Pressan - 21.05.1992, Page 12
12
FIMMTUDAGUR PRESSAN 21. MAÍ 1992
Fjársvikamál aldrei verið eins umfangsmikil
* +
Ut er komin ársskýrsla Rannsóknarlögreglu ríkisins fyrir árið 1991.1 henni kemur meðal
annars fram að samanlögð fjárhæð falsaðra víxla, skuldabréfa og tékka sem RLR bárust á ár-
inu nemur rúmlega 96 milljónum króna og hefur aldrei verið hærri. Árið 1990 var þessi fjár-
hæð ríflega 45 milljónir. Vegna gjaldþrota fyrirtækja hafa milljarðar farið í súginn.
„Á árinu var nær daglega tekið á
móti kærum þar sem einhver lýsti því
yfir að nafn hans hefði verið falsað á
skuldabréf eða víxil. Oftast voru atvik
með þeim hætti að nafn kæranda var
ritað undir yfirlýsingu á skuldabréfi um
að hann ábyrgðist greiðslu á bréfinu,
sjálfskuldarábyrgð," segir Bogi Nilsson
rannsóknarlögreglustjóri meðal annars í
inngangsorðum sínum að skýrslunni.
Nokkru færri mál bárust RLR á síð-
asta ári en árið á undan. Árið 1991 bár-
ust RLR 4.233 mál til rannsóknar en
4.912 árið 1990 og 5.202 árið 1989.
Fækkunin er aðallega í innbrots- og
þjófnaðarmálum og tékkasvikamálum.
I inngangsorðum sínum segir Bogi: „-
Þrátt fyrir fækkun skráðra mála hefur
verkefnaþungi aukist vegna þess að
rannsóknarviðfangsefni með brotum
sem varða skjöl, viðskipti og skatta eru
talsvert umfangsmeiri en áður.“
BANKARNIR GANGA AÐ
FÓRNARLÖMBUM FALSARA
Eins og PRESSAN hefur greint frá
virðist sem um skipulagða glæpastarf-
semi sé að ræða í fjársvikum hér á
landi. Grunlaust fólk er féflett af
óprúttnum náungum sem stunda við-
skipti með verðlausa og oft falsaða
pappíra. í fæstum tilfellum tekst fólki
að ná aftur eigum sínum.
Rannsóknarlögreglustjóri telur að
bankastofnanir í landinu séu alls ekki
nógu vel á verði gagnvart fölsunum og
telur að í reglum þeirra séu brotalamir.
Varúðarreglumar dugi engan veginn til
að koma í veg fyrir brot.
„Tilefni þess að kærandi Ieitaði til
lögreglunnar var oftast inheimtubréf,
venjulega frá lánastofnun, þar sem til-
kynnt var um vanskil á skuldabréfi og
hann krafmn greiðslu sem sjálfskuldar-
ábyrgðarmaður. Yfirleitt hafði kærandi
gert bankastarfsmanni grein fyrir því að
nafn hans hefði verið falsað á skulda-
bréfið. Bankastarfsmaður hafði hins
vegar gert það eitt að benda honum á að
kæra fölsun til lögreglu og bankinn
jafnvel haldið innheimtuaðgerðum á
hendur kæranda áfram þrátt fyrir yfir-
lýsingu hans um fölsunina," skrifar
Bogi. Og hann heldur áfram: „Oftast er
brotaþolinn. eða sá sem kaupir við-
skiptabréfið, lánastofnun. Hjá þeim
ættu að vera í gildi varúðarreglur sem
girða fýrir þessi fölsunarbrot. Verði brot
framið þrátt fyrir varúðarreglur ætti
lánastofnunin að sjálfsögðu að taka fúllt
mark á yfirlýsingu þess sem segir nafn
sitt falsað á viðskiptabréf og koma fram
sem kærandi í málinu."
Reinhold Krístjánsson, yfirmaður
lögfræðingadeildar Landsbankans,
sagði í samtali við PRESSUNA að
málum væri skotið á frest ef sá sem
væri verið að rukka héldi því fram að
nafn hans væri falsað og honum bent
á að kæra málið til lögreglu. Ekki
væri gengið með harkalegum inn-
heimtuaðgerðum að fólki, sem lenti í
því að nafn þess væri falsað á við-
skiptapappíra, meðan á rannsókn
stæði.
FÖLSUÐ SKULDABRÉF UPP Á
RÚMLEGA 64 MELLJÓNIR
Inn á borð til RLR barst á síðasta ári
2.221 skjalafölsunarmál.
Falsaðir tékkar eru stærstur hluti
þessara mála eða 2.043, víxlar eru 52
Bogi Nilsson rannsóknarlögreglu-
stjóri telur nauðsynlegt að huga vel
að rannsókn mála sem tengjast
gjaldþrotum.
og fölsuð skuldabréf voru 126. Saman-
lögð fjárhæð þessara pappíra er
96.629.000 krónur. Af því nema fölsuð
skuldabréf vel rúmlega 64 milljónum
króna Hér er eingöngu verið að tala um
mál sem bárust RLR á síðasta ári. Ekki
er tekið tillit til þeirra mála er bárust árið
1990 en voru enn til rannsóknar 1991.
Það eru níu starfsmenn í þeirri deild
er rannsakar þessi mál; deildarstjóri,
tveir deildarfulltrúar, lögreglufúlltrúi og
fimm rannsóknarlögreglumenn. Þessum
mannskap var úthlutað 683 málum á
síðasta ári en 143 mál voru til rannsókn-
ar frá árinu 1990. Samtals eru þetta 825
mál. Þessir níu lögreglumenn hafa því í
nógu að snúast. Um síðustu áramót var
talið að til rannsóknar væru í deildinni
falsaðir vfxlar og önnur verðbréf að
verðmæti um 85 milljónir króna.
PRESSAN
PRESSAN FLYTUR OG FÆR NÝTT SÍMANÚMER
Um helgina flytur PRESSAN
Nýtt heimilisfang blaðsins er
Nýbýlavegur 14.
Og eftir helgi verður PRESSAN með nýtt símanúmer:
64 30 80
Eftir lokun skiptiborðs er hægt að ná í ýmsar deildir
blaðsins.í eftirtöldum símanúmerum:
----------;--------------------------v,
TRÉ &RUNNAR
Leitið ekki lati'fjtyfir skammt!
Yfir 100 tegundir trjáplantna og runna, sértilboð á blátoppi
kr. 190, hansarós kr. 450, gljámispill kr. 150-170.
Mjög fjölbreytt úrval af sígrænum plöntum, svo sem furu,
greni og eini.
Ritstjórn:....................64 30 85
Dreifing:.....................64 30 86
Tæknideild:...................64 30 87
Auglýsingar:..................64 30 88
Nýtt faxnúmer verður 64 30 89
Og slúðurlína PRESSUNNAR verður með vakt
allan sólarhringinn í númerinu
64 30 90
Verið velkomin
— sendum plöntulista.
Trjáplöntusalan
Núpum, Ölfusi
(beygt til hægri við Hveragerði),
sími 98-34388.
__________________
Verð frá:
32.048
______
s/ Faxtækin heim
099 Nýtt heimilistæki
Kl l ÍP^ fíT) Fl Með RICOH FAX 05 og 06 eru faxtækin orðin heimilistæki
i J1 ) kÍL' LÍLJ Tækið er kjörið fyrir þá sem eru í einkarekstri eða
ricoh er styrktaraðiii vinna heima. Það er fyrirferðarlítið og þarf ekki
oiympíuieikanna 1992 auka símalínu heldur tengist beint við
símann þinn.
SKIPHOLTI 17 ■ 105 REYKJAVIK
SÍMI: 91 - 62 73 33 • FAX: 91 - 62 86 22
aco
Traust og örugg þjónusta
í 15 ár
• hraðvirkara en sambærileg tæki
• hágæða sending á ljósmyndum
• er þín eigin ljósritunarvél ofl.
Afborgunarskilmálar við allra hæfi
án/vsk
EINUNGIS ÞRÍR MENN RANN- .
SAKA GJALDÞROTAMÁL
Bogi segir í formála sínum að komið
hafi fram á norrænni ráðstefnu er haldin
var í Svíþjóð í ágústmánuði í fynra að
flest mál, og jafnframt þau fyrirferðar-
mestu, sem til rannsóknar séu á Norður-
löndunum tengist gjaldþrotum með ein-
um eða öðrum hætti. Þessi mál era orðin
æði fyrirferðarmikil hér á landi sem
annars staðar. Rannsóknarlögreglustjóri
segir óhjákvæmilegt að huga að þessum
málum og vill að þær stofnanir, sem
með rannsókn þessara mála fara, sam-
ræmi störf sín og auki samvinnu st'n á
milli. Þá vill hann auka fræðslu og þjálf-
un lögreglu og ákæravalds og „athuga
og endurskoða löggjöf svo sem refsilög-
gjöf sem lýtur að þessum málaflokki".
Það er svokölluð fjórða deild sem
hefur þessi mál á sinni könnu. Hana
skipa þrír menn; lögreglufúlltrúi og tveir
rannsóknarlögreglumenn. Þá var ráðinn
bókari til deildarinnar á síðasta ári og
einnig veitir löggiltur endurskoðandi að-
stoð við bókhaldsrannsóknir.
Á síðasta ári vora til rannsóknar 63
mál í deildinni, en rannsókn var lokið í
30 málum. I skýrslunni segir í umfjöllun
um starfsemi deildarinnar: „Við skoðun
á skiptalokum í gjaldþrotabúum á árinu
1991. þar sem skiptum er lokið án þess
að eignir hafi fundist, kemur í ljós að
tjármunir. svo milljörðum skiptir, hafa
farið forgörðum.“________________
Haraldur Jónsson
UNGFRU
ALHEIMS
ÞOKKI
1992
ICYN NING ARKVÖLD
á þáttakendum
Föstudaginn 29. maí 1992
moulin rouge