Pressan - 09.01.1992, Side 43
43
______FIMMTUDAGUR PRESSAN 9. JANÚAR 1992_
LfiFIÐ EFTIR VINNU
Hljómsveitin Stútungar kom saman nú fyrir stuttu og hyggst krydda ölstofutónlistina örlítið með
nýrri dagskrá.
Stundamaman Stútunqa
NÆTURLÍFID__________________
Röðin fyrir utan Þjóðleikhús-
kjallarann er horfin og finnst
kannski sumum kominn tími til.
Hún virðist þó ekki hafa farið
lanqt því nú er röð fyrir utan
Ingolfscafé öll kvöld. Það er þó
erfitt að trúa því að þar sé sama
röðin komin; þótt fólkið sé á
svipuðum aldri er það allt öðru
vísi í tauinu. Það er ekki sami
uppeldis- og heilbrigðisstétta-
svipurinn á því. Þaer stéttir eru
líklega enn í kjallaranum. Og
þar eru líka einstaka skáld sem
halda að árið 1972 fari að renna
upp. Og Rabarbara-Rúna. Hún
er í diskótekinu. Það er bara
engin röð lengur. Það er eins og
gengi þessa fólks hafi fallið.
POPPIÐ______________________
Nýja árið byrjar rólega, svona
rétt á meðan fólk er að ná sér
Allmargar hljómsveitir
hafa það fyrir iðju að
skemmta landslýð meðan
hann kneyfar ölið. Haft er fyr-
ir satt að efnisskrá sé oft á tíð-
um svipuð, ef ekki eins, og
eru nýjungar oft illa liðnar af
áheyrendum sem heimta
gamla góða Cocaine eða
álíka ofspilaðar ballöður. ÖI-
stofugestir eiga hins vegar
von á að heyra ferskari lög á
næstu vikum og er það
hljómsveitin Stútungar sem
hyggst gauka hressileikanum
að fólki á nýja árinu. Þeir
ætla að byrja á Gauk á Stöng
en spila svo á flestum stöðum
þar sem boðið er upp á lifandi
tónlist.
„Við ætlum aðallega að
skemmta öðrum og sjálfum
okkur í leiðinni," sögðu kapp-
arnir þegar PRESSAN leit inn
á æfingu. „Þetta á aðeins að
vera stundargaman."
Þeir ætla að flytja gamalt
rokk og nýtt en meðlimir
segjast eiga það sameiginlegt
að vera alætur á tónlist. Ný
lög sem þeir ætla að taka eru
til dæmis eftir hljómsveitir
eins og Nirvana, sem hefur
slegið í gegn í Bandaríkjun-
um, Red hot chilli peppers,
Metallica og Black Crows.
Gamlir félagar fá nú samt að
fljóta með, til að mynda Guns
and Roses og Deep Purple.
Meðlimir eiga ættir að
rekja til nokkurra hljóm-
sveita sem þekktar eru um
alla landsbyggð. Þetta eru
þeir Richard Scobie, Dagur
Hilmarsson, Einar Rúnars-
son, Björgvin Ploder, Þorgils
Björgvinsson og Sigurður
Kristinsson.
eftir jólagleðina. Veitingahúsin
svíkja þó ekki þá sem vilja
skemmta sér um helgina og
hlusta á lifandi tónlist. Blús og
djass eru þungamiðja þeirra
tónlistarvinda sem blása um
Púlsinn og er von á gesti frá
Chicago á naestunni. í kvöld
spilar stórgóður saxi, Halldór
Pálsson, en hann hefur farið
víða og starfað. Hann er stadd-
ur hér í stuttri heimsókn og ætl-
ar að gleðja okkur í myrkrinu.
Halldór hefur starfað með ekki
ófrægari hljómsveit en ABBA
og kann að sögn kunnugra ým-
islegt fyrir sér í faginu. Vinir
Dóra verða á Púlsinum föstu-
dags- og laugardagskvöld og
ætlar Richard Scobie að kíkja
til þeirra og blúsa með.
Það verður ný dagskrá á hverju
kvöldi á Blúsbarnum sem byrj-
ar í kvöld á Alfreð Alfreðssyni
og hans tríói. Alfreð spilar
djass af lífi og sál en með hon-
um eru þeir Jón Möller píanó-
leikari og Bjami Sveinbjörns á
bassa. A föstudag verður blús-
að, blúsað og blúsað. Það eru
þeir Björn Thoroddsen, James
Olsen, Einar Valur Scheving
og Bjarni Sveinbjörns sem
verða í þeim hamnum. Laugar-
dagskvöldið fer í blús og rokk
en á sunnudag kemur Andrea
Gylfa og hennar lið.
Gaukur á Stöng ætlar að bjóða
upp á spennandi dagskrá og í
kvöld mæta þar til leiks Stút-
ungar, ný hljómsveit, en með-
Bathgate
Lífið í undirheimum amer-
ískra stórborga á krepputím-
anum ól af sér unga menn
sem töldu að glæpir og ekk-
ert nema glæpir væri það
sem kæmi þeim áfram í lífinu.
í nýjustu mynd Roberts Ben-
ton („Kramer vs. Kramer" og
„Places in the Heart"), Billy
Bathgate, eru völd, virðing
og glæsilifnaður það sem
helst heillar hinn unga mann.
Billy (Loren Dean) er eitil-
harður, klár náungi sem fer
eftir innsæinu. Hann kemst
inn undir í bófaklíku Dutch
Schultz (Dustin Hoffman) og
hyggur það vera vegabréf sitt
inn í hið ljúfa líf. Strákurinn
er fljótur að læra og hefst til
vegs og virðingar undir stöð-
ugu eftirliti foringjans. Bo
limir þó allflestir þekktir úr tón-
listarbransanum; Richard
Scobie, Dagur Hilmarsson og
fleiri úr Sniglabandinu (sem er
í tímabundinni hvíld). Um helg-
ina er það að segja að Sú Ellen
verður allt í öllu og skipa sveit-
ina æði efnilegir ungir piltar.
Tónlist á Gauknum á hverju
kvöldi.
Á Tveimur vinum spilar Loðin
ÆSKUMYNDIN
Einu sinni heföi verið hœgt að notast við Bjögga í
Ný danska. Fyrir tæpum aldarfjórðungi hefði það
gengið. En þá var Ný dönsk ekki til og helmingur
sveitarinnar ekki einu sinni fœddur. Nú þegar þeir
eru mœttirá svœðið, eins og eftirmyndir Bjögga, er
hann hins vegar orðinn allt annar. Heitir Björgvin
Halldórsson og er ráðsettur dœgurlagasöngvari.
Eftir tuttugu ár hittir hann hins vegar strákana í Ný
danskri og gengur í bandið. Það er spá
PRESSUNNAR.
„Billy Bathgate" er um amerískan glæpaheim krepputímans.
Weinberg (Bruce Willis) og
Drew Preston (Nicole Kid-
man) eru nákomin honum og
Billy áttar sig á að hver og
einn þarf að passa eigið
skinn.
Stórmynd með stórleikur-
um, byggð á bók E.L. Doc-
torow. Myndin tafðist í
vinnslu og það var heilmikið
slúðrað um hana, en hún hef-
ur fengið ágæta dóma. Frum-
sýning hérlendis á föstudag í
Bíóborginni.
rotta hart rokk bæði helgar-
kvöldin en þar verður Ingólfur
Guðjóns á hljómborð, Siggi
Gröndal á gítar, Jóhannes
Eiðsson syngur, Bjarni Bragi er
á bassa og Sigfús Óttarsson
verður þessi með kjuðana. Sá
síðasttaldi er yngstur meðlima
Rottunnar, en hann spilaði
með Baraflokknum á sínum
tíma og var líka í Rokkabillý-
bandinu.
Fógetinn hyggst vera með
svipaða dagskrá og venjulega
og þar er alltaf lifandi tónlist um
helgar.
Borgarvirkið er aðalkántrýstað-
urinn og verður dynjandi
sveitatónlist alla helgina. Ný
hljómsveit treður upp og eru
þar Viðar Jónsson og Þórir Úlf-
arsson í broddi fylkingar. Viðar
er með röddina í lagi og Þórir
lofar að töfra ótrúlegustu hljóð-
Inga Hildur
Haraldsdóttir
leikkona
Hvað ætlar þú að gera
um helgina?
„Ég œtla að fara meö
dóttur minni í bíó. Maður
er líka farinn að hugsa
um að draga fram skíðin,
en það er langt síðan ég
hef farið á djammið og
œtli ég fari því mikið
þessa helgi. Á sunnudag-
inn er ég svo að vinna, en
núna er ég að leika í
barnaleikriti sem heitir
Ævintýrið. Já, ég er víst
ráðin í vinnu um helg-
ina!“
Fram úr
hófi ruglað
„Rugl í ríminu" er heiti á
austurrískum farsa eftir Jo-
hann Nestroy, sem Borgar-
leikhúsið tekur til sýningar
næstkomandi sunnudag.
Umgjörðin er hugguleg og
íburðarmikil, glæsilegir bún-
ingar og mikil leikmynd. En
atburðarásin er hröð, byggist
á misskilningi og flækjum,
menn eru teknir fyrir konur
og öfugt, og segir nafnið
kannski mest um innihald
verksins.
Magnús Ólafsson er í einu
hlutverkanna, stendur í
fyrsta sinn á fjölum Borgar-
leikhússins og segir það
mikla upphefð fyrir sig.
„Ég var beðinn að leika í
þessu verki og þegar maður
er beðinn að leika í Borgar-
leikhúsinu getur maður ekki
sagt nei. Þetta er harður hóp-
ur að komast inn í og ég er
ánægður með að fá að
spreyta mig þarna. Þetta er
eins og að komast í 20 manna
landslið."
Því var ljóstrað upp að
verkið snerist um tvo unga
menn sem fara í leyfisleysi til
Vínarborgar. Þar lenda þeir í
ótrúlegustu ævintýrum og
hitta fyrir ýmsa sem hafa
skelfileg áhrif á gang mála.
Ruglið verður yfirþyrmandi
og allt gert til að virkja hlát-
urtaugar sýningargesta.
Alls taka 15 leikarar þátt í
sýningunni og er leikstjóri
Guðmundur Ólafsson. Þránd-
ur Thoroddsen sá um leik-
gerðina og hefur hann ís-
lenskað orðaleikina þannig
að þeir ættu að komast vel til
skila.
færi upp úr hljómborði sínu.
Bjarni Ara kemur bæði föstu-
dags- og laugardagskvöld og
Anna Vilhjálms kíkir ef til vill á
föstudag. Þar verður víst mikið
brallað það kvöldið
Fjörukráin í Firðinum hyggst
heldur betur taka árið með
trompi undir kjörorðunum: „Við
blásum á bölmóðinn og bjóð-
um til veislu." Það verður
drukkiö öl á þjóölegan máta, úr
ósviknu ærhomi, og matur
verður í stíl. Þeir Rúnar Júl og
Þórir Baldurs ætla að poppa,
auk þess sem Johnny King og
fólagar verða með í trallinu.
Þjónustuliðið er víst söngglatt
líka.
Dansleikur verður í Súlnasal
VlÐ
MÆLUM
MEÐ
Að Landabankinn beiti gagn-
rýni sinni jafnt ó íslendlnga
sem Rússa
Ef hann hefði hafnað íslending-
um á sömu forsendum og Rúss-
um nú, þá stæði hann vel
Ávöxtum
góðir í skammdeginu, hægt að
borða þá standandi og um-
búðirnar eru lifrænar
Wm
WtfSI
Fleiri frídögum
dagur Ingólfs Arnarsonar,
frídagur bænda eða dagur
Steingríms Hermannssonar
væru vel þegnir
Að sumrinu verði dreift
aðeins um árið
smáhitabylgja í janúar kæmi
sér vel
í N N í
Vindlar. Og margt fleira sem
gerir menn mannalega; axla-
bönd, hringir, koníak. Þeir
segja að þetta fylgi kreppunni.
Þá er um að gera að bera höf-
uðið hátt. Ef þú smælar fram-
aní heiminn þá smælar heimur-
inn framaní þig, sagði einhver.
Og þetta virkar á alla kanta: Ef
þú berð þig borginmannlega
heldur heimurinn að þú eigir
eitthvað undir þér. Ekki þó
lengi, því upp komast svik um
síðir. En það er notalegt
á meðan er.
Allt tal um áramótaskaupið.
Hafið þið tekið eftir því? Það
minnist ekki nokkur maður á
það. Öðruvísi mér áður brá.
Einu sinni var hægt að bjarga
sér langt fram á vor með því
að brydda á skaupinu. Fólk
reifst um skaupið og startaði
jafnvel ritdeilum um það. Nú er
það að minnast á áramóta-
skaupið orðið trygg leið til að
standa úti í horni allt kvöldið.
Það er eins og að tala um ásta-
mál Jóns Óttars Ragnarssonar,
Gísla á Uppsölum eða Hauk
Halldórsson — bæði tröllateikn-
arann og bændahöfðingjann.