
ildir hér við land. Óþarft er
að fjölyrða um kosti EES-
samningsins fyrir íslendinga,
enda virðist mikill meirihluti
þjóðarinnar gera sér grein
fyrir því sem er í húfi, ef
marka má niðurstöður skoð-
anakönnunar, sem birt var í
desember sl. Könnunin sýnir
að um 75% þeirra, sem af-
stöðu taka, telja að EES-
samningurinn feli í sér efna-
hagslegan ávinning fyrir ís-
lendinga.
SKIPBROT EES?
Endalok EFTA gætu orðið
fyrirsjáanleg þegar á þessu
ári, þ.e. ef allt fer á versta veg
og ekkert verður úr EES og
fjórar til fimm af sjö aðildar-
þjóðum EFTA sæktu um að-
ild að EB. Flest teiknar til þess
að Finnar fari að dæmi Svía
og Austurríkismanna og sæki
um aðild að EB. Enn er óvíst
um afstöðu Svisslendinga og
Norðmanna, en skipbrot EES-
samnings mundi þvinga ríkis-
stjórn frú Brundtlands til að
taka afstöðu til aðildar á allra
næstu mánuðum. Svipaða
sögu má segja um Sviss, en
þar gæti ákvörðun um um-
sókn að EB verið borin undir
þjóðaratkvæði í desember.
VARANLEGAR
UNDANÞÁGURí
MAASTRICHT
Það er alkunna að alvarleg-
asta hindrunin við umsókn Is-
lands að EB felst í því að
hagsmunir fslendinga og
sjávarútvegsstefna EB eiga
alis ekki samleið. Um fátt er
betri samstaða hér á landi en
það að ekki komi til greina að
undirgangast kvótaúthlutun
frá Brussel og aðgang fiski-
skipa EB að iandhelginni.
Hugmyndum um umsókn að
EB, með því skilyrði að ísland
væri undanþegið sameigin-
legu fiskveiðistefnunni, hefur
einatt verið hafnað vegna
þess að það hefur verið ófrá-
víkjanleg regla við aðild að
EB að undanþágur frá Róm-
arsáttmálanum séu einungis
veittar tímabundið. Á ráð-
herrafundi EB í Maastricht í
Hollandi, sem haldinn var í
desember sl., var mörkuð
stefna um aukið efnahags-
legt, peningalegt og stjórn-'
málalegt samstarf EB-ríkja,
sem miðar að því að gera EB
að bandaríkjum Evrópu.
Hvað varðar regluna um eng-
ar varanlegar undanþágur
varð hins vegar stefnumark-
andi breyting með breyting-
um á Rómarsáttmáianum,
sem veita varanlegar undan-
þágur til handa tveimur EB-
löndum, þ.e^ Bretlandi og
Danmörku. í þeim felst að
bresk fyrirtæki þurfa ekki að
hlíta reglum EB á sviði félags-
mála, sem vinnuveitendur í
Bretlandi líta á sem stórsigur.
Hvað varðar Danmörku þá
var sett inn ákvæði, sem tak-
markar fjárfestingarfrelsi,
þannig að einungis danskir
ríkisborgarar megi eiga sum-
arbústaði í Danmörku, en
þetta hefur verið mikið hita-
mál þar í landi. Með þessu er
búið að gefa fordæmi, sem
gæti hugsanlega opnað nýja
möguleika á takmarkaðri að-
ild Islands að EB, án aðildar
að fiskveiðistefnu EB. Þessi
leið gæti verið ástæða til þess
að kanna nánar þar sem með
henni fengist enn meiri efna-
hagslegur ávinningur en með
EES. Þetta rennir einnig frek-
ari stoðum undir hugmyndir
Frans Andriessen í fram-
kvæmdastjórn EB um svo-
kallaða „dótturaðild" að EB,
sem byggist á svipuðum hug-
myndum um takmarkaða að-
ild að bandalaginu.
NÝ STEFNA í
EVRÓPUMÁLUM
Framkvæmdastjórn EB
hefur lýst yfir, að hún muni
meðhöndla umsóknir EFTA-
ríkjanna í einu og bíða með
að fjalla um þær fram eftir
þessu ári á meðan von er á
fleirum. Fari svo að EES-
samningurinn verði að engu,
þá liggur fyrir að íslendingar
verða að móta nýja stefnu í
Evrópumálum og þá hlýtur
ríkisstjórnin að verða að taka
ákvörðun um afstöðu til tak-
markaðrar aðildar að EB.
Maastricht-fundur EB hefur
að sumu leyti breytt forsend-
unum fyrir þeirri ákvörðun,
sem gætu leitt til þess að ekki
sé lengur óhugsandi að ís-
lendingar verði með í þessari
lotu hópumsókna EFTA-
landa og geti þá orðið „aðil-
ar“ að EB árið 1995.
EES ÆSKILEGRA
Enn sem komið er eru þess-
ar hugleiðingar ótímabærar
því að Evrópska efnahags-
svæðið hefur fengið gálga-
frest a.m.k. til mánaðamóta
febrúar-mars. Tilkoma EES
mundi slá á frest ákvörðun-
um um umsókn íslands að EB
og gefa íslensku atvinnu- og
efnahagslífi tóm til þess á
næstu árum að aðlagast
breyttum viðskiptaháttum og
aukinni samkeppni. Þær
framfarir, sem orðið hafa
með lækkun verðbólgu,
vekja vonir um að ekki sé að-
eins um að ræða sóttarhlé
heldur varanlega lækningu á
því þjóðarmeini, sem verð-
bólga hefur verið í íslensku
efnahagslífi. Ef efnahags-
svæðið verður að veruleika
fær íslenska þjóðin dýrmæt-
an tíma til að undirbúa sig
betur fyrir samkeppni þjóð-
anna og undirgangast aukinn
aga í efnahagsmálum. Gangi
þetta allt eftir, verðum við þá
fyrst vel í stakk búin til að
taka afstöðu til þess á seinni
hluta þessa áratugar í ljósi
breyttra aðstæðna hvort
æskilegt sé að við sækjum
um aðild að EB eða ekki.
Nú stefnir allt í aö flest EFTA-rikin
utan íslands sæki um aðild að Evr-
ópubandalaginu. Líklegt er að
bandalagið opni fyrir umsóknum
þeirra EFTA-rikja sem áhuga hafa á
aðild innan skamms. Siðan yrði
bandalaginu lokað framyfir aldamót
og Austur-Evrópuríkjunum og þeim
löndum EFTA sem enn eru utan EB
þá gefinn kostur á að sækja um.
UC6I RiÁNT^ iAaA FÁTÆ.KRAHV/ERP.’ P€7K3At/.'KtAR
ÁfíÍÚ M 5fcE. TiC SKCMMTVWAg. f7'AA/,u ~
ER GflMtO AÐ V6ÞA LoKSiw5 HUat.'
AF stÓRVEÞDÍ JóNAS! Íg ÞÁ UGf\
ÍSLEMPiMSAR ÞDRFTU A£> LÁN
HEF 4g- sýkfr KSSA f/5RMA
téiR. \/oRIA MLTfiF fiALUP- Á 5i'í>iAíTtA
HiM5 rSL€M5KA KU>\/£lDíS !
HA H* Hr Hi' H'o
ÓGr Ft/ttíR.
r HBLuíri HA HA HA
U> MB.'kjA ' WOSÍZL'
VEiTÍp.
ÞEiAÁ
EFriRfóX
6
ro
n
ro
to
fti
c