Pressan - 09.01.1992, Blaðsíða 36
36
FIMMTUDAGUR PKESSAN 9. JANÚAR 1992
TÓMSTUNDIR
LæRA AÖ qRAÍA
siq í Fönn oq
bÚA TÍl SNjÓhÚS
& NÁMSKEIÐ
Björn Vilhjálmsson, formaður íslenska Alpaklúbbsins.
FÓTAMENNT VINSÆL
Áhugi fólks á dansi er alltaf
að aukast og nú þykir enginn
maður með mönnum nema
hann geti svifið tígulega eftir
dansgólfinu í suður-amerísk-
um dansi. Að minnsta kosti
svona sæmilega tígulega.
Þau hjá Dansskóla Jóns
Péturs og Köru sérhæfa sig í
samkvæmisdönsum. Jón Pét-
ur og Kara eru margfaldir ís-
landsmeistarar í dansi og það
virðast margir vilja láta ís-
landsmeistarana kenna sér.
Að minnsta kosti segir Kara
allt vitlaust að gera og mikla
dansvakningu meðal þjóðar-
innar. Til marks um það er sú
staðreynd að á fyrsta íslands-
meistaramótinu 1986 voru
um 100 pör skráð til keppni
en á síðasta ári voru þau 500.
Nú eru dansskólarnir að
fara í fullan gang og síðustu
forvöð að tryggja sér pláss í
tíma.
ÍTALÍA, MENNING
OG SAGA
Er nafn á námskeiði sem
Ólafur Gíslason blaðamaður
stendur fyrir í Háskólanum.
Ólafur hefur verið fararstjóri
hópa íslendinga á Ítalíu og
kynnt þeim sögu og menn-
ingu ítala, bæði að fornu og
nýju.
Ólafur fær til liðs við sig
gestafyrirlesara í þeirri við-
leitni sinni að kynna þessa
skemmtilegu þjóð, sem ítalir
óneitanlega eru.
GUAN DONG QING
Er nafn kínverskrar sýning-
arstúlku sem komin er til
landsins á vegum Módelsam-
takanna. Dong er lærð úr
módelskóla og að sögn Unn-
ar Arngrímsdóttur, formanns
Módelsamtakanna, er hún
hvalreki á fjörur sýningar-
fólks. Það verður þó ekki ein-
göngu sýningarfólk sem fær
að njóta krafta Dongs, því
hún mun einnig veita fólki
ráðleggingar á almennum
námskeiðum Módelsamtak-
anna.
HEIMSMYND í
ALDANNA RÁS
Heitir námskeið, með und-
irtitlinum „saga tímans", sem
Guömundur Arnlaugsson,
fyrrverandi rektor, heldur í
Háskólanum. Guðmundur
ætlar að fjalla um hugmyndir
manna um alheiminn fyrr og
síðar. Einnig verður dvalið
við þá heimsmynd sem nú
blasir við, frá óravíddum
geimsins að hinni smágerðu
veröld öreindanna, hug-
myndir manna um efni og
orku, rúm og tíma.
Þátttakendur þurfa að hafa
undir höndum bók Stephens
Hawkings „Sögu tímans", því
hliðsjón verður höfð af henni
á námskeiðinu.
Margoft hefur fólki verið
bent á að vera ekki að flækj-
ast upp á reginfjöll í svartasta
skammdeginu þegar allra
veðra er von án þess að vera
í stakk búið til þess. Það er
kannski í lagi að skjótast á
milli húsa í lopapeysum og
Nokia. En það er ekki útbún-
aður sem dugar á hálendinu.
Þetta vita allir. Samt gerist
það æ ofan í æ að fólk leggur
af stað vanbúið að öllu leyti.
Það hlýtur að vera miklu
meira gaman að ströggla í
vondu veðri einhvers staðar
fjarri mannabyggð vitandi
það að menn geta tekist á við
náttúruöflin.
Islenski alpaklúbburinn
stendur fyrir námskeiðum
þar sem fólki er kennt hvern-
ig á að búast til öræfaferða og
bregðast við þegar veður eru
válynd. Og þótt þú ætlir aldr-
ei nokkurn tíma hærra yfir
sjávarmál en sem nemur
hæsta punkti á Hellisheiði, þá
getur samt meira en verið að
þú hafir gaman af þessu nám-
skeiði. Þeir hjá Alpaklúbbn-
um kenna nefnilega fólki
hvernig á að búa til alvöru
snjóhús!
MIKILVÆGT AÐ KUNNA
AÐ BREGÐAST RÉTT VIÐ
„Við erum með námskeið
fyrir byrjendur þar sem við
kennum fólki hvernig það á
að ferðast í vetrarlandslag-
inu, gangandi eða á skíðum.
Hvernig velja á leiðir, meta
snjóflóðahættu og láta fyrir-
berast um nótt. Við kennum
VÍNÁTTA
STARfS"
SySTRA
hÍNÖRUN
Þegar konur koma út á
vinnumarkaðinn reynast að-
stæður þeim oft erfiðar sök-
um þess að uppeldi þeirra tók
ekki mið af þessum aðstæð-
um Þær þurfa að vera sjálf-
stæðar og geta tekið erfiðar
ákvarðanir og stundum
verða þær jafnvel að vera
óvægnar. Þá þurfa þær að
samræma fjölskyldulífið,
starfið og sínar eigin þarfir.
Sálfræðistöðin heldur í vet-
ur kvennanámskeið í sál-
fræði þar sem konum er
kennt að meta og styrkja sín-
ar sterku hliðar og takast á
við þau vandamál sem oft
koma upp í samstarfi kvenna.
Gudfinna Eydal, sálfræð-
ingur hjá Sálfræðistöðinni,
segir aðaleinkenni kvenna,
samviskusemi, greiðvikni og
næmi á tilfinningar annarra,
vera hæfileika sem séu góðra
gjalda verðir en geti engu að
síður orðið konum fjötur um
fót á vinnustað.
„Stundum eiga konur erfitt
með að vera faglegar í vinnu
vegna þess að þær eru of
uppteknar af tilfinningamál-
um. Oft á tíðum tala konur
um einkamál sín í vinnunni
og vilja jafnframt að tekið sé
tillit til einkamála þeirra á
vinnustað, sem er sjálfsagt að
fólki hvernig á að búa til snjó-
hús eða skýli og hvernig á að
tjalda við svona aðstæður.
Einnig kennum við fólki byrj-
unaraðferðir við að klífa snjó-
veggi og ísfossa sem verða á
vegi þess að vetrarlagi," segir
Björn Vilhjálmsson, formað-
ur íslenska alpaklúbbsins.
Námskeið þessi hefjast í
kringum mánaðamótin
febrúar/mars. Þeir sem
áhuga hafa á að sækja þau
verða að eiga þann útbúnað
helstan sem nauðsynlegur er
til vetrarferða. Mikilvægt er
að eiga góða skó sem hægt er
að setja á brodda. Auk þess
verður fólk að hafa með sér
klifurbelti eða klifurstól, exi
og hjálm.
„Námskeiðin fara fram um
helgar og um tíu manns á
hverju þeirra. Kennarar eru
reyndustu mennirnir úr Alpa-
klúbbnum," segir Björn.
„Hálendið gerið aðrar kröf-
ur til manns að vetri til en á
sumrin. Það er allt í lagi að
gleyma tjaldinu að sumri til
en það getur haft alvarlegar
afleiðingar á veturna," segir
Björn ennfremur.
Þeim íslendingum fer fjölg-
andi sem áhuga hafa á að
skoða hálendið í vetrar-
skrúða. Forráðamenn Alpa-
klúbbsins vilja kenna fólki að
ferðast um hálendið á örugg-
an hátt. Þeir sem hafa farið á
svona námskeið segjast hafa
upplifað náttúru landsins á
mjög svo sérstakan hátt.
Þetta fólk segir að landslagið
að vetrarlagi sé fallegra og
vissu marki, en það getur
orðið of mikið og þá fer
einkalífið að taka toll af vinn-
unni,“ segir Guðfinna.
„Námskeiðið er tvískipt.
Við byrjum á að upplýsa kon-
ur um hvernig uppeldi þeirra
og þær fyrirmyndir sem þær
höfðu mótuðu persónuleik-
ann. Síðan tölum við um það
hvernig samstarfi kvenna er
háttað á vinnustöðum. Töl-
um um vináttu kvenna, öf-
und og samkeppni, átök og
úrlausnir," segir Guðfinna.
„Sem dæmi um hvernig
eiginleikar kvenna geta orðið
þeim til trafala á framabraut-
inni má taka tvær konur sem
vinna innan sama fyrirtækis-
ins og sækjast eftir sömu
stöðunni. Þessar konur brjóta
heilann um það lengi hvernig
hin konan tæki því ef önnur
hreinlegra, kyrrðin er afar
mikil og tunglsljósið setur
ævintýralegan svip á allt
saman.
GRÓFU SIG í FÖNN
OG VARÐ EKKI KALT
Það getur skipt sköpum að
kunna að bregðast rétt við
þegar hætta steðjar að og
Vetur konungur býst til að
sýna mönnum hver það er
sem ræður. „Einu sinni ætl-
uðum við nokkur saman upp
í Botnssúlur að leika okkur í
ísklifri. Við fórum að stað
frekar seint á föstudagskvöldi
og gengum upp fjallið frá
Botni í Hvalfirði.
þeirra fengi starfið. Þær
hugsa um það hvernig sam-
starf þeirra yrði eftir á og
hvort vináttuböndin slitni.
Stundum verður svona hugs-
unarháttur til þess að kon-
urnar hreinlega hætta við að
sækja um stöðuna," heldur
Guðfinna áfram.
Sá eiginleiki kvenna að
vera næmar á tilfinningar
annarra getur stundum þró-
ast út í grimmd.
„Þessi hæfileiki kvenna til
innlifunar og að finna til sam-
kenndar með öðrum konum
er ekki alltaf af hinu góða.
Hann gerir það að verkum að
konur eiga auðvelt með að
ráðast á veiku hliðarnar hver
hjá annarri," útskýrir Guð-
finna.
„Eitt af því sem við gerum
á þessu námskeiði er að sýna
konum leiðir til að geta tekið
Það skall á mikill skafrenn-
ingur og okkur sóttist ferðin
seint og nokkrir úr hópnum
voru orðnir ansi þreyttir. Við
ákváðum þá að grafa okkur í
fönn og sofa úr okkur þreyt-
una og safna kröftum fyrir
næsta dag. Manni verður ekk-
ert kalt ef maður hefur réttan
búnað og þegar við vöknuð-
um næsta dag var komið ynd-
islegt veður og útsýnið var
ótrúlegt. Við sáum yfir allan
Hvalfjörðinn, Þingvallavatn
og Langjökul," segir Vilborg
Hannesdóttir, mikill áhuga-
maður um útivist og fjalia-
ferðir og meðlimur í Álpa-
klúbbnum.
faglega á málum sínum svo
það verði þeim sjálfum til
framdráttar," segir Guðfinna
Eydal sálfræðingur að lok-
Laxveiðimenn landsins
þurfa að halda sér í æfingu
eins og aðrir sem stunda
sportmennsku af einhverju
tagi. Og eins og svo margir
aðrir íþróttamenn æfa lax-
veiðimenn í Laugardalshöil-
inni. Nú hváir sjálfsagt ein-
hver og botnar lítið í hvert
verið er að fara. En svarið er
einfalt; í Laugardagshöllinni
æfa menn sig í að kasta flugu.
Það er Kastklúbbur Reykja-
víkur sem stendur fyrir
FLamenco'
dANSÍNN
koMÍNN TÍl
IslANds
Nú í svartasta skammdeg-
inu, þegar frostið bítur og allt
Paco Morales
flamencodansari.
er á kafi í snjó, kemur hingað
á klakann dansari frá Spáni til
að kenna Frónbúum hvernig
á að dansa flamenco og aðra
suðræna dansa. Einhverjum
kann að þykja öfugsnúið að
flytja hingað suðrænan mann
um hávetur til að kenna dans
sem upprunninn er hjá blóð-
heitum sígaunum og tötur-
um, en ekki henni Sóleyju Jó-
hannsdóttur hjá Dansstúdiói
Sóleyjar.
Dansarinn sem hér um
ræðir heitir Paco Morales og
er frá Madrid. Hann er víst
giska þekktur dansari og hef-
ur starfað með ýmsum þekkt-
um dansflokkum.
„Þetta er algjör nýjung hér
á landi og hefur aldrei verið
kennt áður,“ segir Sóley. Hún
telur íslendinga alveg geta
idansað flamenco þótt þeir
séu nú ekki beint þekktir fyr-
ir suðrænt skaplyndi, sem
margir telja nauðsynlegt góð-
um flamencodansara.
Að sögn Sóleyjar þarf fólk
ekki að hafa verið áður í
dansi til að kennslan nýtist
því. Hún sé fyrir alla og allir
geti lært þetta sér til ánægju
og yndisauka. „Þetta er fyrir
alla sem gaman hafa af dansi,
bæði byrjendur og lengra
komna."
Námskeiðið stendur yfir í
þrjá mánuði en sá tími ætti að
duga fólki til að ná viðunandi
tökum á flamencodönsun-
um.
Flamenco er mjög tilfinn-
ingaríkur dans og margir
kannast við atriði úr kvik-
myndum þar sem fólk tjáir
líðan sína í örum og heitum
dansi, og rífst jafnvel heiftar-
lega.
Allir þurfa að fá útrás fyrir
tilfinningar sínar og fyrir ein-
hverja er flamenco ef til vill
kjörin leið. Það ætti að
minnsta kosti að vera gaman
á Spáni næsta sumar hjá
flamencodönsurum útskrif-
uðum frá Paco.
kennslunni og menn þar á
bæ segja aðsóknina mikla.
Það er töluverð kúnst að
kasta flugu svo vel sé. Menn
eru misjafnlega lengi að kom-
ast upp á lagið, en töluverða
þjálfun þarf til að verða veru-
lega góður. Það er að sjálf-
sögðu ekki hægt að kenna
mönnum hvernig á að veiða.
En með réttri tilsögn og með
reynslunni auka menn mögu-
leika sína á að krækja í þann
stóra.
Guöfinna Eydal og Álfheiður Steinþórsdóttir sálfræðingar
um.
NÁMskeið fyRÍR veíöímenn