Pressan - 21.05.1992, Síða 9
FIMMTUDAGUR MtKSSAN 21. MAÍ 1992
9
Magnús Garðarsson
N01ABIIÍTIGAN6S-
Þessa dagana streyma um
braskaramarkaðinn furðuleg
skuldabréf. Um er að ræða röð
sjálfskuldarskuldabréfa þar sem
skuldarinn er kunnur útigangs-
maður, ,Jón á röltinu", og eru
bréfin kennd við hann. Bréfin
eru 20 talsins að andvirði
500.000 krónur hvert, þannig að
þessi röð skuldabréfa er upp á
10 milljónir króna. Þeirra hefur
fyrst og fremst orðið vart á bOa-
sölum og hefur tekist að koma
nokkrum þeirra úr umferð.
Samkvæmt heimildum
PRESSUNNAR er útgáfan að
undirlagi Magnúsar Garðars-
sonar, sem hefur komið víða
við sögu áður. Hann var meðal
annars einn af þeim sem tengd-
ust Flögubergsmálinu svokall-
aða, sem undanfarið hefur verið
í viðamikili rannsókn hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins. Magnús
hefur boðið þessi bréf í bOavið-
skiptum.
„VORUM NÆRRI ÞVÍ
PLATAÐIR AFTUR“
„Það munaði ekki miklu að
Magnús plataði okkur aftur,“
sagði starfsmaður hjá fyrirtæki í
ReykjavOc. „Við vorum með bfl
á sölu sem átti að kosta um
400.000 krónur en fengum til-
boð upp á 500.000 krónur og
greiðslan átti að vera með þessu
skuldabréft. Jafhframt var tekið
fram að við ættum að greiða
sölulaun. Bankinn var búinn að
gefa grænt ljós þegar við fyrir
tilviljum fréttum af því hverjir
voru þama á ferð.“ Þessi ffam-
vinda er dæmigerð fyrir at-
burðarásina þegar slík bréf em
boðin, en þá er oft boðið tölu-
vert hærra verð en er á bflunum
og þannig reynt að höfða til
græðgi manna.
Eins og áður segir var skuld-
ari á bréftnu útigangsmaður, Jón
Arnason, sem við yfirheyrslur
hefur játað að hafa skrifað upp á
þennan fjölda bréfa og þegir
fyrir tvær flöskur af áfengi. Með
Daníel Ben Þorgeirsson:
Segist vera hættur þessum
viðskiptum.
honum á bréfin skrifuðu tveir
aðrir sem sjálfskuldarábyrgðar-
aðilar og virðist svipað vera
ástatt um þá. Allir þessir menn
em með „hrein“ nöfn á skuld-
aralistum.
EKKIFYRSTA SKULDA-
BRÉFASERÍAN
Þetta er ekki í fyrsta skipti
sem Magnús stendur í viðskipt-
um með einkennilega pappíra,
því ekki er langt síðan PRESS-
AN sagði frá því er hann og Jón
Ellert Tryggvason keyptu fyrir-
tæki með pappíra í „Rolfser-
íunni“, sem var gefm út á Aðal-
stræti 16 á Akureyri. Þeir papp-
írar innheimtust að sjálfsögðu
ekki og tapaði viðkomandi and-
virði fyrirtækisins.
Þá tengdist Magnús mikið
Flögubergsmálinu, en eftir því
sem komist verður næst er talið
að umfang þeirra svika hafi
numið um 40 milljónum króna.
Rannsókn málsins er ekki lokið,
en til upprifjunar má nefna að
Flögubergsmálið snerist um
skuldabréfaútgáfu á samnefnt
fyrirtæki sem hafði enga starf-
semi með höndum. Inn í það
fléttuðust fyrirtækin T.K. Vil-
hjálmsson hf. og Sv. Jónsson
hf„ sem virðast hafa verið gervi-
fyrirtæki.
Samkvæmt heimildum
PRESSUNNAR stóð Magnús
nærri þeim sem höfðu frum-
kvæði að Flögubergsmálinu og
inn í það hefur blandast rekstur
Bónus-borgarans, sem þeir
Magnús og Jón Ellert ráku á
tímabili. Mun jafnvel hafa verið
notað virðisaukaskattsnúmer
Flögubergs við þann rekstur.
Það skal tekið firam að þetta er
óviðkomandi núverandi rekstr-
araðila skyndibitastaðarins.
ÁSAKAÐUR FYRIR AÐ
STELA SKÓLAGER
Þá hefur PRESSAN einnig
heimildir fyrir því að útbúin hafi
verið kæra á hendur Magnúsi
vegna meints þjófnaðar og grip-
deilda. Kæran er ítrekun á eldri
kvörtun, en tekið skal fram að
rannsóknarlögreglan hefur ekki
móttekið hana þannig að engin
rannsókn fer fram á því máli.
Við fyrstu sýn gæti því virst
sem hún væri notuð í einhverju
uppgjöri milli fynum samstarfs-
manna.
Var Magnús þá í samfloti
með Daníel Ben Þorgeirssyni
og er þeim gefið að sök að hafa
í apríl 1989 fjarlægt úr húsi
Bílasölu Hafnarfjarðar, Dals-
hrauni 1, skólager að verðmæti
1.600.000 krónur. Lagerinn var
síðan seldur áfram fyrir 700.000
krónur og er viðtakandi lagers-
ins einnig kærður fyrir að hafa
SKULDABREF
med lánskjaravisltölu
J5r> Arnéton.
AUvLurDrún 6 Rvk.
kt-3C0641-4909.
MEÐ VEOI í LAUSAFÉ OGÆBA J
SJALF'SKULDARÁBYRGO I
Þetta er eitt þeirra bréfa sem um ræöir og voru gefin út á
„Jón á röltinu".
tekið við honum. Lagerinn áttu
)xir tveir að flytja á milli staða
með fyrrgreindum afleiðingum.
Samstarfsmaður Magnúsar í
þessu skólagersmáli, DaníeL
Ben Þorgeirsson, hefur áður
verið til umfjöllunar í PRESS-
UNNI. Það var eftir að hann
keypti veitingastaðinn Americ-
an Style í Skipholti á miðju ári
1988. Var hann kærður til rann-
sóknarlögreglunnar fyrir þau
viðskipti. Hann hafði greitt með
sviknum skuldabréfum en eftir
miklar aðgerðir tókst að láta
kaupin ganga til baka. Kom þar
meðal annars fram að Daníel
hafði veðsett tæki frá fjármögn-
unarleigunni Glitni fyrir kaup-
unum.
í samtali við PRESSUNA
sagði Daníel að hann væri að
fullu hættur afskiptum af „slík-
um“ málum. Hann sagðist hins
vegar ekki skilja á hverju kæra
út af skólagemum ætti að byggj-
ast. Á sínum tíma hefði skóla-
gerinn verið greiðsla vegna við-
skipta með pizzustað á Skóla-
vörðustíg. „Það var síðan
Magnús sem keypti lagerinn af
mér og borgaði með ónýtum
skuldabréfum," sagði Daníel.
TENGDIST LEVI’S-INN-
FLUTNINGNUM
Það er ekki langt síðím Magn-
ús varð að svara til saka fyrir
hlutdeild sína í „gallabuxnamál-
inu“ svokallaða, þegar falsaðar
Levi’s-gallabuxur voru seldar
víða um land en þó einkum til
KA- manna á Akureyri. Magn-
ús var þó ekki innflytjandi
buxnanna en tók að sér að koma
hluta þeirra í verð. Áður rak
hann skiptimarkað uppi á
Höfða.
Þrátt fyrir mikla leit tókst
ekki að hafa uppi á Magnúsi.
Því heyrðist fleygt að hann
dveldi erlendis um þessar
mundir, en engin staðfesting
fékkst á því._______________
Sigurður Már Jónsson
Undanfarið hafa
borist inn á
bílasölur
skuldabréf þar
sem nokkrir
útigangsmenn
eru notaðir sem
skuldarar.
Þessum bréfum
hefur kunnur
braskari,
Magnús
Garðarsson,
beitt fyrir sig í
bílaviðskiptum,
en hann hefur
áður komið við
sögu í kunnum
skuldabréfa-
seríum.